Dagur - 30.01.1930, Blaðsíða 3
DAGUR
23
Súkkulaði fœst í
Kaupfélagi Eyfirðinga.
Tindholms-harmonium
eru fyrirliggjandi í úrvali. Eins og að undanförnu eru þau seld
með ákjósanlegustu afborgunarskilmáliim, og verðið lægra en á
I. flokks orgelum.
Þorst. Thorlacius.
Fréttir.
6. tbl.
auk þess stílhreinar og myndar-
iegar. — Þær eru fyrir utan Dan-
mörku algengar í suðurhluta
Svíaríkis.
Á minni jörðum eru húslengj-
urnar ekki nema þrjár — og
og stundum ekki nema tvær — en
eru ávalt iátnar standa hornrétt
hver við aðra, til þess að marka
»garðinn«.
Norður-þýzkir bóndabæir eru
oft bygðir þannig, að alt er undir
einu og sama þaki; er þá íbúðin í
öðrum enda hússins, peningshús
og hlaða í hinum — korn (ó-
þreskt) og hey er og geymt á loft-
inu. — Þesskonar byggingar eru
fremur ódýrar en oft heldur leið-
inlegar útlits. — Józkir »hús-
menn« hafa sumir tekið þetta
byggingarlag upp.
Þá væri hugsanlegt að sænskt
og norskt byggingarlag gæti átt
við hér. — Upp-sænskir sveitabæ-
ir eru oft reisulegir. fbúðarhúsið
liggur út af fyrir sig og hlaða og
peningshús í kring, án þess eig-
inlega að mynda garð eins og í
Skáni og í Danmörku, oft eru þau
þó »vinkil«-bygð.
Hér á landi ættu menn að fylgja
dæmi frændþjóðanna í því að
byggja fremur lág hús en há til
sveita. Há hús, margbrotin, með
kvistum og öðru útflúri eru bæði
óhentug og ljót — ein hæð og loft
af veggjum, er það sem mun reyn-
ast bezt og hagkvæmast, því ekki
þarf að vera að spara lóðimar
undir húsin á meðan landrýmið
er af ekki meira skornum skamti
en vér höfum það.
---—,-o...
Hornreka á fjárlögunum.
Eins og getið er hér á öðrum
stað í blaðinu, bera nokkrir þing-
menn úr íhaldsliðinu fram frv.
um raforkuveitur til almennings-
nota, hið sama og í fyrra. Málið
var til fyrstu umræðu nú x vik-
unni. Txyggvi Þói’hallsson foi’sæt-
isráðhrra hafði orð fyrir Fi’am-
sókn; tók hann málinu þýðlega,
en spurði flutningsmennina, hvar
ætti að taka alla miljónatugina,
sem til þess þyrftu að korna því í
framkvæmd og bað þá að benda á
þá uppsprettu. Svarið var fyrst á
þá leið, að taka mætti eitthvað at
því fé, sem ætlað væri til brúar-
gerða. Að undanförnu hefir 1-
haldsflokkurinn borist mjög á í
málæði um bættar samgöngur á
landi, en með þessu svari kemur
í ljós, að flokkurinn býr yfir svik-
um gegn yfirlýstri stefnu sinni,
þar sem hann vill láta fara að
klípa af brúai’fénu og verja því
til raforkuveitu um land alt; sú
leið mundi og nokkuð seinfær. —
Þegar búið var að hrekja flutn-
ingsmenn málsins úr þessu vígi,
bjuggu þeir til annað nýtt, er var
á þá leið, að þegar vel áraði og
tekjuafgangur yrði, mætti verja
honum til framkvæmda raforku-
veitanna. Þannig hugsa þeir sér
að gera þetta heita hugsjónamál
sitt aQ homreku á fjárlögunum.
Lýsir þetta alveg frábærri lítil-
þægni og hugsanaslappleik.
.» • .• • • • • •• •--* ••••••-•<
Kvikmyndir og kirkjan.
Jónas Jónsson dómsmáiaráðherra
ber fram frumvarp um 10°/o nýjan
skatt á kvikmyndahús, er renna á
i svonefndan >höfuðkirknasjóð« og
verða ein tekjulind hans. Er frv.
þetta til orðið og flutt í samráði
við kirkjumálamálanefndina.
Á þenna hátt er ætlast til að
starf kvikmyndahúsanna verði lyfti-
stöng fyrir byggingar höfuðkirkna
f landinu.
Akureyringar geta ekki lengur
unað við kirkju sína, sem bæði er
langtum of lítil og illa sett. Pess-
vegna hlýtur að verða ráðist í bygg-
ingu nýrrar kirkju við hæfi bæjarins
nú í nánustu framtíð. Fjárskortur
hefir tafið fyrir því nauðsynjamáli.
Nái mál þetta fram að ganga,
mundi það verða hvalreki á fjöru
kirkjubyggingarmálsins hér í bæ.
Má því ætla að Akureyrarbúar fylgi
þvi eftir með fasthygli.
«> ...
S ims key t i.
(Frá Fréttastofu lalandv).
Rvik 28. jan.
Leitin að mótorbátnum Ara úr
Vestmannaeyjum varð árangurslaus.
Ætlað er að báturinn hafi sokkið
við línuna. 5 menn fórust.
Bátur úr Súðavik fórst á föstu-
daginn i aftakaveðri. Fjórir menn
fórust.
Mann tók nýlega út af Draupni.
ALPINGI. Frumv. um stofnun
Flugmálasjóðs var vísað til sjávar-
útvegsnefndar. Sjóðurinn á að stofn-
ast með því að leggja aukagjald á
hvert síldarmál og hverja tunnu
saltaðrar sildar, meðan flugvéiar eru
notaðar til sildarleitar. Herpinótaskip
eiga að greiða 10 aura af hverju
máli og tunnu. Allmörg önnur
frumv. eru komin til annarar um-
ræðu og nefnda. — Pegar fjármálin
voru til umræðu, fylgdi fjármálaráð-
herra þeim úr hlaði með ítarlegri
ræðu. Tekjur ríkissjóðs 1929 urðu
lö. 139.000 kr., en voru áætlaðar
10.888.000 kr. Útgjöldin urðu
14.500.000 kr., en voru áætluð
10.851.000 kr. Tekjuafgangur er því
1.639.000 kr.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefir
úrskurðað, að Guðmundur Magnús-
son komi i stað Porsteins Víglunds-
sonar í bæjarstjórnina, en Porsteinn
verði varamaður, og Magnús Magn-
ússon komi í stað ísleifs Högna-
sonar, er verói varamaður. Guðm.
og Magnús voru á báðum verka-
mannalistunum og höfu samanlagt
hærri atkvæðatölu en Porsteinn og
ísleifur.
Skemtilcvöld Gagnfræðaskólans.
Sökum þrengsla í síðasta blaði
var ekki hægt að geta um leiksýn-
ingu Gagnfræðaskólans, sem var
endurtekin tvisvar í Samkomu-
húsinu. Nú er það eins og dálítið
»eftir dúk og disk« — en þess skal
þó minst að bæði leikval og leik-
sýning fór svo vel úr hendi að það
var nemendum Gagnfræðaskólans,
leikendum og leiðbeinanda til hins
mesta sóma. —
Lálillll er Björn Sigurðsson fyrv. bankastj.
Halldór Ásgeirsson kjötbúðarforstjóri kom
heini úr utanför sinni með Qoðafoss á
fimtudaginn var.
Halldór Friðjónsson hefir, fyrir hönd full-
trúaráðs verklýðsfélaganna, kært til baejar-
stjórnar yfir bæjarstjórnarkosningunni 14.
þ. m. Kæran var lögð fram í fyrradag, er
var síðasti dagur kærufrestsins.
Bæjarstjóri á Seyðisfirði er kosinn Hjálm-
ar Vilhjálmsson frá Hánefsstöðum, ungur
lögfræðingur. Hann var einn í kjöri.
-------O-------
Fyrirspurn.
í grein einni í »Verkamanninum«
18. þ. m. um K. E. A., er meðal
annars sagt, »að ókleift sé að komast
úr félaginu vegna þeirra ákvæða í lög-
um félagsins, sem binda menn þar
æfilangt'.
Par sem þessu málgagni »rauðra
byltingarmanna* er orðið mjög tamt
að tala um K. E. A., mun því vera
ljúft að svara eftirfarandi spurningu
með skýrri og tregðulausri tilvitnum í
»samþyktir« félagsins:
Hvaða ákvæði eru það í lögum K.
E. A., sem binda menn þar æfilangt
og gera mönnum á þann hátt ókleift
að komast úr félaginu ?
Skorað er á »Verkamanninn< að
birta ákvæði þessi innan tilvitnunar-
merkja.
»Eb ræð ekkerl við mína menn.«
Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar f
fyrra hóf »Verkamaðurinn« árásir á
K. E. A. og setti félagið á bekk með
verstu óvinutn sfnum, Kveldúlfi og
Höepfner. Pegar ábyrgðarmaður blaðs-
ins, herra Erl. Friðjónsson, var spurð-
ur um, hvort þessar árásir væru gerð-
ar að hans vilja, var svarið: »Eg
ræð ekkert við mfna menn«.
Af skrifum »Verkamannsins« undan-
farið er það Ijóst, að flokksmenn E. F.
hafa enn tekið af honum ráðin.
Bæjarstjórnarkosning fór fram í Rvfk
á laugardaginn var. Atkvæði voru lesin
upp á mánudaginn og næstu nótt, en
ekki var þeim lestri iokið fyr en kl. 6
á þriðjudagsmorgun. Kosningin hafði
verið sótt af afar miklu kappi og greiddu
kjósendur atkv. nokkuð á 12. þúsund.
Fulinaðarúrslit verða þau, að A-listi,
sem var listi Jafnaðarmanna, fékk 3897
atkvæði og kom að 5 mönnum; B-listi,
eða listi Framsóknarmanna, fékk 1357
atkvæði og kom að 2 mönnum ; C-listi,
er sumir nefna »Sjálfstæðis«-lista, hlaut
6034 atkv. og kom að 8 mönnum.
Sérstaka eftirtekt mun vekja hið geysi-
lega aukna fylgi Framsóknar i höfuð-
staðnum. Um síðustu stjórnarskifti var
talið, að Framsókn tilheyrði um 200
kjósendur í Reykjavík. Við bæjarstjórnar-
kosninguna nú kemur f Ijós, að fylgið
við flokkinn hefir 6 eða 7 faldast á
þessum árum.
Harðsnúið lið!
*Bæjarbúi«, sem stendur »álengdar«
grobbar af því í »Verkamanninum«,
hvað kommúnistaliðið hér í bænum
hafi verið harðsnúið við kosningarnar.
Pessi harðneskja flokksins segir Bb.
að komið hafi fram í því, að ókleift
hafi reynst að aka 10 sálum flokksins
á kjörstaðinn, til þess að kjósa, og
fyrir »sofandahátt« »Verkamannsins«
hafi tapast sæti í bæjarstjórninni. Ekki
er að furða þó »Bæjarbúa« finnist til
ura þessi harðvítugheit(l) og bæti því
við, að svona »blóðrauðir flokksmenn*
þurfi »hvergi að vera smeykir við
framtíðina.*
Obels
\
munntóbak
ar best.