Dagur - 27.03.1930, Side 3
15. tbl.
DAGUB
59
ÞAÐ riLKYNNIST
hér með, að eg er tekinn til starfa í hinu nýbygða
verkstæði mínu við Strapdgötu (austan við
verziunarhús Einars Gunnarssonar)'.
SÍMI: NR. 152.
Akureyri 27. marz 1930.
S'J'EINDÓR JÓHANNESSON
JÁRNSMIÐUR.
Húseignirnar við Aðalstræti nr. 62: íbúðarhús, ný-
viðgert og mikið endurbætt, geymslu- og gripahús,
með heyiotti, tilheyrandi EIQNARLÓÐ, að stærð
1029 fer. faðm. (þar með talinn stór matjurtagarður), alt til sölu með
tækifærisverði, og laust til íbúðar 14. maí n. k. — Greiðsluskilmálar
mjög aðgengiiegir Þorv. J. Vestmann.
r
FLORA er frábært sem viðbit.
FLÓRA er afbragð til að
steikja í.
r
FLORA er ágætt til bökunar.
FLORA fæst í Kjötbúðinni,
biauðbúðinni í Hafnarstræti 23
og öilum vei birgum matvöru-
verzlunum í bænum.
veikin sama, sem varö móðurinni
að bana, iagt dótturina í rúmið.
Guðný barðist svo við dauðann 9
sólarhringa, en iíkami hennar
vai'ð undir í þeim viðskiftum.
Hún andaðist, 10 dögum á eftir
móður sinni, sunnudaginn 23. þ.
m., einmitt á meðan Akureyrar-
búar fyltu stærsta samkomuhús
sitt til að hugleiða um dauðann,
hvað hann væri, og hvernig væri
að deyja. Guðný var eini bæjarbú-
inn, sem fékk sannanir í því efni
þann dag.
Þótt ólína væri fjörug og létt á
sér í ellinni og vinir hennar sam-
gleddust henni með það að mega
ganga á milli barna sinna eftir
vild og njóta hjá þeim hvíldar eft-
ir erfiði dagsins, þá samgleðjast
þeir henni líka við burtförina yíir
á land lifenda, þar á hún líka vin-
um að mæta og fær þar hviidar að
njóta.
Guðnýju aftur á móti hefir
snögglega verið kippt í burtu frá
óloknu æfistarfi, og þar sem hún
stóð er nú skarð, sem eigi verður
fylt. Svo er jafnan, þegar móðir
deyr frá börnum í æsku. Vinirnir
samhryggjast því ástvinuin henn-
ar og biðja þeim styrks af hæðum
og þeirrar trúar, að móðirin sé
þess megnug að hjálpa börnum
sínum, leiðbeina þeim og vernda
þau, þótt með öðrum hætti sé en
áður, frá þeim heimi, þar sem hún
nú lifir.
K.
----o----
F r éttir.
Jón A. Hjaltalín. Hinn 21. þ. m. voru
liðin 90 ár frá fæðingu hins merka
manns, Jóns A. Hjaltalíns skólastjóra.
Að forfallalausu flytur næsta tölublað
Dags grein um þerfha látna merkis-
mann, eftir Sigurð Guðmundsson skóla-
meistara,
Bjcvrni Bjarnason læknir skemti bæj-
arbúum með söng í Akureyrar-Bíó á
föstudagskvöldið var. Eftir aðsókn og
þó einkum viðtökum að dæma, átti söng-
ur læknisins miklum vinsældum að
fagna; þykir rödd hans bæði mikil og
falleg. Söngmaðurinn varð að endur-
taka mörg lögin.
Alþýöufræðala Stúdentafélagsins.
Fyrirlestur »um dauðann, dómsdag og
annað líf« flutti síra Friðrik Rafnar í
Samkomuhúsinu síðastl. sunnudag. Til-
heyrendur yoru eins og húsið rúmaði.
Iía/rlakór Akureyrwr syngur næstk.
föstudagskvöld kl. 8V2 í Samkomuhús-
inu, undr stjórn Áskels söngkennara
Snorrasonar. Söngskráin er fjölbreytt,
textar allir á íslenzku, að undanteknum
einum, og' meirihluti laganna æskuvinir
fulltíða manna og roskinna. Af nýjum
lögum má nefna tvö eftir söngstjórann,
sem tveir mjög' merkir tónfræðingar
hafa lokið lofsorði á.
Söngflokkur þessi lét til sín heyra í
fyrsta skifti í desember í vetur og þótti
fara vel á stað. Síðan hefir flokkurinn
verið mikið æfður, og má því búast við
mikilli framför og góðri skemtun ann-
að kvöld.
Gamanvlsur syngur Jón Norðfjörð í
kvöld í Nýja Bíó. Eru það alt nýir
bragir, sem nú eru á ferðinni, og' að
sögn all-fyndnir. — Þetta er í fyrsta
sinn á þessum vetri, sem Jón Norðfjörð
skemtir með gamanvísum. En aðsóknin
hér í bænum að söng hans áður hefir
sýnt það, að honum hefir tekist vel að
skemta áheyrendum sínum — og er þá
tilgangnum náð.
Geysir söng' á þriðjudagskvöldið í
Nýja Bíó við góða aðsókn.
EIdhústlagsimvræöur á Alþingi hófust
á mánudaginn. Magnús Guðmundsson
hóf eldhúsverkin, en auk hans höfðu i
fyrrakvöld talað af stjórnarandstæðing-
um Magnús Jónsson, P. Ottesen, Sig.
Eggerz og Ólafur Thors. Til andsvara
höfðu þá verið ráðherrarnir allir og enn
fremur Magnús Torfason. Talið er, að
eldhúsver'k þessi muni endast vikuna út
og verður að sinni ekki greint frá
vopnaviðskiftum, en geta má þess, að
urm-æður eru enn sem komið er taldar
vera fremur hóflegar og' með kurteis-.
ara móti og »geðveiki« ekki nefnd á
nafn(l)
Dómsmálaráðherrann liefir nú náð
sér að fullu eftir hálsveikisleguna.
Jónas Þorbergsson fyrv. ritstjóri kom
heim úr utanlandsför sinni með Drottn-
ingunni síðast. Ferðaðist hann um
Norðurlönd, Þýzkaland og England og
kynti sér útvarpsstarfsemi í öllum þeim
löndum.
Félag ungra Framsóknarmanna held-
ur fund í »Skjaldborg« næstk. sunnu-
dag, kl. 1 e. h.
Freirmóður Jóhannsson málari
hefir ákveðið að fara héðan úr bænum
og dvelja í Reykjavík um lengri tíma.
Fer hann með »Drotningunni« næst.
Fyrst og fremst ætlar hann að undir-
búa og halda sýningu á málverkum sín-
um fyrir sunnan; og auk þess hefir
þess verið farið á leit við hann, að hann
standi fyrir hinni væntanlegu heimilis-
iðnaðarsýningu, sem halda á í Reykja-
vík í sambandi við Alþingishátíðina, og
kveðst liann ætla að verða við þeim til-
mælum, og er það vel farið, því áhugi
smekkvísi og dugnaður Freymóðs gera
hann sérlega vel hæfán til að hafa ein-
mitt það starf með höndum.
Eins og kunnugt er hefir Freymóður
»
verið framkv.stjóri Leikfélagsins hér í
bænum í vetur. Hefir hann séð um all-
an útbúnað leiksviðsins og málað tjöld.
Má í því sambandi minna á hin ágætu
tjöld til leiksins »Tveir heimar«. —
Starf Freymóðs sem leikstjóri hefir
auðvitað haft ýmsa örðugleika £ för
með sér, og í fersku minni eru deilur
þær, sem urðu í sambandi við leikjaval
hans og félagsins í vetur. Þó sá, sern
þetta ritar væri Freymóði engan
veginn allskostar samdóma í þeim mál-
um, þá skal það viðurkent að Leikfé-
lagið og leikstjórinn verða að vera
frjáls í vali sínu og starfsemi, eig'i hún
að geta tekið nokkrum verulegum
þroska.
Sem framkvæmdastjóri Leikfélagsins
hefir Freymóður sýnt svo mikla ósér-
plægni, óþreytandi elju og' dugnað, að
engum, sem eitthvað hefir fylgst með
starfi hans þar, hefir getað blandast
hugur um, að það var hugsjónastarf,
sprottið af hinni »heilögu glóð« lista-
mannsins.
Allir bæjarbúar mega kunna honum
þakkir fyrir starfið í vetur, óska hon-
um góðs gengis með þau störf, sem
hann nú byrjar, og að hann megi heill
heim aftur koma, svo að vér megum
njóta krafta hans hér framvegis.
. B.
------o------
Ritfregn.
Saga Snœbjarnar i Her-
gilsey — riluð af hon-
um sjálfum. Fyrra
hefti. Útgefandi Þorst.
M, Jónsson. Akureyri.
1930.
Pað er æfinlega ástæða til að
fagna því, þegar eitthvað nýtt og
þá um leið nýtilegt bætist við bók-
mentir vorar, eitthvað, sem að ein-
hverju leyti auðgar þær og gerir
þær ijölskrúðugri.
Vel samdar æfisögur merkra
manna, ritaöar af þeim sjálfum eða
öörum, eru ávalt skemtiiegar og
fróðlegar bækur. — Viða i heimin-
um eru slíkar bækur jafnvel meira
metnar bæöi af alþýöu og fræði-
mönnum en t. d. skáldsögur, eíns
og þær gerast upp og ofan; og er
þaó allott alveg réttmætt. i vel
samdri ætisögu — ekki sizt þeirri,
sem ntuð er af manninum sjáifum,
geymist margskonar tróðleikur, at-
hugun og reynsla, semltrauðla verð-
ur betur skýrt tra á annan hátt, hún
verður ott heimildarrit um litshætti
og kjör genginna kynslóða, um at-
hafnaiíf þeirra, hugsana- og tilfinn-
ingalíf, eða með öðrum orðum, sé
um alþýðumann að ræða, eins og
hér er, einskonar forðabúr fyrir
þjóðminningatræðina.
Heklu-SHljBflíkÍ
er bragðgott og ÓDÝRT.
Kostar kr. 1.50 kilóið.
Saga Snæbjarnar í Hergilsey héfir
alt þetta til að bera. Pað máetti
e. t. v. setja það út á hana, að hún
sé ekki nógu fast bygð, fylgi ekki
nógu vel eftir því markmiði að skýra
frá lífi Snæbjarnar sjálfs, svo að hún
stundum virðist verða að mörgum
samsiða þáttum. En þegar alt er at-
hugað, verður það þó mikið vafa-
mál, hvort þetta getur talist nokkur
galli, Snæbjörn hefir auðsjáanlega
ekki sett sér það takmark, fyrst og
fremst að skýra frá lífi sínu og at-
höfnum i þrengri skilningi. En hann
er áreiðanlega maður, sem hefír haft
bæði augu og eyru opin, og hefir
viljað iýsa þvi merkilega og ein-
kenmlega sem hann hefir tekið eftir
eða heyrt. Sagan hefir þvi talsvert
marga þætti um ýmsa menn, — sér-
staklega sterka menn bæði í ytri
og innri skilningi — sjósóknara,
hetjur í hinu daglega erfiði og stríði
við náttúruöflin. — Sumir þessir
menn, sem myndum er brugðið
upp af, verða lesandanum hjartfólgn-
ir og ógleymaniegir. — Öll gefur
sagan sérlega glögga og skýra mynd
af lifinu við Breiðatjörð og á Breiða-
fjarðareyjum og af öllum hugsunar-
hætti þar á dögum höfundarins —
það eitt út af fyrir sig er nægilegt
til að gefa henni verðmæti.
Pað yrði of langt mál að rekja
efni bókarinnar hér í einstökum at-
riðum, enda óþarft. — Bókin er
fraleitt gallalaus, en kostirnir virð-
ast þó véra yúrgnæfandi, að minsta
kosti fyrir þá, sem kunna að meta
þá — og hún er, þegar á alt er lit-
ið, frísk og hressandi, sterk og eggj-
andi, þar kveður við orustugleði og
áragnýr úr þúsund ára baráttu ís-
lenzkra fiskimanna við Ægi. Pað er
hressandi sjávarselta úr brimlöðrinu
milli Breyðafjarðareyja í hverjum
kafla.
Pað, sem út er komið af sögunni
er aðeins fyrripartur hennar, en ó-
hætt er aó fullyrða, að síðari hlut-
inn, sá sem í vændum fer, sé beint
áframhald. Hefir hann að geyma
ýmsa merka viðburði frá síðari ár-
um höfundaríns, þ. á. m. Englands-
ferð hans, er enskur togari flutti
hann tii Englands. Fs Ó. ö.