Dagur - 18.05.1933, Blaðsíða 1

Dagur - 18.05.1933, Blaðsíða 1
D AGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. jálf. Gjaldkeri: Ami Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. XVI. ár Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. Norðurgötu 3. Talsími 112. Akureyri 18. maí 1933. 20. tbl. Kreppiálinj fllpinyi. i. Frumvarps um kreppulánasjóð, sem frarn hefir verið borið á Al- þingi, eftir ósk atvinnumálaráðherra, hefir áður verið getið hér i blaðinu. Samkv. frv. verður sjóðurinn 12 miijónir króna og er það sama upphæð og gert var ráð fyrir f til- lðgum flokksþings Framsóknar- manna. Tekjur sjóðsins eru ákveðnar: Afborganir Búnaðarbankans af lánum frá ríkissjóði fram tii ársins 1940, átta miljónir I rfkisskuldabréf- um og tveggja railjón kr. framlag að auki úr rikissjóði, sem greiðist á árunum 1934—40, eftir nánari veitingu í fjárlögunum. Fé sjóðsins skal varið tii iánveit- inga handa bændum og öðrum, er reka iandbúnað sem aðalatvinnu, með þeim nánari skilyrðum, er i frv. greinir. Lánum úr Kreppulánasjóði skal verja til greiðsiu á skuldum bænda. Lánstiminn er allt að 42 árum og afborgun og vextir þá samtals 5°/o. Frv. fylgir skýrsla um efnahag bændastéttarinnar, eins og hann var i árslok 1932 samkv. rann- sóknum nefndar þeirrar, er skipuð var til að athuga fjárhag iandbún- aðarins. Skjfrsla þessi fyllir um 50 biaðsiður þéttprentaðar i greinar- gerð frv. og felur i sér mikinn og margháttaðan fróðleik. Eru þar raktar eignir og skuldir hreppanna og flokkað eftir sýsium, en eigi tilgreindur efnahagur einstakra manna. Efnahagur hverrar sýslu er gerður upp út af fyrir sig, og er bændunum eftir efnahag skift f 4 flokka: 1. flokkur: Skuldir undir 50°/o móti eignura. 2. flokkur: Skuidir frá 50—75°/o móti eignum. 3. flokkur: Skuidir frá 75-100% móti eignum. 4. flokkur: Skuldir meiri en eignir. Skuldir á móti eignum i einstök- um héruðum eru sem hér segir: Borgarfjarðarsýsla 52 % Mýrasýsla 52 - Hnappadalssýsla 64.4- Snæfellsnessýsla 52.7- Dalasýsla 53.5- Austur-Barðastrandarsýsla 40.1- Vestur Barðastrandarsýsla 49.5- Vestur-1 saf jarðarsýsla 53.9- Norður ísafjarðarsýsla 43.4- Strandasýsla 53.1- Vestur-Húnavatnssýsla 49.3 — Austur-Húnavatnssýsla 49.5 — Skagafjarðarsýsla 48.2 — Eyjaf jarðarsýsla 52.7 — Suður-Þingeyjarsýsla 62.9 — Norður-Pingeyjarsýsla 59.9 — Norður-Múlasýsla 61 — Suður-Múlasýsla 52.7 — Austur-Skaftafellssýsla 30 3 — Vestur-Skaftafellssýsla 58.5 — Rangárvallasýsla 40.1 — Árnessýsla 61.6 — Oullbringusýsla 42.9 — Kjósarsýsla 50.8— Siglufjörður, Seyðisfjörður og Vestmannaeyjar 9.1 — Eignir bænda alls á landinu: a. Fasteignir 31.741 083 kr. b. Lausafé 31.523.871 - Samtals 63.264.954 - Skuldlr bænda alls á landinu: a. Veðskuldir 11.492.815 kr. b. Lausask. i bönkum 5 563.955 — c. Verzlunarskuldir 8.363.014 — d. Einstaklingsskuldir 7.680.653 — Samtals 33.100.437 — Eignir fram yfir skuldir samtals 30.164.517 kr. Tala bænda: 6799. Skuldlaus eign hvers bónda til jafnaðar: 4437 kr. Skuldir á móti eignum til jafnað- ar á öllu landinu: 52.3%. II. Um ráðstafanir til hjálpar land- búnaðinum i kreppunni er hin brýnasta þörf. Um það geta naum- ast verið skiftar skoðanir. En þær ráðstafanir hljóta að kosta mikið fé. Hvaðan á það fé að koma? Fulltrúi Framsóknarflokksins í ríkis- stjórninni, Ásgeir Ásgeirsson, fjár- málaráðherra hefir svarað þessu fyrir flokksins hönd. Peningana, sem rikið þarf á að halda til kreppuráðstafana, verður að taka bjá hátekju- og stóreignamönnum landsins. Pess vegna hefir fjármála- ráðherrann lagt fyrir Alþingi frv. um viðbótar tekju- og eignaskatt til kreppuráðstafana og ennfremur bráðabirgðaverðtoll, einkum á lftt þörfum vörum og vörum, sem framleiddar eru i landinu sjálfu. Samkv, frv. á tekjuskattur ársins 1933 að innheimtast með álagi sem hér segir: 22— 72 kr. skattur með 40% álagi 72—162 - - - 50- 162-292 - - - 60- 292-462 - - - 70— Fer þannig skattálagið hækkandi, þar til það er komið upp f 100% á 922 kr. tekjuskatti eða enn hærri. Eignaskatturinn innheimtist með 150% álagi. íhaldsmenn, bæði utan þings og innan, snúast ðndverðir við þessari hlið kreppuráðstafananaa. Peir segj- ast ekki vera á móti því að land- búnaðinum sé rétt hjáiparhönd, en þeir neita þvf eindreigið, að sú hjálp komi nokkuð verulega við pyngjur þeirra, er auðveldast geta veitt bana, bátekju- og stóreigna- manna. Peir telja það >svik við Sjálfstæðisfiokkinn«, að Ásgeir Ás- geirsson ætlist til þess. Og út af þessum >svikum< eru ihaldsmenn óðamála og háværir, hreyta skamm- aryrðum að fjármálaráðherra og hóa saman mótmælafundum f f- haldsfélögunum i Reykjavfk. Pessi eru heilindin f undanfarandi skrafi þeirra um áhuga sinn fyrir kreppu- hjálp til handa bændum og land- búnaðinum. Verður nú fróðlegt að vita, hvernig þessum málum lyktar á þinginu. -..."O Mbl. og kreppan. Mbl, flutti fyrir skömmu grein eina, er hafði að yfirskrift <Orsakir kreppunnar<. Par er þvi haldið fram með óhefluðu orðavali, að orsakír kreppunnar séu tvær. Er þar fyrst talið >skuldafenið<, sem Framsókn- arstjórnin hafi sökst þjóðinni í, er 12 milj. kr. enska lánið var tekið. Lán þetta var tekið samkv. fyrir- skipun a 11 r a þingflokkanna og hvarf að mestu inn i atvinnulif þjóðarinnar gegnum bankana. Stuðn- ingur við atvinnulífið i landinu er þvi að dómi greinarhöfundar önnur orsök kreppunnar. Hitt er mönnum ekki úr minni liðið, að meðan á lántökunni stóð, lögðu ihaldsmenn sig mjög fram um að rægja láns- traust landsins erlendis, jafnframt þvi sem þeir heimtuðu ákaft að lánið væri tekið. Var öll sú fram- koma þeirra með endetnum. Hin önnur orsök kreppunnar er talin >verz1unarólagið<. Er því skift í allmarga þætti. Fyrst er talin lands- verzlunin frá stríðsárunum, sem bjargaði þjóðinni frá hallæri. Pá er steinolíueinkasalan, sem á að hafa hækkað ullar- og gærutoll í Ame- riku, en sem raunar er eintómur misskilningur, því íslendingar sluppu við toilinn, þó að sendimaður ihalds- ins kæmist ekki nema til Kaup- mannahafnar I Næst er tóbakseinka- salan, sem gefur ríkissjóði bundruð þúsunda kr. gróða á ári i stað þess að renna f sjóð einstakra manna. Pá er Pórsútgerðin, sem lækkaði fiskverð f Reykjavík til stórhagnað- ar fyrir neytendur í dýrtíðinni þar. Pá er einkasala á tilbúnum áburði, af þvi að S. f. S. hafi hana með höndum, en ekki danskur stórkaup- maður. Enn eru nefnd innkaup rikisstofnana, sem hafi viðskifti við S. í. S. og missi þvi heildsalarnir þar spón úr aski, og áfengisverzlun ríkisins, sem fylgi sömu regiu með að ganga fram hjá heildsölunum, sem hafi þó svo >góð og fjölbreytt erlend samböndc með þessa vörul Pá er og minnst á einkasölu á út- varpstækjum, >sem einnig þrengdi verksvið kaupmanna<. Petta allt eru nú ærið margar stoðir undir kreppuna i augum greinarhöf., en þó er veigamesta stoðin eftir enn: Máttarviðir krepp- unnar segir i Mbl.-greininni að sé Samband fslenzkra samvinnufélaga og starfsemi kaupfélaganna. Kvartað er yfir >hinni gegndarlausu sam- keppni við kaupmenn< frá hendi kaupfélaganna og sagt, að >með hóflausum lánveitingum og bitling- um< haii >þessari samvinnuverzlun tekizt að ná mörgum áhangendum og miklum viðskiftum<. Petta sárn- ar og sviður kaupmannaliðinu held- ur en ekki, ekki sizt þegar þeir sjá fram á, að þessi viðskiiti við kaup- félögin aukast hröðum skrefum; en broslegter að sjá og heyra að iað- almálgagni samkeppnismanna skuii vera fyrir kaupmanna hönd kveinað undan samkeppninni frá kaupfélög- unum. Kaupmenn segja: Samkeppn- in er góð og blessuð, meðan hún er okkur i hag, en hún er hin arg- asta óvætt, þegar hún snýst okkur i óhag! Löngu máli i umræddri Mbl.-grein er varið til heiftúðugrar árásar 6 kaupfélögin og Sis, og hún endar á þvf, að »tafarlaust< þurfi >að finna meinið og skera fyrir rætur þess, svo að yfir taki sem fyrst, og ekki sæki i sama horfið aftur<. Samvinnumenn munu fara nærri um, hvert þetta >mein< er, sem þarf að skera burtu. Pað er sam- vinnustarfsemfn i landinu, sem á að drepa svo rækilega, að hún risi aldrei á Iegg framar. Hvað segja samvinnumenn um þetta? Finnst þeim ráðlegt að fela þeim flokki áhuga- og velferðarmál sin, sem leyfir aðalmálgagni slnu að flytja svivirðingar um Samband isl. samvinnufélaga, kaupfélögin og trúnaðarmenn þeirra? Hvort trúa þeir betur fyrir málum sínum forstjóra Sis og framkvæmda-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.