Dagur - 26.07.1929, Blaðsíða 4
124
DAGUR
31. tbl.
Fréttir.
Slysfarir miklar hafa verið í Noregi
á síðustu dögum. Á Oslohöfn sigldi
fjarðarbátur á bát frá hollenzku her-
skipi, svo að hann sökk; fór öll báts-
höfnin í sjóinn. og varð nauðulega
bjargað. — Fjórir menn druknuðu í
baði í Noregi og einn maður fórst þac
af bílslysi. — Á sunnudaginn var
brunnu byggingar norska blaðsins
Morgenavisen í Bergen til kaldra kola.
Ein kona brann inni.
Dánwrdægur. Fyrir nokkru er látin
að heimili sínu Svalbarði Anna Líndal,
dóttir þeirra Líndalshjóna, ung efnis-
stúlka. Jarðarför hennar fór fram í
fyrradag.
Látnir eru nýlega Konráð R. Stefáns-
son læknir í Reykjavík og Ágúst Þor-
steinsson fyrv. kaupmaður. Konráð
læknir andaðist erlendis.
Veiðibjallan nefnist flugvél, sem
fiugfélagið hefir fengið til landsins í
viðbót við Súluna. Er veiðibjöllunni
ætlað að hafa eftirlit með síldargöng-
um fyrir Norður- og Vesturlandi. Hing-
að til Akureyrar kom hún á sunnudag-
inn og flaug þann dag 9 skyndiferðir
yfir bæinn og hafði 4 farþega í hverri
ferð. Stóð hver ferð yfir í 15 mínútur
og kostaði 15 krónur.
Sterkur hiti hefir verið hér suma
daga að undanförnu og ágætir þurkar.
Átakanlegt slys. Á mánudagsmorgun-
inn var ung kona, Guðbjörg Guðmunds-
aóttir, til heimilis í Oddeyrargötu 13,
að kveikja undir þvottapotti. Vildi þá
svo til að logi hljóp í olíudunk, er hún
var með og orsakaði sprengingu, svo
að rúður brotnuðu og hurðir hrukku
opnar í húsinu, en loginn læsti sig um
konuna á svipstundu. Tvær konur voru
nærstaddar og komu til hjálpar og
brendu sig eitthvað báðar, en ekki
hættulega að því sem sagt er. Við óp
Guðbjargar þusti fólk að og tókst að
slökkva eldinn, en svo var konan skað-
brunnin á höfði, brjósti, handleggjum
og höndum, að hún var þegar flutt á
sjúkrahúsið. Þoldi hún þar miklar kval-
ir og andaðist seinni hluta næsta dags
eftir sárustu þjáningar.
Guðbjörg sál. var gift Bjarna Páls-
syni bifreiðarstjóra.
Prestafundurinn, er haldinn var hér
í síðustu viku, sátu 17 prestar og tveir
kandidatar í guðfræði. Prestarnir voru
þessir: Úr Húnavatnssýslu: Jón Páls-
son, Bjöm Stefánsson og Gunnar Árna-
son. Úr Skagafirði: Hálfdan Guðjóns-
son, Amór Ámason, Tryggvi Kvaran
og Lárus Amórsson. Úr Eyjafirði:
Stefán Kristinsson, Friðrik Rafnar,
Ingólfur Þorvaldsson, Sigurður Stef-
ánsson, Gunnar Benediktsson og Matt-
hías Eggertsson. Úr Suður-Þingeyjar-
sýslu: Knútur Arngrímsson, Þormóður
Sigurðsson og Þorvarður G. Þormar.
Úr Norður-Þingeyjarsýslu: Páll Þor-
leifsson. — Kandidatarnir voru Stein-
þór Guðmundsson og Kristinn Stefáns-
son. — Þrír opinberir fyrirlestrar voru
fluttir og voru ræðumenn og ræðuefni
sem hér segir: Síra Gunnar Árnason:
»Trú og vísindi«. Séra Páll Þorleifsson:
»Dr. Jóhannes Miiller í Elman og skýr-
ingar hans 4 fjallræðunni«, Síra
irntok taka sér að gera
IIIIIUUII uppdrætti að húsum,
reikna út járnbenta steinsteypu og
veita leiðbeiningar um alt, er að
verkfræði lýtur.
BOLLI i SIGURÐUR IHORODDSEN,
verkfræðingar, Reykjavik,
Pósthólf 74. Simar 2221, 1935.
ENSKU
REYKTÓBAKS-
TEGUNDIRNAR
Richmond.
Wáverley.
Glasgow.
Capstan.
Garrick
eru góðkunnar meðal reykend-
anna um land alt.
í heil|isölu hjá
Tóbaksverslun Islands.
Tryggvi Kvaran: »Nauðsyn þekking-
ar«.
Ritstjóri Tímans, Jónas Þorbergsson,
kom hingað til bæjarins í bifreið frá
Hvammstanga 12. þ. m. Kom hann úr
fundaleiðangri um Borgarfjörð og Snæ-
fellsnes. 'Héðan fór J. Þ. austur í Þing-
eyjarsýslu á fornar stöðvar og hygst
að hverfa aftur, til Rvíkur með Brúar-
fossi næst. 1 fjarveru hans annast
Ragnar Ásgeirsson garðyrkjufræðing-
ur ritstjóm Tímans.
Jarðskjálftakipjmr fádæma snöggur
kom í Reykjavík í fyrrakvöld. Var hann
svo harður, að reykháfar hrundu, mun-
ir köstuðust niður af hillum og veggj-
um og fólk flýði hrætt út úr húsum.
Ekkert slys mun þó hafa orðið á mönn-
um
Atburður þessi skeði meðan stóð á
vígslu Landakotskirkju.
Knrlukór Reykjavikur, kom með Gull-
fossi á sunnudagsmorgunin og söng hér
á sunnudags- og mánudagskvöld fyrir
troðfullu húsi í bæði skiftin og almenna
hrifningu áheyrenda. Á mánudaginn
fór flokkurinn fram í Kristnes og
skemti sjúklingunum með söng. Var
þetta fallega gert af söngflokknum,
enda var því tekið þakksamlega. Vegna
þrengsla í blaðinu í dag, verður nánari
frásögn um söng flokksins og hingað-
komu að bíða næsta blaðs.
Leyningshólaför. Á sunnudaginn fóru
30 sjúklingar á Kristnesi skemtiför
fram í Leyningshóla. Bifreiðastöðin
Bifröst flutti ferðafólkið fram og aft-
ur ókeypis og var það höfðinglega af
sér vikið.
Hjónabönd: Ungfrú Valgerður
Björnsdóttir bankaritari og Hannes
Guðmundsson læknir í Reykjavik. —
Ungfrú Helga Egge'rtsdóttir (Jochums-
sonar) og Ludvig Kaaber bankastjóri i
Rvík. Ungfrú Baldvina Baldvinsdóttir
frá Siglufirði og Jón Jónasson öku-
niaður hér 1 hæ,
Lifil jörð eða land,
með góðum ræktunarskilyrðum, sem næst Akureyri, óskast keypt.
Tilboð með uppl. um ræktun, húsa, girðingar og fleira, sendist
ÁRNA JÓHANNSSYNI í K. E. A. fyrir 20 ág. n.k.
Farkennara
vantar í Arskógshrepp. Umsóknir sendist skóla-
nefnd, eigi síðar en um miðjan september n, k.
Sænsk
handverkfæri
Skóflur allskonar, gaflar, undirristuspaðar,
höggkvíslar, rákajárn, gref, garðhrífur o. fl. o. fl.
Sænskt stál er bezt,
SAMBAND ISL. SAMINNVUFÉLAGA.
Herfi
Diskaherfi,
Hankmoherfi,
Fjaðraherfi,
Rúlluherfi,
Rúðólfsherfi
og
Ávinnslu herfi.
Samband íslenzkra samvinnufélaga.
M a 11 ö 1
Bajersktöl ||
P i I s n e r
2ezt. — Ódýrast.
Innlent.
Gullfoss kom hingað að sunnan á
sunnudagsmorguninn með fjölda far-
þega. Skipið fór aftur að kvöldi næsta
dags. Á leiðinni hingað tafðist þaö í ís
og þoku 4 Húnaflóa.
Elephanf
CIGARETTUR
(Fíllinn)
eru Ijúffengar
og kaldar.
Mest reyktu cigarettur
hér á landi.
M U N D L O S-saumavélar
eru BEZT A R. fást í
Verzluninni NORÐURLAND.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 5.
Friðrik Ásmundsson Brekkatt.
Aðalstrseti 15.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.