Dagur - 24.11.1932, Side 4
184
46. tbl.
— Ljóðaljóðin. — Arfur norrænn-
ar heiðni, eftir Arnór Sigurjóns-
son. — Fræðslukerfi íslands. —
Læknar og prestar. — Laun opin-
berra starfsmanna. — Frelsið
mikla. — Kristur á vegum Ind-
lands. — Þrifnaður I, eftir Snorra
lækni Halldórsson. — í gamla
daga V—VII, eftir ólaf Stephen-
sen præd. hon. og Erling Filippus-
son. — Tídægra IV, saga eftir
Giovanni Boccaccio. — Fegurð ís-
lands, eftir Magnús Gíslason. —
Fossarnir í Skógá, eftir Sigurjón
Kjartansson. — Litil munnmæla-
saga, eftir Ara Hálfdánarson. --
Andrea Delfin, saga eftir Paul
Heyse. — 'Jólaveizla hjá Jónasi
Lie, eftir Karl Konow. — Fæðing-
arréttur hennar, írsk saga (niður-
lag). — Fagnaðarerindið og trúin
á samfélagið«. — Rökkurskraf o.
m. fl. smávegis.
»Jörð« ber það með sér, að rit-
stjóri hennar er mikill áhugamað-
ur um andleg: mál og menningu
þjóðarinnar. Miklum erfiðleikum
hlýtur það að vera bundið fyrir
síra Björn að leggja út í annað
eins bókmenntastarf og þetta,
meðal annars fyrir þá sök að hann
er búsettur suður í Skaftafells-
sýslu, en rit hans er prentað hér á
Akureyri. En þar á hann að vísu
hauk í horni, þar sem er faðir
hans, Oddur Bjömsson prent-
smiðjueigandi. Hjá honum er rit-
ið prentað og ekkert til sparað að
gera það vel úr garði.
Ódæðisverk. Sá atburður gerðist í
Reykjavík á miðvikudagskvöldið í síð-
ustu viku, að tveir menn komu' inn á
skrifstofu Fiskifélags íslands, og var
þá skrifstofustjórinn, Sveinbjörn Egils-
son, ritstjóri Ægis, þar einn fyrir.
Þóttust gestirnir eiga við hann eitt-
hvert meinlaust erindi, en þegar hann
var í undirbúningi með að afgreiða þá,
var hann sleginn höfuðhögg svo mikið,
að hann hneig í ómegin. Bundu ódæðis-
seggirnir hann síðan og kefluðu og
stálu úr peningakassanum því, er í
honum var, en það var nokkuð á þriðja
þúsund krónur. Nokkru síðar komu
synir Sveinbjarnar á skrifstofuna og
fundu hann í því ástandi, sem áður er
lýst. Sveinbirni varð furðu lítið meint
af hinni þrælslegu meðferð, en ekki
hefir lögreglunni enn tekizt að hafa
hendur í hári óbótamannanna.
Dánardæg'ar. Nýlega er látin hér í
bænum Sigríður Bjamadóttír, tengda-
móðir Sigurðar Jóhannessonar skó-
smiðs. — f Reykjavík er nýlega látin
ekkjan BjÖrg Guðmundsdóttir, er lengi
átti heima á Eyrarlandi. Var hún nær
nír»ð.
„Pelíkan“
sjálfblekungarnir
margeftirspurðu eru
nú komnir aftur;
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeildin.
Sjóvetlingar.
Peir viðskiptamenn okkar
sem eiga tilbúna sjóvetl-
inga ættu að koma með
þá strax.
Kaupfél. Eyfirðinga.
Millisíldarnetaslöiigor
,mjög ódýrar
nýkomnar.
Kaupfélag Eyfirðitiga
Járn- og glervörudeild.
Árni Kristjánsson pianosnillingur hélt
hljómleika s. 1. þriðjudagskvöld í Nýja
Bíó fyrir því nær fullu húsi áheyrenda.
Listamaðurinn lék þar hvert tónverkið
öðru stórfelldara og- sýndi þar afburða
leikni og kunnáttu. Auðheyrt var á
undirtektum áheyrenda að þeir voru
stór-hrifnir, því sjaldan eða aldiei hef-
ir listamaður hlotið annað eins kíapp
hér á Akureyri. Sonata, b. moll op. 35
eftir Chopin og Ballade g moll eftir
Grieg eru stórkostleg og fögur tónverk
og einnig er Etude eftir Scriabine af-
burða skemmtileg, en yndislegast var
þó litla lagið, »Tunglskin«, eftil Palm-
gren. Árni Kristjánsson er listamaður í
orðsins fyllstu merkingu.
Ofsnrok var víða um land síðastl.
föstudagskvöld og laugardagsnótt, kvað
einkum mikið að ofviðrinu á suður- og
vesturlandi og olli þar allmiklum
skemmdum. í ofviðrinu tók stýrispall
ofan af norsku flutningaskipi, er var
um miðja vegu milli Vestmannaeyja og
Reykjavíkur og jafnframt tók út skip-
stjóra, stýrimann og einn háseta c.g
fórust þeir allir. Önnur skip komu til
hjálpar og fluttu hið laskaða skip til
Reykjavíkur.
/ gær andaðist hér á sjúkrahúsinU,
eftir holskurð, Jakob Jónsson bóndi í
Miðgerði I Saurbæjarhreppi. Hann var
* fllðfÍF
Framsóknarfélag Akureyrar.
Fundur á laugardaginn kemur (19. þ. m.) í Skjaldborg og
hefst kl. 81/2 e. m. — Málshefjendur á fundinum verða alþingis-
mennirnir Einar Árnason og Bemharð Stefánsson.
Framsóknarmenn fjölmennið!
Tilkynning.
Þann 28. f. m. framkvæmdi notarius publicus á Aknreyri útdrátt á
skuldabréfum stúknanna Íssfold-Fjallkonan nr. 1. og Brynja nr. 99 f hús-
eigninni >Skjaldborg< við Hafnarstræti, og voru útdregin þessi:
Úr I. fl. nr. 22, 27, 28 og 35.
- H. - - lö, 23, 24, 27, 33, 42, 55, 83, 87 og 99.
- III. - — 3, 52, 61, 76, 83, 88, 101, 102, 108, 111, 112, 118, 135,
137 og 150. -
Bréf þessi verða greidd við sýningu eftir 1. desember n. k., af undir-
rituðum, ásamt áföllnum vöxtum af öðrum skaldabréfum stúknanna.
Akureyri 11. nóvember 1932.
Guðbjörn Björnsson.
Höfum til:
Handverkfæri allskonar og garðyrkjuverkfæri.
Samb. ísl. samvinnufélaga
Vagnar
og
vagnhjól
bezt, traustast og ódýrast
hjá
Sambandi ísl.samvinnufél.
* Allt með íslenskum skipnrn! *
Prentsroiðja Odds PjörBSíonar.
Ritetjóri: Ihfiaw Eydal.