Dagur - 11.08.1932, Blaðsíða 1

Dagur - 11.08.1932, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfiröinga. Afgreiðslan er hjá J6ni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. » > > • • -• ••• XV /. ár. | Akureyri 1L ágúst 1932. 32. tbl. Fyrirmynd kommúnista Fyrir nokkrum dögum skeði sá atburður á Siglufirði, að verka- menn þar ráku Svein Benedikts- son framkvæmdastjóra á brott úr bænum, frá starfi sínu ög atvinnu þar. Þóttust þeir eiga honum grátt að gjalda frá ríkisverksmiðjudeil- unni og fyrir níðgreinar um verkalýðsforingjann Guðmund Skarphéðinsson. Til brottrekstrar Sveins var stofnað í hefndarskyni. íhaldsblöðin nefna þessar aðfar- ir með réttu »ofbeldisverknað«, og menn þá, er að ofbeldinu stóðu, »ofstækismenn«. Fleiri atburðir hafa skeð nú ný- lega, sem benda á, að ofbeldis- og hnefaréttarstefna sé efst á baugi meðal kommúnista hér á landi. í fersku minni eru frásagnirnar um uppþotið, sem varð í sambandi við bæjarstjórnarfund í Reykjavík fyrir skömmu, þar sem ráðist var með grjótkasti á hús það, er bæj- arstjórn Reykjavíkur átti setu í, kastað sandi og salti að lögreglu- liðinu og trélurki beint að höfði borgarstjórans o. s. frv. Allar þessar aðfarir kommún- ista dæma foringjar íhaldsflokks- ins mjög svo hart í viðræðum og í blöðum sínum og heimta öfluga vernd sér til handa gegn yfirgangi og ofstopa kommúnistaforingj- anna. íhaldsmenn krefjast þess hástöfum, að ofstopamenn komm- únistaflokksins verði slegnir nið- ur vægðarlaust. En íhaldsmenn virðast ekki gæta þess, að þeir hafa hvað eftir annað staðið í sporum kommún- ista og gerzt lærifeður þeirra og fyrirmynd í ofbeldisframferði og æsingamálæði. Eftir þingrofið í fyrra lögðu íhaldsmenn Alþingis- húsið undir sín yfirráð með of- beldi og fluttu svæsnustu æsinga- ræður af svölum þess og eggjuðu lýð sinn beint og óbeint til margs- konar hryðjuverka. Þeir söfnuðu umhverfis sig æpandi götulýð og tilkynntu honum, að Framsóknar- flokkurinn væri mein, sem skera þyrfti í burtu af þjóðarlíkaman- um. Þeir bentu áheyrendum sínum á, að Englendingar hefðu eitt sinn hálshöggvið konung sinn og að einum Skálholtsbiskupi hefði ver- ið drekkt í Brúará. Þeir fóru með dreggjarnar úr liði sínu heim að húsum aðalandstæðinga sinna á náttarþeli; þar voru kveðnar níð- vísur, hrópuð ókvæðisorð og jafn- vel brotnar rúður. Konur og börn, er fyrir þessum heimsóknum urðu, urðu yfirkomin af hræðslu sem von var til. Foringjum íhalds- manna var þá þegar á það bent að þetta skrílsæði, sem þeir hefðu komið á fót, gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir seinni tíma og komið þeim sjálf- um í koU. Það er hægra að koma lýðæsingum á fót en að kveða þær niður aftur. Á því hafa íhalds- menn nú þegar fengið að kenna að nokkru og eiga að líkindum eftir að bíta betur úr nálinni. Það er að vísu ekkert skemmti- legt að vera að rifja þessa leiðin- legu atburði upp, en það er þó nauðsynlegt að gera það, því á því er enginn vafi, að í þeim felast ræturnar að margskonar of- beldisverkum, er framin hafa ver- ið og framin munu verða af æs- ingamönnum, hvort sem þeir nefnast kommúnistar eða eitthvað annað. Fleiri syndir íhaldsmanna koma hér og til greina, sem bera í sér frækorn ofbe'disverka og ofstopa- yfirgangs. Eitt málgagn íhalds- flokksins skoraði á Reykvíkinga að segja sig úr lögum við aðra landsmenn og stofna fríríki. Sama íhaldsblað skoraði á Reyk- víkinga að hætta öllum viðskiftum við Framsóknarbændur í því skyni að skaða þá fjárhagslega. Ber þetta hvorttveggja svo mik- inn vott um ofstopa æsingamanns- ins að lengra verður ekki komizt. Þessi hótun um innanlands við- skiftastríð og klofning þjóðfélags- ins í tvennt gengur langtum lengra í áttina til æðisgenginna hugsana en heilbrigðrar skyn- semi. Geta má nærri að eftir svona lagaða íhaldssáningu muni upp vaxa ofsafenginn byltinga- gróður. Þá hefir áður hér í blaðinu ver- ið getið að nokkru þess fordæma- lausa ásetnings íhaldsmanna á síðasta þingi, að ætla með ofbeldi að kúga andstæðinga sína tii fylg- is við íhaldsstefnuna í kjördæma- málinu, og þar sem íhaldsmenn ætluðu ekki að kveinka sér við að drepa mál, sem þeir í hjarta sínu voru í öllum aðalatriðum sam- þykkir. Ef Framsóknarmenn hefðu ekki komið í veg fyrir, að sá ásetningur kæmist til fram- kvæmda með því að lofa íhalds- flokknum að fá ráð á einum ráð- herrastól, þá hefði verið stofnað til fullkomins stjórnleysis í land- inu. Enn munu flestir minnast þess, að íhaldsmenn hótuðu því fyrir síðustu alþingiskosningar að grípa til sinna ráða og gera Al- þingi óstarfhæft, ef Framsóknar- menn yrðu í meiri hluta á þinginu. Þessi hótun gat ekki byggst á öðru en því, að íhaldsmenn ætluðu að gera ofbeldisfulla byltingu og virða lög landsins og réttarfar þjóðarinnar að engu. Þessi fram- koma löggjafanna í íhaldsflokkn- um er dálagleg fyrirmynd bylt- ingasinnaðra óeirðarseggja í öðr- um flokkum. Það situr því illa á íhaldsmönn- um að ámæla kommúnistum þung- lega fyrir ofbeldisverk þeirra. Hliðstætt ofbeldisverk því, sem framið var á Siglufirði, þegar Sveinn Benediktsson var rekinn þaðan á brott, framkvæmdu í- haldsmenn i Keflavík í vetur og síðar í Bolungavík. í hvorttveggja skiftið hrósuðu íhaldsblöðin þeim ofbeldisverkum og tóku upp snarpa vörn fyrir þá, er þau frömdu. En þegar íhaldsmenn sjá, að eldurinn er kominn að þeirra eigin dyrum, þá kveina þeir og berja sér á brjóst yfir ranglætinu, er haft sé í frammi, en sem þeir sjálfir hafa áður gerzt brautryðj- endur að. Sannleikurinn er sá, að íhalds- menn hafa á síðustu tímum verið með annan fótinn inni á leiðum ofbeldis og byltinga, en hinn á kyrrstöðugrundvelli. Hvenær, sem þeir hyggja sér hagsmunavon af, eru þeir fúsir til að stofna til bylt- ingar á hinn ofstækisfyllsta hátt. Á hinn bóginn hafa þeir sýnt það á margan hátt að þeim er mjög í nöp við framfarirnar. Stefna flokksins er orðið undarlegt sam- bland af byltingaranda og kyrr- stöðuhneigð. Slíkur óskapnaður er ekki líklegur til að bjarga þjóð- inni, hvorki fjárhagslega eða menningarlega. Og það, sem flýt- ur í kjölfarið, er byltingahugur kommúnista. Hin tvíþætta íhalds- stefna, eins og hún nú er, er ágæt- ur jarðvegur fyrir hann. Kyrr- stöðuhneigðin örvar stefnu komm- únismans, og ofbeldisverk, ærsl og gauragangur íhaldsmanna kyndir undir byltingahug kommúnista. Þar lýstur saman tveimur öfga- stefnum. Hví skyldu kommúnistar ekki hugsa sem svo, að þeim væri jafnfrjálst að fremja ofbeldisverk eins og íhaldsmönnum ? Þeir hafa marglýst yfir þvi, að þeir væru sérstaklega verndarar núverandi þjóðskipulags. Þrátt fyrir það hafa þeir hvað eftir annað ógnað því og látizt þess albúnir að veita því banatilræði, því í raun og veru er það ekkert annað en bana- tilræði við þjóðskipulagið að koma í veg fyrir að fjárlög séu sam- þykkt, því þegar svo væri komið, hefir stjórnin ekki vald til að láta fram fara neinar útborganir úr ríkissjóði, og hlyti þá afleiðingin að verða sú, að öll ríkisstarfsemi yrði að leggjast niður, því þá er ekki hægt að inna af hendi neinar af skyldum þjóðfélagsins gagn- vart þegnunum og þjóðskipulagið því í raun og veru afnumið og þjóðfélagið íeyst upp. Þar sem nú svo er í pottinn bú- ið af sjálfum »verndurum þjóð- skipulagsins«, þá er ekki að undra þó að »féndur þjóðskipulagsins«, jafnaðarmenn, telji sér ekki skylt að þræða alla vegferð sína eftir löglegum leiðum. Enda skeði það fáránlega fyrirbrigði fyrir rúmu ári síðan, að »vei'ndarar þjóð- skipulagsins« og óvinir þess tóku höndum saman um að neita að hlýða stjórnarskránni og söfnuðu liði í því skyni að hræða pólitíska andstæðinga frá því að standa við löglegar ráðstafanir. Að sönnu er það svo með jafn- aðarmannaflokka, að þó þeir óski einskis frekar en að gjörbreyta þjóðskipulaginu, eru þeir andvíg- ir því að slíkar breytingar séu gerðar með ofbeldi, en vinna að breytingunum á þann hátt að afla stefnu sinni fylgis á löglegan hátt. En það er eins og sósíahst- arnir íslenzku hafi nokkuð vikið út af þessum vegi á síðari tímum vegna smitunar frá byltingasjúk- dóm þeim, sem gert hefir vart við sig í íhaldsflokknum eða öllu held- ur vaðið þar uppi. Aftur á móti er það kunnugt um kommúnista, að þeir ekki einungis hata núver- andi þjóðskipulag heldur og allar löglegar leiðir til þess að fá því breytt. Ofbeldisleiðin er sú eina leið, sem þeir viðurkenna rétt- mæta. Og þar hafa íhaldsmenn, eins og áður er sagt, á ýmsan hátt verið þeim til fyrirmyndar og leið- sagnar. Ættu íhaldsmenn því ekki að kasta þungum steini á komm- únista fyrir athæfi þeirra, því þeim, sem sjálfir búa í glerhúsi, hæfir ekki að kasta grjóti. Það hefir aldrei þótt fahegur siður, að lærimeistarar berðu lærisveina sína. Og allra síst á það við, þegar sveinarnir taka meistarana sér til fyrirmyndar. '■■•0-..

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.