Dagur - 19.12.1929, Blaðsíða 3
54. tbl.
DAGUE
215
#-#--#-#-#--#-•-#-# -• #-• •--#-#- • • • • # #-•-#-•-# # # •■# • ■#■ •-#- #- • #-#-#- #-• • #-• # • # #-#-#-#-# #-#-#-#-#-#-#-#-#-•-•-# #-# -# • #-# « o #•## #-
Verzlun Péfurs H. Lárussonar
SKÓBÚÐIN. Mikil verðlœkkun á eldri tegundum. Margt nýtt með Iágmarks- verði. Nýjar gerðir af »Columbus« karlm. skóm. 10-20°|0 afsláttur á karlm.- og kven- SOKKUM. Legghlíf- ar. Ö k 1 a s o k k a r. DEILMN. 10°|0 afsláttur á suðu- súkkulaði. Mikið úrval af konfektks. og át- súkkulaði. Kex, Sultu- tau, Gr. baunir. Br. & malað kaffi. SPIL. Til húsgagnafágunar: Liq- uid Veneer. Tóbaks- vörur: Vindlar, reyk- tóbak, cigarettur. Reykiarpipur. Ávextir.
Langfjölbreyttasta urvalið
í fallegum og nýmóðins
karlmannabindum og slaufum, silkitreflum
og allskonar fallegum '
er hjá
BALD. RYEL.
Langbeztar og ódýrastar
karlm. SKINNHÚFUR
einkar hentugar kuldahúfur nýkomnar til
BALDVIN RYEL.
Fr éttir.
»Djóðlegar inyndir« og »Myndabók barna
En hér er það orðið að venju,
hver étur eftir öðrum, að úthrópa
sjúkrahúsið fyrir sólarleysið. Þess
ber þó að gæta að öll birta er sói-
árbirta og getur jafnt sjúkum
sem heilbrigðum vegnað vel þó
ekki skíni ætíð sól. Annars er það
álitamál, samkvæmt upplýsingum
höfundarins, hvort sólin hefði
gagnað sj úkrastofunum úr því
ekki var sérstakt gler fyrir útbláa
geisla.
Hvað snertir aðbúð og hjúkrun
skal eg annars geta þess, sem eg
hefi oft orðið var við, að þeir sem
sjálfir eru augnaþénarar og sóð-
ar eru háværastir um aðfinningar
og mestir gikkir, þó vel sé við þá
gert. En oft hefir það glatt mig,
að útlendir lseknar, sem hingað
hafa komið, hafa mjög lokið lofs-
oi'ði á sjúkrahúsið og þá ekki síð-
ur margir útlendir sjómenn, sem
þar hafa legið. Ýmsir þeirra hafa
jafnvel kveðið svo'um, að þó þeir
hafi legið á ýmsum sjúkrahúsum
víða um heim, þá hafi livergi farið
betur um þá en á Akureyrar-
sjúkrahúsi.
Eg læt nú þetta nægja að sinni
og vil svo þakka greinarhöfundin-
um fyrir, að hann gaf mér svo
gott tilefni til að svara opinber-
lega og bera blak af mér út af öllu
því níði og baknagi, sem eg hefi
orðið var við í garð sjúkrahússins
og mín, því það verð eg að segja,
að þó eg sé nokkuð harðgerður,
þá hefi eg þolað fyrir það þyngri
sorgir en margan grunar.
Að endingu er eg höf. þakklát-
ur fyrir að hann tekur fyrstur
undir það með mér hér í blaðinu
að reisa þurfi nýtt og vandað
sjúkrahús, en eg lít svo á, að það
sé ekki vegna birtuleysis eða loft-
leysis í þessu gamla, heldur af því
að herbergjaskipun þess er mjög
óhentug og það er orðið of lítið.
Stgr. Matthíasson.
------o----
Karlakór Akureyrar
hinn nýi söngflokkur, sem hr. Ás-
kell Snorrason hefir æft og
stjórnað, söng í fyrsta sinn opin-
berlega í Samkomuhúsinu s. 1.
iaugardagskvöld. Áheyrendur voru
margir og, eftir því sem bezt varð
dæmt, þakklátir. Þegar á það er
litið hversu nýr þessi söngflokkur
er og hvernig hann er samansett-
ur verður ekki annað sagt en að
árangurinn af starfi söngstjórans
sé aðdáunarverður. Það eru marg-
ar góðar raddir í flokknum, og
þegar söngstjórinn hefir haft
tækifæri til að æfa til fullnustu
og geía ráð viðvíkjandi myndun
tónanna, verða þær ennþá betri.
Flest lögin, sem sungin voru
hljómuðu bæði vel og með tilfinn-
ingu. Stundum virtist sem tenor-
raddirnar væru dálítið hásar og
dró það nokkuð úr hljómfegurð-
inni. — Bezt fanst mér flokknum
takast með hin kraftmiklu lög:
»Á ferð«, »Skarphéðinn«, »Sam-
sætislok« og »Rötnams Knut«. —
Hr. Áskell Snprrason og »Karla-
kór Akureyrar« hafa farið vel af
stað, og má vænta sér mikils af
áframhaldsstarfsemi þeirra.
E. F. B.
-----o------
S i m s k ey t i.
(Frá Fréttastofu Islandrx).
Rvík 18. des. kl. 8.30.
London: Botnvörpungar, sem
saknað var í Englandi, eftir að
ofviðrinu slotaði, eru allir komnir
fram.
Bíldudal: í nótt brunnu 3 hús í
Bíldudal; voru þau áður eign P.
J. Thorsteinsson. Eitt var stórt
íveruhús. Ókunnugt um eldsupp-
tök. — Fregnir ógreinilegar enn.
Kirkjumálanefndin hefir unnið
að sumum, en fullgert önnur eft-
irtaldra frumvarpa: Um kirkju-.
ráð, veitingu prestakalla, kirkjur,
höfuðkirknasjóð, höfuðkirkjur,
bókasöfn prestakalla utanfarar-
styrk presta, embættiskostnað
presta, húsabyggingar á prests-
setrum.
Berlín: Ríkisstjórnin hefir
fengið traustsyfirlýsingu í þing-
inu.
Vestmannaeyjum: útsvör eru
áætluð 174.765 kr.; eru þau 37
þús. kr. lægri en í fyrra; fjár-
hagsáætlunin afgreidd. Bæjar-
stjórnarkosning fer fram 4. jan.
Báðir bankarnir hafa lækkað
forvexti um[/2%.
Egill Hjálmarsson hefir játað,
að hann hafi framið morðið, áður
en hann stal peningunum.
Sjómenn hafa felt tillögur um
kjör sjómanna á línuveiðurum.
Tillögurnar miðuðust við það, að
premían skyldi fara eftir verð-
gildi fiskjarins. Sjóínenn felldu
tillögurnar með samhljóða at-
kvæðum.
Rvík 18. ds. kl. 11.15.
isafirði í gærkveldi: í gærkvöld
brann íbúðarverzlunarhús á Bíldu-
dal, ásamt tveimur útihúsinn.
Einnig kviknaði 1 símastöðinni,
en varð slökkt, án þess. mikill
skaði yrði. Ókunnugt um eldsupp-
tökin. Búð og skrifstofu var lokað
kl. 71/2, en húsið stóð í björtu báli
kl. 8%. Hannes Stephensen og
fjölskylda hans bjó í húsinu. Ör-
litlu af innanstokksmunum bjarg-
að, en engu af vörum né verzlun-
arbókum. Innanstokksmunir voru
óvátryggðir, en verzlunarvörur
eitthvað tryggðar. Hús þetta var
eitt af stærstu verzlunarhúsum á
Vestfjörðum og endurbyggt að
miklu leyti nýlega. Bjargráðafé-
lag Arnfirðinga hafði þar verzl-
un. íslandsbanki hefir átt húsið
að þessu, en nýi eigandinn átti að
taka við því um áramót.
Skíp. Drottningín kom hingað á fimtu-
dagskvöidið og fór aftur á laugardags
morgun. Meðal farþega hingað voru Pétur
A. Ólafsson, Einar Olgeirsson og frú hans.
Með skipinu tók sér far aftur vestur
Snorri Sigfússon kennari; ætlar hann að
dvelja vestur á fiateyri um jólin, en kemur
aftur upp úr nýárinu.
Esja kom hingað á sunnudagskvöld og
fór aftur á Mánudagskvöld.
nefnast bækur tvær, er Degi h&fa verið
sendar. Birtast í þeim báðum sýnishorn
af teikningum eftir Árna Ólafsson í Reykja-
vík, og fylgja teikningunum smásögur,
vísur og æfintýri. Hin fyrnefnda bók er
fyrir unglinga og fullorðna, en hin síðari
ætluð börnum eins og nafnið bendir til. —
Höfundurinn var um eitt skeið nemandi
hjá Pórarni heitnum Porlákssyni listmálara.
Siðastl. hausl hafði hann sýningu í Rvik
á málverkum og teikningum eftir sig, og
hlutu þær lofsamleg ummæli i dagblöð-
unum. — Bækur þessar munu vera kær-
komnar börnum og unglingum að minita
kosti.
nJÓIablað drengja« nefnist rit eítt ný-
komið út, prentað í Reykjavík; er það
gefið út að tilhlutun skátafálagsins V æ r-
i n g j a r.
Efnisyfirlit er sem hér segir: Hvatning
til æskunnar, eftir sr. Árna Sigurðsson. Á
norðurhveli jarðar, eftir Vilhjálm Stefáns-
son. Væringjavísa, eftir J O. J. Göngur,
eftir Einar Ól. Sveinsson. Jamboree 1929,
eftir J. O. J. Úr fjalladagbók, eftir J. O. J.
Jólagestur, saga eftir Selmu Lagerlöf.
Drengskapur, eftir Sigurð Nordal prófessor.
Jólatréð hjá Holm lækni, saga eftir Rein-
hard. Vetrarsöngur, eftir A. Sigm. Sörli,
saga eftir A. V. Tulinius. Alþjóðastefna,
eftir Pawall. Sæunn og mýsnar, saga eftir
Jón H. Guðmundsson. Að grafa sig í fönn,
eftir Stgr. Matthíasson iækni.
Rit þetta prýða margar myndir, er það
ágætlega úr garði gert og hið eigulegasta
á allan hátt.
Dánardægur. Á föstudaginn andaðist hér á
sjúkrahúsinu eftir uppskurð frú Sigurlína
Einarsdóttir Ijósmóðir frá Öldu í Saur-
bæjarhreppi. Hún var gift Tómasi Bene-
diktssyni oddvita frá Hvassafelli. Hún var
rúmlega hálf fimtug að aldri og hafði
gegnt Ijósmóðurstöffum yfir 20 ár.
Dánardægur. í gær andaðist að þeimili
sínu, Hrafnagili, Porsteinn Indriði Pálsson,
faðir Hólmgeirs bónda þar, en móður-
bróðir Sigurðar Kristinssonar og þeirra
bræðra.
Porsteinn sál. var á öðru árinu yfir sjö-
tugt. Hann var orðlagður fjör- og gleði-
maður og góður trésmiður. Hjartabilun
varð honum að bana.
Hjúkrunariélagið »Hlíf« héit kvöidskemt-
un til ágóða fyrir starfsemi sína í Nýja
Bíó á þriðjudaginn var. Karlakór Akur-
eyrar, undir stjórn Áskells Snorrasonar,
söng; jón Signrðsson kennari flutti erindi
um Tirol og á eftir var sýnd kvikmynd
— var skemtunin góð og aðsókn sæmileg.