Dagur


Dagur - 03.04.1930, Qupperneq 1

Dagur - 03.04.1930, Qupperneq 1
DAOUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfélagi Eyfirð- inga. XIII. ár 1 Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þ6r, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. Akureyri, 3. Apríl 1930. T 16. tbl. r Adrepa um sýningarnar i ár og að ári* Það kann að virðast að borið sc i bakkafullan lækinn, ef minst ér á sýningar þær, sem kalla má að fyrirskipað sé að halda um land alt á yfirstandandi ári. En það er þó ekki unt að komast hjá því með öilu fyrir þá, sem v e r ð a að láta þetta mál til sín taka, af því að það er skylda þeirra að gangast fyrir því, hrinda því áleiðis af sjálfs sín orku, og fá aðra, sem allra flesta, til að veita því fylgi sitt. Pað er heldur ekki auðvelt fyrir þann að leiða málið hjá sér, sem að visu hefir enga sérstaka skyldu að rækja í því efni, en skilur það ög sér í hendi sinni, að sómi hverrar sveitar, hvers héraðs og lands og lýðs í heild liggur við, að þessi grein, eins og hver önnur, á hinum stór- felda fagnaðar meiði alþjóðar, verður að vera lifandi, frjó og ávaxtarsöm á hinu mikla ári minninganna og vonanna, 1930. Um það geta verið skiftar skoð- anir hvort landssýning væri nauð- synleg í þessu sambandi. Má þó ætla að meiri hluti alþjóðar líti svo á. Að minsta kosti meiri hluti þeirra, sem kallast hinu yfirlætismikla nafni: .málsmetandi menn, karlar og konur. Peir, sem eggja alla alþýðu lög- eggjan, að láta hendur standa fram úr ermum í þessu efni. Og eins og nú er komið tímpm og diáttum öllum, þá má sérínilega telja að ekki sé unt að komast hjá að sýna í verkinu, á hvaða stígi vér stönd- um og hvað við getum seilst upp í hæðirnar. En þó svo væri, að landssýning hefði engin nauðsyn verið, þá e r hún einu sinni ákveðin og úr þvf svo er, þá er það um leið orðin þjóðarskylda að gera alt, sem gera þarf og unt er, til þess að hún geti farið sem bezt úr hendi og oróið oss til sóma. En til þess að tryggja það, sem auðið er, að alisherjarsýningin fari sem bezt fram, og beri ljóst og greini- legt vitni um menningarstig vort í verklegum efnum, þá þarf að afla henni fanga hvaðanæfa. Undir hana verða að renna stoðir frá hverju héraði og þorpi þessa lands. En til þess að svo verði, hljóta hreppa-, héraðs- og sýslnasýningar undan að ganga, þar sem hvert bygt ból Grein þessi var rituð á útmánuðum i fyrra, þó ekki komi hún fyr en nú fyrir Bjónir almenningi. verður að láta nokkuð af mörkum; þar sém hver sá, er teljast vill maður með mönnum, verður að leggja sinn skerf fram á borðið, eða styðja málið með liðsyrðum sínum og áhrifum. Vera má, að 4nenn beri ekki á móti þessu. Vera má jafnvel, að menn kannist við. þetta. En að gjalda þessu jákvæði og hafa þó engan undirbúning tii neins, svo sem vera má um allmikinn þorra manna, það samrýmist illa. E f vér viðurkenuum nauðsyn þess, að taka einhverju máli tak, svo um muni; vitum, að engi læpuskapur eða linkutök stoða, en göngum þó að með hangandi hendi og svo sem til málamynda, þá er auðsætt að 'vér teljum þörfina ekki allbrýna. Auðsætt, að eldur þeirrar nauðsynjar brennur ekki á okkur sjálfum. Auð- sætt, að það, sem hefir verið til vor talað um málið og fyrir því, snertir oss eigi djúpt. Auðsætt, að oss liggur í léttu rúmi hverjar fram- kvæmdir verða og árangur, því annars mundum vér fúslega leggja rikan skerf tíma vors og krafta f sölurnar, og vera sem á glóðum yfir tómlæti tólks og áhugaleysi. Til sýningarmálsins er þa afstaðan sú, að vér, konur sem karlar, við- urkennum nauðsyn þess, í orði kveðnu; vitum að það skal hafa framgang innan lítils tíma, en höld- um þó sem fastast kyrru fyrir, og vinnum ekki að sýningarmálurn eða munum með liðsyrðum eða hjálpar- höndum, svo orð fari af. Jæja, konur góðar, — því til ykkar er hér leikur gerður, sérstaklega — það er hægur vandi, að vera með aðfínslur og ádeilur og það gagnar oft lítið. Koini þær fram alment, þá færu þær fyrir ofan garð og neðan, og enginn tekur þær til sín. Pá eru þær eins og það dauða fjúkið, sem engum aftrar að fara ferða sinna. Séu þær hvassar og ákveðnar, þá særa þær og firta. En séu þær úr hófi frekar í sumum atriðum, þáer því hinu sama á loft haldið til að sýna ósanngirni og öfgar höfundar, en það látið liggja í láginni milli hluta, sem réttmætt var. Nú veit eg, að enginn reiðist þeirri ádeilu, sem hér er flutt, því hún er svo hógvær. Eg veit lika and- svör ykkar og afsakanir þess, að lítið sé gert til fyrirgreiðslu og undirbúnings sýningarmálanna af ykkar hálfu. Eg veit að sumar ykkar mundu geta sagt með fullum rétti: >Sannast að segja snertir þetta sýningar»vesen« mig ekki djúpt, því er þess ekki að vænta, að eg 50 ara afmælis Gagnfræðaskólans á Akureyri verður minnzt i vor. Verða hátiðahöld á Möðruvöllum og Akureyri dagana 31. mai og 1. júní. ALLIR, er nám hafa stundað við skólann, pótt eigi hafi peir lokið prófi, hafa rétt til pátttöku, en tilkynna verða peir hana undirrituðum hið fyrsta. Gagnfræðaskólanum á Akureyri, 3. apríl 1930. Sicj/uT? ttr ðvtSiviintclc'^ou. Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að okkar ástkæri eiginmaður faðir og tengdafaðir, Pálmi Jósefsson frá Samkomu- gerði, andaðist hinn 29. marz s. 1. Jarðarförin fer fram mánudaginn 7. apríl frá Akureyrarkirkju, hefst kl. 1 eftir hádegi. Akureyri 1. april 1930. Aðstandendurnir. ÍMIIII.. .............IIIIM ........IMIMllll ...........I ..... láti það mikið til mín taka. En sjálfsagt er að þeir, sem hafa áhuga fyrir því, þeir, sem eru eins og á nálum yfir því, hvern framgang það fái, að þ e i r láti það sjást f verk- inu.« Egþekki ykkur nokkurnveginn, sem hafið þenna hugsunarhátt, og méf kæmi ekki á óvart, þótt þið fyltust áhuga, þegar það er um seinan; þótt þið sæjuð eftir að hafa ekki stutt gott málefni, þegar ekki er hægt annað að gera, en naga sig í handarbökin, sem er sú ömur- legasta iðja, er nokkur getur fyrir sig lagt. En eg skil hinar enn betur, sem hugsa og segja: »Vér vildum svo voða-gjarna veita þessu máli ekki einungis liðsyrði, heldur og hjálparhönd, svo um munaði. En oss er það bara ómðgulegt svo nokkurt gagn sé að. Vér höfum engan tímann. Hann fer allur i þessa óumflýjanlegu, eilífu snúninga. Vér höfum svo fáum á að skipa. Öll vor orka eyðist í það eitt, að standa straum af þvi, sem dagurinn í dag krefst af okkur, og svo því, er á brast fyrri daginn. Hvað megn- um vér að búa i haginn, og vinna fyrir fram? Framsókn vor verður á þessu sviði, sem öðrum, harla slæ- leg, og brautargengi lítið. En vér þykjumst skilja nauðsyn þessa máls.« Af ylckur vænti eg sarpt nokkurs, þvi góðfús skilningur skapar áhuga, áhuginn vilja, og viljinn dregur hálft hlass. Af önnum köfnu fólki má vænta drýgstu afkastanna og það leggur á sig aukastörfin og eftirvinnuna. En geðfeldust eru mér svör þeirra, er mæla svipuðum orðum, sem gamla konan á dögunum: »Sýningin var ákveðin af einfaldri þörf, en úr þvi að eigi varð komist hjá að efna til hennar, þá er það tvöföld nauðsyn, að hún takist vel og verði okkur til sóma sökum almennrar þátttöku, er sýni það, að menn hafi lagt fram krafta sína þegar i upphafi. Á þessu er svo brýn þörf, að margt annað verður að sitja á hakanum. Við verðum að vanrækja eitt og skjóta öðru á frest, ef ekki vill betur til, gæti það veitt okkur góðan sýning- argrip. Við verðum að hafa það eins og fólkið á bænum hjá honum fóstra mínum, einn göðan veður- dag 4 túnaslættinum, þegar ég var 12 vetra telpa. Pangað kom í heim- sókn úr öðrum landsfjórðungi bróð- ir hans með konu og börnum þeirra, að kvöldtagi þegar svo var ástatt að öll taðan var útþur á túninu og skyldi bindast daginn eftir ef veður leyfði. Nú leyfði veður, en þann dag var ekki rótað við bólstrunum

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.