Dagur - 30.03.1933, Side 4
52
PXOHB
13. tbl,
Kaffibætisverksmiðjan
„Preyja"
Akureyri
framleiðir kaffibæti í stöngum og kaffibætisduft,
sem selt er í smápökkum. — Kaffibætir þessi
hefir náð ótrúlegum vinsældum og útbreiðslu á
þeim skamma tíma, sem liðinn er síðan hann
kom á markaðinn, enda eingöngu búinn til úr
beztu hráefnum.
Fæst hjá öllum kaupfélögum landsins og
mörgum kaupmönnum.
Fyrir vorið.
Handverkfœri allskonar ög garðyrkfuverkfœri
er bezt að kaupa hjá oss. Beztu gerðir og gott verð.
Samband ísl. samvinnufélaga.
stjóra, um, eða laust eftir, 1920.
Sem betur fór varð sú áætlun 10
árum á undan tímanum að veru-
leika orðin, og verðum við nú að
vona, að á því herrans ári 1940
megi í bifreið komast á milli allra
landsfjórðunga, og um flestar
sveitir.
En það er nú sitt hvað að kom-
ast leiðar sinnar með tóma bif-
reið, og við mannhjálp, eða að
ferðast óhindrað með fullkomna
hleðslu fólks eða flutnings. Til
þess að hið síðarnefnda megi tak-
ast með góðu móti, þarf góða vegi,
— upphleypta vegi. Alkunnugt er,
að hér á íslandi er það mjög
snjóalögum háð, hve langan tíma
að vetrinum bifreiðarferðir eru
tepptar, en það er all-ólíkt í hin-
um einstöku landshlutum og
breytilegt frá ári til árs. Það er
engra manna meðfæri að ráða
hve mikill snjór fellur, hvernig
hann leggst, og hve lengi hann
liggur. En hægt er þó ýmislegt að
gjöra, sem eykur möguleikana til
þess að bifreiðaferðir teppist sem
allra fæsta daga í árinu. í þeim
tilgangi gerum við almennt kröf-
ur til meira upphleyptra vega en
almennt gerist hjá öðrum þjóðum,
og vinnum líka það, að oft eru
þeir færir þó nokkur fönn sé á
jörðu. 1 hinum alþekktu snjóa-
sveitum duga þau ráð þó skammt,
og því hverfa menn einnig að því
að leggja vegina um hæðir og
hóla, þar sem snjór eigi staðnæm-
ist og vatn rennur fljótt af. Þegar
eftir slíku er slæðzt, er ekki gott
að komast hjá krókum og beygj-
um, en það eru ókostir og þeirra
vegna lengist leiðin. Það var eitt
sinn, að »betri var krókur en
kelda«; en vel skal meta hvort
ekki sé ávinningur að brúa keld-
una, í stað þess að beygja. Á
byggingakostnaðinn einan má
ekki líta. Á hverjum kílómetra
sem sparast í vegalengd, sparast
líka árlegt viðhald og ferðakostn-
aður hvers einasta samgöngutæk-
is, sem um veginn fer um ókomna
áratugi. Þá er enn eitt atriði, sem
athuga ber, og taka tillit til, þeg-
ar lega vegar er ákvörðuð. Um
þær sveitir, sem bæjaröð er ein-
sett, er vandinn tiltölulega lítill,
en þar sem tví eða fleirsett bæja-
röð er verður vandara að finna þá
afstöðu, sem fullnægir þeim skil-
yrðujn að vera vel lagður með til-
liti til snjóalaga og koma þó heim
í hlað á sem flestum bæjum. Veg-
irnir eru gerðir fyrir alla þá, sem
þurfa að ferðast og flytja heim og
að heiman, og því gera menn
kröfur til, að þeir liggi svo nærri
bæjunum, sem öll sanngirni mæl-
ir með. Um þá vegi, sem tengja
sveitir eða landsfjórðunga saman,
kemur slíkt að litlu eða engu leyti
til greina.
(Framh.).
Gisli Kristjánsson.
Auglýsendur
eru vinsamlega beðnir að koma
auglýsingum stnum á framfæri ekki
sfðar en daginn áður en
blaðið kemur út.
Fréttir.
Dánardægur. Hinn 21. þ. m. andaðist
hér á sjúkrahúsinu frú Freygerður Júl-
íusdóttir frá Hvassafelli, eiginkona
Hólmgeirs Pálmasonar frá Kálfagerði.
Hún var innan við hálfþrítugt. — Þá
er og nýlega látin frú Aðalbjörg Jónas-
dóttir frá Hjalteyri, kona Hafliöa Guð-
mundssonar sjómanns. Hún var 41 árs.
— Ermfremur andaðist hér á sjúkra-
húsinu 17. þ. m. Sigurpáll Jónsson
bóndi í Klifshaga í Axarfirði, 32 ára
gamall. Hann var ókvæntur.
Lík frú Þónmnar Stefánsdóttur frá
Hrafnagili var flutt hingað að sunnan
með Islandi, síðustu ferð. Minningar-
athöfn fór fram hér í kirkjunni á laug-
ardaginn, og flutti sr. Sigurður Stef-
ánsson þar ræðu. — Jarðarförin fór
fram að Munkaþverá á mánudaginn.
Hljámsveit Akureyrar hélt hljómleika
í Samkomuhúsinu fyrra miðvikudags-
kvöld. Leikin voru 8 lög og tókust öll
prýðilega að dómi þeirra, er á hlýddu.
Við hljómleikana skemmti Hreinn Páls-
son með söng.
Inflúenzan er nú í rénun í bænum.
. J’jölda margir hafa fengið bronkítis
upp úr veikinni.
Ólafsfjarðarlxknishérað er veitt
Bjarna Guðmundssyni lækni á Brekku
í Fljótsdalshéraði frá 1. júlí næstk.
Bátur úr Höfnum syðra fórst í fis'ci-
róðri 20. þ. m., og drukknuðu þar 4
menn.
Drengur, 6 til 7 ára, varð nýlega. fyr-
ir bifreið á Hverfisgötu í Reykjavík og
beið bana af.
Norsku sannningarnir hafa verið sam-
þykktir í neðri deild Alþingis með 19
atkv. gegn 6. Móti þeim greiddu atkv.
jafnaðarmennirnir þrír, Jón Auðunn,
Guðbrandur ísberg og Magnús Jónsson.
Tvö fxreysk skip rákust nýlega á
suður á Selvogsgrunni. Annað þeirra
sökk á skammri stundu, en skipsmenn
björguðust allir.
Japanar hafa nú formlega gjört al-
vöru úr því að segja sig úr þjóða-
bandalaginu.
UrnsjárutA'staðan í Samkomuhúsi bæj-
arins var á bæjarstjórnarfundi í fyrra-
dag veitt hjónunum Haraldi Guðnasyni
og Dagmar Sigurjónsdóttur frá 14.
maí næstkomandi.
Nova kom að sunnan í fyrradag'. Er
nú verið að skipa fyrrverandi »bann-
vörum í land. Skipið fer héðan í kvöld
austur um.
Eins og sést á öðrum stað hér í blað-
inu, verður Hátíðar-Kantata eftir
Björgvin Guðmundsson við hátíðarljóð
Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi,
sungin hér á Akureyri næstu daga af
60 manna blönduðum kór, undir stjórn
tónskáldsins. Mun margan fýsa að
heyra slíkt verk, sem er talið eitt af því
bezta, er samið hefir verið við áður-
nefnd ljóð. Skiftast þar á einsöngvar,
sopran-duett, tenor-duett, karlakór og
blandaður kór. Undir verður leikið átvö
flygel og orgel. — Er þetta stór-við-
burður hér á Akureyri og mun ekki
draga úr því áliti musik-manna, að Ak-
uveyrl sé mesti musik-bær landsins.
Síra Benjamín Kristjánsson flytur
guðsþjónustur á Möðruvöllum á Pálma-
sunnudag kl. 12 á hádegi; Páskadag í
Hólum kl. 12 stundvíslega, í Saurbæ kl.
3 e. h.; á annan I Páskum á Grund kl.
12 á hádegi stundvíslega, í Kristneshæli
kl. 3 e. h.; Kaupangi sunnudaginn 23.
apríl kl. 12 á hádegi; Munkaþvei’á 30.
apríl kl. 12 á hádegi.
, Leikfélag Reykjavíkur hefir í vetur
leikið Æfintýri á gönguför undir stjórn
Haraldar Bjömssonar, alls 22 sinnum.
Er það oftar en nokkur annar leikur
hefir verið sýndur af félaginu til langs
tíma eftir því sem blaðinu er kunnugt.
Þess má geta, að Jóhanna Jóhanns-
dóttir söngkona, er lék »Jóhönnu« hlaut
beztu dóma fyrir leik sinn.
Eldhúsdagsmm'æður hófust í neðri
deild Alþingis á föstudagskvöldið og
héldu síðan áfram á mánudagskvöldið.
Haraldur Guðmundsson talaði einn af
andstæðingum stjórnai’innar og deildi á
hana, en ráðherrarnir þrlr voru til and-
svara. Allmikið »pex« varð milli þeirra
Haralds og Magnúsar Guðmundssonar
um íslandsbankamálið og afturköllun
þess. ..
Smíðaeik
og
Prímafura
nýkomið.
Kaupíélag Eyiírðinga
Byggingavörudeild.
SKRIFSTOFA
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
er á Amtmannsstíg 4 (niðri).
Siml 4121. Reykjávik.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
<>t
Prentsmiðja Odds Bjömsson&r.