Dagur - 29.12.1930, Side 1

Dagur - 29.12.1930, Side 1
DAGUR temur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Ámi Jóhanns- son f Kaupfélagi Ejrfirö- inga. Afgreiðslan er hjá Jónx Þ. Þár, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðsiumanns fyrir 1. des. • #~# # # # # # # #-#-#-#-•-# # #-#"#-#-• • #'#-#■ #•# -# -#- Akureyri, 29. Desember 1930. 67. tbl. Frá Barnaskólanum. Kennsla byrjar í skólanum næstkomandi Laugardag. Skólastjórinn. XIII. ár. + Utvarpið. Ríkisútvarpið, eða Útvarpsstöð íslands í Reykjavík, hóf reglu- bundna starfsemi fyrra sunnudag. Hefir heyrsf prýðilega vel til stöðv- arinnar hér fyrir norðan, nema hvað nokkrar truflanir hafa átt séi stað við og við og er að þeim nokkur bagi. Að undanteknu útvarpsefni er stöðin enn starfrækt á ábyrgð Marconi-félagsins, og verður hún ekki vígð fyr en félagið afhendir hana í hendur ríkisins til fullnustu. Aðalútvarpsefnið hefir verið sem hér segir: Hljómleikar, söngur, bæði einsöngur og kórsöngur, fréttir, inn- lendar og útlendar, upplestur, er indi og messur. Meðal þeirra, er upp hafa lesið, er frú Marta Kalman, Friðfinnur Ouðjónsson leikari og Haildór Kilj. an Laxness. Einsöng hafa t. d. sungið Krist- ján Kristjánsson, Sigurður Birkis og María Markan. Meðal þeirra er flutt hafa erindi má nefna Sigurð Nordal prófessor (útvarpið og bækurnar), Sigurð Skúlason mag. (um Rorláksmessu), síra Sigurð Einarsson (um uppeldis- stofnun í Prag), Ásmund Ouð- mundsson dósent (um ísleif biskup), Einar Arnórsson prófessor (um Pjóðabandalagið). Aðalútvarpstíminn er frá kl. síðdegis og þar til um kl; 10 og stundum lengur. Útvarpskennsla í tungumálum hefst strax upp úr nýjárinu. Útvarpsráðið skipa: Helgi Hjörv- ar kennari (formaður), Alexander Jóhannesson prófessor, Páll ísólfs- son tónskáld, sira Friðrik Hallgríms- son dómkirkjuprestur og Ouðjón Ouðjónsson skólastjóri. Útvarps- stjóri er Jónas Porbergsson. Nýlega höfðu um 2000 manns fengið sér viðtæki. Að líkindum hækkar sú tala mjög á næstunni. Takmarkið þarf að vera að útvarp- ið nái til allra heimila á landinu og ekki sízt t sveitum landsins. Hin dreifðu býli úti um byggðir íslands þarf þetta merka menningartæki að leysa úr fjötrum einangrunar og fá- breytni. Til þess að svo megi verða, þarf að gera almenningi svo auð- velt sem unnt er að afla sér við- tækja. Pað verður helzt með því móti að viðtækjaverzlunin selji mönnum tækin með þeim skilmál- um að þau megi greiðast hægt og hægt með smáum afborgunum. ......o ....... A S ims key ti. (Frá FB.) Rvík, 26. des. Atvinnuleysið 15. þ. m. var sem hér segir: i Bretlandivoru 2219592 menn atvinnulausir og var það 700.000 minna en næstu viku á undan, en 996.035 fleira en á sama tíma í fyrra. í Þýzkalandi voru 3.997.000 atvinnuleysingjar og í Bandaríkjunum 5.300.000. Fylgir þessu ástandi mikill skort- ur og kvalir meðal atvinnuleys- ingjanna. Rvík 29. des. Talið er að hámarki atvinnu- leysis í Evrópulöndum verði náð um miðjan janúar, og að þá verði 7/2 milj. atvinnuleysingja í þess- um löndum. Joffre marskálkur er hættulega veikur. Búist er við, að samkomulag ná- ist í dag milli prentara og prent- smiðjueigenda. Sömuleiðis er bú- ist við, að samkomulag náist í 'deilunni um garnastöð Sambands- ins. Atvinnuleysingjar hér sendu nefndir manna á fund borgar- stjórans og ríkisstjómarinnar, til þess að krefjast atvinnu. Gengu þeir undir rauðum fána, báru kröfuspjöld upp í stjórnarráðs- húsið og sungu þar og einnig fyr- ir utan hús Scheving Thorsteins- son lyfsala, þar sem bæjarskrif- stofurnar eru, söngva sína við raust. Engar óspektir urðu. -----—0------- Fr éttir. SkipstraruL Togari frá Hull strand-' aði austan á Melrakkasléttu 18. þ. m. Annan togara bar þar að og tókst hon- um að bjarga öllum strandmönnunum, 12 að tölu. Dánardægur. Jóhannes Sigfússon fyrverandi yfirkennari í Reykjavík er nýlega látinn. Hann var Eyfirðingur að ætt og uppruna, alinn upx> í Núpufelli hjá foreldrum sínum; faðir hans var Sigfús Thorlacius, en hann var einn af sonum séra Einars Thorlaciusar í Saur- bæ. Jóhannes gekk ungur í lærða skól- ann og síðan í prestaskólann og lauk þar námi, tók þó aldrei prestsvígslu, en gerði kennslu að æfistarfi sínu. Var hann fyrst lengi kennari við alþýðu- skólann í Flensborg og síðan kennari við lærða skólann í Reykjavík í 25 ár og lét fyrir fáum árum af því starfi. Hann var jafnan vel þokkaður af lærisveinum sínum og ætíð talinn mikill heiðurs- og sæmdarmaður. Hann mun hafa verið kominn hátt á áttræðisaldur. Að morgni 22. þ. m. andaðist að heimili sínu hér í bæ Ásgrímur Péturs- son yfirfiskimatsmaður, eftir örstutta legu í lungnabólgu. Ásgrímur var 62 ára að aldri, vel gefinn maður, vinsæll og prýðilega starfhæfur. Hann var Húnvetningur að ætt, bróðir Péturs, er fyrrum bjó á Gunnsteinsstöðum í Langadal, og síra Hafsteins, sem ný- lega er dáinn. Ásgrímur sál. lætur eftir sig konu og 5 ung börn. Nýlega er látin að Kristnesi Jóhanna Jónsdóttir, ógift stúlka á fimmtugs- aldri. Hún dó af slagi. Látin er að Háhamri í Eyjafirði ung stúlka, Rósa Guðmundsdóttir, dóttir hjónanna þar. Hún andaðist. úr berkl- um. Landsspítalinn var vígður laugai'dag- inn 20. þ. m. Vígsluræður fluttu heil- brigðismálaráðherrann og landlæknir og var þeim ræðum varpað út. Ráðherrann gat þess, að bygging þessi væri stærsta og jafnframt dýrasta hús, sem reist hefði verið hér á landi, kostnaður við það orðinn 1% miljón kr., enda ekkert til sparað að hafa allt sem vandaðast. Stofnunin ætti í senn að vera bæði sjúkrahús og kennslustofnun. í ræðu sinni lýsti landlæknir stofnun- inni allrækilega. Hinn 15. júní 1926 var hornsteinninn að byggingunni lagður. Landlæknir lauk lofsorði á dugnað kvenþjóðarinnar og þar næst land- stjórnarinnar við framkvæmdip þessa máls. Vígsludaginn tók spítalinn á móti þremur fyrstu sjúklingunum, en alls getur hann tekið á móti rúmum 100 sjúklingum nú sem stendur, en þegar starfsmannahús er reist, má bæta við 30 sjúklingum. Þriðja hæð er nú notuð til íbúðar fyrir starfsmannaliðið. En þar á síðar að verða deild fyrir þá, er hafa útvortis berkla. Þá gat landlæknir þess, að innan skamms kæmi út bækl- ingur með myndum, sem lýsti stofnun- inni nákvæmlega. 'Ennfremur tók hann það fram, að daggjöld sjúklinga yrðu hærri á landspítalanum en í öðrum sjúkrahúsum, en aftur á móti losnuðu sjúklingarnir í þessari stofnun við alls- konar aukagjöld, sem ættu sér stað annarstaðax. Með stofnun landspítalans hefur ís- lenzka þjóðin stigið langt spor fram á leið í heilbrigðis- og menningaráttina. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Ingibjargar Porláksdóttur. Akureyri 27. des. 1930. Aðstandendur. Innilegt þakklæti votta eg öllum hér í bæ og víðar, er fyr og síðar hafa auðsýnt mér hjálp og vinsemd. Bið eg góðan Ouð að iauna þeim og-gefa þeim gleðilegt nýtt ár. Akureyri 29. des, 1930 Anna Halldórsdóttir. Úska viöskiftamönnum mínum gleöilegs og farsœls komandi árs, og pakka viðskiííin ájiöna árinu. - Get pess jainframf, að eg-eins og aö undan- förnu — kaupi flestar landbúnaöarafurðir framvegis. Virðingarfyllst. Kristjdn Sigurðsson. Itorfaníiii! geta kýreigendur rUl lUllulli fengiðleittum bæinn* Oddeyrargötu 6 A. /. G. Póstþjófnaður. Peningabréfum, með um 600 kr. í, var stolið úr ábyrgðar- póstpoka frá Siglufirði með síðustu ferð »Drottningarinnar« suður. Sam- kvæmt skeyti frá Höfn til póststjórnar- innar í Rvík er upplýst, hver valdur er að póststuldinum, en sökudólgurinn ekki nafngreindur. Nýlátinn er £ Landakotsspítala í Reykjavík Hinrik Erlendsson læknir í Hoi-nafirði. Áramótamessw. Gamalárskvöld: Ak- ureyri kl. 6 e. h. Nýársdagur: Lög- mannshlíð kl. 12 á hád., Akureyri kl. 4 e. h. Hjónabond: Ungfrú Sigríður Guð- mundsdóttir og Jónas Kristjánsson for- stjóri Mjólkursamlagsins. — Ungfrú Guðrún Sigurbjömsdóttir og Sigurður Helgason innlagningamaður. — Ungfrú Ragna Jónasdóttir og Guðmundur Frí- mann trésmiður. — Ungfrú Guðrún Guðmundsdóttir og Eggert St. Melstað slökkviliðsstjóri. — Ungfrú Jónborg Þorsteinsdóttir og Magnús Þorsteinsson írá Upsum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.