Dagur - 26.07.1929, Síða 3
31. tbL
DAGUR
123
55
K O D A K“
rur eru m sem vio er mi
„Velox“
Fyrsti gasljósapappírinn.
Aftan á hverju blaði er nafnið
„Velox“. Hver einasta örk er
reynd til hlitar i Xodakverk-
smiðjunum. I þremur gerðum,
eftir því sem við á um gagn-
sœi frumplötunnar (Negatív-
plötunnar).
„Kodak“ filma
Fyrsta spólufilman.
Um hverja einustu spólu er
þannig búið i lokuðum umbúð-
um að hún þoli loftslag hita-
beltisins. Biðjið um Xodak
filmu, i gulri pappaöskju. Pað
er filman sem þér getið treyst á.
Þér getið reitt yður á Kodakvörurnar.
Orðstirinn, reynslan og beztu efnasmiðjur heimsins, þær er búa til Ijósmyndavörur, eru
trygging fyrir því. Miljónasœgurinn, sem hefir notað þær, ber viini um gœði þeirra.
KODAK LIMITED, KINGSWAY, LONDON, BNGLANDI.
GENERAL MOTORS umboðsmenn hafa jafnan miklar varahluta-
birgðir fyrirliggjandi.
Ef þér kaupið GENERAL MOTORS bifreið, hafið þér tryggingu
fyrir því: að bifreiðin er bygð undir eftirliti beztu og duglegustu
sérfræðinga innan bifreiðaiðnaðarins, — að bifreiðin er þrautreynd á
hinum erfiðustu fjallvegum, — að bifreiðin er gerð úr bezta og
seigasta efni, — að bifreiðin er ódýrari en sambærilegar bifreiðar af
öðrum merkjum, — að varahlutabirgðir eru fyrirliggjandi hér á landi. — Bifreiðar þær, er GENERAL MOTORS framleiðir eru:
Chevrolet, Pontiac, G. M. C., Oldsmobile, Oakland, Buick, Vauxhall, Yellow Cab, La Salle, Cadilac.
GENERAL MOTORS bifreiðar eru seldar með G. M. A. C. afborgunarskilmálum.
GEHEM MOTDRS
BIFREIDAR
fara nú hina glæsi-
legustu sigurför um
heim allan, svo aldrei hefir þekst dæmi til slíks áður.
Margur verður til að spyrja hverju þessi dæmalausa eftirspurn sæti.
Svarið er auðfundið: Rað er ekki tilviljun ein, heldur byggist það á
því, að: GENERAL MOTORS hefir stóran hóp af úrvals verkfræð-
ingum í þjónustu sinni, sem starfa ósleitilega á rannsóknarstofum og
á reynslubrautum félagsins, að því, að endurbæta bifreiðar þær, er félagið framleiðir, svo að þær verða altaf feti framar en
bifreiðar keppinautanna. — General Motors á víðáttumestu og fullkomnustu reynslubrautir í heimi, þar sem nýjar bifreiðagerðir
eru þrautreyndar á hinum erfiðustu fjallvegum.
GENERAL MOTORS er nú lang stærsta iðnaðarfyrirtæki verald-
arinnar, það hefir 225.000 manns í þjónustu sinni/og vegna þess, að
GENERAL MOTORS á sjálft víðáttumikil skóglendi og stórar námur
og fær þar af leiðandi hráefni sín milliliðalaust, getur félagið framleitt
bifreiðar sínar miklum mun ódýrar en keppinautar þess.
Aðalumboðsmenn á Islandi
Jóh. Ólafsson&Co
Reykjavik.
Umboð á Norðurlandi
Vilhjálmur Pór
AkureyrU