Dagur - 01.05.1930, Side 2
82
DAGUR
22. tbl.
Nýkomnar
byggingavörur.
Linoleum-dúkar — geysimikið úrval
Veggfóður, yfir 60 tegundir.
Vegg- og gólf-flísar, mikið úrval,
Eldavélar, svartar og emaileraðar.
Ofnar, þvottaskálar, eldhúsvaskar margar
tegundir, handvaskai, vatnssalerni o. fl. o. fl.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Myndastofan
i Oránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Meðlimatala félagsins er nú nokk-
uð yfir 45,000, sem standa saman
sem eitt einasta stórt neytenda-
heimili.
K. F. S. — eða »Konsum«, sem
félagið nefnist i daglegu tali, á
þannig um 240 verzlunarbúðir, sem
selja almenningi nauðsynjavörur.
Margar þessara búða eru svo smekk-
legar að ytra útliti, að þær prýða
göturnar, og þegar komið er inn i
þær sýna þær sömu einkenni. —
Fyrir þann, sem ókunnur er fyr-
irkomulaginu, getur það verið dá-
lítið villandi í fyrstu, að hann ár-
angurslaust litast um eftir búðar-
borðinu. — Pað er nefnilega ekki
til í mörgum þeirra, heldur eru
hinar fjölbreyttu og freistandi vör-
ur settar fram í glergeyma, þar
sem kaupandinn getur séð þær og
skoðað, og búðarþjónarir eiga hægt
með að ná þeim, svo að afgreiðslan
gangi fljótt og ánægjulega. — Alt
annað inni í búðunum er eftir þessu,
hagkvæmt og fallegt. Veggirnir eru
klæddir með ítölsku »stúk«, og
hinn blálegi litur þeirra er mjög
þægilegur fyrir augað.
Til þess að gera sér hugmynd
um, hversu mikils neytendafélag
sem þetta þarfnast af vörum, geta
eftirfarandi tölur e. t. v. verið góð-
ar:
Sú vörusort, sem meðlimirnir
þarfnast mest af, er mjÖl,en af því er selt,
samlagt í öllum búðunum, d0-70,000
l<g. á viku. Mjölið kemur frá mylnu-
verki, sem kallast >Tre kroner* og
er eign sambands sænskra sam-
vinnufélaga (Kooperativa Förbundet)
— félagið skiftir því hér svo að
segja við sjálft sig. — Kaífi, sem
selt er úr búðunum á viku, nemur
um 9,000 kg. og svarar það til
10,800 kg. af óbrendu kaffi — auð-
vitað þarf ekki að taka það fram,
að kaffið kemur gegnum Samband-
ið frá »Nordisk Andelsforbund*
(Samband samvinnufélaga á Norð-
1 urlöndum). Af sykri er selt um
60,000 kg. á viku, af smjörlíki um
20,000 kg. á viku. Smjörlíkið kem-
ur frá smjölíkisverksmiðju Sam-
bandsins í Norrköping, sem nú er
stærsta og fullkomnasta smjölíkis-
verksmiðja landisins. - Að lokum
má nefna áð ostsalan er um 9,000
kg. á viku.
Ef vér hættum nú hér, mundu
Iesendur kannske fara að gera sér
f hugarlund að Stockholmsbúar
lifi á jurtafæðu einni saman, en svo
er þó ekki, því kjötvörur í stórum
stíl eru einnig seldar í búðunum.
— í hverri viku fær félagið til slátr-
unar 140 nautgripi, 350 kálfa, 260
sauðkindur og 550 svín.
Félagið lætur sér þó ekki nægja
að vera aðeins sðlufélag, sem út-
vegar meðlimum sínum sem beztar
vörur með sem lægstu verði, en
til þess enn betur að ná þessum
tilgangi sínum hefir það gerst fram-
leiðandi, það hefir þannig komið
sér upp sinni eigin kjötvöruverk-
smiðju og auk þess á það og rek-
ur stærstu brauðgerð, sem til er á
öllum Norðurlöndum. Og sá, er
kemur þar inn, fellur næstum því
í stafi yfir öllum þeim stórfelda
vélaútbúnaði, sem þar er, og yfir
þeim hraða og þeirri fullkomnun
sem þar ræður. — Brauðgerðin hef-
ir samt sem áður svo mikið að gera,
að hún hefir ekki við að framleiða
alt það brauð, sem selt er í 190
brauðbúðum, er standa í sambandi
við hana; hún hlýtur því að stækka
hið allra bráðasta.
P^gar á alt er Iitið má með
sanni kveða svo að orði um kaup-
félagið >Stockholm«, að það sé
beinlínis »bygt yrði« hin mögru fjöl-
skyldubú í Stockhólmi. — Pað eru
þessar fjölskyldur, sem af frjálsum
vilja hafa tekið höndun saman, til
þess að leysa þann vanda, hvernig
ibúar höfuðstaðarins geti fengið
nauðsynjar sínar beztar og ódýrastar.
(»Brugsforeningsbl«. — stytt)-
--------o-----
Á viðavangi.
Harmur »lsl.«.
(haldsblaðið hérna í bænum kvein-
ar yfir því, að rikisstjórnin hafi gert
Eystein Jónsson að skattstjóra í
Reykjavík, þar sem völ hafi verið
margra lögfræðinga ívStöðuna, sem
mænt hafi löngunarfullum augum
eftir henni.
Réttast .væri fyrir íhaldsblöðin
sjálfs sín vegna og flokks síns, að
tala sem minst um skattstjórastarfið.
Pess er ekki langt að minnast að
mannaskifti urðu í þessari stöðu
og að starfinu hafði áður gegnt
einn af þektustu lögfræðingum lands-
ins og sem þar á ofan var undir
handarjaðri íhaldsins. Kom þá í ljós,
að hann hafði ekki gegnt starfinu
betur en svo, að framtölin höfðu
verið mjög svo óábyggileg og sum
þeirra jafnvel svo ófullkómin, að
þau voru að engu hafandi. Varð
nýi skattstjórinn, sem núverandi
ríkisstjórn hafði sett í starfið, að
leiðrétta villurnar og gekk rösklega
fram í því. það kom sem sagt i
ljós, að framin höfðu verið stór-
feld skattsvik af ýmsum burgeisum
Reykjavíkur. þegar þeim hélst þetta
ekki lengur' uppi, urðu þeir sár-
gramir og fengu Magnús fyrrum
dós. til þess að bera upp kveinstafi
sína á þingi yfir því, að nýja stjórnin
leyfði þeim ekki að svíkja skatt. En
Magnús fékk þannig löguð svör
hjá fjármálaráðherra, að hann /sá
þann kost vænstan að leggja niður
skottið og renna af hólmi.
Síðan þessum skattsvikabrunni
var lokað, hafa blöð fhaldsins verið
í úfnu skapi, og kvein »ísl.« nú
síðast mun af þessum rótum runnið.
»
Vörn fyrir Magnús.
»fsl.« reynir að verja þá blekkingu
eða heimsku Magnúsar Ouðmunds-
sonar, er hann taldi ríkisskuldirnar
51/2 milj. kr. hærri en þær eru.
Hliðstæða við röksémdafærslu >fsl.«
er á þessa leið:
Ef »ísl.« skuldar A. 1000 kr., fær
síðan 1000 kr. lánaðar hjá B. og
borgar A., þá skuldar »fsl.« 2000 kr.(!)
Oott reikningshöfuð við »ísl.«(!
Fjandskapur við Mentaskólann.
það er auðséð á landkjörsskrafi
»ísl.«, að greyið er hrætt við fylgi
kjósenda við Jónas Jónsson dóms-
málaráðherra, ella teldi það sig ekki
þurfa að ráðast á hann með offorsi
og brigslyrðum. Hræðsla blaðsins
er á fullum rökum bygð. — Eitt af
því, sem blaðið brigslar J. J. um,
er, að hann hafi reynst aðalmenta-
stofnun landsins, Mentaskólanum í
Reykjavík, fjandsamlegur.
Nú er það á allra vitund, að
mjög miklar umbætur hafa verið
gerðar á mentastofnun þessari, síðan
J. J. fór að hafa afskifti af henni.
Áður hafði skólinn verið illa hirtur
utan og innan, enda kveðið mikið
að berklaveiki i honum á þeirn ár-
um. J. J. byrjaði á því að láta setja
rafdælu i skólann, sem þrýstir hreinu
lofti inn í hvern bekk. þá var blautu
fötunum, sem spiltu mjög loftinu,
útrýmt úr kenslustofunum. Enn má
nefna það, að i skólanum var að-
eins helmingur þeirra salerna, er
heilsufræðin heimtaði. Úr þessu lét
J. Jj bæta, þrátt fyrir hina megnustu
andspyrnu úr fhaldsliðinu. Margar
aðrar smærri og stærri umbætur
hafa gerðar verið á skólanum undir
stjórn J. J. og á allan hátt hefir
hann verið skinnaður upp eftir
fhaldsvanhirðinguna, og allar hafa
umbæturnar mætt andstöðu i íhalds-
liðinu, þó að ekki hafi þær verið
taldar fjandskapur gegn skólanum
fyr en »ísl.« kveður upp úr með
það nú nýskeð. fhaldsmálgagnið
telur það fjandskap við skóiann að
dæla í hann hreinu lofti; í þess
augum er það einnig fjandskapur
við skólann að fjölga þar salernum,
eftir þvf sem heilsufræðin krefur, og
enn birtist fjandskapur J.J. til skól-
ans í þvi að leyfa ekki að blautum
fötum sé dyngt inn í kenslustofurnar
í kenslustundum.
Nærri má geta, að »ísl.« telur
það lýsa mikið fjandsamlegum hug
J. J. til Mentaskólans, að hann hefir
látið opna ágætt bókasafn, sem
skólinn hefir lengi átt, en áður var
harðlæst.
Skal því nú skotið undir dóm
allra réttsýnna manna, hvaða flokk
sem þeir heyra til, hvort nokkurn-
tíma hafi sést á prenti aulalegri
sleggjudómar en þeir, er »ísl.« ber
á borð í þessu máli. Hver getur
fallist á þá herfilegu vitleysu, að
kærleikur til einnar mentastofnun-
ar eigi að birtast í því að svo sé
til hagað, að hún sé gerð aðtilval-
inni berklasíöð með því að hafa
sem verst andrúmsloft í henni og
að hafa helmingi færri salerni en
brýn þörf er á? Sú rökrétta á-
lyktun hlýtur að að verða dregin út
úr hinum heirnskulega vaðli »fsl.«
Annars er það ekki hlutverk Dags
að fá »ísl.« til að taka eitthvað
skysamlegar á málum en hann ger-
ir, ef honum er það nokkur alvara
að vinna flokki sínum gagn nú fyrir
landkjörið. Blaðinu er það svo sem
velkomið, frá Framsóknar hálfu, að
vaða elginn áfram og tala sem mest
óráð. íhaldsmönnum sjálfum stend-
ur næst að koma vitinu fyrir blaðið
sitt, ef þeim er það áhugamál, að
það geri fhaldsflokknum sem minnst
ógagn fyrir 15. júní.
-------0------
í Nýja-Bíó s.l. sunnudag hefði verið
þess verð að þar hefði vetið alveg
fult hús. Rödd Birkis er fremur
mikil og svið hennar all viðtækt —
og hann kann það sem hann fer
með.
Efnismeðferð og framburður text-
anna er í bezta lagi hjá honum, og
allar raddbreytingar og áherzlur
réttar og ágætar.
Báðar aríurnar, »Mefistofelis« og
»Tosca«, söng Birkis eins og vera
ber með miklum krafti og næmri
tilfinningu. »Betlikerlinguna«, sem
hann varð að endurtaka, söng hann
einnig með mjög næmri tilfinningu
og hrífandi, en bezt hljómaði þó
rödd hans í »Ridonami la calma«.
Birkis og Sigurður O. Björnsson
sungu alveg ágætlega saman þrjár
duettur;—»Gunnar og Kolskeggur*
sérstaklega fór svo vel, að það
verðurað teljast hámark söngskrár-
innar þetta kvöld.
Hr. Vigfús Sigurgeirsson aðstoð-
aði á pianoið ög gerði það yfir-
lætislaust og smekklega að vanda.
— Og »Geysir« leysti sitt hlutverk
af hendi með venjulegu samræmi,
svo unun var að fyrir áheyrendurna.
L F. B.
Leiðrétting. í 19. tbl. þar sem skýrt var
frá listum til landkjörs, hefir misprentast
A-listi Framsókn, i að vera A-listi jafnað
armenn. — Listi Framsðknarfl. er B-Usti.
— f*ví miður gleymdist að setja þessa
leiðréttingu $ naesta bl. á eftir, þar sem
hún áttl að koma. •—
J