Dagur - 26.07.1929, Blaðsíða 2
122
DAGUR
31. tbl.
Til sölu
er erfðafestuland að stærð rúmar 5 dagsláttur, með peningshúsi og hlöðu
tilheyrandi dánarbúi M. J. Kristjánssonar. Semja ber við Jakob Karls-
son, Akureyri.
Akureyri, 25. júlí 1929.
Dómhildur Jóhannesdóttir.
m*
ENSKAR HÚRUR
á fullorðna og drengi.
MILLISKYRTUR
fjöldi tegunda.
KARLMANNASOKKAR
ullar, bómullar og silki.
AXLABÖND
fyrir fullorðna og drengi.
Alt nýkomið í geysi-miklu úrvali.
Kaupféiag Eyfirðinga.
aaBUBBaiiiaiHiaa
lega hrundu í framkvæmd, en sem
íhaldsmenn nú eru farnir að
eigna sér.
Framan af fundinum virtist svo
sem íhaldsmenn hefðu talsvert
meiri ítök meðal fundarmanna en
Framsókn, fór því fram um hríð
og hefðu íhaldsmenn að sjálf-
sögðu farið þaðan hinir ánægð-
ustu, ef Gísli í Skógargerði hefði
ekki orðið til þess — óviljandi þó
líklega — að snúa hugum þeirra
og beina þeim í framsóknaráttina.
Ræða Gísla var að mestu hörð og
ómakleg árás á Kaupfélag Hér-
aðsbúa, og við hana snerust hugir
fundarmanna móti Gísla og 1-
haldinu, enda tóku þeir Bjöm á
Rangá og Sveinn á Egilsstöðum
hann svo rækilega fram úr skaft-
inu og ráku hann öfugan upp í
það aftur, að Gísla varð ógreitt
um vörnina og gat ekki fundið
orðum sínum stað. Guldu fundar-
menn þeim Birni og Sveini báðum
augljósar þakkir fyrir maklega
meðferð þeirra á Gísla.
6. Fundur á Fossvöllum 5. júli.
Af þeim fundi er fátt að segja.
Halldór Stefánsson og Páll Her-
mannsson mættu »sjálfstæðis«-
hetjunum þar á hólmi. — Fund-
urinn var fásóttur, og að því er
bezt verður séð, var hrifningin
lítil yfir heimsókn fhaldsmanna.
Jón Baldvinsson mætti ekki.
7. Fundur á Mývum í Skriðdal 6.
júlí.
Þar mættu Jón Þorláksson og
Árni Jónsson; Ingvar Pálmason
fyrir Framsókn og Jón Baldvins-
son fyrir jafnaðarmenn. Fundur-
inn var fásóttur af mönnum utan
Skriðdals, en Skriðdælir fjöl-
mentu. Af fundarmönnum töluðu
þeir Þorsteinn Jónsson kaupfé-
lagsstjóri á Reyðarfirði og Þórð-
ur bóndi Kristbjarnarson á Hall-
bjarnarstöðum. Fóru fhaldsmenn
mjög halloka á þessum fundi,
því leikslokin urðu þau að í raun
og veru múlbatt Þorsteinn Jóns-
son alt hið »sjálfstæða« íhald, sem
þarna var mætt, með einni tíu
mínútna ræðu.
Þess má geta hér, að Jón Þor-
láksson áskildi séráhverjum fundi
að flytja 15 mínútna ræðu, »hlut-
lausa« — eins og hann komst að
orði — í fundarlokin. Hlutleysið
var þó ekki meira en það frá hans
hendi, að hann oft notaði þennan
tíma að meiru eða minnu leyti til
að reka ónot í mótstöðumenn sína
á fundunum, er hann vissi að þeir
fengju ekki svarað. Aðalinntakið
var þó venjulega staðhæfing, sem
gekk í þá átt, að Framsóknar-
flokkurinn engan tilverurétt hefði
og ætti hann að skiftast upp á
milli jafnaðarmanna og íhalds.
Bað hann svo fundarmenn jafnan
með nokkrum hjartnæmumorðum,
að athuga vel þessar heilnæmu
kenningar sínar, er heim kæmi
og síðan velja, hverjum þessara
tveggja flokka þeir vildu fylgja.
Á fundinum á Mýrum bar svo við,
er Jón Þorláksson hóf upp raust
sína og bað fundarmenn um að
flytja þetta verkefni heim með
sér, að einn fundarmanna, Gutt-
ormur Pálsson á Hallormsstað,
skaut því að honum, að fundar-
menn mundu eigi hafa fyrir því,
að flytja slíkar fjarstæður heim
með sér, og fanst það glögt, að
Jóni brá við — mun hafa fundið
að Guttormur hefði satt að mæla,
þó þungt væri undir að búa. — I-
haldsmenn áttu engin ítök á þess-
um fundi . —
8. Fundur á Búðum í Fáskrúðs-
firði 9. júlí.
Það hafði verið boðað til fund-
ar á Búðum þann 8.. j úlí. En Jóni
Þorlákssyni mun ekki hafa þótt
ráðlegt að senda Árna einan til
Vopnafjarðar, enda mun hann
og hafa þúrft að nota hann til
lakari verkanna á suðurfundun-
um, fundinum í Búðum var því
frestað um einn dag.
Á Búðum mættu þeir Jón Þor-
láksson og Árni Jónsson fyrir í-
haldið, Jón Baldvinsson fyrir
jafnaðarmenn, en Ingvar Pálma-
son og Sveinn í Firði fyrir Fram-
sókn. — Um þennan fund má yf-
irleitt segja svipað og um fundina
á Norðfirði og Eskifirði, að f-
haldsmenn voru í greinilegum
minnihluta. — Fundurinn var all-
fjölmennur. — Magnús sýslu-
maður var á þessum fundi, en
hann var þar aðeins til sýnis, tók
ekki til máls, enda var sýslungum
hans nú orðið fullkunnugt um
hugarfar yfirvalds síns.
9. Funckpr í Breiðdalsvík 10. júU.
Þar voru komnir hinir sömu
ræðumenn og á Fáskrúðafjarðar-
fundinum. Fundurinn var fremur
laklega sóttur, þótt þingdagur
væri, sýslumaður hélt þar mann-
talsþing þennan sama dag, enda
eiga Breiðdælingar erfiða fundar-
sókn að Breiðdalsvík og fundar-
staður er þar hinn lélegasti. —
Svo virtist sem ihaldsmenn
ættu allmikil ítök á þessum fundi.
10. Fundur á Djúpœvogi 11. júlí.
Fundur þessi var all fjölmenn-
ur. Áður en hinn eiginlegi um-
ræðufundur hófst, hélt Jón Þor-
láksson fyrirlestur um þjóðhags-
fræði. Virtist fundarmönnum
finnast fátt um fyrirlestur Jóns,
og voru þeir mjög ókyrrir í fund-
arsalnum, meðan á honum stóð.
Auk hinna venjulegu ræðumanna,
sem voru hinir sömu og á fyrri
fundunum, tók Jón Stefánsson
kennari til máls og deildi allhart á
íhaldið út af nafnabreytingunni.
Kvað hann fhaldið aldrei mundu
verða annað en íhald, undir hvaða
nafni sem það sigldi.
Fundurinn stóð yfir í 5 klst.
og kom það greinilega fram að
Framsóknarflokkurinn var í yfir-
gnæfandi meirihluta.
Kunnugur.
----o—
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu íslandi).
Rvík 23. júlí.
Rússar og Kínverjar hafa lent í
skærum á landamærum Síberíu og
Mansjúríu, þótt hvorugt ríkið hafi
sagt hinu stríð á hendur enn; stór-
veldin reyna málamiðlun.
Berlín: Her Rússa hefir hafið á-
kafaskothríð við Súífenfljót í Austur-
Mansjúríu. Chiangkaishek hefir sent
Kínaher áskorun um að berjast móti
hinum rauða Imperialisma. Rússar
hafa safnað 100 þús. mönnum við
Amurfljót. Stórkostleg samskot fara
fram á Rússlandi til væntanlegrar
styrjaldar. Kinverjar hafa handtekið
atla Rússa, eldri en 16 ára, í Char-
bin.
París: Ping Frakka hefir staðfest
skuldasamningana við Bandaríkin,
með aðeins 8 atkvæða meirihluta.
Pýzka flugvélin, D. 1422, kom
hingað til Rvikur 17. þ. m, öllum
að óvörum. Hún lagði upp mið-
vikudagsnóttina kl. 1,45 frá Sylteyju
í florðursjónum, kom til Færeyja
kl. 9,45, fór þaðan kl. 3 eftir hád.
og eygði íslandsjökla kl. 6; fór
fram hjá Vestmannaeyjum kl. 7,10
og lenti hér kl. 8,30 um kvöldið.
Hafði hún þá farið 2000 km. 4
menn voru í bátnum, flugið var
skólaflug. Vélin hafði 2 hreyfla. -
Héðan fór hún kl. 9,45 árdegis í
gær, lenti í Færeyjum eftir 4xh klst.
flug og flýgur þaðan til Edinborg-
ar í dag.
Landakotskirkja var vígð að utan
f gær, að innan í dag.
Fyrir nokkru kom til Reykjavíkur
5 manna bifreið frá Akureyri; fór
yfir Kaldadal.
Frá Hesteyri er símað, að 36
þús. mál síldar hafi verið lögð þar
upp.
------o----
Fréttir.
Júlíus Sigu/rðsson bankastjóri varð
sjötugur 18. þ. m. Júlíus hefir verið
borgari þessa bæjar rúman seinni helm-
ing æfi sinnar og gegnt ýmsum opin-
berum störfum; forstjóri Landsbanka-
útibúsins hefir hann verið, frá því
fyrsta það tók til starfa hér.
Óðinn kom hingað á föstudaginn var
með tvö norsk síldveiðiskip, er hann
tók í landhelgi á Þistilfirði. Bæði skip-
in voru aðeins kærð fyrir veiðarfæra-
brot.
Síra Ólafwr Ólafsson fríkirkjuprestur
kom fyrir nokkru hingað til bæjarins í
bifreið sunnan úr Reykjavík. 1 för með
honum var Guðmundur hæstaréttarlög-
maður sonur hans og konur þeirra.
Nova kom að austan frá útlöndum á
þriðjudaginn. Með skipinu voru prest-
arnir síra Ásmundur Gíslason á Hálsi
og síra Hallgrímur Thorlacius í Glaum-
bæ. Komu þeir af prestamóti, er haldið
var í Danmörku.
Pétur Jónsson læknir, sem gegnt hef-
ir héraðslæknisembættinu í Skagafirði
síðan í febrúar í vetur, kom hingað ti!
bæjarins í síðustu viku og hefir aftur
hafið læknisstarfsemi hér. — Héraðs-
læknirinn, Steingrímur Matthíasson, er
fyrir nokkru farinn til útlanda.
Kuppleikur fór fram í Gautaborg á
sunnudaginn var milli svenskra og
norskra knattspymumanna. Svíamir
unnu með 2: 0.
Sambandsping Ungmennaféiaga Islands.
Sambandsþingið var haldið í Þrasta-
skógi dagana 18., 19. og 20. júní s. 1.
Sátu það 22 fulltrúar víðsvegar af landinu.
Þingið hafði að þessu sinni aðallega til
meðferðar þau mál er að einhverju leyti
eru viðkomandi þjóðhátíðinni á ÞingvöII-
um næsta ár. Þar á meðal að félögin
gangist fyrir að háð verði þar bændaglíma
að gömlum íslenzkum sið, — að þjóð-
dansar (vikivakar) verði sýndir, að fólk
klæðist þar sem flest íslenzkum þjóð-
búningum o. s. frv. Rætt var einnig um
heimaiðju, íþróttir, skógrækt og ýms inn-
anfélagsmálefni. Stjórnarkosning fór eng-
in fram með því að þingið var aukaþing,
situr sama stjórn — Kristján Karlsson,
Ouðm. Jónsson frá Mosdal og Sigurður
Oreipsson.
Oistihúsið »Þrastalundurc er Elín Jóns-
dóttir hefir bygt í Þrastaskógi eftir samn-
ingi við Sambandsstjórn er prýðilegt hús
og ákjósanlegur dvalarstaður fyrir ferða-
menn. Var Sambandsþingið þar haldið.
Simun av Skarði lýðskólastjóri frá Fær-
eyjum, Jóhannes Velden prófessór í hljóm-
list frá Tjekkoslovakíu.Freysteinn Ounnars-
son kennari og fleiri gestir heimsóttu
þingið, einnig nokkrir ungmennafélagar
úr Reykjavík og viðar að-