Dagur - 29.12.1932, Blaðsíða 1
D AQ U R
iUi'Uttz:.
fcemur út & hverjum fimtu-
;Jíéip'
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir júll.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þðr,
Norðurgötu 3. Talslmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. dos.
XV. ár.
Akureyri 29. desember 1932.
< i
52. tbl.
Að utan.
Bandaríkin.
Engan hefir víst órað. fyrir
árið 1928, er Hoover vann glæsi-
legri sigur yfir »A1« Smith, en
áður hafði unninn yerið við for-
setakosningar í Bandaríkjunum,
að hann myndi fjórum árum bíða
enn hroðalegri ósigur, og draga
með sér hinn volduga þingflokit
sinn jafn hroðalega og raun er á
orðin. — 1928 fékk Smith 87
kjöratkvæði en Hoover 444. Nú
fékk Roosevelt 472, en Hoover að-
eins 59. —
Nú kemur flestum saman um —
vinum, að segja má, sem óvinum
—r að jjnegin, ástæðan fyrir þess-
um hroða ósigri hafi verið skiln-
ingsleysi Hooyers á kreppunni og
orsökum hennar, sífelldar fullyi'ð-
ingar hans ár frá ári, ársfjórðung
eftir ársfjórðung, mánuð eftir
mánuð. um að »nú færi að batna«,
nú »væri farið að batna«; afar lé-
legt mannval hans í ráðuneytið,
áð Stimson ríkisráðherra ef til
vill undanteknum; hóflaus trú
þeirra á almætti kapitalismans,
og kák þeirra, eða algjört að-
gerðaleysi, við sívaxandi atvinnu-
leysi og ófremdarástandi bænda
og verkamanna, er óhugnanlegast
lýsti sér með þrálátri hátolla-
stefnu til verndar stóriðjuhöldun-
um en til ómetanlegs hnekkis fyr-
ir neytendur, bændur og búalýð
allan, og þá ekki sízt, er ráðleysi
stjórnarinnar komst í algleymmg
við heimsókn uppgjafahermann-
anna í Washington í sumar; t'yrst
í því að flæma þá þaðan, vopn-
lausa, með herliði, gasi og vítisvél-
um, og síðan í þeirri reginfávizku
og síðar aufjljósum ósannindum,
gegn betri vútund, og skjalfestum
skilrikjum, um að meginþorri
þeirra hefóu verið eldrauðir
kommúnis|tar. ,
Fjöldi merkustu stjórnmála-
manna Regúþlíkana gengu á sveif
Roosevelts í kosningunum, en
flestir betri manna flokksins, er
þó fylgúUj’hon.iJírij: grjU þjturyrtari
í garð stjómaxinnar föllnu, en
dæmi eru til áður. Nicholas Mur-
ray Butler, æfirektor Columbia
háskólans miikla, einn mælskasti
og gagnmenntaðasti maður
flokksins, er jafnan hefir látið
stjórnmálin mikið til sín taka,
hefir opinbórAega . komizt svo að
prði, sð ifcflokkiiw ííep* któi aíóan
□ RÚn 5933167V2—Fri.1. Hát/, st/.
1919 verið stöðugt á hraðri leið að
skynsamlegu, stjórnarfarslegu og
siðferðislegu gjaldþroti, og taki
nú eigi hinir yngri og frjálslynd-
ari menn í flokknum taumana í
sínar hendur, þá muni flokkurinn
brátt hverfa úr sögunni, sökum
getuskorts á því að horíast í
augu við framtíðina með fullu
hreinlyndi og skilningi á straum-
hvörfum siðustu ára í stjórn- og
þ j óðmegunarmálum«.
Ég gat þess hér að ofan, að
Hoover hefði dregið þingflokk
sinn í fenið með sér, dýpra en áð-
ur eru dæmi til í Bandaríkjunum.
Þá er þingið kemur saman, 4.
marz í vetur, verður öldungaráð-
ið, samkvæmt síðustu fréttum,
skipað 59 demókrötum, 36 Rep. og
einum bænda- og verkaflokks-
sinna. Hefir hvorugur flokkunnn
átt þar svo stórkostlegan meiri-
hJuta síðan 1906, og er talið víst,
að Demókratar haldi meiri hluta
í öldungaráðinu til 1936, a. m. k.,
og líklega til 1938, hvernig sem
gengnr. Ekki varð árangurinn
betri í fulltrúadeildinni. 1920
höfðu Repúblíkanar stærstan
meirihluta þar, er nokkur flokkur
hafði haft, eða 300 af 435, en nú
skipa íulltrúadeildina 314 Demó-
kratar, 111 Repúblíkanar, 4
bænda- og verkaflokkssinnar, en 6
eru vaíagemlingar, enn sem kom-
ið er. —
i .j*
* * *
Þótt nú væri minnst um bann-
málið barizt, og miklu síður en
1928, er ein meginástæðan til hins
mikla ósigurs Smiths var sú, að
hann lýsti yfir vilja sínum til að
afnema bannlögin — hafa gagn-
ger straumhvörf orðið á þeim i
þinginu, við þessar kosningar.
Samkvæmt síðustu fréttum, eru
343 þingmenn í fulltrúadeildinui
taldir ákveðnir andstæðingar
bannlaganna, 63 vafasamir, en að-
eins 29 ákveðnir bannmenn, en í
öldungadeildinni 61 andbanning,
ur, 30 bannmenn, en 5 vafageml-
ingar. Að þessu hafa bannmenn
verið í meirihluta í báðum þing-
deildum, en nú skipa andstæðing-
ar þeirra fulla % sæta í fulltrúa-
deildinni og sennilega um % sæta
i öldungadeildinni.
í sama mund og forsetakosning-
in fór fram, fór fram allsherjar
atkvæðagreiðsla í ellefu ríkjum
um bannlögin. Skýri ég hér frá
henni, með því að ég geri ráð fyr-
ir að iesendum þyki úrslitin fróð-
Vinum og vandamönnum tilkynnist, að eiginkona, móðir og tengda-
móðir okkar, Hólmfríður Sigurðardóttir, andaðist að heimili sínu,
Draflastöðum í Sölvadal, síðastliðna jólanótt. Jarðarförin er ákveðin að
Möðruvöllum miðvikudaginn 4. jan. n. k. og hefst kl. 12 á hádegi.
Draflastöðum 27, deseraber 1932.
Kristjdn Jónasson. Guðrún Kristjdnsdóttir.
Kristinn S. Einarsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og
jarðarför Steinunnar jónsdóttur frá Skriðu.
Áðstandendurnir.
leg, jafn mikið og talað og deilt er
um bannið hér á landi.
Lo-uisiana nam úr gildi bann-
löggjöf sína, með 223.000 atkv.
gegn 21.000, og skoraði á sam-
bandsþingið að láta nema þau úr
stjórnarskránni.
Colorodo nam einnig sín bann-
lög úr gildi, og er það í fyrsta
sinn síðan 1914 að bannmenn
hafa þar orðið undir. Þó var sam-
þykkt að heimila þinginu (Colo-
radoríkis) að setja skorðuð á-
kvæði um hugsanlega framleiðslu
og sölu áfengra drykkja.
Washingtonríki nam úr gildi
bannlöggjöf sína að fullu, nema
það ákvæði, er bannar að selja ó-
fullveðja unglingum áfengi, að
viðlagðri fangelsisvist. Atkvæði:
217.075 gegn 139.895.
California nam úr gildi bann-
löggjöf sína með 1.385.980 atkv.
gegn 630.122.
Norður-Dakota, er hefir verið
bannríki síðan 1889, að það var '
tekið í tölu sambandsríkjanna,
nam bannlöggjöf sína úr gildi
með litlum atkvæðamun. Tvisvar
áður hafa bannfjendur beðið ósig-
ur við allsherjar atkvæðagreiðslu
(1912 og 1928).
New Jersey nam sína bannlög-
gjöf úr gildi. óvíst um atkvæði,
en svo er að skilja sem allmikill
munur hafi verið.
Oregon, er bannríki hefir verið
siðan 1916, nam úr gildi, með
nokkur þúsund atkvæðum, þann
hluta af bannlöggjöf sinni, er
bannar borgurum að hafa áfengi í
vörzlum sínum (en eigi bannlög-
gjöfina alla).
Arizona nam sína bannlöggjöf
úr gildi, og heimilar læknum nú
þegar að gefa ávísanir á whisky.
Michigan greiddi samþykki til-
lögu um að nema bannlöggjöf
innilegt þakklæti vottum við þeim
fjær og nær, sem á einn eða ann-
an hátt sýndu okkur samúð við
andlát og jarðartör okkar hjartkæra
föður, Stefáns Kristins Hailgrims-
sonar, og heiðruöu minningu hans.
Börn hins látna.
ríkisins úr gildi með 780.154 atkv.
gegn 318.871.
Wyoming samþykkti áskorun til
sambandsþingsins um að nema úr
stjórnarskránni bannlögin, með
30.008 atkv. gegn 11.867.
Connecticut samþykkti sam-
hljóða áskorun með 291.929 atkv.
gegn 60.053.
Sjö ríki af þessum ellefu hafa
þá afnumið bannlöggjöf sína í
nóvember og hin fjögur virðast
bannlögunum andvíg. Fimm önn-
ur ríki hafa áður fellt úr gildi
bannlöggjöf sína: New York
(1923); Massachusetts (1930);
Wisconsin (1929); Nevada
(1923); Montana (1926). Eu
Maryland hefir aldrei bannlög-
gjöf samþykkt.
Eru þá, er síðast fréttist, 13
ríki alls af Bandaríkjunum, er
numið hafa úr löggjöf sinni öll á-
kvæði um bannlögin og eftirlit
með þeim, innan sinna endimarka.
Og er nú svo að sjá, sem flest
meiri háttar blöð Bandaríkjanna,
telji svo í pottinn búið, á sam-
bandsþingi og með þessum at-
kvæðagreiðslum í einstökum ríkj-
um, að bannlögin muni brátt af-
numin að öllu, eða a. m. k. ein-
hverju leyti. —
* * #
Jafnaðarmenn urðu fyrir mjög
miklum vonbrigðum í kosningun-
um. Forsetaefni þeirra, Norman
Thomag, hinn ágætasti maður, er