Dagur - 13.04.1933, Side 1
D AGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Árni Jóhanna-
son 1 Kaupfél. Eyfirðinga.
Afgreiðslan
er hjá J&ni Þ. Þ6r,
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Norðurgötu 3. Talsími 112.
XVI. ár.
Akureyri 13. apríl 1933.
15. tbl.
GiÉiuÉr G. Bárðarson
próíessor.
Fæddur 3 jan. 1880. Dáinn 13. marz 1933.
Það er eigi ofsögum sagt, að
Quðmundur Q. Bárðarson hafi
verið einn hinn fremsti í hinum fá-
menna höp islenzkra vísindamanna.
Hann er einn þeirra fáu, sem getið
hefir sér góðan orðstír meðal er-
iendra þjóða, og hefði þar hver-
vetna þótt hlutgengur meðal hinna
beztu náttúrufræóinga. Saga hans
er með aíbrigðum merkileg. Sakir
heilsubrests varð hann að hætta
námi á rumlega hálfnaðri leið til
stúdentsprófs, og aila æfi sína átti
hann vió vanheilsu að stríóa. Engu
að síður tekur hann að stunda bú-
skap og sinna sveitarmálefnum, en
heldur þó jafnt og þétt áfram að
stunda náttúrufræði og auka þar
við þekkingu sina og gera sjátf-
stæðar rannsóknir, Hóf hann brátt
að rita um þær i nt erlendra vis-
indafélaga, og vöktu ritgerðir hans
þá athygli, að honum var veittur
styrkur nokkur tii framhaldsrann-
sókna. Pegar hann haustið 1921
gerðist kennari hér á Akureyri fyrir
atbeina Sigurðar Quðmundssonar
skólameistara, var bann kunnur
maður fyrir vísindastörf sin, bæði
innan lands og utan. Eftir 5 ára
dvöl hér fluttist hann tit Reykjavik-
ur og tók við kennslu i Mennta-
skólanum þar og hélt því starfi til
dauöadags. Suma veturna kenndi
hann einnig i Kennaraskólanum.
Ouðmundur Q. Bárðarson var
vfsindamaður af guðs náð. Qáfur
hans voru óvenju traustar, áhuginn
og athyglin frábær. Pegar í æsku
hneigðist hugur hans að náttúru-
fræði, og áður en hann kom f skóia
hafði hann afiað sér þeirrar meant-
unar i þeim fræðum, að einsdæmi
er. Hann þekkti þá flestar fsienzkar
plöntur og hafði lesið flest það,
er ritaö hafði verið að fornu og
nýju um náttúrufræði íslands. Einn-
ig hafði hann þá byrjað að veita
athygli sæskeljum og sjávarminjum,
sem síðar varð meginviðfangsefni
hans. Mun það næsta íágæit að
skólasveinar á þeim aldri hati tund-
ið viðfangsefni, er þeim endist æf-
ina út. Meó þessum undirbúningi
hefði mátt vænta þess, að náms-
braut hans yrði óvenju bein og
glæsileg. En eins og áður er getiö,
hamlaði heilsubrestur honum að
halda áfram á námsbrautinni eins
langt og hugur hans stóð til.
Mundu fiestir hafa lagt árar i bát,
er svo stóð á, en svo mátti heita,
að Quðmundur harðnaði við hverja
raun.
Rannsóknarefni það, er hann
valdi sér voru einkum sævarminjar
fornar, er finnast i landi uppi, og
geyma frásögn um þann tima, er
landið var lægra miklu en nú er.
En hann var enganveginn einskorð-
aður við sérgrein sína. Allar grein-
ar náttúrufræðinnar voru honurn
kærar og stundaði hann þær af
kappi við hlið sérgreinar sinnar,
og var þar hvergi. að tómum kof-
um komió. Jafnframt þvi var liann
hinn áhugasamasti um landbúnaðar-
mál. Qerði hann merkilegar áveitu-
tilraunir að bújörð sinni, Bæ í
Hrútafirði, og lét sér umhugað
um endurbætur á húsagerð í sveit-
um. —
Hinar fyrstu vfsindaritgerðir hans
voru prentaðar í ritum Náttúrufræða-
félagsins danska, og fjölluðu þær
um sævarminjar við Húnaflóa. Hafa
þær að flytja tvær nýjungar i jarð-
sðgu landsins, og gengur það furðu
næst, hversu vel honum tókust
rannsóknirnar, þar sem hann var
einangraður fjarri söfnum ölium og
þeim hjálpartækjum, er visindamenn
þarfnast. Pegar hann hafði samið
rit þessi, fór hann utan og dvaldi
hluta úr ári i Danmörku og Sviþjóð
og kynnti sér sðfn náttúrugripa.
Var honum um þær mundir falið
að semja lýsingu á loitslagi íslands
síðan á ísöld fyrir safnrit eitt, er
fjallaði um það efni i ýmsum lönd-
um, og um 50 jarðfræðingar skrif-
uðu i, hver um sitt iand. Settist
hann, bóndinn islenzki, þar á bekk
meðal hinna fremstu vísindamanna
i þeirri fræðigrein. En hann hafði
áður leitt rök að þvi, að loftslag á
landi hér hefði verið miklum sveifl-
um háð á umræddu timabili.
Rmnsóknum sinum á sævarminj-
um hélt hann stöðugt áfram, en
mest verk og merkilegast hefír hann
á þvi sviði unmð við rannsókn
jarðlaga á Tjðrnesi. Höfðu lög þau
verið löngu kunn, og margir vfs-
indamenu á þau litið, en engum
tekist að skýra þau. Eru Iðg þau
því merkilegri sem jafnaldra minjar
eru mjög sjaldgæfar á jðrðunni.
Auk rannsókna þeirra, er nú er
getiö, rannsakaði Quðmundur einn-
ig mjög líf lindýra við strendur
landsins, einkum vesturströndina.
Hefir hann skrifað allstórt rit um
það efni, og gefið öllum islenzkum
sælindýrum heiti. Siðustu árin fékkst
hann einkum við rannsókn jarð-
eldaminja á Reykjanesskaga.
Enda þótt visindastörfin fylltu
mestan hluta tíma þess, er hann
hafði afgangs kennslustðrfum og
ððru, þá lét hann sér ætíð mjög
annt um að efla þekkingu almenn-
ings á náttúrufræði, og vekja áhuga
í þeim efnum. Hefir hann skrifað
margar alþýðlegar fræðigreinar um
náttúrufræði, og nú tvö slðustu árin
var hann annar útgefandi Náttúru-
fræðingsins. Hygg eg að hann hafi
verið hvatamaður að útgáfu þess
rits, þvi að um langt skeið hafði
hann fýst mjðg, að slikt rit yrði
gefið út. Pví má heldur eigi gleyma
i þessu sambandi, að bann var
óþreytandi að hvetja þá unga menn,
sem hug höfdu á náttúrufræðum,
til starfa og studdi þá með ráðum
og dáð. Attu þeir allir þar hauk í
horni, er Quðmundur var.
Pað sem öðru fremur einkennir
vísindastörf Quðmundar Q. Bárðar-
sonar er, hve rannsóknagrundvöll-
urinn, sem þau eru byggð á, er
traustur. Par er ekkert tálm, engar
tilgátur gripnar úr lausu lofti. Spegl-
ast þar iyndiseinkunn hans i verk-
unum, festa og óbifandi traust.
Kennari var Guðmundur góður,
Honum var flestum mönnum Ijós-
ara samband fræðigreinar sinnar við
lífið, og gerði það kennslu hans
frjórri og fjölþættari en ella hefði
verið. Mun og sjálfmenntun hans
háfa nokkru um valdið, hve fund-
vís hann var á allt það, er >prakt-
iska< þýðingu hefir. Og i kennslu
sinni ems og allri visindastarfsemi
gerði hann sérlega glöggan mun
höfuð- og aukaatriða, varð kennsla
hans þvi hin notadiýgsta.
Við fráfall Quðmundar Q. Bárð-
arsonar er stórt skarð höggvið f
hinn litla iiokk þeirra Isleudmga,
er náttúrutræði stunda. Verður það
skarð seint fyllt, og vandfundmn
sá maður, er tekið geti upp merki
hans og leyst þau viðtangsefni,
sem hann nú hlaut að hverfa frá
óleystum.
En minningin lifir, og hún mun
verða óvenju björt um Quðmund
Q. Bárðarson i hugum allra, er
þekktu hann.
Steindór Steindórsson.
□ Rún 59334188 - Frl.v
Togarinn >Skúli fógeti<, eign útgerðar-
félagsins »Alliance«, fórst á mánudagsnótt-
ina í Grindavík og drukknuðu 13 menn,
allir úr Reykjavík, þar á meðal skipstjór-
inn Þorsteinn Þorsteinsson, en 24 skip-
verjar björguðust. Versta veður var þegar
þetta átakanlega slys vildi til.
Dánardægur. Hinn 10. þ. m. andaðist
hér á sjúkrahúsinu húsfrú Stefanía Sig-
tryggsdóttir, eiginkona Péturs Tómassonar,
verkamanns til heimilis í Oddeyrargötu
24 hér í bæ
Kvæði
það, er hér fer á eftir, er tileinkað
Ungmennafélagssambandi Eyjafjarð-
ar og ort á héraðsþingi þess, sem
haldið var á Daivik á ofanverðum
siðasta mánuði. Hefir Dagur fengið
leyfi höf. til að birta kvæðið. .
Vors- og morgun-menn!
Pið, sem rekið ætt til fjalls og fjarðar,
fagnið gengi óg heiðri móðurjarðan
Landnámsmenn, með gjörvan hug
og hðndl
Hér er verksvið handa hverjum
manni,
hér er margt, sem leysa þarf
úr banni. —
Ykkar bíða óska- og vonalönd.
Skyggnu, skýru mennl
Svipist um og sjáið hvar þið
standið.
Sólin ris og geislum merlar landið:
Sviphrein biáfjöll, bjartra jöklahvel.
Ftnnið þið ei tögnuð lifsins streyma?
Finnið ei að hér er ykkar heima?
Pið eruð vaxnir upp úr mó og mel.
Vðsku vðkumennl
Leiði ykkur landsins vættir góðar,
leitist við að merki ykkar þjóðar
blakti flekklaust yfir sveit og sæ.—
Neytið vitsins — ofsinn málum
eyðir,
auðnuleysi og slysum veginn
greiðir
inn i sérhvert land og borg og bæ.
Sáðmenn sólskinsdagsi
Hlutverk ykkar er að græða melinn,
eldinn sækja i björtu jökiahvelin,
víðsýn nema af fjallsins bláu brún.
Hafsins gnýr og heiðablærinn létti
hreysti og mildi í skapgerð ykkar
flétti,
ietri á svipinn iífsins björtu rún.
Meyjar, konur, menn!
ísland kallar alla þjóð að verki,
ykkur ber að fylgja Iffsins merki
fram til sigurs yfir gjár og grjót.
Öll él birtir upp, og stjörnur skína,
isa leysir, dagar lengjast, hlýna,
horfi þjóðin hugdjörf framtið mót.
F. FL Berg.
------0------
Pakkardvarp til Svarfdœlinga.
Innilcgt hjartans þakklæti votta ég
mínum gömlu og góðu sveitungum
fyrir þær alúðar-viðtökur, sem þeir
veittu mér, er ég heimsótti þá 1 marz
s. 1. — Óska ég þeim af heilum hug
góðs gengis á komandi árum.
Miðlandi 3. apríl 1933.
Aðalsteinn Hallsson.