Dagur


Dagur - 18.08.1932, Qupperneq 2

Dagur - 18.08.1932, Qupperneq 2
130 33. tb!. pHWWnHHWHWg Nykomið Emailleraðir katlar, Kaffikönnur, Pottar, Mjólkurfötur, Vaskaföt og skálar. Blikkfötur og Pvottabalar. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeildin. mmmimmmmmm framt var ákveðið með lögum hvernig láninu skyldi varið. Var þetta allt samþykkt með samhljóða atkvæðum f báðum deildum. Á þinginu 1930 var svo þessi heim- ild endursamþykkt. Pegar svo lán- ið hafði verið tekið hjá Hambros Bank í London, var því skift eins og Alþingi hafði fyrirskipað með iögum þannig: Tii Landsbankans — Búnaðarbankans — Síldarbr.stöðvar — Landsspitalans — Arnarhvols — Súðarinnar — Útvarpsstöðvar kr. 3,000,000 - 3,600,000 —- 1,300.000 - 874,000 - 351,000 - 231,000 - 151,000 Eftirstöðvar lánsins, að upphæð 1,300,000 kr>, voru, að frádregnum fyrirfram greiddum vöxtum og af- föilum, lagðar inn í ríkissjóð til geymslu til bráðabirgða. í hverju eru þá >svik« Fram- sóknarstjórnarinnar fólgin? Þau geta ekki verið fólgin í öðru en þvi, að stjórnin varði láninu ná- kvæmiega samkvæmt því, sem Al- þingi einróma, að íhaldsliðinu með- töldu, hafði fyrirskipað með lögum. Alþingi hafði ákveðið, að nokkur hluti lánsins skyldi hverfa til Lands- bankans. Bankinn fékk sinn skerf. Pað voru »svik«, segir ísl. Pingið hafði ákveðið, að síldar- bræðslustöð skyldi byggð fyrir part af láninu. Ríkisstjórnin lét byggja stöðina. Pað voru lika »svik€, segir Isl. Loks hafði þingið fyrirskipað, að verja skyldi nókkrum hluta til Landsspítalans, byggingu Arnar- hvols og útvarpsstöðvar og til kaupa á strandferðaskipi. Ríkisstj. breytti samkv. þessum fyrirskipunum Al- þingis. Pað voru allt tóm >svik€, segir ísl. pessi svikabrígzl ísl. eru nú svo heimskuleg, að það er ekki eyð- andi að þeim fleiri orðum. III. Framkoma blaða íhaldsflokksins í sambandi við lántðkuna 1930 var langt fyrir neðan allt velsæmi. Vinna þeirra var tvfþætt: Pau reyndu að rægja lánstraust lands- ins erlendis með þvi að hrópa há- stöfum um gjaldþrot íslands. Jafn- framt héimtuðu þau ákaft að lánið yrði tekið og þóttust gera það af ást til bændanna. Hvað liður lán- tökudni? var daglegt viðkvæði í- haldsblaðanna. En það var öllum vitanlegt, að þau vonuðu i lengstu lög, að ekkert lán fengist, svo þau gætu baft það að árásarefni. Svo þegar það vitnaðist að lánið var fengið, ætluðu íhaldsblöðin að rifna að endilöngu af reiði. Peim hafði ekki tekizt að rægja lánstraustið af landinu. Einu sinni sögðu ihaldsmenn satt um hug sinn til landbúnaðar- ins og bændanna. Pað var þegar þeim datt f bug að brjóta niður bændavaldið á Alþingi með aðstoð sósíalista. Pá glopraðist það upp úr einu fhaldsmálgagninu, að það væri Framsóknarfiokknum >að kenna að miljónum a( peningum láfæks lands væri veill i deyjandi fyrirtækk Petta deyj- andi fyrirtæki var landbúnaðurinn. Blaðið taldi viðreisn landbúnaðar- ins of »dýru verði keypta^ og vildi láta draga þann stjórnmálaflokk til ábyrgðar, sem veitt hafði pening- um inn i landbúnaðinn islenzka, þetta >deyjanda fyrirtækk En til þess að þetta gæti náð fram að ganga, varð fyrst að taka af byggð- um landsins valdið til að ráða úr- slitum i löggjöf Iandsins. Petta átti að gerast með nýrri kjördæmaskip- un. Að því búnu átti að draga for- ingja Framsóknarfiokksins til á- byrgðar fyrir að hafa starfað að viðreisn sveitanna og veitt pening- um inn f landbúnaðinn. Petta er ást thafdsins til bænd- annai -----o---- Húsmœðraskólinn á Hallormsstað. Einhver allra fegursta sveit lands- ins eru Skógarnir i Fljótsdalshéraði. Eru þeir þó nafnkunnastir fyrir það, að þar vex mesti skógur Iandsins, Hallormsstaðaskógur, enda mun veðursæld og gróðrarríki hvergi meiri á öllu landinu en þar. Sem dæmi þess má nefna, að tvö s. 1. ár hefir verið sáð byggi og höfr- um á Hafursá, og hefur hvortveggja náð fullum þroska. Hallormsstaður er í stóru skógar- rjóðri suðaustan við Lagarfljót. Er skógurinn allt i kringum túnið og sést grisja fljótið i gegnum hann. Er útsýni þarna eitthvert hið feg- ursta á öliu landinu, hvert sem lit- ið er. Lagarfjót blasir við alla leið upp að botni og út til Egilsstaða, Er það lygnt, breitt og djúpt sem fjörður og mun að allra dómi, er séð hafa, lang fegursta og svip- mesta vatnsfall landsins. Handan við fljótið, út og upp með strönd þess, blasa við blómleg býlii En ekkert prýðir þó fjarsýnina meir en Snæfell, sem stendur inn undir Vatnajökli inn af Fljótsdal, og gnæf- ir hátt yfir Fljótsdalsfjöllin, tigulegt og svipmikið. Við austanvert Hall- ormsstaðatún, uppundir skógarjaðr- inum, var fyrir ári síðan reistur húsmæðraskóli. Ekki mun það of- sagt, að bvergi á landinu sé feg- urra og skýlla skólastæði. Skógur- inn er örskammt frá húsinu að norðan og suðaustan, og fríður lækur fellur í gegn um skóginn of- an úr fjallinu suðvestan við skóla- húsið. Er þarna því fuglasöngur og fossaniður. Nú er biivegur kom- inn frá Reyðarfirði að Hallorms- stað og fjölgar þvi árlega þeim gestum, er heimsækja þenna fagra stað. og mun þó fjölga meira, þeg- ar bílvegurinn á milii Norðurlands og Austurlands er fullgjör, sem verða mun innan skamms. Skólahúsið er burstabygging, með þrem burstum, byggt úr steinsteypu. Par eru heimavistir fyrir 24 nem- endur, auk ibúðar skólastýru og kennara. Er húsið vandað og hið smekklegasta, bæði að utan og innan, og f ekkert skólahús hefi eg komið, sem hefir eins aðlað- andi heimilisbrag. Skólinn starfar i tveim deildum. Starfar fyrri deild frá veturnóttum til 1. mai og önnur deild frá 15. sept. til 1. maí. ífyrri deild er kenndur vefnaður og saum- ur, og þar að auki bóklegt nám 4 tima á dag. Siðara árið er aðailega kennd matreiðsla, en einnig nokk- ur handavinna og bóklegt nám. Vornámsskeið er haldið frá 15. maf til júníloka. Er þákennt: Vefn- aður, saumur, garðyrkja og mat- reiðsla. Nemendur, sem hafa próf frá alþýðuskólunum fá inntöku i annan bekk. Lágmarksaldur nem- anda er 18 ár. Skólagjald um árið er 100,00 kr. Siðast liðinn vetur kostaði fæði 1,25 kr. á dag og má það ódýrt heita. Skólastýra er frú Sigrún Blöndal. Maður hennar, Benedikt Blöndal, kennir bókleg fræði við skólann. Er hann einn með nafnkunnustu alþýðukennur- um landsins, vinsæll, skemmtinn og vel menntaður. Var hann lengi kennari við Eiðaskóla og hefir jafn- an verið dáður af öllum nemend- um sfnum. Á hann bókasafn svo gott, að hvergi mun finnast jafn- gott á landi hér. Frú Blöndai mun af flestum, er þekkja hana, talin einhver gáfaðasta og menntaðasta kona landsins. Er henni áhugamál að gera skólann sem bezt úr garði og láta námið verða hagnýtt nám, sem komi nemendum að sem mestu gagni í lífinu. Leggur hún þvf mikla áherzlu á vefnað, sauma og garðyrkju, svo að nemendur að námi loknu verði færari en ella að klæða sig og fæða. Pið ungu meyjar, er viljið mennta ykkur og gera ykkur færar til að gegna siðarmeir. húsmæðrastörfum! Ykkur kann eg ekki að ráða holl- ari ráð, en sækja skólann á Hall- ormsstað. Jafnframt þvi, sem þið lærið þar að vinna, og meta þjóð- ieg fræði, þá njótið þið þess yndis, sem hinn fagri staður og hið fagra og æfintýralega umhverfi hefir að bjóða. D. M. i. .... o---- Nýjunpr í skóorækt. Fram að þessu hefir skógrækt hér og erlendis aðallega verið fram- kvæmd á þann hátt að vernda og friða niðurnidda og hverfandi skóga og planta sraáplöntum til myndunar nýrra skóga. Að planta nýja skóga i stórum stíl er sein- legt verk og kostnaðarsamt. Fyrst þarf að sá til og ala trjáplönturnar upp í gróðrarstöðvunum, og loks, er þær hafa náð hæfilegri stærð, taka þær upp og flytja þangað sem rækta á hinn nýja skóg, en þar verður að hafa farið fram undir- búningur á hinu fyrirhugaða skóg- ræktarsvæði. Pað gefur þvi að skilja, að þar sem skógar hafa verið rækt- aðir i stórum stil eins og t. d. á józku heiðunum, f Les Landes í Frakkiandi, á fleiri stöðum í Eng- landi nú á seinni tíð og víðar, þá mun svona löguð skógrækt hafa kostað mikið fé. En það er þó ekki sérstaklega kostnaðarhliðin á skóg- ræktinni, sem menningarþjóðum þeim, er mest gera fyrir skógrækt, vex í augura, heldur miklu fremur það, hve seinvirkar þær aðferðir eru, sem notaðar hafa veriði Hafa menn erlendis mikið brotið heiiann um það, hvort ekki væri gerlegt að framkvæma skógrækt á fljótvirk- ari og ódýrari hátt. Sumstaðar hafa menn tekið upp þá aðferð til hjálp- ar, þar sem allverulegir skógar eru fyrir, að láta þá sjálfa ala upp smá- plöntur, sem menn hafa svo tekið, er þær hafa náð hæfiiegri stærð, og flutt á ný skógræktarsvæði. Pá hafa og nú nýskeð komið fram uppástungur um það, einkum i Noregi, hvort ekki muni verafram- kvæmanlegt með góðum árangri, að sá trjáfræinu hreint og beint i skóg- ræktarlandið óbrotið, eða þvi sem næst. Nú er vitanlegt að náttúran hefir sjáif ræktað skóga svo að segja um viða veröld, án þess að nota trjáplöntun, brotið eða bylt land. Pað virðist því ekki fjærri að athuga gaumgæfilega þessa fræ- sáningarkenningu, sem, ef fram- kvæmanleg, er margfalt ódýrari og stórum fljótvirkari, en áður notaða aðferðin. Eriendis hafa þegar verið gerðar byrjunartilraunir með skóg- sáningu og f Noregi er talið að út- lit sé fyrir góðan árangur. Pó er hvergi svo mér sé kunnugt um fulinaðarreynslu að ræða utanlands, enda getur hún tæplega fengist nema með alllöngum tíma. En nú komum við að því sem kalla mætti rúsinuna i þessu máli, og hún er sú að hér á landi, þótt merkilegt sé, hafa þegar verið gerð- ar ábyggilegar tilraunir með trjáfræ- sáning í óbrotið iand og heppnast fyrirtaksvel. Hefir sá er þetta ritar sáð islenzku birkifræi í mismunandi graslendi og jarðveg fyrir fáum ár-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.