Dagur - 26.09.1929, Side 1

Dagur - 26.09.1929, Side 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1.. júlí. Gjaldkeri: Ámi Jóhanns- son í Kaupfélagi Eyfirð- inga. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talslmi 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XII. ár. j Akureyri, 26. september 1929. 40. tbl. Innilegastu þakkir vottum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför okkar kæru móður og tengdamóður, Vilhelmínu Hjálmarsdóttur, og heiðruðu minningu hennar á einn eða annan hátt. Börn og tengdabörn. Barnaskólamálið Og Erlingur Friðjónsson. Vegna margra lesenda »Dags« á Akureyri leyfí eg mér að biðja blað- ið fyrir nokkrar athugasemdir út af grein hr. Erlings Friðjónssonar alþm. í Verkam. 10. sept. síðastl. Erlingi þykir það brestur á kurt- eisi af minni hálfu, að þekkja ekki rithátt hans og eigna honum hvat- víslega ritaða grein um ofangreint mál, í »Verkam.« 27, ágúst síðastl. Samt kveðst hann hafa getað sagt »flest eða alt«, sem þar var sagt um málið. Þessi ásökun í minn garð út af því, að þekkja ekki rit- hátt E. Fr., er bygð á meiri drýg- indum, en honum eru töm. Mun yfirsjón mín verða talin afsakanleg, enda þótt Erlingur telji rithöfundar- einkenni sín svo glögg og ótvíræð, að á þeim villist ekki nema »aum- ustu >moðhausar«< og sérlega ó- kurteisir menn! Ber og þess að gæta, að E. Fr. er ábyrgðarmaður >Verkamannsins«, en fyrgreind rit- gerð stóð þar nafnlaus. Er þáð venja sæmilegra blaðamanna, að láta það eitt standa nafnlaust og ó- auðkent í blöðum sínum, er þeir rita sjálfir. Réði þessi staðreynd mestu um ágizkun mína. — Nú er það Ijóst, að Erlingur hefir látið annan mann skríða í bólið sitt, án þess að láta þess getið, og skal eg þvi leyfa mér að benda honum á það, að úr því að hann hefir á þann hátt gerzt ritleppur annars manns, þá ber honum að taka með meiri geðstillingu hinum almennu afleiðingum af slíkri leppmensku. Orein E. Fr. er bygð á þeim höfuðmisskilningi, að árekstur sá, er síðastl. vetur varð í skólastjórn Steinþórs Guðmundssonar, hafi e i n n ráðið ákvörðun kenslumála- ráðherrans. Og af þessum sökum þykir honum það ósvinna af mér, að skygnast inn í fortíðina og meta úrslit málsins í ljósi þeirra stað- reynda, er fyrir liggja fyr og síðar. Eg gat þess í fyrri grein minni, að þótt hið siðasta atvik hafi að vísu ráðið úrslitum, eins og jafnan verð- ur, bæri þó að meta það í sam- bandi við önnur og fyrri misbrigði í skólastjórn og samvinnu St. O. við kennara skólans, skólanefnd og börnin. Ástæður E. Fr. fyrir því, að þetta sé ástæðulaust og rangt, eru i stuttu máli þessar: 1. Að eigi hafi verið ósamlyndi milli nema eins af kennurunum og skólastjórans. 2. Að nefndur kennari hafi ver- ið >sambiðill« skólastjórans um stöðuna og að ósamlyndið hafi verið af því risið. 3. Að »stimabrak« St. O. við skólanefndina 1922 hafi ekkert gildi í þessu máli, af því að skólanefnd- armennirnir séu >dauðir og burtu farnir* og ekki sé eftir af nefnd- inni, >nema minningin um tilveru hennar«. 4. Að skoplegt sé, að sjá St. O. álasað fyrir framkomu hans gagn- vart skólanefndinni út af vali kenn- ara árið 1922, þar sem þess hafi »hvergi verið getið, að skólanum hafi staðið nokkur gæfa af þeirri ráðningu*, enda sé kennarinn farinn frá skólanum fyrir löngu! Nú er það í fyrsta lagi alrangt, að eigi hafi verið ósamlyndi nema milli eins af kennurunum og skóla- stjórans. Hitt er satt, að meiri og minni brestur hefir verið á góðu samkomulagi rnilli skólastjórans og nœr allra þeirra kennara, sem komið hafa nýir að skólanum, síðan St. G. tók við skólastjórn. — Kvað þó einkum að ósamlyndi milli hans annarsvegar og F*orst. M. Jónssonar og Unnar Vilhjálmsdóttur hinsvegar. Pá er þaó og rangt, að þeir St. G. og P. M. J. hafi verið >sam- biðlar« um skólastjórastöðuna, þegar ósamlyndið reis milli þeirra. Er röð þeirra atvika sem hér segir: Eftir að St. O. hafði gegnt skóla- stjórastarfinu í tvö ár, voríð 1920, var staðan auglýst laus. Sótti þá á móti Steinþóri, Porst. M. Jónsson og taldi hann sér stöðuna visa, samkvæmt ummælum fræðslumála- stjórans, Jóns Pórarinssonar. Var og Porsteinn þá þegar oróinn þektur kennari og hafði haft meirí afskifti af barnafræðslumálum landsins en aðrii samþingismenn hans. En fyrir bœnarstað Steinþórs Guð- mundssonar dró Porstemn sig til baka. Haustið 1921 sótti Porst. M. Jónsson um kennarastöðu við skól- ann. A móti honum sótti kona St. O. og fer enginn kunnugur þess dulinn, að ósamlyndið var af því risið. Litu margir svo á, að Stein- þóri Guðmundssyni hefði vel sæmt, að unna P. M. J. kennarastöðunnar með fúsara geði, en raun varð á, eftir það sem á undan var gengið á milli þeirra. Er alt, sem Erlingur segir um þetta efni, algerlega rang- hermt og í hæsta lagi ómaklega mælt í garð Porst. M. Jónssonar. Rökspeki E. Fr. mun mega teljast sérkennilegri en ritháttur hans, þar sem hann heldur því fram, að liðnir atburðir í skólastjórn St. O. hafi ekkert gildi, þegar meta skal hæfileika hans til starfsins. Telur hann einkum fráleitt, að líta á atvik, sem gerst hafi í tíð fyrri skóla- nefndar, af því að nú sé ekkert eftir af henni »nema minningin um til- veru hennar«. Nú eiga sæti í nefnd- inni tveir af hinum eldri nefndar- mönnum og er furðulegt hirðuleysi Erlings um staðreyndir og sannindi í þessu máli, að segja rangt til jafnvel um svo ótvíræð atriði. Þar að auki er það hin mesta firra, að eðli liðinna atvika' breytist við það, að sumir þeir menn, sem við þau voru riðnir, séu dauðir eða burtu fluttir. Atvikin, rétt metin, hafa vit- anlega sama gildi, þótt skift hafi verið um þrjá menn í skólanefnd- inni. Haustið 1922 sótti Unnur Vil- hjálmsdóttir frá Heiði á Langanesi um kennarastöðu við skólann og var veitt hún, samkvæmt tillögum skólanefndar. Á móti henni sótti kona skólastjórans og mun hann hafa lagt kapp á, að henni yrði veitt staðan. — Á bæjarstjórnarfundi 4. sept. 1922, fékk St. O. að taka til máls og skýra afstöðu sína til ágreiningsins. Pótti hann þá taka mjög freklega til orða um gerðir skólanefndarinnar og hinn ráðna kennara. Einkum þótti þó ofmælt, er hann sagði, að »þessi ráðstöfun skólanefndarinnar gæti leitt bölvun yfir skólann*. Reis megn ágreiningur milli skólanefndarinnar og St. O. út af þessum ummælum og urðu úrslit hans þau, að á fundi nefnd- arinnar 12. dag mánaðarins var bókuð svofeld yfirlýsing. »Út af ummælum barnaskólastjóra, Stein- þórs Ouðmundssonar, á þessum sama fundi (þ. e. bæjarstjórnarfundinum 4. sept.), þar sem hann telur að ráðstöfun skóianefndar- innar á veitingu tímakennarastarfsins >gæti leitt bölvun yfir skólann«, lýsir hann því yfir, að hann taki þessi orð aftur sem of- töluð, þar sem hann nú veit, að nefndin ætlaði ekki að sýna honum neina móðgun með fyrnefndri veitingu. Steinþór Guðmundsson«. Premur dögum síðar, 15. sept., birtir St. O. »Athugasemd« í »ísl.« þar sem hann kemst svo að orði, að »fslendingur« hafi góðfúslega leyft sér rúm fyrir grein út af ágreiningi sínum við skólanefndina. — »En þar sem nefndin hefir nú leitað sátta um það mál og sættir eru komnar, verður greinin ekki birt að svo komnu«. Út af þessari athugasemd hélt skólanefndin fund 20. s. m. þar sem hún bókar mótmæli gegn henni og þeim ummælum skólastjórans, að hún hefði ieitað sátta i málinu. Birtir hún þá bókun, ásamt yfirlýs- ingunni frá fundi nefndarinnar 12. sept., í »íslendingi« 22. sept. 1922. Um samstarf þeirra skólastjórans og Unnar Vilhjálmsdóttur fór eftir því, sem til var stofnað með »ávarpi« skólastjórans á bæjarstjórnarfundin- um 4. sept. Og munu fáir kunnugir vitja telja. að Unnur Vilhjálmsdóttir hafi átt þar mikla sök. Vorið 1926 reis enn ófriður milli skólastjórans og tveggja af kennur- um skólans. Póttust þeir stórmóðg- aðir með ummælum nokkrum í skólaslitaræðu St. O. Jafnaðist þras út af þessu efni fyrir milligöngu skólanefndarinnar. Af þessu yfirliti verður Ijóst, að þar sem E. Fr. géngur inn á for- sögu málsins, verður honum það tvent á, að segja rangt frá öllu, sem hann drepur á og að víkja sér í þögn fram hjá flestum þeim atrið- um, sem til greina koma. Eru ástæður hans ýmist alrangar, vill- andi eða veigalausar. Yfirlitið sýnir, að auk stjórnmála- ófriðarins, sem mun að likindum hafa aflað skólastjóranum nokkurra óvinsælda, hefir staðið um hann allmikill styr sem skólastjóra út af atvikum, viðkomandi skólastjórninni. Mun kenslumálaráðherrann hafa litið svo á, að er við þessar kunnu staðreyndir bættist atvik það, er leiddi til þess, að skólastjórinn var að nokkru sviftur starfi, en allmörg af börnum skólans leidd gegn hon- um sem vitni í umfangsmikilli rannsókn, þá hafi verið ástæða til að .örvænta um friðsemi í skólanum og velgengi hans undir stjórn Stein- þórs Ouðmundssonar. Jafnaðarmennirnir á Akureyri hafa kosið að taka á sig vígasnið út af þessu máli, og munu þeir ætla, að

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.