Dagur - 11.06.1931, Side 2
118
DAGUR
31. tbl.
Jarðyrkjuverkfæri. 1
Spaðar. — Oafflar. &§[
Malarskóflur. — Saltskóflur ••
Kartöfluskóflur. J9
Garðhrífur. #g|
Undirristuspaðar. ••
Ræsaspaðar.
Sh Kaupfélag Eyfirðinga SS
Járn- og glervörudeildin.
BMMIIilittHMIMMHiiS
Myndastofan
Oránufélagsgðtu 21 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
brjósti, en einblína ekki á sína
eigin pyngju, svo eg viðhafi orð
Jóns Þorlákssonar úr Lögréttu
1908.
Það er flokkur, sem í innsta eðli
sínu er lifandi umbótaflokkur.
Verkin sýna merkin. Á þessum
tæpum fjórum árum, sem hann
er búinn að fara með æðstu völd,
hefir land og lýður stórbreyzt.
Framkvæmdirnar hafa verið svo
stórstígar, að aldrei síðan landið
byggðist hafa þær verið neitt
svipaðar og nú, og þær munu bera
ríkulegan ávöxt á ókomnum ár-
um.
Bardaginn verður nú á milli
þessara tveggja flokka aðallega,
við kosningarnar sem í hönd fara;
úrslitin eru þýðingarmikið atriði.
Nái íhaldsflokkurinn sigri við
kosningarnar, er ríkisvaldið rurin-
ið í hendur braskaralýð Reykja-
víkur og fyrir séð um örlög sveit-
anna og íslenzka landbúnaðarins
um leið. íhaldsflokkurinn hefir
sýnt og sannað, að hann hreint og
beint er illviljaður sveitunum og
mætti ótal margt nefna þeirri
staðhæfingu til stuðnings. Auðvit-
að fer jafn falskur flokkur hægt í
að sýna sinn rétta hug og anda til
þeirra, þó úlfurinn hafi nokkrum
sinnum sézt greinilega undir
sauðargærunni, sem hann hylur
sig með.
Nefni eitt dæmi af handahófl,
sem styður þetta mál mitt vel.
Þann 14. apríl s. 1. átti að ræða
vantraustsyfirlýsingu á stjórnina,
er var borin fram í sameinuðu
þingi af 6 íhaldsmönnum og
vafalaust með fylgi alls flokksins
og auk þess með stuðningi jafnað-
armanna. Hefði tillagan verið
rædd, náði hún efalaust samþykki
þingmeirihlutans og stjórnin
hlaut að beiðast lausnar. Ætluðu
andstæðingarnir síðan að taka
höndum saman og mynda sam-
bræðslustjórn fram að kosningun-
um, sem áttu að fara fram 15.
júlí í sumar.
En vantraustsyfirlýsingin varð
aldrei rædd á Alþingi. Sama
morgun og umræðurnar áttu að
hefjast, kvaddi forsætisráðherra
sér hljóðs utan dagskrár og til-
kynnti, að þing væri rofið sam-
stundis að skipun konungs, og
nýjar kosningar færu fram 12.
júní í stað 15. júlí. Það er óþarfi
að geta þess, að íhaldinu og jafn-
aðarmönnum varð æði bilt við
þessi tíðindi, enda var það að
sumu leyti von. Stjórnarmyndun-
arhugmynd þeirra var þar með,
að mestu leyti, úr sögunni og allir
loftkastalar um sæluríka daga
uppi í stjórnarráði hrundir til
grunna.
En íhaldsflokkurinn ætlaði svo
sem ekki að vera aðgerðarlaus, ef
honum hefði auðnast að fá að
halda um stjómartaumana dá-
litla stund með jafnaðarmönnum.
Hann ætlaði að sýna sveitunum
velvild sína, með því að koma á
stórfelldum breytingum á kjör-
dæmaskipuninni í landinu. Fjölga
átti þingmönnum Reykjavíkur úr
4 upp í 9. Og öll þessi breyting
kostaði fækkun þingmanna í
sveitakjördæmunum; með þessu
móti átti að draga allt vald frá
sveitunum, til kaupstaðanna, í
hendur braskaralýðs höfuðstaðar-
ins.
Ástæðan fyrir þingrofinu var
því meðal annars sú, að rétt þótti
að skjóta jafn stóru máli og kjör-
dæmabreytingunni, undir dóm
þjóðarinnar. Verði sigurinn í-
haldsmegin við kosningamar,
hlýtur algert sveitahrun að verða,
ef dæma má eftir þeim stuðningi,
sem fhaldið vildi veita landbún-
aðinum á meðan það hékk við
völd frá 1923—1927. Það er held-
ur varla von til þess að íhalds-
flokkurinri vilji leggja peninga í
»deyjandi fyrirtæki« eins og eitt
af blöðum þess flokks kemst að
orði um landbúnaðinn, eða þeir
vilji rækta upp »lélegasta landið
á jörðinni« (Vísir, 1931). Þeir
finna eflaust upp miklu betri
staði til að slengja peningunum í,
t. d. í sjávarútveg og verzlunar-
brask. En verði sigurinn Fram-
sóknarmegin, þarf ekki að óttast
um hrun sveitanna á meðan sá
flokkur ræður hér ríkjum. Hann
hefir sýnt það í starfi sínu á und-
anfömum árum, að hann vill
styðja sveitirnar og landbúnaðinn
með ráðum og dáðum og allar
framkvæmdir -í landinu, enda er
Framsókn alhliða umbótaflokkur.
Á stjórnarárum hennar hafa
fleiri ár verið brúaðar en nokkru
sinni fyr, og meiri vegir verið
lagðir um strjálbýlar sveitir og
óruddar heiðar, en áður hafa ver-
ið dæmi til. Samgöngubæturnar á
sjónum hafa heldur ekki farið
varhluta af umbótastarfi Fram-
sóknar. Einnig hafa tvö varðskip
verið keypt hingað til að verja ís-
lenzka landhelgi, gegn útlendum
veiðiþjófum.
Alþýðuskólar hafa risið upp í
mörgum sveitum og útvarpsstöð-
in, sem reist var í Reykjavík,
sendir fróðleik og fréttir um endi-
langt ísland. Mætti telja ótal
margt fleira, sem Framsókn hefir
gert, til að blása anda og lífi í
sveitirnar, og sem horfir landi og
lýð til gagns.
íslendingar! Hvern flokkinn
ætlið þið að kjósa 12. júní?
Ef þið látið atkvæði ykkar falla
á þingmannsefni Framsóknar,
kjósið þið eins og sannir fslend-
ingar, sem bera hag alþjóðar fyr-
ir brjósti. Með því tryggið þið
sveitunum og íslenzkri menningu
glæsilega framtíð og landinu heill
og hamingju.
Ef þið greiðið íhaldsflokknum
atkvæði, stuðlið þið að hruni
sveitanna og glötun íslenzkrar
menningar. Þá munu sveitirnar
tæmast og þjóðin hrúgast í kaup-
staðina á mölinni. Islenzki land-
búnaðurinn mun þá liggja í
dauðadái, þangað til alþjóð vakn-
ar til nýrrar meðvitundar, og ber
giftu til að reisa sveitirnar við á
ný.
Kjósendur! Aldrei hefir verið
meira áríðandi en nú, að nota
kosningarrétt sinn vel.
Athugið viðburðina á stjórn-
málasviðinu og stefnur flokkanna
gaumgæfilega, og kjósið síðan
eftir beztu sannfæringu. Þá er
sigur Framsóknar líka viss.
Þá er gifturík framtíð lands og
þjóðar trygg.
Árni Bjamarson.
Pálsgerði, Höfðahverfi.
o
Klögumálingangaávíxl.
íhaldsmenn bregða Framsókn-
arstjórninni um, að hún hafi of-
sótt peningaburgeisa innan Morg-
unblaðsflokksins.
Jafnaðarmenn ákæra stjórnina
fyrir að hafa gefið auðborgurum
Reykjavíkur 400,000 kr.
íhaldsmenn brígsla stjórninni
um, að hún hafi hækkað kaup
verkalýðs í landinu og aukið á
þann hátt dýrtíðina.
Jafnaðarmenn eru háværir um,
að sama stjórnin hafi verið sá
versti kaupkúgari i garð verka-
manna.
Hvorum eigum við að trúa, þeg-
ar svo illa ber saman?
Eina skynsamlega ráðið er að
trúa hvorugum, því þegar klögu-
málin ganga svo á vígsl, er auð-
sætt að báðir ljúga.
EFNACERÐAR-VflRUR
eru þekktar um allt land, vörugæði og
verðlag viðurkennt af öllum sem reynt hafa.
(slendingar! Kaupið íslenzkar vörur.
Umboðsmaður vor á Akureyri er
Eggert Stefánsson
Brekkugötu 12. — Sími 270.
H|f Efnagerð Reykjavíkur.
Skrílslœti á fundi í Rvík.
Umræðufundur um stjórnmál
var haldinn í Reykjavík í fyrra-
kvöld. Fór fundurinn fram í
barnaskólaportinu. Af hendi
Framsóknar töluðu þar Jónas
Jónsson, Gísli Guðmundsson og
Helgi Briem. f hvert skifti er þeir
tóku til máls, hófu andstæðing-
arnir Hin verstu skrílslæti, org-
uðu, blésu í pípur og höfðu í
frammi önnur götustrákalæti, svo
nálega ekkert orð heyrðist til
ræðumanna Framsóknar. Eru
foringjar úr liði »ungra sjálf-
stæðismanna« taldir hafa staðið
fyrir og stjórnað skrílslátum
þessum.
Talið er, að lista Framsóknar
hafi aukizt fylgi við þessa stráks-
legu framkomu, því vitanlega er
hún fordæmd af öllum sæmilega
siðuðum mönnum.
-----g— —
J
Hrœddir kappar.
»Sjálfstæðis«-kapparnir hérna
á Akureyri hafa undanfarna daga
skolfið, ekki af kulda, heldur af
hræðslu við það, að þeir muni
bíða ósigur við .kosninguna á
morgun. Þessi sári ótti, sem grip-
ið hefir kappaliðið, stafar af
sjúkri ímyndun þeirra sjálfra um
einhverja »pólitíska sambræðslu«,
er þeir svo kalla. Stundum á dr.
Kristinn að draga sig til baka og
allt Framsóknarliðið að snúast til
fylgis við Erling. »Þá erum við
frá«, hafa kapparnir sagt. Hinn
sprettinn hefir Erlingur átt að
draga sig til baka og fylgismenn
hans kasta atkvæðum sínum á K.
G. »Þá erum við líka frá«, hafá
kapparnir sagt. O'g svo að síðustu
á öll Framsókn á síðustu stundu
að yfirgefa dr. Kristinn og fylkja
sér um Einar Olgeirsson, og »þá
erum við enn frá«, segja »sjálf-
stæðis«-hetj urnar.
óneitanlega bendir þessi með
öllu ástæðulausi »sambræðsluótti«
á, að pólitískt heilbrigðisástand sé
ekki sem bezt á heimili »Sj álf-
stæðisins«.
Úr Höfðahverfi 8. júnl 1981: óvanai-
lega miklir kuldar og frost á hverri
nótt. Víðast hvar mjög gróðurlítið. —
Byrjað að vinna með dráttarvél. —
Fiskafli ágætur á »motor«báta á Greni-
vík. Hafa bátar fengið allt að 14 skp.
í róðri. — Heilsufar gott. — Giftingar:
Steingrímur Jónsson Grímsnesi og Að-
alrós Björnsdóttir s. st. Ingjaldur Pét-
ursson (úr Vestmannaeyjum) og Bryn-
hildur Björnsdóttir, Pálsgerði.