Dagur - 06.12.1932, Blaðsíða 4
194
DAOUR
48. tbl.
KAFFIBÆTIRINN
VKETJA
Notiö kaffibætinn ''Freyja". sem eingöngu er
búinn til úr hreinum. ómenguðgm, jurtarótum,
og þjer munuð sanna. að kaffio veröur óvenju
bragðgott og hressandi.
SAMBAND ISL.SAMV1NNIFEIAGA
eru þrautreyndar að gæðum og endingu.
Samband ísl samvinnufélaga.
Höfum til:
Alfa Laval
Samband ísl. samvinnufélaga.
Morgunblaðiö spyr.
Mbl. beinir þeirri spui'ningu til
ritstjóra Dags 13. f. m., hvort
hann hafi ekki tekið eftir því, að
»Jónas frá Hrifiu lét þess getið i
Tímanum nýlega, að ef bændurnir
losnuðu úr kaupfélagsskuldunum,
þá væri úti um kaupfélagsskap-
inn«.
ónei, ritstjóri Dags hefir ekki
tekið eftir þessu af þeirri skiljan-
legu ástæðu, að þetta hefir J. J.
aldrei sagt og er hér því um
venjulegan Morgunblaðs-»sami-
leik« að ræða, sem orðinn er nokk-
uð þekktur. Eftirtektarvert er það,
aðtMbl. sér ekki fært að birta um-
mælin innan tilvitnunarmerkja og
getur ekki heldur um það, í hvaða
tölublaði Tímans þau standi. Það
er eins og blaðið hafi vitað upp á
sig skömmina og ekki þorað þetta.
Getur það verið, að eitthvert ofur-
lítið samvizkubit sé að ónáða Mbl.,
þegar það er að segja ósatt um
menn og málefni?
Reiði ikaldsbla&anna.
Blöð íhaldsins ná ekki upp í
nefið á sér um þessar mundir fyr-
ir reiði gegn Hermanni Jónassyni
lögreglustjóra í Reykjavík. Þau
láta svo sem reiðin sé sprottin af
því, að H. J. hafi lagt sjálfan sig
og lögregluna í hættu við að
bjarga íhaldsfulltrúunum í bæjar-
stjórn Rvíkur frá misþyrmingum í
uppþotinu, er varð í sambandi við
bæjarstjórnarfund og áður hefir
verið frá skýrt. En þetta er auð-
vitað ekki annað en óframbærileg
tylliástæða. Orsök reiðinnar er
dómurinn yfir Magnúsi Guð-
mundssyni. Enda brýzt þessi
sanna orsök reiðinnar út við og
við. Þannig segir Mbl., að þegar
H. J. hafi kveðið upp dóminn, hafi
hann skriðið »til hiima auðvirði-
legustu skálkaverka«, og ísl. kall-
ar dóminn »fúlmennskuverkið á
Magnúsi Guðmundssyni*. En í-
haldsblöðin hugga sig við það, að
hæstiréttur komi nú skjótt til
hjálpar! Um þetta farast Mbl.
meðal annars svo orð: »Væntan-
lega verður máli þessu hraðað. sem
mest 1 hæstarétti. Allir Sjálfstæð-
ismenn eru þess fullvissir, að ekki
líður langur tími, þangað til
Magnús Guðmundsson á kost á að
skipa aftur það trúnaðarsæti, sem
fiokksmenn hafa falið honum«.
Það er engu líkara en ritstjórar
Mbl. hafi dóm hæstaréttar upp á
vasann nú þegar, svo vissir eru
þeir um það, hvernig hann eigi að
hljóða. Og svo vænta þeir þess, að
hæstiréttur hraði dóminum sem
mest og hroði honum einhvernveg-
inn af!
Áður hafa íhaldsblöðin verið
full vandlætingar yfir því, ef dóm-
ar hafa verið gagnrýndir. En þeg-
ar litið er til þess orðbragðs, er
sömu blöð viðhafa nú út af dóm-
inum yfir M. G., er það bert að sú
vandlæting hefir verið eintóm
hræsni.
Uppþotið og dómurinn.
Mbl. segir, að flokksmexm þess
í Rvík hafi vitað fyrirfram um
uppþotið á bæjarstjórnarfundin-
um um daginn. Þeir vissu einnig
að ákveðið var að kveða upp dóm-
inn í gjaldþrotamálinu þenna
sama dag. Ýmsir eru þeir höfuð-
staðarbúar, sem hafa getið þess
til, að íhaldsmenn hafi einmitt
boðað til fundar þenna dag í
þeirri von, að Hermann Jónasson
yrði vegna uppþotsins, sem þeir
vissu fyrir, hindraður frá því að
kveða upp dóminn þann dag og ef
til vill lengur. Þegar á það er lit-
ið, að ihaldsmenn voru ósveigjan-
legir í kaupdeilumálinu á undan
uppþotinu, en svignuðu strax að
því loknu, þá er þetta enganveg-
inn ósennilegt. Sé þessi tilgáta
rétt, þá eru það íhaldsmenn einir,
sem eiga alla sök á uppþotinu og
þeim meiðslum og skemmdum,
sem af því hlutust.
-----o----
Fréttir.
Q Rún S9321267‘/i - 1.
Söngfélagið Geysir efnir til skemmti-
samkomu í Nýja Bíó fimmtudaginn 1.
desember kl. 2 e. hádegi. Þar verður til
skemmtunar: Tvö stutt erindi (síra
Friðrik og- Vald. Steffensen), Geysir
syngur þrívegis (einsöngvari Hreinn
Pálsson) og stutt gamanmynd.
Ólafur Sigurðsson í Litla-Dal í Skaga-
firði fór s.l. föstudag að leita kinda inn
til dala og kom ekki heim um kvöidið.
Næsta dag var hans leitað og' fannst þá
örendur nokkuð frá bæjum. Ekki sást
á líkinu að hann hefði hrapað.
Úti varð maður á Siglufjarðarskaiði
á sunnudagsnóttina var. Hann hét Ein-
ar Teitsson og var frá Siglufirði. Ann-
ar maður var með í förinni og komst
hann af.
Mannslát. Á laugardaginn andaðist
hér á sjúkrahúsinu Sigurjón Guð-
mundsson verkamaður, til heimilis við
Glerárgötu 7 hér í bæ. Sigurjón var
hæglátur maður og vel kynntur.
Hjónubund. Ungfrú Gréta Jónsdóttir,
skipstjóra Björnssonar, og Ingólfur
Kristinsson voru gefin saman í hjóna-
band á laugardaginn var.
Knud Ziinsen borgarstjóri í Rvík hef-
ir beðist lausnar frá embætti sínu
vegna heilsubiiunar.
Frúmar Aðalbjörg Sigurðardóttir eg
Bríet Bjarnhéðinsdóttir dvelja hér í
bænum þessa dagana. Eru þær á fyrir-
lestrarferð á vegum Kvenréttin'dafélags
íslands.
Söngfélagið Geysir á 10 ára afmæJi i
dag. Efalaust árnar almenningur í bæn-
um afmælisbarninu allra heilla og læt-
ur þeirri ámaðarósk fylgja hugheilar
þakkir fyrir þær ánægjustundir, er bæj-
arbúar hafa hlotið við hinn prýðilega
söng þess, og fyrir þá sæmd, er bærinn
hefir hlotið af starfi þess.
Dagur væntir þess, að söngfélagið
Geysir megi starfa næsta áratuginn við
ekki minni sæmd en áður, og að hann
iáti enn um langt skeið stónaregn sitt
táramjúkt titra niður á hjartað gjúkt«.
Tíðir eldia/í. Upp úr síðustu helgi
kviknaði í á 5 stöðum f Reykjavík svo
að segja í einni lotu. Eldana tókst að
slökkva án þess þeir gerðu tilfinnan-
legan skaða, nema í Skildinganesi. Þar
brann húsið Garður til kaldra kola á-
samt innanstokksmunum.
Eldur kom upp í kjallara verzlunar-
húss kaupfélagsins Bjarmi í Vest-
mannaeyjum á sunnudagsnóttina.
Kviknaði út frá miðstöðvarofni. Eldur-
inn varð slökktur, en hús og vörur
skemjndust allmikið,
I í|/|/mf|ir oltilbúnar, hefi eg ávalt
LIIUVIOIUI, fyrirliggjandi. Oetvana-
g.'.. 1 . • lega afgreitt sama dag
og pantað er. Lækkað verð. Sími 53.
Davlð Sigurðsson.
Alþýðusambandsþing hefir staðið yf-
ir í Reykjavík að undanförnu. Forseti
Sambandsins vax kosinn Jón Baldvins-
son og varaforseti Héðinn Valdimars-
son.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Preiitswiðja Odda Bjðwweonar,