Dagur - 02.03.1933, Blaðsíða 4

Dagur - 02.03.1933, Blaðsíða 4
36 DAGUR 9. tbl Ljósg/afalof Orl í Oóubyrjun, 20. febrúar 1933. Velkúmin gullbæröa Góa! gleðjandi, hækkandi sól, þó enn byrgi brotskaflar snjóa blundandi rósir á hól. Skammdegið langa er liðið, ljóssgeislum himnarnir strá. Starfsmanna stækkar nú sviðið stormsömu heiðunum á. Akureyri 25. febrúar 1933. F. B. A. Fréttir. BlUnÍ. Á þriðjudagsnóttina brann ibúð- arhús á Finnbogastöðum í Trékyllisvík á Ströndum. Fólk var i svefni en vaknaði þó í tæka tíð til þess að bjarga sjálfu sér ósködduðu úr eldinnm, t húsinu var heimavistarskóli fyrir börn. Húsið var byggt úr timbri og brann á skammri stundu til kaidra kola og engu af innan- stokksmununum varð bjargað. Brunnu þeir allir óvátryggðir, en húsið var vá- tryggt. Með ötlu er ókunnugt um upptök eldsins. Fimleikasýningu höfðu þau bjónin Her- mann Stefánsson og Pórhildur Steingrims- dóttir í Samkomuhúsinu á sunnudags- kvöldið. Stjórnaði Hermann drengjaflokk, en frúin kvennafiokk. Aðsókn var ágsetog þóttu fimleikarnir takast mjög vel, eink- um var frammistaða kvennaflokksins róm- uð mjög. Sönflur Ounnars Pálssonar í Nýja-Bíó á sunnudaginn var, var illa sóttur og langt um ver, en hann átti skilið, þvi Ounnar er áreiðaniega einn af okkar beztu söng- mönnum og vafasamt hvort íslendingar eiga nú nokkurn söngmann, sem betur kann að syngja en hann. Söngnum var líka tekið forkunnar vel af þeim fáu áheyrendum, er viðstaddir voru. Helzta afsökunin fyrir hinni slælegu aðsókn mun vera sú, að mörg hundruó bæjarbúa voru dag þenna að skemmta sér á skautum á hinum ágæta skautais á Pollinum. — Kona Qunnars aöstoðaði við hljóðfærið. Bjöm Halldórsson, sonur Halldórs heit- ins Einarssonar frá Skógum, hefir nýiega lokið lagaprófi við háskólann með góðri I. einkunn. Einar H- Kvaran rithöfundur hefir nýlega- lokið við nýja skáldsögu, sem kemur út innan skamms. Efnl sögunnar er tekið úr Reykjavfkurlífinu. Rlkisiéilirðir, Jón Halldórsson, hefir látið af því starfi og gerzt skrifstofustjóri Lands- bankans. Memendasamband oagnfræðaskóia Akur- eyrar efndi til kvöldskemmtunar í Nýja- Bíó í fyrrakvöld eins og áður hafði verlð um getið hér í blaðinu að til stæði. Kenn- arar skólans, Sigfús Halldórs skólastjóri, Jóhann Frímann og Konráð Vilhjálmsson, létu þar til sín heyra, en aðalræðuna flutti séra Benjamín Kristjánsson, og fjallaði hún um trú og vísindi. Ounnar Pálsson söngvari skemmti með söng. Auk þess var sýnd kvikmynd. Aðsókn var góð og skemmtunin fór hið bezta fram. Glæpaverk í Berlín. Nýlega var kveikt i rlklsþinghöilinnl i Berlinarborg og brann mikill hluti hennar. Tilræðismennirnir isgðlr að ver* komrotlnUtár. ÍBÚÐIN I Samkomubúsi bæjaiins — ásamt veitingaréttindum — er laus til leigu frá 14. mai n. k. — Leigutilboðum sé skilað til mín fyrir 14. mars n.k, Bæjarstjórinn á Akuréyri 23. febr. 1933, Jón Sveinsson. Nýtt " rottueitur handhægt í notkun og óbrigðult til útrýmingar rottum og músum. — Nýkomið. — Járn- og glervörudeildin. Netagarn kostar aðeins kr, 5.50 kflóið i Kaupfélagi Eyfirðinga. járn- og Olervörudeildin. Framsöknarfélag Akureyrar heldur aðalfund sinn miðvikudaginn 8. marz næstkomandi. Fundurinn verður í »Skjaldborg« og hefst kl. 8V2 e. h. nefndan dag. Áríðandi mál á dagskrá. Skorað á alla félagsmenn að mæta. Stjórnin. Eldsvoði getur gert yðurjöreiga á svipstundu ef þér bruna tryggið eigi eigur yðar. Frestið þvi eigi stundinni lengur að brunatryggja þær. Komið til okkar og þér munuð sannfærast um, að hvergi fáið þér ódýrari tryggingar né fljótar greidd- ar tjónbætur, ef eldsvoða ber að hðndum. f. h. Sjóvátryggingarfélag Islands, Umboð á Akureyri Kaupfélag Eyfirðinga. Kjörskrá til óhlutbundinna Alþingiskosninga i Akureyrarkaupstað, gildandi frá 1. júli 1933 til 30. júnl 1934, liggur frammi — almenningi til sýnis — á skrifstofu bæjarstjóra, Hafnarstræti 57, frá 1.—14. mars n. k. að báðum dðgum meðtöldum. Bæjarstjórinn á Akureyrí 93. febrúar 1933. Herbergi tii leigu frá 14. mai n. k. Baldvin Pálmason, Munkaþverárstræti 10. Tii ieigu tvö herbergi og eldhús í Aðalstræti 62. Afnot af fjósi með sjálfbrynningu geta komið til greina. ! eru vinsam- iega beðnir að 1 koma auglýs- ingum i Dag á framfæri daginn áður en blaóió kemur út, að svo miklu leyti sem bægt er. Eru það mikii þægindi tyrir blað- ið að fá auglýsingarnar fyr en á siðustu stund. Vilhjálmur Dór kaupfélagsstjóri tók sér far til Reykjavíkur með fslandi í síðustu viku. Paðan fer hann til útlanda í verzl- unarerindum og er væntanlegur heim aftur snemma í apríl, Aðallundur þjóðvinafélagsins var haldinn í Reykjavík fyrir skömmu. — í stjórn voru kosnir: Dr, Páll E. Ólason forseti, Bogi Ólafsson menntaskólakennari vara- forseti. í ritnefnd voru kjörnlr: Séra Magn- ús Helgason, Sigurður Nordal prófessor og dr. Quðtnundur Finnbogason. Barnaskólabörnin halda ársskemmtun sin- a næstkomandt sunnudag kl. 4>/s e. h. í Samkomuhúsinu, Allur ágóði af skemmt- uninni rennur I ferðasjóð barnanna, Peir, sem sækja skemmtunina, gleðja börninog sjálfa sig um Ieið og þeir efla ferðasjóðinn. Slemmlisamioma verður haldin að Þverá í Öngulstaðahreppi næstkomandi laugardag kl. 9 e. h. — Til ikemmtunar Verður gamanleikur og dani: Jón Sveinsson* Kaffibætisverksmiðjan „Fregja" Akureyri framleiðir kaffibæti í stöngum og kaffibætisduft, sem selt er í smápökkum. — Kaffibætir þessi hefir náð ótrúlegum vinsældum og útbreiðslu á þeim skamma tíma, sem liðinn er síðan hann kom á markaðinn, enda eingöngu búinn til úr beztu hráefnum. Fæst hjá öllum kaupfélögum landsins og mörgum kaupmönnum. * Allt með íslenskuin skipum! * SKRIFSTOFA Ritstjóri: Ingimar EydaL FRAMSÓKNARFLOKKSINS er á AmtmannBstíg 4 (niðri). “ “““ Síml 4121. Reykjavlk. PíMitamiíUa Odda Bjönusonar,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.