Dagur - 12.12.1929, Qupperneq 2
208
BSGOB
52. tbt.
Sj
k JMyir ávextir
Epli, íágæt tegund . . . . kr. 1.20 kg,
Appelsínur.15 au. og 25 au. stk.
Vínber...... . . . kr. 2.00 kg.
Þurkaðir ávextir
allar tegundir.
Kaupfélag Eyfirðinga.
mtmmmmmmmm
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kl. 10-6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
gæfni, áður en hann kvað upp á-
fellisdóm sinn yfir henni.
Út yfir tekur þó meðferð O. F.
á síðustu sögunni, »Mannleg nátt-
úra«. — Sagan er skemtisaga —
en um leið talsvert meira en venju-
lega er lagt í það orð. Um hana
verður að segja hið sama og um
báðar hinar fyrri, að hún er rök-
rétt — hinum sálfræðilegu rökum
hennar skeikar hvergi. — F*ví skeyt-
ir O. F. engu, hann sér aðeins
hina ytri hlið, að samtölin séu eðli-
leg (nú, það er í sjálfu sér mikið).
Aftur á móti verður orðbragð, og
liklega hugsunarháttur, sjómann-
anna, sem skýrt er frá, honum að
ásteytingar3teini. Er það uppgerð,
eða er það alvara? - En hvort
sem heldur er, verður ekki annað
sagt, en það sé nokkuð mikill
tepruskapur, að hneykslast eða lát-
ast hneykslast, á samtölunum, sem
fram fara milli sjómannanna —
»mjög hráa klámsðgu*, segir hann
að skipstjóri segi mönnum sínum,
og ennfremur: »í þessari sögu ber
hráætið skáldskapinn ofurliði*. Eg
býst við, að hann með »hráu« og
»hráæti« skilji það sama og átt er
við með dönsku orðunum »raat«
og »Raahed< — og í þessu sam-
bandi yrði það þá, að sagan væri
eitthvað sérstaklega klúr í orðum
— en ef farið er að athuga orða-
Jag sögunnar, verður það eftir þeim
skílningi dálítið einkennilegt, að þeg-
ar dregin eru frá nokkur blótsyrði,
sem / sjómenn láta falla, finst ekkert
klúryrði í sögunni. Nú gæti mað-
ur auðvitað búist við, að sjómenn
kvæðu dálítið frekar að í sinn hóp
en gert er, mætti þá — og með
meira rétti — setja það út á sög-
una, að um of væri dregið úr!
Þegar á alt er litið, virðist þessi
helgihjúpur, sem O. F. dregur yfir
s'g. °g sá gamal-jómfrú-tepruskap-
ur, sem kemur fram í dómi hans
um þessa sögu, fara honum frem-
ur illa — og geti hann ekki þolað
orðbragð Hagalíns, eins og það
kemur fram hér, mun honum ganga
illa að þola orðbragð margra þeirra,
sem þó hafa verið taldir til heldri
skáldanna, Hvað mundi hann t, d.
segja um Shakespeare, Anatóle
France og Strindberg? — til þess
nú ekki að nefna skáld eins og
Hamsun, Heidenstam, Sigrid Und-
set, Sinc'air Lewis eða Albert Eng-
ström, og eru þó ótalin fjölda-
mörg önnur skáld — og þar á meðal
fléiri þeirra, er unnið hafa Nobels-
verðlaunin — sem G. F. hlyti að
fælast eins og fjandann og fordæma,
ef hann hefði tekið sjálfan sig og
dóm sinn um Hagaiín alvarlega.
— Pótt eg hafi nú verið nokkuð
langorður um þennan ritdóm Ouð-
mundar Friðjónssonar og bók Guð-
mundar Hagalíns í sambandi við
hann, vil eg nú að lokum benda
bæði honum og öðrum á, að í raun
Og veru stendur bókin ekki né fell-
ur með áliti hans — eða mínu — á
henni, en með hinu innra verðmæti,
sem í henni sjálfri felst. Dómur,
sem kveðinn er upp yfir henni eft-
ir röngum forsendum og af hrein-
um misskilningi, gerir þar hvorki
frá né til að öðru leyti en því, að
hann getur vilt .fyrir almenningi í
svipinn. — En sökum þess álits,
sem eg hefi á Guðmundi Friðjóns-
syni, þykir mér það leiðinlegt, að
einmitt hann skyldi verða tii þess
að kveða upp slíkan dóm um þessa
bók, að eg hefi orðið að á.íta það
beina réttlætisskyldu að mótmæla
honum.
Friðrik flsmundsson Brekkan.
i Símskeyt i.
(Frá Fréttastofu íslands).
Rvík 11. des.
Uppreistarmönnum i Kína vex
stöðugt fylgi. Nankingstjórninni
er hætta búin.
London: Ofsastormur hefirgeys-
að á Bretlandseyjum, síðan á laug-
ardag. Er það langmesti stormur,
sem sögur fara af þar; stormhraðinn
alt að 175 km. á klukkustund. Útlit
er fyrir, að stormurinn haldi áfram.
Skip hafa strandað tugum saman.
Stóru milliálfuskipin hafa komið
stórskemmd til hafna. Eimskipið
Radyr hefir farist með 25 manns.
ítalskt skip fórst í Gascogneflóa; 36
menn druknuðu, en 5 var bjargað.
7 menn hafa farist í landi.
Rvfk: Bæjarsíjórnarkosningar eru
þegar að verða aðalumræðumál
manna og blaðaumræður að byrja
Fallegar jólagjafir!
Áfar fjölbreytt ÚRVAL nýmóðins
handtöskum og veskjum fyrir dömur og börn,
peningabuddur, seðlaveski, ferðakoffort, mjög
skrautlegir vasar og krúsir, ilmvatn, púður og
sápur, jólatrésskraut, sérlega fallegt, barnaleikföng,
krystalsvasar og skálar, gullfalleg cigarettuveski,
manicurekassar, ilmvatnssprautur, klukkur og ótal
margt fleira nýkomið og afar ódýrt í
Ryek B-Deild.
um þær. Aðalflokkarnir 3 koma
fram með lista og möguleiki fyrir
sérstökum kvennalista. Heyrst hefir,
að listi Framsóknarflokksins verði
þannig skipaður efstu mönnum:
Hermann Jónasson lögreglustjóri,
Páll Eggert prófessor, frú Aðalbjörg
Sigurðardóttir, Guðmundur Thor-
oddsen prófessor o. s. frv.
Mjólkurbú Flóamanna er tekið til
starfa og farið að selja afurðir hér.
-----o-----
F réttir.
Héraðssköli í Eyjalirði. Samband ung.
mennafélaga í Eyjafirði efnir nú til happ-
drættis til ágóða fyrir héraðsskólasjóð sinn.
Fylkja félögin sér hér um góðan málstað,
og ætti það því að vera metnaður hvers
héraðsbúa að veita þeim hvatning og
fylgi til fulls sigurs. — Auk þess er ínun
meiri gróðavon fyrir þá, sem freista
gæfunnar í þessu happdrætti, en svo
mörgum öðrum >lotterium<, sem þó duga
lélegri hugsjónum. Meðal fleiri góðra muna
verður dregið um húnvetnskan reíðhest,
komungan (400 kr.), málverh eftir Freymóð
Jóhannsson (300 kr.), nýja ljósmyndavél o. fl.
Happdrætti þetta er bundið þessum
reglum:
«
1. Tala útgefinna happdrættisseðla er 3000.
(Hver seðill seldur á 1 kr.).
2. flðgóöi allur rennur til Héraússkólasjóðs
U. M. S. E.
3. Dregið verður í happdrættinu undir
lögreglueftirliti NotarÍUS publÍCUS í Eyja-
fjarðarsýsiu fyrsta sumardag 1930.
4. Númer seðla þeirra, er út verða dregnir,
skulu birt í fjöllesnu blaði á Akureyri.
Reglur þessar eru samþyktar af hlutað-
eigandi yfirvaldi.
Góðir menn ættu að kaupa hugmynd
þessa, með þvi að kaupa seðlana. Þá mun
og héraðsskólinn vænlegur til áheita, engu
síður en margar aðrar væntanlegar menn-
ingarstofnanir.
Brúarfoss kóm hingað á þriðjudags-
kvöldið og fór í morgun-
Bæjarstjórnarkosnjngin hér í bæ er ákveðíð
að fari fram þann 14. jan. næstk, og eiga
framboðsiistar samkvæmt því að vera fram
komnir í siðasta iagi kl. 12 á hádegi á
gamlársdag.
Sdngur Hreins Pálssonar á sunnudaginn
var afbragðsvel sóttur og var söngmann-
inum tekið með miklum fögnuði af mann-
fjöldanum, höfðu margir orð á þvi, að
fegurri, þróttmeiri og náttúrlegri söng
hefðu þeir aidrei heyrt. Hin ósvikna rödd
og meðferð H. P. hreif áheyrendur. Mun
honum óhætt að efna til söngskemmtunar
á ný; menn þreytast ekki á að hlusta á
hann.
Fyririestur >um dauðaun< flutti Valde-
mar Steffensen læknir i Samkomuhúsinu á
laugardagskvöldið var. Efni fyrirlestrarins
var vísindalegs, en ekki trúarlegs, eðlis.
Aðsókn var mikil, og gerðu menn góðan
róm að þessu erindi læknisins.
Sigvaldi læknir Kaldalóns heur tekíð veit-
ingu Keflavíkurhéraðs þrátt fyrir mótmæli
Læknafélagsins. Mælt er, að félagið hafi
gert hann rækan fyrir óþægð við sig, en
hann lætur hvergi kúgast, enda var það
vitaniegt áður, að hann æskti mjög eftir
að fá þetta læknishérað.
Málaferli syðra. Mæit er, að tveir lækn-
ar, Matthías Einarsson í Reykjavík og
Bjarni Snæbjörnsson í Hafnarfirði, hafi
höfðað mál á hendur dómsmálaráðherra
út af illri meðferð á þeim í grein í Tím-
anum. Stendur sú grein í sambandi við
uppreisn Læknafélagsins gegn rikisvaldinu
og er lesin af mikilli áfergju um land alt.
Pá hefir Pálini Hannesson rektor höfðað
mál gegn íhaldsblöðunum syðra fyrir
ilimæli um sig.
Kvöldskemtun hafði kvenfélagið Fram-
tíðin í Nýja Bíó á þriðjudagskvöldið. Til
skemtunar var söngur, hornaspil og kvik-
mynd. Ágóðinn rennur til glaðningar gam-
almenna og barna fyrir jólin.
Hjónaband. Ungfrú Friðfinna Hrólfsdóttir
og Viktor A. Kristjánsson, tn heimilis hér
í bæ.
eru bezt. — Fást hjá
Tömasi Björnssyni,
Akureyri.