Dagur - 23.10.1930, Blaðsíða 4
208
DAGUE
---1
58. tbl.
S ims keyti.
(Frá FB.)
Rvík 20. okt.
Berlín: Rikisþingið hefir með 323
atkv. gegn 230 vísað frá ýmsum
frumvörpum, svo sem endurskoðun
Youngsamþyktarinnar, stöðvun á
greiðsiu hernaðarskaðabóta og end-
urskoðun Versalafriðarsamninganna.
30—40 lítrar af áfengi hafa verið
teknir úr skipinu Maí, sem er ný-
komið frá Englandi. Einn skipverj-
anna hefir gengist við því að eiga
áfengið.
Rvik 21. okti
OslO: Bráðabirgðaúrslit kosning-
anna í Noregi eru á þá leið, að
hægri flokkurinn og vinstri flokkur-
inn hafa unnið alls 10 þingsæti,
jafnaðarmenn hafa tapað sex og
kommúnistar tveimur.
Rvík, 22. okt-
Ægilegt námuslys hefir komið
fyrir i Aachen í Pýzkalandi; eitt
hundrað og fimm menn biðu bana,
98 meiddust og 124 vantar og vafa-
samt að takist að bjarga þeim'.
Oslo: Fullnaðarúrslit kosninganna
eru kunn orðin. fhaldsmenn hafa
hlotið 45 þingsæti og bætt við sig
14; bændur 26, og er það óbreytt,
vinstri 31 og grætt eitt; verkalýðs-
flokkurinn 47 og hafa tapað tólf.
Kommúnistar náðu engu þingsæti.
-------o--------
o
Fréttir.
DettÍfOSS, hið nýja skip Eimskipafélags-
ins, kom hingað seint á laugardagskvöid-
ið. Skrpitjóri er Einar Stefánsson, áður á
Goðafoss. Með skipinu voru einnig Guð-
mundur Vilhjálmsson framkvæmdasjóri
Eimskipaféiagsins og Hallgrímur Bene-
diktson varaformaður félagsins. Á sunnu-
daginn var nokkrum kaupsýsiumönnum
og blaðamönum hér í bæ, ásamt bæjarfó-
geta og bæjarstjóra, boðið til snæðings,
í hinum prýðilega matsal skipsins. Gaf
þá skipstjórinn lýsingu af skipinu. — Detti-
foss hefir rúm fyrir 22 farþega á I. farr,
og 14 á II. farrými, og gefur II. farrými
hinu lítið eftir. Skipið rúmar 2000 smál.
og er því einkum ætlað til vörnfiutninga.
Ganghraði skipsins er 14 míiur. Vélin er
1700 hestafla. Lengd skipsins er 235 fet,
breidd 36 fet og dýpt 23,9 fet. Allur út-
búnaður skipsins er talinn hinn vandaðasti.
Það er i aðalatriðum svipað Goðafossi, en
tekur honum þó að ýmsufram. Farmrými
þess er allmiklu meira, vél þess enn sterk-
ari og þó sparneytnari á kol. Ganghraðinn
er nokkru meiri. Stýrisútbúnaður er mjög
vandaður og nýmóðins. Vistarverur háset-
anna eru óvenjulega góðar. Skipið er talið
mjög traust og ágætis sjóskip.
Frá flmtsbókasafninu: Safnið var opn-
að Þriðjudaginn 21. þ. m. — Lestrarsal-
urinn daglega opinn (nema á Mánudög-
um) kl. 4—7 e. b. — Útlán: Miðvikudög-
um og Laugardögum kl. 4—7. — Sökum
skorts á bókum við hæfi barna fær enginn
innan 14 ára aldurs lánaðar heim bækur
úr safninu.
Sigurður Skagtield söngvari var staddur
hér í bænum fyrir helginai Héðan fór
hann með flutningaskipi áleiðis til Sví-
þjóðar og ætlar að dvelja þareitthvað, en
býst siðan við að halda vestur um tyaf til
Ameriku,
lllviðri af norðaustri gerði hér um helg-
ina og fylgdi þvi óvenjumikið hafrót. Vegna
óveðursins lá Dettifoss hér fram á þriðju-
dagsmorgun og Drotningin lá á Siglufirði
til mánudags.
Einar flrnason fjármálaráðherra tók sér
far með Drotningunni suður á sunnudag-
inn. Með sama skipi fór og Jónas Þorbergs-
son útvarpsstjóri.
Esja kom að austan á föstudaginn var.
Vegna óveðurs varð hún að fara fram hjá
einum áætlunarstaðnum, Vopnafirði. Með
skipinu kom hingað Hannes J. Magnússon
kennari.
Samsæti héldu nokkrir vinir og sam-
herjar Einari Árnasyni fjármálaráðherra í
>Skjaldborg< á laugardagskvöldið.
Mjólkurbúin á Suðurlandi og i Eyjafirði
höfðu nýlega sýningu á framleiðsluvörum
sínum í Búnaðarfélagshúsinu í Reykjavík.
Sýning þessi vakti mikla eftirtekt i höfuð-
staðnum. I sambandi við sýninguna var
útsala á ostum.
Sauðnaut. Getið var um það nýlega í
skeytum hér i blaðinu, að atvinnumála-
ráðuneytið hefði fest kaup á 5 sauðnaut-
um frá Noregi. Eru það þrjú kvendýr og
tvö karldýr. Hvert dýr kostar 950 norskar
krónur, komið til Reykjavíkur, enda liggi
fyrir vottorð frá dýralækninum í Reykjavík
um heilbrigði þeirra, er þau eru þangað
komin. Þegar dýrin koma, verða þau bólu-
sett gegn bráðapest. — Sauðnautskvígan
frá Grænlandi, sem lifði af i fyrra, er við
beztu heilsu og spikfeit.
Látinn Inndi. Jón Runólfsson skáld and-
aðist í Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg
12. sept. síðastl.
Leiðarping í Skagafirði. Magnús Ouð-
mundsson lagði leið sina norður i Skaga-
fjörð í haust, tii þess að tala við kjósend-
ur. Bauð hann ásamt samþingismanni sin-
um, Jóni á Reynistað, kjósendum upp á
leiðarþing á ýmsum stöðum i kjördæminu,
en það lítur út fyrir að Skagfirðingar hafi
ekki verið sérlega sóignir í að hlusta á
fræðslu M. G., þvi á flesta fundina komu
frá 7—10 manns og á einn fundinn (að
Ökrum) kom enginn!
Gullbrúðkaup áttu 15. þ. m. Jónatan
Jósefsson múrari og Jónína Ouðmundsdótt-
ir hér i bænum. Þau eru bæði 76 ára
gömul. Jónatan er orðinn blindur fyrir
nokkru.
Bjarni Bjarnason læknir kom heim úr
utanlandsför með »Drottningunni« á laug-
ardaginn var,
LagarfOSS kom vestan af Húnaflóa í
siðustu viku. Frá þvi að hann lagði af
stað frá Siglufirði og þar til hann kom
hingað inn, voru liðnir fullir 20 klukku-
tímar. í venjulegu veðri er það 4 tíma
sigiing. Er haft eftir skipstjóranum, að
hann hafi aldrei hreppt jafn vontsjóveður
sem i þetta sinn.
Dánardægur. Nýlega er iátin á Hjalteyri
frú Guðlaug Sveinsdóttir, ekkja Jóns Ant-
onssonar. Bjuggu þan hjón lengi i Arnar-
nesi rausnarbúi, Guðlaug sál. var orðlögð
dugnaðar- og myndarkona. Hún var komin
hátt á áttræðisaldur.
Þá er og fyrir nokkru látin húsfrú Ragn-
heiður Stefánsdúttir að Hallfriðarstöðum í
Hörgárdal, kona Halls Benediktssonar
bónda þar.
--------O———
Þar sem
Biinaöarbankiíslands
hefir tekið við Viðlagasjóði íslands, ber skuldu-
nautum sjóðsins hér eftir að snúa sér til bank-
ans, en ekki ríkisféhirðis með alt, sem sjóðnum
við kemur.
Fjármálaráðuneytið.
Postulín og leirvara.
Fjölbreytt úrval í blárósóttu — postulíni og Ieirvöru
(Kaupmannahafnarmunstur). — Allar tegundir. —
Kaupfélag Eyfirðinga.
(Oamla búðin).
Sænsk
handverkfæri
Skóflur allskonat, gaflar, undirristuspaðar,
höggkvíslar, rákajárn, gref, garðhrífur o. fl. o. fl.
Sœnsk handverkfœri eru bezt.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAQA.
Kven-vetrarkápur w
nýkomnar. yfyf/1
Xaupfélag Eyfirðinga
Vefnsðaroörudei/din. mk \f\
Til nnln með sérstöku tæki- m m
færisverði er Orgel,
vandaður messing hengilampi,
straupanna með járnum og
peysuföt.
Þórður Valdemarsson,
Eiðsvallagötu 2 Oddeyri.
Niðursuðudósír
af öllum stærðum.
Kaupfélag Eyfirðinga.
jPrehtsmiðja Odds Rjöfpsgonfir,
Maltöl
B a j e r s kjt ö 1
P il s n e r
2ezt. — Ódýrast.
Innlent.
Ritstjórí:
lagimar Eydal, Gilsbakkaveg 6