Dagur - 02.06.1932, Blaðsíða 3
22. tbl,
DAGUR
87
svar hins flokksins. er ekki vitað,
þegar þetta er ritað.
Ný stjórn myndast.
Um það leyti, er blaðið var að
fara í pressuna, er því tilkynnt úr
Reykjavík að ný stjórn sé að mynd-
ast og verði hún þannig skipuð:
flsgeir flsgeirsson, forsætis- og fjár-
málaráðherra.
Magnús Guðmundsson, dómsmáiaráð-
herra-
Síra Dorsleinn Briem, kirkju- og
kennslumálaráóherra.
Atvinnumálunum munu ráðherr-
arnir skifta á milli sín.
Síra Porsteinn Briem er eindreg-
inn Framsóknarmaður.
-----o
Sakamálshöfðun.
Á siðastliðnu ári var að undan-
genginni opinberri kæru og að til-
hlutun rikisstjórnarinnar skipuð
nefnd manna til að rannsaka rekst-
ur íslandsbanka undanfarinn áratug.
í nefndina voru skipaðir Einar Arn-
órsson prófessor og málafærslu-
mennirnir Stefán Jóh. Stefánsson
og Pórður Eyólfsson. Nefndin hefir
getið skýrslu um rannsókn sína á
rekstri og útlánastarfsemi bankans,
og er hún þannig vaxin, að ríkis-
stjórnin taldi annað óverjandi en
að höfðað yrði sakamál á hendur
fyrverandi bankastjórum íslands-
banka, þeim Eggert Ciaessen, Sig-
urði Eggerz og Kristjáni Karlssyni,
fyrir stjórn þeirra á bankanum.
Hefir því ríkisstjórnin nýlega fyrir-
skipað sakamálshöfðun gegn fyr-
verandi íslandsbanka-stjórum.
Á orði er, að ýmsum íhalds-
mönnum í Reykjavík leiki mjög
hugur á að koma þeim mönnum i
landsstjórnina, sem helzt er treyst-
andi til að stöðva sakamálshöfðun
þessa, en ekki munu þeir hafa hug
á Einari Arnórssyni til þeirrahluta.
Eftir þvi að dæma lízt þeim miður
vel á aðstöðu sakborninganna.
-----o------
Frá Tengchow.
(Niðurl.).
En á siðustu forvöðum komu
nokkrar sveitir úr ríkishernum og
stugguðu við þeim með failbyssun-
um. En ennþá leika allir þessir ræn-
ingjar lausum hala, og fá sjálfsagt
að fara sinu fram þegar búið er að
reka þá hæfiiega langt fráaðseturs-
stað stjórnarinnar.
Vegna óeirðanna í fyrrahaust
skyldi eg fjölskyldu mina ettir á
Kúlingfjalii. Er það i Kiangsihéraði,
en skammt frá Hankow. Nú hafa
kommúnistar gerzt þar svo nær-
göngulir, að samgöngur hafa tepzt
um tima. Frá fjölskyldu minni hefi
eg engar fréttir fengið siðan um
miðjan janúarmánuð.
Hér færist nú brátt allt i samt
lag aftur. Samkomuhöld, námskeið
og skólar hafa byrjað, eins ogekk-
ert hefði í skorizt.
Ræningjarnir gerðu sér far um
að eyðileggja sem mest af matvöru
manna og fatnaði. Var það gert til
þess að >búa i haginn< fyrir her-
mennina, sem komu i hælana á
þeim. Hungursneyp vofir þvi yfir
fjölmðrgum stöðum hér í nágrenn-
inu. Við hðfum veitt um 150 manna
ofurlitla bjðrg, og var nokkuð af
því, sem við höfum til að miðla,
gjafir frá íslandi. Væri betur ef öllu
fé, sem út úr landinu fer, væri eins
vel variö.
Tengchow 28. febrúar 1932.
Úlafur Úlafsson.
o
Fr éttir.
Stúdentspról f Menntaskótanum á Akur-
eyri hófat í dag, kl. 8 árdegis. Byrjað var
á íslenzkri ritgerð, tem varið er til 5 kUt.
Stúdentaefni mega velja um þrjú verkefni,
eitt náttúrufræðilegt, annað sagnfræðilegt,
þriðja almenna eðlis. Að þessu sinni fengu
brottfarendur þessi verkefni, er þeir kjósa
um:
1. Hetjuhugur og bieyðimennika.
2. Kol.
3. Rússlandsför Napoleons mikla.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
er prófdómandi um íslenzka ritgerð, og
hefir hann valið þessi verkefni.
Jóhannes Sigurðsson, formaður Sjó-
mannastofunnar í Reykjavik, flytur erindi
í Samkomuhúsinu kl. 8.30 á föstudags-
kvöld, sem hann nefnir; Á hafi og í höfn.
Stúlkubarn, tveggja ára gamalt, lenti
undir bifreið á Hverfisgötu í Reykjavík
og andaðist á leiðinni til sjúkrahúss.
Esja Strandar.Á föstudaginn var strand-
aði Esja við Höskuldsey á Breiðafirði.
Yfir 100 farþegar voru með skipinu, og
voru þeir fluttir til Stykkishólms. Skipið
losnaði af grunninu um kvöldið og komst
til Stykkishólms og þaðan til Reykjavikur.
Við strandið laskaðist Esja nokkuð, og
fer bráðabirgðaviðgerð fram í Rvik, en
síðan fer hún til útlanda til fullnaðarvið-
gerðar.
Hautgripasýningarfara fram í.Húnavatns-
Skagafjarðar- Eyjafjarðar- og Suður-Þing-
eyjar-sýslum á þessu sumri.
Bærinn að Þönglabakka i S. Þingeyjar-
sýslu brann til kaldra kola hér um nóttina.
Kaupdeílunni f Vestmannaeyjum er lokið.
Oánardægur.27. þ. m. andaðist Vilhjálmur
Þorsteinsson fyrv. bóndi í Nesi í Höfða-
hverfi, nær hálfáttræður að aldri.
Þá er og nýlega látin hér á sjúkrahús-
inu ungfrú Klara Karlsdóttir, Quðmunds-
sonar verkamanns hér í bæ, ung stúlka
og efnileg.
Bilslys fara mjög í vöxt í ýmsum lönd-
um; þannig hafa 6691 maður farizt af
umferðaslysum í Englandi á siðasta ári og
það að langmestu leyti af bilslysum og
margfalt fleiri særzt af sömu orsökum. Þó
eru Bandaríkin tiltölulega hærra á blaði,
þegar um bílslys er að ræða, en England.
1 Englandi er nú talað um að herða mjög
á bifreiðaumferðalögum og fara með slys,
sem orsakast af ógætni bilstjóra, eins og
um morð væri að ræða.
Samsæri allviðtækt gegn stjórninni i
Bolivíu í Suður-Ameríku hefir nýlegavitn-
ast. Voru sjóliðsforingjar einkum við það
riðnir. Ýmsir fyrirliðar samsærisins hafa
verið teknir til fanga.
Japanar hafa nýlega unnið stórsigur í
Mandsjúríu. Japanar segja tölu fallinna og
særðra Kínverja skifta þúsundum.
RÓStur allverulegar urðu nýlega milli
kommúnista og Hitlersmanna í prússneska
þinginu. Var barizt í þingsalnum og stól-
ar og allt annað lauslegt, sem fyrir hendi
var, haft að vopni. Linnti þessum látum
ekki fyr en allt, sem brotnað gat, var
mulið niður. Margir meiddust og þrír
liggja þungt haldnir af meiðslum. Sagt er,
að kommúnistar hafi átt upptökin að
þessum leik, en ekki hafi staðið á hinum
að taka á móti.
LagarlOSS var hér í vikunni á austurleið
og Súðin á vesturleið.
Ljósmóðurstarfið hér í bænum hefir nú
verið veitt ungfrú jórunni Bjarnadóttur,
sem hefir gegnt þvi að undanförnu.
Lysligaröur bæjarins var opnaður fyrir
almenning á sunnudaginn og verður fram-
vegis opinn hvern dag í sumar frá kl. 9
—12 f. h. og frá 1 Va—6‘/a e. h.
- Sigvaldi Porsteinsson kaupmaður er ný-
lega kominn i bæinn eftir langa dvöl i
útlöndum.
MagnÚS Pétursson fimleikakennari lagði
af stað 24. f. m. til Reykjavikur með 8
manna flokk frá Leikfimisfélagi Akureyrar.
Fóru þeir í bifreið og óku leiöina á 23
stundum. Var þetta fyrsti bíllinn, sem
farið hefir milli Akureyrar og Reykjavíkur
á þessu ári.
Málverkasýninp Sveins Þórarinssonar var
miður sótt en skyldi, þvi þar var margt
girnilegt og merkilegt að sjá. Listamenn
eiga erfitt uppdráttar nú í kreppunni ekki
síður en aörir.
Bjami Bjðmsson gamanleikari hefir haft
þrjú skemmtikvöld í Samkomuhúsinu, á
fimmtudags- laugardags- og sunnudags-
kvöldið. Aðsókn var misjöfn, stundum
góð og stundum léleg. B. B. söng ýmsar
gamanvisur, las upp skritiur, útvarpsfréttir
og fleira og hermdi eftir nokkrum alþingis-
mönnum. Hann er, eins og þjóðkunnugt
er, leikari með afbrigðum og hermir eftir
af mikilli list. Sérstaklega er það undrunar-
vert, hversu hann getur sett upp andlit
þeirra manna, sem hann hermir eftir. Á-
horfendur skemmtu sér hið bezta. Kona
B. B. var með f förinni, og aðstoðaði hún
mann sinn við hljóðfærið,
Eggert Stefánsson syngur í Samkomu-
húsi bæjarms á sunnudaginn kl. 9. siðd,
Nokkur itölsk lög, þar á meðal Serenata
eftir Tosti og Ave Maria eftir Kahn verða
sungin með fiðlu* og pianó-undírspili
(Karl Runólfsson og Gunnar Sigurgeirs-
son).
fllpingi. Þingfundir hafa staðið stutt yfir
siðustu dagana, stundum aðeins eitt mál
á dagskrá i hvorri deild. Meðal þeirra máia,
er þingið hefir afgreitt nú síðast, er breyt-
ing á fátækralögunum, lög um skipulag
kauptúna og sjávarþorpa og lög um gjald-
frest bænda.
Mjög heyrist nú um það kvartað að
þetta þing hafi verið afkastalítið. Ekki er
þetta með öllu rétt, þegar miðað er við
tölu þeirra mála, er það hefir afgreitt. Að
aflokinni samþykkt þeirra laga, er hér
voru nefnd, hafði þingið afgreitt 62 lög,
og er það með mesta móti, þvi frá því
1919 og fram að þessu þingi, hefir hvert
þing afgreitt aðeins 49 lög að meðaltali.
Kaupdeilustapp varð á fiskverkunarstöðv-
um hér í bænum laust fyrir síðustu helgi.
Lýstu stjórnir verklýðsféiaganna yfir verk-
banni á stöðvunum. Var þá gengið til
samninga og náðist skjótt samkomulag á
þá leið, að timakaup fiskverkunarkvenna
verður 65 au. í dagvinnu, en ákvæðisvinna
við fiskþvott er afnumin. Einnig er leyfi-
legt að ráða stúikur fyrir 30 kr. um vikuna,
sé um minnst fjögurra mánaða atvinnu að
ræða.
Kona deyr al brunasárum. Það sorgiega
slys vildi til á Siglufirði fyrir fáum dög-
um, er kona ein, Sesselja að nafnl, ætlaði
að glæða eld í eldavél með steinolíu, að
sprenging varð í vélinni, og náði eldurinn
fötum hennar, sem þegar stóðu í björtu
báli. Þegar hjálp kom, var konan orðin
skaðskemmd af brunasárum víða um lík-
araann. Var hún þegar fiutt i sjúkrahús
og andaðist þar eftir miklar þjáningar.
Kona þessi var gift, og var dóttir hennar
viðstödd, þegar þetta átakanlega slys vildi
til.
Sumarbústaður fyrir börn. aö tiihiutun
kvenfélagsins >Hlíf< var skemmtisamkoma
haldin i Samkomuhúsinu 2. ðag hvitasunnu.
Ágóðinn rann í sjóð þann, sem stofnaður
er í þeim tilgangi að koma á fót sumar-
bústað fyiir veikluð börn. Er ætlun félags-
ins að afla sjóðnum tekna meðai annars
á þann hátt að halda árlega slíka samkomu
og var þessi sú tyrsta í röðinni. >Hlíf<
hefir og leitað til annara félaga hér í bæ
um þátttöku, og hafa sum þeirra þegar
vikizt fúslega undir þá málaleitun. Sam-
koman á 2. í hvítasunnu fór hið bezta
fram og var að henni gerður góður rómur.
Aðsókn var furðu mikil, og var hún vottur
þess, að almenningur hér í bæ vill sinna
þessu nauðsynjamáli og styrkja það eins
og vera ber, því hugmyndin er hin ágæt-
asta og verðskuldar almenna eftirtekt og
óskift fylgi allra þeirra, sem eitthvað vilja
á sig leggja í baráttunni við bcrklaveikina.
En sumarbústaður slikur, sem hér er hugs-
aður, er af þeim, sem bezt hafa vit á,
talinn mikilverður þáttur í þeirri baráttu,
Iryggvi Dóthallsson forsætisráðherra er
nú á góöum batavegi af sjúkleika þeim,
sem áður hefir verið getið hér í blaðinu.
Geir Jónasson stúdent er nýlega kom-
inn heim frá Noregi og dvelur helma um
þriggja mánaða skeið. Að þvi búnu snýr
hann aftur utan og heldur áfram námi.
Ltíg um samvinnubyggingarfélög voru
afgreidd frá Efri deild Alþingis í gær.
Grassprettutlð góð er um þessar mundir.
Þoka um nætur og hitasólskin á daginn.
Qróðri fer þvi ört fram.
Benedikt Bjtírnsson skólastjóri á Húsavik
dvelur hér í bænum þessa dagana.
DettíiOSS kemnr hingað í kvöld vestan
um frá Reykjavík.
Varðskipið Óðinn var hér f gær á aust-
urleið i staðinn fyrir Esju.
DEGI.