Dagur - 14.08.1930, Page 2
164
DAGUR
47. tbl.
Postulínsviirur
r.
Matarstell fyrir 6 og 12 manna.
Kaffistell — 6 — 12 —
Bollapör — mikið úrval.y
Kaupfélag Eyfirðinga.
^ftiiliftiiliftiiilftliftilfti
Jarðarför Elínar Sæmunds-
dóttur, sem andaðist á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 10. þ. m., fer fram laugar-
daginn 16. þ. m., kl. 1 e. h., frá
kirkjunni.
Aðstandendur.
Xaldalóns-kvöld.
Allir söngelskir menn í landinu
þekkja Sigvalda Kaldalóns. Lög
hans, sem nú um mörg ár smám
saman hafa komið fyrir almennings
sjónir, hafa náð miklum og mak-
legum vinsældum, og það ekki ein-
ungis hér á landi, heldur hafa þau
líka orðið til að auka álit á íslenzkri
list úti í heimi, þar sem þau hafa
heyrst, og það er nú orðið allvíða.
Bróðir tónskáldsins, söngvarinn
Eggert Stefánsson, hefir orðið til
þess að kynna bæði hann og fleiri
íslenzk tónskáld i stórborgum heims*
ins, hefir Eggert verið vel til þess
fallinn fyrir allra hluta sakir, því
það er mála sannast, að íslenzk
tónlist hefir átt útvalinn fulltrúa og
og dyggan útvörð í hinum, stærri
löndum, þar sem Eggert er — full-
trúa, sem hefír getið sér slíkan orð-
stír allstaðar, þar sem hann hefir
látið til sín heyra, að þess eru fá
dæmi. Sannleikurinn er sá, að vér
eigum fáa eða enga listamenn, sem
íslendingar gætu haft ástæðu til að
vera jafn stoltir af og Eggert Stef-
ánssyni. Allur sá heiður, sem hon-
um hefir hlotnast hvarvetna, þar
sem söngmenningin stendur á hæstu
stigi í heiminum, er og heiður lands-
ins og þjóðarinnar, sem hefir alið
hann. — F*essu hefir þó verið harla
litill gaumur gefinn hér á landi;
og það má undarlegt heita, að sá
maður, sem hefir lyft fána íslenzkr-
ar menningar jafn hátt meðal er-
lendra þjóða og hann hefir gert,
skuli frelcar hafa orðið fyrir aðkasti
sumra þeirra, er manna fyrstir
hefðu átt að verða til þess að auð-
sýna honum þakklæti og viður-
kenningú.
Eins og kunnugt mun orðið eru
þeir bræðurnir, Sigvaldi Kaldalóns
og Eggert Stefánsson staddir hér
í bænum þessa dagana. Hafa þeir
að undanförnu haldió söngskemt-
anir á Hvammstanga, Blönduósi,
Sauðárkrók og Hólum í Hjaltadal.
Hefir þeim alstaðar verið tekið með
fögnuði.
Hér á Akureyri ætla þeir að halda
söngskemtun á laugardagskvöldið
kh 9 í Samkomuhúsinu. — Syngur
Eggert aðallega lög — sum ný —
eftir bróður sinn, sem spilar sjálfur
undir á harmonium. — Verður þetta
því mjög sjaldgæf skemtun, er
mönnum gefst kostur á að heyra
tónskáldið sjálft aðstoða, er bróðir
hans túlkar lög hans.
Blaðið hefir átt tal við Eggert
Stefánsson, sem hefir dvalið erlend-
is undanfarið, en kom heim tii þess
að vera á Alþingishátíðinni, þar
sem menn þó fóru á mis við að
heyra til hans, eins og reyndar
fleiri annara okkar beztu söngmanna.
Samt sem áður hefir Eggert lagt
sinn drjúga skerf til þess að auka
hróður íslands einmitt i tilefni af
Alþingishátiðinni. — í Kaupmanna-
höfn söng hann við þrenn hátíða-
höld, sem efnt var til, til þess að
minnast íslands: i »Danmarkssam-
fundet*, »Dansk-islandsk Samfundc
og íFraternitas-Klubbenc, á öllum
þessum samkomum var Ounnar
Qunnarsson rithöfundur einnig og
hélt ræður fyrir fslands hönd. —
Pá var Eggert fenginn til að syngja
á Íslands-hátíð, sem félagið »Nor-
denc efndi til í Stockholm; en
v. Sydov landshöfðingi mælti þar
fyrir minni íslands; bæði söngnum
og ræðunni var víðvarpað og heyrð-
ist því um alla Svíþjóð og víðar.
Að síðustu söng Eggert íslenzk
lög á Radio-konsertum í Khöfn og
í Stockholmi, sem einnig voru haldn-
ir í tilefni af þúsund ára afmæiinu
íslenzka. — Pegar á alt þetta er
litið, þá virðast það vera dálítið
skrítin örlög, að Evrópa skyldi eiga
kost á að hlusta á Eggert í tilefni
af Alþíngishátíð íslendinga, en ís-
lendingar urðu að fara þess á mis,
þrátt fyrir að hann var staddur á
sjálfri hátíðinni!
Áður en Eggert fór heim í sumar,
hafði hann, þrátt fyrir alt þetta,
tíma tii að bregða sér til Berlin og
syngja þar 20 lög í grammófón —
þ. á. m. mörg ný Kaldalóns-lög.
Þessar nýju grammófónplötur munu
nú vera komnar í verzlanir hér. —
Vér bjóðum þá bræður velkomna
hingað til bæjarins og óskum þess,
að þeir geti fengið ástæðu til að
vera ekki síður ánægðir með við-
tökurnar hérna, en annarstaðar, þar
sem þeir hafa komið í þessariferð.
B.
..- -
Þér eruð aldrei viss um að þvotturinn
verði ekki fyrir skemdum nema þér not-
ið SUNLIGHT SÁPU. Ef þér notið hana
jafnan endist fatnaður yðar Iengur, litur,
mýkt og útlit helst til hins síðasta.
Gæði SUNLIGHT sápunn-
ar eru trygð með krónum
20000,00 og greitt þeim sem
sannað getur að hún sé
skaðleg.
A-S 2B6-BO
Ðrothers Umited. Port Suniight, England
Söngskemtanir
Sig. Skagfields.
Sigurður Skagfield söng í Sam-
komuhúsinu s. 1. iaugardagskvöld.
Var söngur hans dável sóttur og
má taka það fram strax að allir
munu hafa farið ánægðir frá hon-
um.
Skagfield er Akureyringum svo
kunnur, að það er óþarfi að fjöl-
yrða hér um hina góðu rödd hans
og meðferð viðfangsefnanna, enda
hefir verið nokkuð rækilega á það
hvortveggja bent hér í blaðinu síð-
ast, er hann söng hér. — Hann er
enn staddur á framfaraskeiði, en
mér fanst hann þó tæplega njóta
sín eins vel á laugardagskvöldið og
við hefði mátt búast, og naumast
jafn vel og síðast er hann var hér;
en um það geta tilviljanir einar
ráðið.
Söngnum var að maklegleikurh
einkar vel tekið og varð hann að
endurtaka sum lögin, ti d. »Sorte
hunde« eftir norska tónskáldið Alf
Hurum, enda var það ágætlega
sungið og af miklum þrótti — og
»Bikarinn« eftir M. Kristjánsson;
»Messias« eftir Hándel vakti einnig
mikla hrifningu, og sama gerði
aukanúmerið, er hann gaf allra síð-
ast.
Skagfield hélt annan konsert í
Akureyrar-Bíó í gærkvöldi.
Manntalsping fyrir Akureyrarkaupstað
verður haldið x bæjarstjórnarsalnum í Sam-
komuhúsinu n. k. föstudag 15. ágúst kl.
I e, h.
Námaslys i Schlesiu.
Ógurlegt námaslys átti sér stað í
kolanámu við þýzka námubæinn
Hansdorf í Schlesíu, þ. 10. f. m.
Verkamennirnir voru að bora í
námugöngunum, þegar alt í einu
að kolsýra streymdi inn til þeirra,
sprengdi námuveggina og kæfði á
svipstundu yfir 100 manns, aðeins
38 menn af þeim, sem unnu í nám-
unni, komust út, en talið er að um
140—50 manns hafi farist.
Allmikla eftirtekt hefir það vakið,
að katólski biskupinn, sem hélt Iík-
ræðunayfir 111 námumönnum, sem
funcínir voru, fór mjög ómildum
orðum um þau sultarkjör sem námu-
menn í Schlesíu ættu við að búa,
kvað hann laun þeirra vera svo aum,
að þau væru of lítil til að lifa af
þeim og helzt til mikil til þess að
þeir beinlínis sveltu til dauðs — og
þessir menn yrðu að vera í stöðugri
lífshættu til þess að hafa ofanaf
fyrir sér og sínum. Biskup kvað það
vera óumflýjanlega skyldu þjóðfé-
lagsins að bæta úr þessu misrétti.
Þessi ræða er talin bera vott um,
að það nú sé fullur ásetningur kat-
ólsku kirkjunnar i Pýzkalandi að láta
hagsmuna og velferðarmál alþýðu-
einkum námumanna - til sín taka
frekar en verið hefir,—Sumir kenna
beinu skeytingarleysi frá þeirra hálfu,
sem stjórna námunum, um slysið.
Tillaga hefir komið fram um að
banna með Iögum rekstur þessarar
námu, sem lengi hefir verið talin
mjög hættuleg, en svo fátæk, að
rekstur hennar borgar sig mjög illa,
þrátt fyrir sultarkjör verkamanna.