Dagur - 05.01.1933, Blaðsíða 3

Dagur - 05.01.1933, Blaðsíða 3
I. tbl. DAGUR 3 Magfiúsarmálið. Eins og áður hefir verið frá skýrt hér í blaðinu, féll dómur hæstaréttar í máli Behrens og M. G. 19. f. m. og það á þá leið, að báðir voru alsýknaðir. Eftir að hæstiréttur hafði á þenna hátt hreinsað Magnús af öllum syndum í gjaldþrotamálinu, steig hann aftur upp í ráðherra- stólinn, hvítur og fágaður eftir sápuþvott réttarins; var til þess- arar uppstigningar M. G. valinn messudagur hins heilaga Þorláks biskups. Saga þessa gjaldþrotamáls var rækilega rakin hér í blaðinu með birtingu undirréttardómsins. Til glöggvunar almenningi skulu enn dregin fram nokkur aðalatriði málsins. Behrens var verzlunarstjóri fyr- ir’ Höepfnersverzlun til ársins 1925. Þá stóð fjárhagur hans þannig, að hann var eignalaus, en skuldaði Höepfner um 14 þús. lcr. Hann var því þá þegar raunveru- lega gjaldþrota. Þá stofnar B. heildverzlun og semur jafnframt við Höepfner um að greiða gömlu skuldina smátt og smátt, en i'á aftur hjá honum vörur að láni. Mátti þó skuldin ekki fara fram úr 20 þús kr., en seinna var þó hámarkið sett upp í 35 þús. kr. Leiga af útibúum Höepfners hér á landi var greidd til Behrens, en hann notaði sumt af því, er honum þannig áskotnaðist, í þágu heildverzlunar sinnar. Hinn 28. okt. 1929 er skuld hans við H. orð- in nálega 49 þús. kr., auk vöru- skuldar rúml. 14 þús. kr., eða alls um 63 þús. kr. Þá sendir Höepf- ner Tofte, fyrv. bankastjóra ís- landsbanka, til samninga við Beh- rens. Tofte hótar B. gjaldþroti, ef ekki fengist greiðsla og fullnægj- andi trygging fyrir skuldinni. Þá leitaði B. til M. G. N. Man- scher endurskoðandi gerir upp efnahag Behrens, og sýndi sá efnahagsreikningur nærri 26 þús. kr. skuld umfram eignir. Samkv. því var Behrens greinilega gjald- þrota. Eina vörn M. G. hefir verið f því fólgin, að Behrens hafi sagt sér að ekki þyrfti að telja 23 þús. kr. ættingjaskuldir með, og að Tofte hafi gefið honum eftir 6000 krónur af skuldinni við Höepfnei, og því hafi hann álitið, að B. ætti fyrir skuldum, þegar hann aðstoð- aði við eignayfirfærsluna til Höepfners. En 6 mánuðum síðar skrifaí’ M. G. skuldheimtumönn- um Behrens og telur þá með skuldunum allar ættingjaskuldir B. með nafnverði, enda búið að veðsetja innanstokksmuni B. þeim til tryggingar. Þá voru ættingja- skuldirnar ekki útstrikaðar í vit- Uhd M. G. f þessu bréfi til skuldheimtu- mannanna upplýsir M. G., að Beh- rens muni ekki geta greitt nema í hæsta lagi % af skuldunum, þó eignunum verði komið í peninga með frjálsri sölu, telur jafnvel, að ættingjar B. verði að hlaupa und- ir bagga, til þess að hægt verði að greiða einn fjórða hluta. Biður M. G. alla skuldheimtumenn að ganga að þessum kostum. Af þessu er augljóst mál, að Behrens var langsamlega gjald- þrota, þegar Magnús Guðmunds- son aðstoðaði hann við eignayfir- færsluna til Höepfners í nóv. 1929. Enda hefir sá eini lögfræð- ingur (Garðar Þorsteinsson), sem leitazt hefir við að verja M. G., reynt að leiða rök að því, að B. hafi átt aðeins 68,9% fyrir skuld- um í nóv. 1929 — verið með öðr- um orðum gjaldþrota. Ef Behrens hefði orðið gjald- þrota innan 6 mán. frá því, að samningurinn við Höepfner var gerður, þá hefði samningurinn orðið ónýtur, og allir skuldheimtu- menn hefðu því fengið jafnan hlut af kröfum sínum. En allt árið 1930 dregst gjaldþrot B. fyrir milligöngu M. G. Fyrst þann 16. jan. 1931 kom gjaldþrotið, og átti B. þá aðeins eina ritvél og úti- standandi skuldir, sem varla munu hafa svarað innheimtu- kostnaði. Enginn fékk neitt, nema Höepfnersverzlun ein, fyrir milli- göngu Magnúsar GuðmuruLssonar. Skugginri af atferli hans í þessu gjaldþrotamáli fylgir honum þrátt fyrir sýknudóm hæstaréttar. o Að utan. Óskaplegt verðfall varð á des- emberhveiti nýlega í Winnipeg og Chicago. Fór niður í 42 cent mæl- irinn (um 30 kg.), og hefir aldrei skeð í manna minnum áður. Ekki er þó svo vel að bændum sé einu sinni boðið það verð, heldur að- eins 20 cent og sumstaðar jafnvel alls ekkert. En 80 cent kostar að meðaltali framleiðsla hvers mæl- is bóndann. Er því eigi kynlegt þótt æ fari versnandi hagur bænda þar vestra, enda mun á- stand þeirra þar nú alveg dæma- laust. Frakkland. Um mánaðamótin október og nóvember skauzt Lebrun Frakka- forseti til St. Nazaire við Leiru- mynni til þess að hleypa af stokk- unum stærsta skipi heimsins, er þar hefir verið í smíðum. Forseta- frúin skýrði skipið Normandie, um leið og hún braut sex potta kampavínsflösku á stefni þess. — Normandie er 73,000 tonn, og því langtum stærra en Majestic, er Bretar tóku af Þjóðverjum eftir ófriðinn mikla og lengi hefir ver- ið stærsta skip heimsins, 56,621 tonn. Ekki var vandalaust að hleypa þessu bákni af stokkunum. T. d. varð að rjóða 43 tonnum af tólg á skrokkinn (sem er lengri en Eiffelturninn) og auk þess 2/2 tonni af svínafeiti og meira en tonni af grænsápu á stokkana. Vélar Normandie framleiða 16j),000 hestöfl. Eru það raf- magnsvélar. Þykir því líklegt að það verði einnig hraðskreiðasta skip heimsins, því vélar Bremen, þýzka skipsins, er nýlega setti hraðamet yfir Atlantshaf, á A/2 degi, er »aðeins« knúið 100.000 hestöflum. Að vísu er óreynt enn um hin nýju skipsbákn ítala, Rex og Conte di Savoia (54,000 tonn), er eiga eftir að spreyta sig á þeirri ferð, en vitanlegt er, að Mussolini hafði skipað verkfræð- ingunum að sjá svo um að þau yrðu hraðskreiðari en Bremen. Eigi er þessi franski dreki þó líkt því kominn i gagnið, því 18 mánuði enn er. talið að þurfi til þess að ljúka við innanstokks- smíði, siglutré, brýr o. s. frv. Skrautið og búnaður allur fer eft- ir stærðinni. Baðþrær með fersku vatni fá allir klefar á 1. farrými; stóreflis leikhús verður þar, með föstum sætum — og er það fyrsta skip svo búið. Tíu lyftur skjóta farþegum af einu lofti á annað. Skrautjurtagarður verður þar gríðarstór, og fara í hann 150 tonn af gróðrarmold; sérstök bíl- geymsla fyrir farþega, er þá vilja með sér taka, og auk þess stærsta kirkja og stærsti veitinga- salur, er nokkurt skip hefir nokk- urntíma getað stært sig af. Spánn. Hinn 25. september var mikið um dýrðir í Barcelona; stórkost- legasta hátíðahald í manna minn- um. Enda var tilefnið það að þá afhenti forsætisráðherra Spán- verja, Manuel Azana, hinum nýja forseta Katalóníu, Francisco Ma- cia, afrit af lögum þeim, er veita Katalóníuhéraði heimastjóm, og bað þá vel með fara. — Katalóníu- menn þykja sjálfstæðastir og dug- legastir allra Spánverja, og tala sérstaka mállýzku. * * * Fyrir ári síðan, í október, voru í spanska þinginu samin stjórnar- skrárákvæði til skilnaðar ríkis og kirkju. Sama dag varð Don Ma- nuel Azana forsætisráðherra á Spáni. Á ársafmæli sínu sem ráð- herra í haust lagði hann fyrir þingið hin nýju kirkjumálalög ríkisins. Er talið víst að þau verði samþykkt. Samkvæmt þeim tekur ríkið í sínar hendur öll listaverk og skrautgripi kirkjunnar sem metin eru til 3,500,000,000 króna, og allar fasteignir kirkjunnar, lönd og byggingar,. þar á meðal dómkirkjuna miklu í Sevilla, næst stærstu kirkju í heimi. En á hinn bóginn mun spanska lýðveldið, eins og hið frakkneska, leyfa ka- þólsku kirkjunni afnot og ráðs- mennsku mikils hluta hinna upp- tæku eigna. önnur helztu atriði laganna eru þessi: 1) Kirkjuskólum verður haldið áfram, unz lýðveldið sér sér smámsaman fært að taka þá al- gjörlega í sínar hendur. (Mennta- mál hafa öll verið í höndum kirkj- POl 1 á kr‘ ^20 k8- fá8t hÍá JÓNI GOfiMANN. unnar og alþýðufræðsla afar lé- leg). 2) Guðsþjónustur verða að öll- um jafnaði að fara fram á þeim stöðum, er ríkið heimilar til slíkra afnota. En undantekningar frá þessu má þó gera, á þann hátt að ríkið leyfi einstöku meiriháttar hátíðahöld undir berum himni, eins og t. d. hinar frægu páska- göngur í Sevilla. 3) Samþykkis ríkisins verður að leita og það að fást, er skipa skal meiri háttar embætti innan spönsku kirkjunnar. 4) Meðlimir kirkjulegra stofn- ana verða þegar útilokaðir frá öll- um sjálfstæðum iðnrekstri — nunnur frá hannyrðum sínum og munkar frá kryddvínagerð og öðr- um svipuðum sériðnaði. Hið sama gerðu Frakkar 1904 og fluttu þá Chartreusemunkar, er framleiða hið fræga kryddvín, er við þá er kennt, til Tarragona á Spáni. Er nú búizt við að þeir muni aftur flytja, og þá líklega ekki í annað hús að venda en til Mussolini, eða jafnvel til páfaríkis. S. H. f. H. Fr éttir. Hljómsveit Akwreyrwr og kwrlakórinn Geysir skemmtu bæjarbúum í Nýja-Bíó fimmtudaginn 29. des. s. 1. Viðfangsefni hljómsveitarinnar imdir stjórn Karls O, Runólfssonar, voru þessi: Schubert: Menuett, Op. 78; Mozart: Ouverture zu Oper »Titus«; Járnefelt: Berceuse; Svendsen: Fest-Polonaise Op. 12. — Samvinna var með Geysi og hljómsveit- inni um eftirgreind hlutverk: Grieg: Konge Kvadet (einsöngur: Bjami lækn- ir); Karl O. Runólfsson: Förumanna- flokkar jpeysa. Báðir flokkarnir leystu hlutverk sín prýðilega vel af hendi, og var þessi kvöldstund í Nýja-Bíó hin ánægjuleg- asta. Eiga bæði hljómsveit Akureyrar og söngfélagið Geysir skilið óskorað þakklæti og virþingu bæjarbúa fyrir söngmenningarstarf sitt í bænum. Eftir að Geysir hafði orðið að endur- taka hið ágæta lag Karls O. Runólfsson- ar, sem fyrr er nefnt, lýsti höfundur þess því yfir, að hann tileinkaði söng- félaginu þessa tónsmíð sína. Stjórnandi Geysis, Ingimundur Ámason, flutti nokkur þakkarorð og lýsti ánægju sinni yfir þeirri sæmd, er söngflokknum hefði hlotnazt frá hendi tónskáldsins. Nánar verður getið um hljómleika þessa í aðsendri grein, sem verður að bíða næsta blaðs vegna þrengsla. Ókeypis hljðmleikar. Hljómsveit Akureyr- •r ætlar að endurtaka hljómleika sina, meö aö- stoð ,,6eysls,“ i Samkomuhúsinu annaö kvöld. Aðgangur okeypis. Borgarstjóm Reykjavíkur. Þann 27. f. m. átti bæjarstjórn Reykjavíkur að kjósa borgarstjóra fyrir það, sem eftir er af kjörtímabili K. Zimsen. Fjórir umsækjendur höfðu sótt og hefir þeirra verið áður getið. Útlit var fyrir að einn umsækjendanna, Sigurður Jónasson, fengi meirihluta atkvæða, þar sem 7 bæjarfulltrúar, sósialistar og fulltrúar Framsóknar, voru honum fylgjandi, og auk þess var einn af íhaldsfulltrúunuiu,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.