Dagur - 02.10.1930, Blaðsíða 2
DAGtm
55. tbl.
194
w
£
S» 3B
Timburfarmur
nýlega kominn.
Betra timburenséðsthefirhér imörgár.
Allar tegundir fyrirliggjandi.
Pantanir afgreiddar um alt land.
Kaupfélag Eyfirðinga.
liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Jarðarför konunnar minnar, Ragnheiðar Stefánsdóttur er and-
aðist 25. sept., er ákveðin föstudaginn 10. okt. og hefst með
húskveðju á heimili hinnar látnu, Hallfríðarstöðum í Hörgárdal
kl. 11 fyrir hádegi.
Hallur Benediktsson.
My ndastof an
Gránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
inni, þá má búast við hínum bezta
árangri
Dr. Kerschagl hefir afhent félagi
nokkru meðal sitt, og stendur það
undir stöðugu eftirliti dýralækna, svo
að menn geta ávalt verið vissir um
að efnin, sem meðalið er búið til
úr, séu fersk og að öllu leyti eins
og þau eiga að vera, og er það
mjög þýðingarmikið. Meðalið er
mjög ódýrt, enda hefir uppfyndinga-
maðurinn afsalað sér ölium ágóða
af uppfyndingu sinni, til þess að
hún geti komið sem allra flestum
að fullum notum.
Vegna velferðar íslenzks landbún-
aðar og fjárræktar vona eg, að þessi
lækningaaðferð verði reynd; og ættu
menn að snúa sér til dýralæknanna
i landinu - hér á Norður- og
Austurlandi til dýralæknanna Sig.
Ein. Hlíöar, Akureyri, og Jóns Páls-
sonar Reyðarfirði - þvi þeir geta
útvegað meðalið Contortin, og eru
að öðru leyti ávalt reiðubúnir tii að
hjálpa bændum með ráðum og dáð
i þessu vandamáli.
Pað verður að stofna svo til að
ormaveikinni verði fullkomlega út-
rýmt úr landinu, það er hægt, og
ef fjárræktin á að geta haldið áfram
að vera tryggur atvinnuvegur, verð-
ur það að takast; mikið léttir það
undir,þegar túnræktinni miðaráfram,
svo menn þurfi ekki að nota slæm
úthey úr flóum og mýrum til fóð-
urs, því það er einmitt í óræktar
flóum og mýrum, að ormarnir þríf-
ast; á ræktudu landi og vel hirtum,
þurrum engjum gætir þeirra þar á
móti ekki. — En hver bóndi ætti
að álíta það skyldu sina að vera
með til að gera tilraunir og notfæra
sér þau meðöl, sem vísindin geta
boðið honum til útrýmingar veik
inni.
Innilutningsbann á fólki. Eftir því, sem
blöð frá Vesturheimi herma, hefir nýja
stjórnin í Kanada ákveðið að stöðva fólks-
innflutning frá Evrópu þangað til lands
um stundarsakir. Ástæðan til þessa inn-
flutningsbanns er talin sú, að vinnulýður
i Kanada gengur tugum þúsunda saman
atvinnulaus og getur enga björg sér veitt.
Ófriðarbliku
dró upp á hinn friðsæla eyfirska
himin nú í vikunni. Nokkrir verka-
menn eru að vinna að vegagerð á
akbrautinni fram fjörðinn, sem tekin
hefir verið í tölu þjóðvega. Hafa
þeir eina kr. i kaup á tímann. Petta
þótti einhverjum verklýðsforingjum á
Akureyri of lágt kaup, fóru fram
eftir á fund vegabótarmannanna á
mánudaginn og vildu fá þá til að
krefjast hærra kaupgjalds. Verka-
mönnum þótti þetta vera slettireku-
skapur og svöruðu ónotum. Hurfu
þá hinir heim við svo búið, en
höfðu við orð, að þeir myndu koma
í annað sinn og vera þá liðsterkari.
A þriðjudaginn var fullyrt að þeir
hefðu verið að undirbúa herferð
fram í fjörðinn, en úr henni hefir
ekkert orðið.
»Verkamaðyrinn« skrökvar.
Seg/a ritarar blaðsins ósatt
af ásettu ráði ?
»Verkamaðurinn« skýrir frá því á
þriðjudaginn, að stjórn Verkamanna-
félags Akureyrar hafi »tilkynt vega-
málastjóra, að vinna (við vegabætur
hér í grend) verði stöðvuð á morgun
(þ. e. í gær), ef kaupið ekki verði
hækkað«.
Síðar í sama tölublaði er skýrt
frá því, »að samningaumleitanir séu
hafnar við ríkisstjórnina og hún pegar
hefir faoðist til nokkurs undanhalds, svo
vinnutriöur héldist«‘ o. s. frv.; verði
því ekki hafist handa um stöðvun
vinnunnar, segir blaðið.
Hér með skal því lýst yfir, að
tilkynningu þeirri, er stjórn Verka-
mannafélags Akureyrar sendi vega-
málastjóra á mánudaginn var, þar
sem hótað var að stöðva vinnuna,
ef kaupið yrði ekki hækkað, hefir ekki
verið svarað einu oröi. Pað er því eng-
inn flugufótur fyrir því, að ríkis-
stjórnin hafi boðist til nokkurs
undanhalds, svo vinnufriður héldist,
eins og »Verkamaðurinn« segir.
En hvers vegna fara jafn heið-
virðir og sannleikselskir menn og
ritarar »Verkam.« með rakalausa
lygi?
-------o-------
* Leturbreyting DagS.
S íms keyti.
(Frá FB.)
Reykjavík 28. sept.
Vélbáiurinn Sleipnir, sem hvarf
af Reykjuvíkurhöfn, staldraði við á
ísafirði 2 — 3 daga án þess að hon-
um væri gaumur gefinn, hélt svo
áfram til Aðalvíkur, rak þar á land
og brotnaði mikið. Vélbátur frá ísa-
firði var sendur þangað til að hand-
taka Tryggva Helgason, sem tók
bátinn. Tryggví er nú fyrir rétti.
Hjörtur Ólafsson trésmiður á ísa-
firði er nýlátinn af áfengiseitrun;
rannsókn er hafin út'af þessu dauðs-
faili. Norðmaður, Haasköld að nafni
sern mun hafa látið Hjört fá spírit-
us, var stöðvaður á Lyru við Færeyjar
ísfiskmarkaður fer hækkandi í
verði í Englandi; 24. þ. m. seldi
Skúli fógeti afla sinn þar fyrir 1527
pund sterl. Flestir botuvörpungar
veiða í ís. Afli góður á Halamiðum,
en mest er það ufsi sem veiðist.
Fiskiútflutningur sennilega svipaður
í september og vanalega. — Tveir
þurkdagar hafa komið nú í vikunni
og lagaðist mikið við það* Purkhús-
in eru almennt tekin til starfa.
Rvík 1. okt.
London: Birkenhead lávarður er
látinn, 58 ára gamall. 22. sept. var
tala atvinnulausra i Englandi
2.109.558; er það 6245 fleira en
næstu viku á undan og 946.718
fleiri en á sama tíma í fyrra.
Berlín: Ríkisstjórnin áformar að
draga úr útgjöldum, sem nemur 121
miljón marka árlega. Hindenburg
er samþykkur áformum stjórnarinn-
ar. Fái stjórnin ekki þingmeirihluta,
er talið líklegt að hún fresti þingi
um nokkra mánuði, og verður þá
stjórnareinræði á meðan.
-------o------
H úsgagnaverkstœði
Ólafs Ágústssonar.
í 54. tbl. Dags, 26. sept., er smá-
grein um »Framfarir í iðnaði« er
orðið hafi á verkstæði Ólafs Ágústs-
sonar trésmíðameistara.
Höfuðtilgangur greinarinnar virð-
ist sá, að Ijúka lofsorði á sænskan
mann, er á verkstæðinu hefir starfað
nú um hríð;
Eflaust er þessi umræddi Svíi
duglegur og áhugasamur á sínu
sviði. En að þakka honum allar
»framfarir í iðnaði«, er orðið hafa
á húsgagnaverkstæði Ólafs Ágústs-
sonar, getur ekki kallast nema oflóf.
Pað er á vitund flestra bæjar-
manna og nærsveita, að Ólafur
Ágústsson hefir starfrækt húsgagna-
verkstæði sitt nú um 16 ára skeið,
og að hann sjálfur hefir frá
upphafi látið sér ant um að auka
starfstæki sfn, og framleiða vönduð
húsgögn, sem að öðru leyti voru
íslenzkur iðnaður, Petta hvorttveggja
hefir honum tekist, og hefir hann
alla jafna fylgst með kröfum tím-
anna af skilningi og smekkvísi.
í umræddri grein er sagt um
þenna sænska mann: »Megum vér
kunna honum, þakklæti fyrir, útlend-
um manni, að hann í þessu efnic —
húsgagnasmíði og iðnaði — »hugsar
lengra, og sér betur en margir
aðrir ísiendingar*.
Hvert þessum ummælum er stefnt,
skulu engar getur leiddar að, en
flestum mun þau óþörf virðast.
Vitni um fyrirhyggju íslenzkra smiða
og handiðnaðarmanna eru til sýnis
hvar sem litið er. Og í stofum
manna hér á Akureyri og víðar
lofa smiðsgripir Ólafs Ágústssonar
meistara sinn.
Akureyri 27. sept. 1930.|
F. H. Berg.
Eg skal kannast við faðernið að
greinarstúf þeim er hér ræðir um.
En satt að segja skil eg ekkert i að
hún skuli geta valdið misskilningi
þeim er mér virðist. ofanstandandi
bera vitni um. »Höfuðtilgangur«
hennar hélt eg væri augljós — sá
að benda á framfarir í íslenzkum
iðnaði. Mér hafði skilist að hr.
johannsson hefði annast uppsetn-
ingu vélanna á verkstæði hr. Ólafs
Ágústssonar og að það naumast
gæti álitist móðgun við hann eða
nokkurn annan að þess væri getið.
Mér finst það svo mikið velferð-
armál að íslenzk iðnaðarframleiðsla
verði samkeppnisfær, að við höfum
fulla ástæðu til að vera þeim þakk-
látir, sem að því stuðla — og þar sem
eg segi að þessi maður hugsaði
lengra og sæi betur en sumir hverjir
íslendingar, þá get eg ekki skilið að
íslenzkum iðnaðarmönnum geti fund-
ist sneitt vera að sér, þar sem þeir
þó munu hafa rekið sig á þá örð-
ugleika, sem því eru samfara, að
sannfæra almenning um, að íslenzkar
vörur virkilega séu samkeppnisfærar
hvað verð og gæði snertir, þó þær
í raun og veru séu það og meira
til. — Mér finst það ekkert »oflof«
þó bent sé á að útlendur maður í
»þessu efni« sjái betur en margir
íslendingar — en að slíkt fréttist
ætti vera mönnum hvatning til að
kaupa íslenzka framleiðslu frekar en
útlenda, þar sem þeir geta það sér
að skaðlausu, og eg vil í því sam-
bandi ennþá benda á verkstæði hr.
Olafs Ágústssonar og framleiðslu
hans - og reyndar annara íslenzkra
iðnaðarmanna. F. fl. B.
Samningi þeim, sem á sínum tíma var
gerður fyrir tilverknað Tryggva Þórhalls-
sonar milli togaraeigenda og háseta, mátti
segja upp af hvorum aðila fyrir sig fyrir
1. okt. í haust. Hvorugur aðilinn hefir sagt
samningnum upp, og framlengist hann því
af sjálfu sér næsta ár.
Geysir söng á Iaugardagskvöldið. Hvor-
ugur ritstjóra þessa blaðs gat verið þar
viðstaddur, en þeir, sem á hlustuðu, létu
prýðilega af.