Dagur - 29.09.1932, Page 2

Dagur - 29.09.1932, Page 2
154 DXGTJR 39. tbl. r' BRfHHffHHnHHfHfi g Leirvöruroipostulin jg Nýkomið afar fjölbreytt úrval af postulfns- kaffistellum, bollapörum, kökudiskum, smá- diskum o. fl. — Leirvörur allskonar, svo diskar, skálar, brauðföt, kartðfluföt, sem: tarinur, smáföt, sósuskálar, mjólkurkönnur. Pvottastell — margar tegundir. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeildin. mmmmmmmmmm Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð við jarðarför tengdamóður, móður og ömmu, Margrétar Jóns- dóttur, og sem heiðruðu útför hennar með návist sinni og gáfu blóm og minningargjafir. Svanfriður Jónsdóttir, Guðm. Ólafsson. Stefdn G. Reykjalín. Myndastofan Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kl. 10—6. Guðr. Funch-Rasmussen. Með þvf móti getur vegalagning, einkasimi, rafmagn og vélanotkun orðið ódýr fyrir hvern einstakling. Mörg heimili geta verið saman um úlvarpstæki. Og samvinnu um sjálf- an búskapinn mætti koma við, þar sem hlutaðeigendum sjálfum þætti henta. Hið opinbera á sjálft og stend- ur til boða nægilega mikið af rækt- anlegri jörð á beztu stöðum í land- inu, til þes að nota f'þessu skyni. Viðleitni iandnemanna yrði á engan hátt haganlegar styrkt en að láta þeim i té þetta land með viðráðan- legum leigukjörum á erfðafestu, f þvi ásigkomulagi, sem aðgengilegt væri«. Eins og áður er fram tekið, er landrými nóg i sveitunum til nýs landnáms og ræktunarskilyrði víða hin beztu. Ekkert virðist því eðli- legra og skynsamlegra en horfið sé frekar að þvi ráði að mynda ný heimili f sveitunum fyrir unga fólk- ið, þar sem skilyrði eru bezt fyrir hendi, heldur en að fólksstraum- urinn hverfi til yfirfylltra kaupstað- anna, sem ekki geta veitt sfnum eigin börnum skilyrði til að afla sér Hfsviðurværis. Nýtt landnám f sveitunum, f þéttbýlum samvinnu- hverfum, er úrlausnin, sem Tíminn bendir á. Nú er það hlutverk allra sam- vinnumanna f landinu að hugsa þetta mál rækilega og hefja að þvf búnu baráttu fyrir þvf að veitt verði fjármagni i hið nýja landnám, þvf baráttu raun það kosta, á þvf leikur enginn vafi. III. Hvaðan er þá mótspyrnu að vænta gegn hugmyndinni um nýtt landnám f sveitunum? Pvi er fljót- svarað. Mótspyrnan kemur frá þeim flokki, sem kennir sig við >sjálf- stæði*. Pess hafa nú þegar sézt glögg merki. íhaldsblaðið Vfsir f Reykjavík hefir tekið til máls um hugmynd- ina um nýtt landnám i sveitunum á þeim grundvelli, sem að framan er lýst. Segir Vísir, að tilgangurinn sé, »að stofna hér þorpabúskap f rússneskum stíl, þar sem upp al- pst ósjálfstæðir tnenn og konur. fólk, sem hefir fengið á sig merki kommúnistisks hópþroska, lýður, sem fylkir sér æpandi undir bylt- ingarfánann rauða, skeytandi engu um raunverulega velferð þjóðarinn- ar, skrill, sem saraeinast undir merki þeirra manna, sem boða jafnvel börnum trúleysiskenningar og mannhatursc. Síðar í sömu ritsmfð segir Vísir að >samfærs1a sveitanna væri nið- urdrep fyrir sveitamenninguna í f landinu*. >Pá sveitamenningu, sem er holl og fstenzk, á að drepa, en stofna til nýrrar menningar, þorpsmenningar, að rússneskri fyrir- mynd, þeirrar menningar, sem vfs- ir er myndaður til með stofnun hinna svo kölluðu heitu skóla«. Sfðan klykkir blaðið út með þvf að hóta þeim, sem orða fraraar >samfærslu byggðanna«, vægðar- lausum árásum. Ekki er um að villast hvert álit fhaldsblaðsins er á þessu máli, þó rökin fyrir álitinu hafi alveg gleymst. Stofnun nýrra hei r.jla i sveitum f nábýli hvert við annað, þar sem samvinnublær svífur yfir störfun- um, leiðir tii myndunar æpandi skrfls, er skeytir engu um velferð þjóðarinnar, en sáir fræjum trú- leysis og mannhaturs f barnssál- irnar. Framkvæmd hins nýja land- náms er drep fyrir sveitamenning- una. Petta fullyrðir ihaldsblaðið. En það lætur ekki hér við sitja. Pað fullyrðir einnig, að stofnun al- þýðuskólanna í sveitunum sé vfsir til skrilmyndunar og til niðurdreps fyrir holla sveitamenningu. Pess munu fá dæmi, að jafn þjösnaleg flónska, og Vísir ber hér á borð, sjáist á prenti. Og íslendingur gerir sér að góðu að hirða þessa Visisgrein eins og hún væri hnoss- gæti. Hefir blaðið verið þar furðu fundvíst á að tfna upp heimskuna, En hvað skyldi það vera, sem Vísir kallar >hoIIa< sveitamenningu? Pað er kunnugt, að blaðið hefir viljað Iáta draga þá menn til ábyrgð- ar, sem veitt hafa fé til dreifbýlis sveitanna. Nú auglýsir blaðið fjand- skap sinn til samfærslu byggðanna og alþýðuskólanna i sveitunum og telur hvortveggja drep fyrir >holla< menningu. Af öllu þessu verður ekki dregin önnur ályktun en sú, að Vísir telji dreifbýli sveitanna bezta skilyrði fyrir holla menningu, ef par eru engir vegir, engir simar, léleg iiús, litil ræktun og engir skólar. Og ísiendingur er öllu þessu hartanlega simmála. Á víð av angi. Meöferðin á Sig. Eggerz. Vísir skýrir frá þvf, að prófkosn- ing hafi farið fram i Varðarhúsinu 18. þ. m. um það, hvort Pétur Halldórsson eða Sigurður Eggerz skyldu vera f kjöri við þingmanns- kosninguna i Réykjavik f haust, og hafi Pétur Halldórsson hiotið 356 atkv. en Sig. Eggerz fyrv. banka- stjóri 39 atkv. Morgunblaðið getur einnig um prófkosningu þessa, tilfærir þó ekki atkvæðatðlur, en segir, að Sig. Egg- erz hafi snúist á móti Sig. Eggerz f prófkosningunni. Er þetta átakan- legt dæmi þess, hversu fylgi íhalds- manna tálgast af Sig, Eggerz. „Aumasta pródúkt“. Svo nefnir tsl. eldhúsræðu Jón- asar Jónssonar, þá er birtist hér i blaðinu nýlega. J. J. sýndi fram á, með hinum skýrustu rökum, hvern- ig óstjórnin f fslandsbanka, hin stórfelldu milljónatöp og alit fjár- sukk fhaldsmanna hefði skapað dýr- tfðina i Iandinu og verkað lamandi á allt fjármálalff þjóðarinnar. íhalds- menn hafa haldið fram þeirri fárán- legu vitleysu, að bankatöpin komi fjárhag þjóðarinnar ekkert við, og ísl. nefnir þau >óskyld máU og >moldviðri<, sem verið séað>þyrla upp«. En hverjir áttu miljónirnar, sem runnu út í sandinn? Var það ekki almenningur? Og það er al- menningur, sem verður að greiða töpin með okurvöxtum. fsl. birtir kafia úr svarræðu Magn- úsar Guðmundssonar, Væri vel til fallið, að sem flestir kynntu sér hana, ekki vegna þess að hún sé til uppbyggingar, þvi aðalefni henn- ar er slagorð og skætingur, en menn ættu samt sem áður að kynn- ast henni, til þess að fá vitneskju um, hvar sé að leita eftir >aumasta pródúktinu*. Vantar skýringu. Á meðan Jónas Jónsson var ráð- herra, nefndu fhaldsbiöðin Fram- sóknarflokkinn ailajafna »AfturhaIds- flokk« og héldu þvf fram, að flokk- urinn verðskuldaði það heiti. Jafn- framt þrástöguðust sömu blöð á þvf, að J. J. væri aðalmaður flokks- ins og hefði sérstaklega myndað og ráðið stefnu hans. Samkvæmt þessu hlaut J. J. að vera afturhaldsn.aður f landsmálum. En sfðan j, j. fór frá völdum, hafa blöð íhaldsflokks- ins hrósað happi yfir þvi, að nú væri ekki lengur röltæk stjórnarstefna á landi hér, heldur væri nú komin hæglara umbótastefna, sem væri landi og þjóð á allan hátt heillavænlegri en hraðfara breytingar. Og þessi stefnubreyting frá róttækni til hægrar farar tengja fhaldsmenn við brott- för J. J. úr stjórnarráðinu. Af þesiu er sýnt, að íhaldsmenn halda á lofti tveimur gagnstæðum kenningum um j. j.: Hann er i senn bæði aftur- haldsmaður og róttækur byltingasinni. Hvernig íhaldsmenn ætla að fella saman þessar þversagnir sínar um pólitfska stefnu J. J., svo að úr verði nokkurt vit, vantar skýringu á. Ihaldsmenn biðja um frið. Blöð íhaldsflokksins telja það friðslit af hálfu Framsóknarmanna ef blakað er hendi við Magnúsi Guðmundssyni. En hverskonar frið- ur er það, sem íhaldsmenn eru að biðja um? Sá friður er i þvf fólg- inn, að þeir megi óáreittir skrifa hverja niðgreinina á fætur annari um jónas Jónsson fyrv. dómsmála- ráðherra, sem þeir þó segja að sé nú orðinn áhrifalaus maður í stjórn- málum íslendinga. Ef svo er, þá sýnist niði fhaldsblaðanna umhann með öllu ofaukið. En íhaldsmenn vita nú raunar ofboð vel, að J. J. er enn áhrifa- mikill stjórnmálamaður og verður áfram, þó að þeir láti annaðfveðri vaka frammi fyrir almenningi. f sinn hóp hafa þeir aldrei óttast J. J. meira en nú. Peim er þvf þess vegna óhætt að halda áfram níðskrifum sínum um hann, og Framsóknar- mönnum erþað ekkert á móti skapi, því þeir vita, að það bætir heldur fyrir J. J. en spillir. En frið þann, sem fhaldsmenn eru að biðja um, fá þeir ekki svo ódýrt sem þeir kjósa. Merkileg uppgötvui). Sænskur verkfræðingur nefnist Axel Lundberg. Hefir hann um langt skeið fengist við efnafræðileg- ar uppgötvanir. T. d. hefir það tekið hann næstum 8 ár að full- komna áður óþekkt lím og lóðefni, er nefnist >Metalifix< Lfmefni þetta á að geta iimt saman öli venjuleg efni, að undanskildu gummí, svo að sem heilt verði, en það merki- legasta við >MetaIIfix< er það, að það lóðar saman alla málma án lóðbolta og sýru. Sem dæmi upp á hversu Iimið er sterkt má nefna að Arnold Waldau, sænskur fall- skermastökkvari, hékk fyrir nokkru undir flugvéi í leðurreim, semfyrst var skorin i sundur i miðju og síð- an límd saman með >Metallfix<, alla leið frá Kaupmannahöfn til Málm- eyjar í Svíþjóð, og er sú leið hér um bil 65 km. Vakti þetta hina mestu eftirtekt. Siðan hefir sams- konar tilraun verið gerð vfða í Svf- þjóð, og alltaf hefir límið reynst að halda. — Lim þetta er nú komið á markaðinn hér, og ætti það að geta orðið til mikilla þæginda á heimil- um,!þegar búshlutir hrökkva í sundur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.