Dagur - 02.02.1933, Blaðsíða 2
18
DAGUR
S. tbl.
• #-• #■•••
Flóra smjörlíki
kostar nú í smásöiu hér á staðnum aðeins kr.
1,50 kg. — Heildsöluverð lækkað tilsvarandi. —
Biðjið aðeins um Flóra smjörlíki. Það er unnið í
vönduðum nýtízku vélum, undir lækniseftirliti. —
Flóra smjörlíkið hefir nýlega verið endurbætt, svo
óhætt má fullyrða, að nú fáið þér hvergi betra
smjörlíki en FLÓRA.
Kaupféiag Eyfirðinga.
Smjörlíkisgerðin.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiib
m
#8
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frá kl. 10-6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Á vidavangi.
>>Skyldmennaskuldirnar«.
Síðasti ísl. er að myndast við að
verja dóm hæstaréttar í máli M.
G. og Behrens. En vörnin ferst ó-
fimlega sem von er til. Það er erf-
itt að vera í varnaraðstöðu fyrir
illan málstað. Um »skyldmenna-
skuldirnar« segir Isl., að M. G.
hafi talið heimilt að strika þær út,
»og sækjandi málsins gegn hon-
um í Hæstarétti féllst algerlega á
þá skoðun hans«, bætir blaðið við.
Hér skýrir ísl. rangt frá, af hvaða
ástæðum, sem það kann að ver-a.
Sækjandi málsins hélt því fram,
að skuidir Behrens umfram eignir
hefðu verið a. m. k. 18 þús. kr.,
þegar eignayfirfærslan til Höepf-
ners var gerð 7. nóv. 1929, þó
skyldmennaskuldunum væri sleppt,
sem hann. kvaðst »leggja á vald
rétlarins« að dæma um.
E:;ns og allir viti bornir menn
sjá og skilja, er þetta allt annað
en að »fallast algerlega« á þá
skoðun M. G., að heimilt hafi ver-
ið að strika út skyldmennaskuld-
irnar, eins og ísl. segir. Sækjandi
málsins taldi þessar skuldir ekki
skifta miklu máli, því þrátt fyrir
útstnkun þeirra hafi gjaldþrotið
verið bersýnilega yfirvofandi
hverjum skynbærum manni.
En hafi M. G. talið heimilt að
strika þessar skuldir út í nóv.
1929, hversvegna taldi þá M. G.
þessar sömu útstrikuðu skuldir
sem kröfur á verzlun Behrens,
þegar hann sendi skuldheimtu-
mönnum B. tilboð um 25%
greiðslu í maí 1930? Þetta á ísl.
eftir að skýra.
Um þessar skuldir segir ísl.
ennfremur:
»Enda liggur það í hlutarins
eðli að skyldmenni Behrens hafa
veitt honum þessi lán til styrktar
en ekki falls«.
Hver skilur þetta? Hvaða lán
eru veitt til falls þeim, er lán
taka? Helzt er svo að skilja, að
ísl. skifti lánum í tvo flokka; í
pðruíft jElokW eru lán til styrktar.
í hinum lán til falls. Lán til
styrktar eru þá þau, sem ekki er
ætlazt til að séu greidd aftur, og
er þá ekki um lán að ræða heldur
gjöf. Lán, sem ætlazt er til að
greiðist, eins og algengast mun
vera, eru þá að skoðun ísl. veitt
til þess að fella þá, er taka þau.
Veitti þá Höepfner Behrens lán,
til þess að fella hann? Áreiðan-
lega ætlaðist H. til þess að B.
stæði í skilum, enda heppnaðist
honum að ná skuld sinni með að-
stoð Magn, Guðm.
Húseign Behrens.
ísl. segir, að húseign Behrens
hafi staðið honum í kr. 58,500, og
finnst blaðinu þá »eðlilegt« að
hann teldi sér hana 60 þús. kr.
virði, ekki sízt fyrir það að hún
hafi gefið af sér svo »góða leigu«,
og á þessu hafi hæstiréttur byggt.
Um »góðu leiguna« er það upp-
lýst, að hún er þannig til komin,
að fyrri eigandi hússins sagði B.,
að hann hefði reiknað hana sjálf-
um sér(!) 600 kr. á mánuði. Að
fasteignamati var húsið ekki
helmingsvirði þess, er B. reiknaði
sér það, enda kom það í ljós, að
húsið seldist 7000 kr. neðan við
það verð. Hæstiréttur segir, að
þetta komi ekki málinu við og ísl.
étur það eftir.
Lífsábyrgö Behrens.
Um hana segir ísl. þetta:
»Þá segir Dagur að Behrens sé
oftalið til eigna 3400,00 kr. lífs-
ábyrgð. — Þetta er rangt hjá
blaðinu. Behrens átti lífsábyrgð
upp á þessa upphæð, eins og
greinilega kemur fram í forsend-
um Hæstaréttardómsins«.
Um lífsábyrgð B. er þetta að
segja: Lífsábyrgðarskírteinið stóð
að veði í Landsbankanum fyrir
viðskiftamannavíxlum. Þessa
tryggingu varð B. að setja vegna
þess, hve víxilsamþykkjendurnir
voru ótryggir, enda féllu víxlarnir
á B. og varð að greiða þá með
andvirði skírteinisins. Hvorki
lífsábyrgðin eða víxlarnir, sem
hún stóð í ábyrgð fyrir, var talin
með á efnahagsreikningi B. Samt
sem áður gripu hæstaréttardóm-.
ararnir til þess ráðs að draga lífs-
ábyrgðarupphæðina frá skuldun-
um á efnahagsreikningnum, en
það var alveg rangt,
Hinu hefir Dagur aldrei neitað,
eins og ísl. gefur í skyn, að Beh-
rens hafi átt 3400 kr. lífsábyrgð.
— Sök gamla Togga lá ekki í því,
að hann ætti engan kálf, heldur í
því að hann seldi kálfinn fleirum
en einum. Villa hæstaréttardóm-
aranna liggur í því, að þeir reikna
eign, sem stóð að veði fyrir skuld-
um, sem ekki voru á efnahags-
reikningi, til lúkningar þeim
skuldum, sem voru á efnahags-
reikningi. Þeim hefir því orðið
svipuð skyssa á og gamla Togga.
»Varasöm kenning«.
Grein með þessari yfirskrift
flytur síðasti fsl. og hefir tekið
upp úr blaðinu »Vísir«, 23. des.
1932. Þar er mælt að Hermann
Jónasson hafi fengið land á leigu
með svo góðum leigukjörum að
telja megi »að honum sé með því
gefin stórgjöf«. Síðan er því
dróttað að H. J. að hann hafi á
þenna hátt þegið mútur til þess
að sakfella Magnús Guðmundssou.
Fyrirsögn greinarinnar er vel
valin, því þetta er »varasöm kenn-
ing« fyrir Vísi sjálfan. Blaðið
hefir nefnilega skýrt þetta mál
áður á allt annan hátt, eins og
sagt var frá hér í blaðinu á
fimmtudaginn var. Vísir er því
orðinn tvísaga í frásögn sinni í
þessu máli, og er illa gert af Isl.
að vera að halda þeirri skömm á
lofti.
-----o----
Frá framkvœmdanefnd
i
„lslenzku vikunnar.u
Á fundi iðnrekenda og annara
áhugamanna, sem haldinn var i
Reykjavík 12. þ, m., var samþykkt
að halda starfsemi >íslenzku vik-
unnar* áfram þetta ár.
Framkvæmdanefndin gaf skýrslu
um störf sin á s. I. ári, gerði grein
fyrir fjárreiðum síðasta árs og skil-
aði af sér störfum. Jafnframt lagði
nefndin fram frumvarp til laga um
framtiðarstarfsemi »íslenzku vikunn-
ar«.
Var framkvæmdanefndin endur-
kosin til þess að annast framkvæmd-
ir >íslenzku vikunnar« á þessu ári,
svo og frekari undirbúning fram-
tíðarstarfseminnar.
Siðan hefir nefndin haldið fundi
með sér og ákveðið að næsta >ís-
lenzka vika« skuli haldin dagana
30. aprfl til 7. maí n. k. og heitir
hún hér með á íslendinga umland
allt að styðja starfsemi þessa með
ráðum og dáð.
Fyrst og fremst heitum vér á
allar verzlanir f Iandinu að gera sitt
ýtrasta til að kynna almenningi fs-
lenzkar vörur þessa viku, bæði með
þvi að sýna aðeins íslenzkar vörur
f verzlunargluggum sínum og með
þvf að benda á og bjóða fremur
fram islenzkar vörur en erlendar,
þar sem um hvorttveggja er að ræða.
f öðru lagi heitum vér á alla
skólastjóra i landinu, að gera sitt
til að vekja áhuga nemenda sinna
fyrir nauðsyn landsmanna á þvf að
efla þjóðarhaginn með þvf að búa
sem mest að sínu.
Öllum þeim, sem sýndu okkur
hluttekningu og samúð, við andlát
Svanfriðar M. Jónsdóttur, og heiðr-
uðu útför hennar með návist sinni,
minningargjöfum og krönsum, vott-
um við okkar innilegasta hjartans
þakklæti.
Eíginmaður og fósturbiírn.
í þriðja lagi heitum vér á alla
góða íslendinga að nota fyrst og
fremst fslenzkar vörur þessa viku,
og styðja starfsemina á allan hátt,
svo að íslendingar læri að nota ein-
göngu sínar elgin vörur, og sín
eigin skip, svo sem kostur er allar
vikur ársins.
Eins og s. I. ár ætiar nefndin að
gefa út allsherjar vöruskrá yfir ís-
lenzkar framleiðsluvörur, — en
skilyrði fyrir þvi að sú vöruskrá
geti orðið fullkomin heimild á þessu
sviði er, að a 11 i r framleiðendur
sendi framkvæmdanefndinni ná-
kvæma upptalningu allra þeirra ísl.
vörutegunda, er þeir framleiða hver
um sig. Má slík upptaluing vera í
auglýsmgarformi, og gefst framleið-
endum þá jafnframt tækifæri til að
sýna smekkvísi sfna f þvi að koma
auglýsingum vel fyrir.
Fyrir því heitum vér á alla þá, er
framleiða fsl. vörur til sölu, að senda
oss þessa upptalningu eða auglýs-
ingu fyrir 20. febr. n. k. og munum
vér þá sjá þeim fyrir rúmi í vöru-
skránni gegn sanngjörnu gjaldi.
Pegar vöruskráin er fuligerð, verður
hún send öllum verzlunum á land-
inu og fleirum, til þess að gera
þeim auðveldara að afia sér vöru-
birgða fyrir næstu >íslenzku viku«.
Jafnframt notum vér tækifærið til
að þakka þann ágæta stuðning og
velvilja, er framleiðendur og aðrir
landsmenn létu oss f té s. I. ár, og
hefjum vér nú undirbúning undir
næstu >íslenzku viku< i því örugga
trausti, að verða sama stuðnings
og velvilja aðnjótandi á þessu ári.
Skrifstofa nefndarinnar er:
Lækjargölu 2, Reykjavík. Sími 4292.
Reykjavík 23. janúar 1933.
Framkvæmdanefnd »fslenzku vikunnar«
Heigi Bergs. Brynjóifur Porsteinsson.
Gisli Sigurbjörnsson. Aðalst. Krlstinsson.
Halldóra Bjarnadóttir. Sig. Halldórsson.
Sigurjón Pétursson. Tómas Jónsson.
Tómas Tómasson.
Verkamannafélagið »Dagsbrún« í
Reykjavík hélt aðalfund sinn á sunnu-
daginn. Við stjórnarkosningu höfðu
sósíalistar um 300 atkv. en kommúnist-
ar um 100. Héðinn Valdimarsson var
kosinn formaður. — Á fundinum voru
þeir Brynjólfur Bjamason, ritstjóri
Verklýðsblaðsins, og bræðurnir Guðjón
og Gunnar Benediktssynir reknir úr fé-
laginu.
Látinn er í Reykjavík ólafur Jóns-
son, læknir, maður á bezta aldri. Hann
var sonur síra Jóns heitins Arasonar,
prests á Húsavík.
Inflúenza hefir að undanförnu geis->
að í nágrannalöndunum og gerir enn,
Nú er veikin komin til Hafnarfjarðar,
en mun enn ekki hafa breiðzt þar út.,