Dagur - 16.02.1933, Síða 3
7. tbl.
DAGUB;
r, 27
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
bluttekningu og vinarhug við and-
lát og jarðarför mannsins mins,
Hallgrims stýrimanns Sigurðssonar.
Akureyri 8. febrúar 1933.
Guðrún Sigurðardótíir.
út í æsar, sjálfu sér og öðrum til
blessunar.
Þessu aðalsmerki hafði forsjón-
in sæmt Baldvin Einarsson.
fieimildir:
Andvari, Árbækur Espólíns,
Ármann á alþingi, Ársrit hins ísl.
Fræðafélags, Bricka: Biografisk
Lexicon, Bréf Tómasar Sæmunds-
sonar, Dagrenning J. J., Ferðabók
Þ. Thoroddsen, Fjölnir, íslenzkt
þjóðerni, J. J., Kvæði Bjarna
Thorarensen og Jónasar Hall-
grímssonar, ' Landfræðissaga Þ.
Th., Lýsing fslands, Ný félagsrit,
Skírnir, Tímarit hins ísl. Bók-
menntafélags, Þjóðólfur, Æfisaga
Péturs biskups Péturssonar.
Brynleifur Tobiasson.
o • -
Á viðavangi.
„ Samkvœmt tillögu landlœknis. “
Vilmundur Jónsson Ixndlæknir
lagði til við rfkisstjórnina, að Iagður
yrði niður bústaður yfirlæknisins á
Nýja Kleppi og pláss það, er þann-
ig sparaðist, yrði notað til að hýsa
í óða sjúklinga.
ólafur Thors setti Helga Tómas-
son f plássið!
íslendingur segir að Ólafur hafi
breytt samkvæmt tillögum land-
læknis.
Er ísl. að menga H. T. með
þessu? Er blaðið að gefa f skyn,
að H. T. sé óður sjúklingur?
VerÖfall sauðfjárafurða.
Hér í blaðinu var þess nýlega
getið, að tap bænda á sölu sauð-
fjárafurða hefði numið alls 12 milj.
kr. á þremur sl. árum, miðað við
verðlagið 1929.
ísl. fullyrðir, að Dagur hafi >að
þessu sinni hlaupið á snið við
sannleikann<. Lætur blaðið á sér
skilja, að verðfall þetta nemi ekki
meiru en 4 miljónum kn og ber
fyrir sig ummæli Tfmans frá 14.
jan. sl. um þetta efni.
Hvað er nú satt f þessu ?
í Tímanum 21. jan. sl. segir ráðu-
nautur Búnaðarfél. ísl. f búfjárrækt,
Páli Zophoniasson, sem jafnframt
á sæti í rfkisskattanefndinni og
mun þessu máli allra manna kunn-
ugastur, á þessa leið:
>1931 fæst mikið á fjórðu miljón
króna minna fyrir þær sauðfjáraf-
urðir, sem bændurnir gátu sélt úr
búi sfnu en 1929. Og 1932 minnk-
ar þetta enn. Pá fæst töluvert á
fimmtu miljón króna minna fyrir
sauðfjárafurðirnar, sem bændurnir
hafa að selja, en 1929.<
f sambandi við þetta segir rit-
stjóri Tfmans neðanmáls:
>A árinu 1930 var lfka verðfall.
Pað mun því láta ncrri, sem gizk-
að var á f siðasta blaði, að verð-
fallið á þessum þrem árum væri til
jafnaðar nál. 4 milj. á ári, miðað
við árið 1929.<
Hvort er það nú Dagur eða ís-
lendingur, sem >hleypur á sniðvið
sannleikann<?
Til athugunar.
Á siðustu árum hefir ræktun hér
á landi færzt mjög út. Um Ieið
hefir áburðarþörfin margfaldast.
Húsdýraáburðurinn getur ekki leng-
ur fullnægt hinum stórfelldu ný-
ræktum, þvi tala húsdýra hefir ekki
aukist til muna og jafnvei sumstaðar
lækkað frá þvi sem var, áður en
hin nýja framkvæmdastefna hófst,
að afla heyjanna sem mest á rækt-
uðu landi. Aliir munu sammála um
það, að lítið gagn sé að víðlendum
nýræktum, ef ekki er hægt að full-
nægja áburðarþörfinnii Pað er betra
að hafa 10 dagslátta tún, sem gef-
ur af sér 20 hesta af dagsláttunni,
en 20 dagsl. tún sem gefur aðeins
10 hesta af dagsláttu. Pað mun þvf
miður alltof vfða hafa verið lögð
meiri áherzla á að hafa nýræktirn-
ar sem vfðáttumestar, en of litið
hugsað um áburðarþörfina, og eft-
irtekjan þvi ekki orðið f réttu hlut-
falli við stærð hins ræktaða lands.
Tit þess að bjarga við áburðar-
þörfinni, hafa jarðræktarmenn orðið
að keupa útlendan áburð, og gat
það gengið á meðan landbúnaðar-
afurðirnar báru slik kaup uppi. Nú
er svo komið, að útlendur áburður
er of dýr i hlutfalli við verðið á
framleiðsluvörum bænda.
Hér er úr vöndu að ráða. Ekki
mega nýræktirnar fara f órækt, en
útlendi áburðurinn of dýr til að
halda við nýræktinni. Verður manni
þá næst að athuga um leiðir út úr
þessutn vandræðum.
Undanfarin ár hafa verið flutt
inn f landið hundruð tonna af á-
burði og fóðurbæti.
Allir firðir og flóar hér norðan-
lands eru fullir af sfld mestallt
sumarið, en útgerðar- og sjómönn-
um er gert að skyldu að takmarka
veiði sína vegna þess, að ef of mik-
ið veiðist fyrir hinn takmarkaða
markað, þá lendir allt f vandræðum
með sölu sildarinnar.
Nú halda greinagóðir menn því
fram, að sildarmjöi sé gott til á-
burðar og vilja þeir, er reynt hafa,
líta svo á, að 100 kg. af síldarmjðii
jafngildi 100 kg. af kalksaltpétri.
Hvort þetta er rétt, skal ekki full-
yrt hér. En Búnaðarfélag íslands
verður nú þegar að gefa álit sitt
f þessu efni og iaka til athugunar
notagildi sfldarmjöls til áburðar.
Reynist nú svo að síldarmjöl sé vel
hæft.til áburðar, mundi mikið vinn-
ast. Fyrst og fremst fengist nógur
markaður fyrir sfldina, því að á-
burðarþðrfin er svo að segja ótak-
mörkuð. Annað atriði er stórkost-
lega aukin atvinna og f þriðja lagi
sparaðist á þann hátt innkaup á
útlendum áburði. Sá gjaldeyrir, sem
mætir áburðarkaupunum, losnaði
og mætti verja honum á annan hátt.
Stærsta atriðið f þessu máli er,
Auglýsendur
eru vinsam-
lega beðnir að
•• koma auglýs-
ingum i Dag á framfæri
daginn áður
en blaðið kemur út, að svo
miklu leyti sem hægt er. Eru
það mikil þægindi fyrir blað-
ið að fá auglýsingarnar fyr
en á siðustu stund.
að sildarmjölið verði ekki of dýrt
til áburðar,
Eins og kunnugt er, þjakar at-
vinnuleysið nú almenningi i kaup-
stöðum og kauptúnum mest af
öllu. Rikisstjórnin og bæjarfélögin
standa i miklum vanda við að út-
rýma atvinnuskortinum. Allir hugs-
andi menn verða að telja það skyldu
sina að gera allt, sem hægt er, til
þess að reka þann vágest á dyr.
Ef fært þætti að hverfa að því
ráði að vinna mjöl til áðurðar úr
atlri þeirri síld, sem ekki er hægt
að selja á útlendum markaði, þá
mætti veiða alla þá sfld, sem hægt
er að ná við íslandsstrendun Á
þenna hátt skapaðist mjög mikil
atvinna, bæði við að veiða síldina
og eins við að vinna úr henni
mjöl og lýsi.
Pessa auknu atvinnu gæti svo
rfkisstjórn og bæjarfélög talið til
atvinnubótavinnu og dregið ein-
hvern hluta af vinnulaununum af
verði sildarmjðlsins, ef það reyndist
of dýrt til áburðar, reiknað með
framleiðslukostnaði. Nú kosta 100
kg. af kalkssaltpétri kr, 19.50, en
jafnmikill þungi af sildarmjðli kost-
ar 18 krónur. Verðmunurinn er
nokkur, en þó þarf að finna ráð til
að selja mjðlið enn lægra verði.
Petta mál þarf að athugast og
verða rannsakað áður en næsta
sildveiði byrjar.
Akurfiyri 6. febr. 1933.
O. J.
■»
Vetrarnótt.
Bjarta nótt.
Land er vafið tunglsskinstjöldum,
tindra ljós á snævi köldum.
Áin niðar undurrótt.
Heiða nótt.
Álfar dansa. tsinn dunar.
Inni í gljúfri fossinn drunar,
Frostið stígur hægt og hljótt.
Festing blá.
Norðurljósa bogar brenna.
Bjartir fákar skeiðin renna
hreinum slóðum himins á.
Bjarta nótt.
Bikar ljóss frá barmi þfnum
ber eg nú að vörum mfnum. —
Áin niðar undurrótt.
Jónatan Sigtryggsson
frá Tungu.
Slysavarnardeild Akureyrar auglýsir á
öðrum stað hér i blaðinu aðalfund slnn i
sunnudaginn kemur í bæjarstjórnarsalnum.
Þar gefst nýjum félögum kostur á að
ganga í deildina. Slysavarnarfélagið er
einn hinn þarfasti félagsskapur á landi hér.
Aðalfundur Iðnarmannafélags Akureyrar
verður haldinn i sunnudaginn kemur kl. 4,
Tilkynning.
Eftirtaldir menn, sem eigá ótekna
muni hjá mér, suma margra ára,
áminnast um að vitja þeirra sem
alira fyrst, annars verða þeir seldir
fyrir viðgerðarkostnaði:
Árni Jóhannesson
Ásta Stefánsdóttir, Hólbraut
Anna Jónsdóttir, Brautarholti
Borghildur Bogadóttir
Brynhildur Eiriksdóttir
Bergþóra Bergvinsdóttir
Björg Stefánsdóttir
Friðrún Sigurbjarnardóttir
Fanney Hjartardóttir
Dagbjört Ofsladóttir
Ouðrún Ouðmundsdóttir
Guðbjörg Bjarnadóttir
Ouðbjörg Ouðjónsdóttir
Ouðrún Jónsdóttir
Ouðrún Jóhannesdóttir
Ouðrfður Friðriksdóttir
Quðríður Ounnarsdóttir
Ouðrún Arinbjarnardóttir
Ouðmundur jóhannsson, Húsavfk
Ouðmundur Rósinkranzson
Herdfs Jónsdóttir
Ingólfur Magnússon
Kristján Eldjárn
Karl Guðmundsson
Kristín Sigtryggsdóttir
Jón Ounnlaugsson
jón Jónsson
jóhann jóhannessón, Hrfsey
Jóhanna Magnúsdóttir
Jóhanna Vilhjálmsdóttir
Jóhanna Friðriksdóttir
Lárus ólafsson
Marta Baldvinsdóttir
Matthildur Ounnarsdóttir
Margrét Jónsdóttir
Sólveig Lúðvfksdóttir
Sigurður Ouðmundsson
Ólfna Jónsdóttir
Viggó Quðbrandsson
Póra Kristjánsson
Ragnheiður jónsdóttir
Sigurður Kristjánsson
Pálmi Jósefsson
Unnur Jónsdóttir, Seyðisfirði
Sigurður Sigurðsson
Póra Eggertsdóttir
Steinþór Ouðmundsson
Sesselja Eggertsdóttir
Vilborg Sigþórsdóttir
Valdim.Sigurgeirss., Ongulstöðum
Vilhelmína Baldvinsdóttir, Hrfsey
Valgerður Jónatansdóttir
Porlákur Ólafsson, Ólafsfirði
Porgerður Stefánsdóttir
Pórgnýr Ouðmundssonj Sandi
Tryggvi Jónasson.
Akureyri 10. febr. 1933,
Guðjón Bernharðsson
gullsmiður.
SKRIFSTOFA
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
er á Amtmannsstfg 4 (niðri).
Siml 4121. Reykj&vlk.