Dagur - 09.07.1931, Blaðsíða 4

Dagur - 09.07.1931, Blaðsíða 4
136 DAGUR 35 tbl. Pakkir. Öllum þeim, fjœr og nœr, sem sýndu okkur vinsemd og hlutiekningu eftir brunann d Helgastöðum s.l. vetur, vottum við hérmeð okkar innilegustu þakkir. Helgastöðum í Reykjadal i. júlí '1931. Maria Sigfúsdóttir. Jónas Friöriksson. Yfirlýsing. Að gefnu tiletni votta eg undirritaður, að fósturdóttir min, Sigriður Jónsdóttir, 10 ára að aldri, heiir leigió i kikhósta fyrir tjórum — 4 — arum sioan, og þar af leið- andi hvorki getur fengið hann nú, eða Fréttir. smittað aóra. Ak. 6.-7.-'31. Vottar: M*8nú# Jónsson. Sig. Júl. Fnðriksson, Árni Sigurðsson. þá líka frelsi. — Af sögunni Skál- holt verður ekki séð að framkoma Ragnheiðar stjórnist af einbeitt- um vilja á að brjótast undan kúg- un og valdboði, heldur af ófram- sýni, kærulausri þrjózku og stundareigingirni. í viðskiptum þeirra Daða koma aldrei í ljós aðrar eðliskenndir hjá Ragnheiði en köld, ástríðurík eigingirni. Göfug, elskandi kona mundi meta heiður ástvinar síns öllu öðru meir. En Ragnheiður notar sér vald sitt yfir Daða án nokkurs tillits til þess, þó hún geri hann að ó- dreng og lítilmenni gagnvart sjálfum sér og öðrum. Ragnheiður hugsar aldrei fram í tímann, hún lifir í augnablikinu, kærulaus fyrir afleiðingunum. Þegar Helga í Bræðratungu gerir henni það drengskaparbragð að taka hana á heimili sitt, til að vernda hana fyrir reiði biskups, sem hefði getað kostað hana lífið undir kringumstæðunum, þá fær hún ekki önnur laun hjá Ragn- heiði en vanþakklæti. Undir glæsilegustu kringum- stæðum væri móðurtilfinning Ragnheiðar máske eðlileg, þegar hún verður vör við fyrstu hreyf- ingar fóstursins, en í Ragnheiðar sporum var óblandin sæla fráleit; meiri ástæða var til alvarlegrar í- hugunar um það, hvaða framtíð þessi vesalings ósjálfbjarga vera átti í vændum. Ragnheiður bar á- byrgðina á tilveru hennar, og vissulega hefði hún mátt beygja hné og biðja ófætt bamið fyrir- gefningar á að hafa kallað það til lífsins. En Ragnheiður er óneitanlega sjálfri sér samkvæm bókina út; hjá henni, sem móður, ríkir sama eigingirnin og ábyrgðarleysið eins og hjá henni fyr sem ástmey. Það lítur næstum svo út, að sumir nútíðar rithöfundar álíti það köllun sína, að þrýsta því inn í vitund lesenda sinna, að menn- irnir séu ekki annað en sálarlaus- ir líkamir. En énn er það ekki orðið, og verður vonandi aldrei, að íslenzk alþýða bregðist svo sönnu manneðli, að slík skrif finni samhljóm í sál hennar. 1 febrúar 1931. Inpibjörg Tryggvadóttir, Hallgrhnur Hallgrímsson lireppstjóri frá Rifkelsstöðum varð áttræður síðastl. sunnudag. Á sama tíma hafði hann gegnt hreppstjórastörfum í Öngulstaða- hreppi í 49 y2 ár og sagði því starfi þá lausu. í vor varð hann fyrir áfalli af bifreið, sem orsakaði það, að hann sá sér ekki fært að vera lengur í hrepp- stjórastöðunni. Hiallgrímur var á yngri árum helzti frömuður framfara og' félagsmála í sveit sinni og glæsimenni í sjón. Forstjóraskifti urðu við Landsbanka- útibúið hér um síðustu mánaðamót. Lét Júlíus Sigurðsson af starfinu, en við tók Ólafur Thorarensen, er verið hefir fulltrúi við aðalbankann í Reykjavík. Hefir Júlíus haft forstjórastarfið með höndum frá því iað útibúið var fyrst sett á stofn árið 1902 og staðið prýði- lega í stöðu sinni, sem sjá má af því, að bankaútibúið hefir haft um 800 þús. kr. í hreinan ágóða eftir tímabilið, þótt annarsstaðar hafi orðið töp á rekstri bankans. Leikfélag Reykjavíkur sýndi »Hall- stein og Dóru« í 6. og síðasta sinn hér á Akureyri í gærkveldi. Við allar leik- sýningarnar hefir verið húsfyllir. Leikfólkið hverfui' suður aftur undir næstu helgi. Basjarbruni. Á sunnudaginn var brann íbúðarhúsið að Brekku í Norðurárdal. Heima var aðeins húsfreyjan með 4 ungum börnum. Þegar menn komu til hjálpar, var eldui'inn orðinn svo magn- aður, að litlu sem engu varð bjargað. íbúðarhúsið var byggt úr steinsteypu með timburþiljum. Slys vildi nýlega til í Hvammssveit í Dalasýslu. Ósyndur maður var að baða sig í sundpolli og drukknaði. Danir eru að senda hingað til lands skipaflota til síldveiða, eftir því sem útvarpsfrégn hermir. Síldveiði er nú byrjuð frá Siglufirði. Markús Kristjánsson, píanoleikari og tónskáld, andaðist í Reykjavík 4. f. m., tæpra 29 ára að aldri. Bókmenntafélagið hélt aðalfund sinn í Reykjavík 17. f. m. Forseti, dr. Guð- mundur Finnbogason, skýrði frá störf- um félagsins. í ár fá félagar þessar bækur: Skírni, Annála, Fombréfasafn og fræðibók, sem heitir Stærðfræðin, eftir A. N. Whitehead, þýðandi dr. G. F. Lokahefti Fornbréfasafnsins kemur út næsta ár, og skýrði forseti frá því, að stjórnin sæi sér ekki fært að halda útgáfunni lengur áfram, en mundi í þess stað hverfa að því ráði að gefa út æfisögur merkra Islendinga. Munu fjölda margir félagar fagna þeirri ráðabreytni. U. M. F. A. fer skemmtiför, n. k. sunnudag, að Hraunsvatni. Lagt verður af stað á vörubifreiðum, frá Bifröst, kl. 8 f. h. Sætið kostar kr. 2.50—3.00 fyrir manninn. Þátttalcendur gefi sig fram í járn- og glervörudeild K. E. A. fyrir kj. 4 e. h. á laugardag. Gott veður er nú á degi hverjum og fer gróðurvextinum nokkuð fram, rflonmiii í kirkju, skóla og heimahús eiga engan *inn líka að hljómfegurð, vönduðum frágangi og völdu efni. 0 QfjnQ eru frægustu og voldugustu flygel- og pianofram- öt uullu leiðendur veraldarinnar. Viðskipti beint við verksmiðjurnar. Mjög aðgengilegir greiðsluskilmálar. Aðalumboð Sturlaugur Jónsson & Co. Reykjavík Umboð fyrir Norður- og Austurland Sveinn Bjarman. » VIM Ein dós af VIM er sá vinur, sem bezt í raun reynist búkonu hverri. Öviðjafnanlegt til að hreinsa, þvo, nudda og fægja málma, mar- mara, málningu, hnífa, leir, vélar, glös, glugga, olíuborna dúka, baðker og látúnsmuni. Fyrir VIM hverfur ryð, óhreinindi, blettir, flekkir o. s. frv. V \ ,&1- \ Hreinsar °2 fæg'r alla A>V"4V\ hluti, rispar ekkert né rákar< M V 122-10 IEVER BROTHERS LIMITED. PORT SUNLI&HT. LNGlANtt mjög falleg vasaúr fyrir kr. 1 39. Ennfremur ýmsar útgengilegar vörur, svo sem: pappírsvörur, smávörur o. m. fl. Lægsta heild- söluverð. Duglegir sölumenn, biðjið um verðlista, sem yður verður sendur endurgjaldslaust. Exportmagasinet, Box 39, Köbenhavn K. Herkúles sláttuvélar. Það er engin tilviljun að vér höfum selt — 500 sláttuvélar á fjórum árum — og að allir sem hafa fengið þéssar vélar eru vel ánægðir með þær. Valið á vélunum veldur þessu. Herkúles vélarnar bregðast ekki. Höfum til alla varahluti í vélarnar. Samband ísl. samvinnufélaga. TAPASTHEFIR ljóssteingrár hest- ur 8 vetra gamail, mark: heilrifað hægra, fjðður framan vinstra. Brenni- merktur JPP á báðum framhófum, ættaður úr Húnavatnssýslu. Finnandi gjöri aðvart i síma í Hóla i Laxar- dal. JÓN PÉTURSSON, Auðnum, S.-Þingeyjarsýslu. Tapast hefir rauður hestur, Ijós á fax og tagl. Einkenni: 2 hvítir blettir, annar aftan við fax, hinn á síðu, járnaður. — Sást siðast á vesturleið fram hjá Varðgjá. — Pá, sem kynnu að finna hest þenna, bið eg að gera mér aðvart, í síma. Húsavík 2. júlí 1931. Stefán Halldórsson. Prentsmiðja Odds Bjömssonar. HLJÓÐFÆRl ýmisleg, grammofóna og jazz- band, er bezt að kaupa frá Ernst Reinh. Yoigt Markneukirchen 907 Þýzkaland. Verðskrár ókeypis, sérstakar fyrir orgel og piano. nýkomnir. Járn- og glervörudeildin. Ritstjóri: Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.