Dagur


Dagur - 22.06.1933, Qupperneq 3

Dagur - 22.06.1933, Qupperneq 3
25. tbl. D AGUR 99 Jón Ó. Finnbogason, bankabókari. Mér er ekki fullkunnugt um ætt hans og uppruna, en fæddur mun hann hafa verið í Norður-Múlasýslu, og uppalinn austur þar. Voru þeir Jakob Gunnlaugsson stórkaupmaður og hann bræðrungar. Jón dvaldi á Austur- landi allan fyrri hluta æfi sinnar. Vann þar að verzlunar- og skrifstofustörfum. Paðan fluttist hann til Vesturheims, en undi sér þar ekki lengi, og hvarf aftur hingað heim eftir tiltölulega fárra ára dvöl þar vestra. Settist þá fyrst að í Reykjavík, en fluttist þaðan um 1914 hingað til Akureyrar, og var búsettur hér upp frá því Lengst af þeim tíma var hann bókari við útbú Landsbank- ans hér. Siðustu árin bjó hann, ásamt eftirlifandi ekkju sinni, í húsi Vithjálms fór framkvæmdarstjóra, sem giftur er Rannveigu dóttur hans, og þar andað- ist hann að morgni 20. þ. in. eftir fremur stutta legu, 72 ára að aldri, Hafói liann alllengi krankur verið, en var ekki rúmfastur lengur en hann þurfti. Auk frú Rannveigar lifa hann þrjú börn þeirra hjóna: Borghildur, gift Jakob Frímannssyni fulltrúa, Albert, prentmeistari í Reykjavík og Óskar, til sölu, en framvísað hefir ver- ið«. Tillagan samþ. í einu hljóði. »E. Fundurinn lítur svo á, að eðlilegt sé og hagfelldast fyrir sambandsfélögin, að þau láti tí. i. S. annast sölu á öllu því kjöti, sem þau selja út af félagssvæöi sínu. Ákveður fundurinn, að ef félögin selja sjálf í kauptíðinui kjöt í heildsölu utan síns félags- svæðis, þá skuli þau haga svo sölunni, að ekki verði öðrum sam- bandsfélögum eða S. ‘í. S. til tjóns eða óþæginda, enda hlýti þau verðákvæðum framkvæmdar- stjórnar S. í. S. og tilkynni henni söluna strax«. Tillagan samþykkt með 24 at- kvæðum móti 1. Þessi síðastgreinda tillaga var sú, er ágreiningur hafði orðið um í nefndinni. Fer hér á eftir breytingartillagan, er minni hluti nefndarinnar bar fram ásamt greinargerð, en tillagan var felld með 17 atkv. gegn 13. Greinargerö: »Viðvíkjandi inn- anlandssölu sambandsdeilda S. x. S. á kjöti, getum við ekki verið sammála meðnefndarmönnum okkar. Við lítum svo á, að heppi- legast sé og í beztu samræmi við stefnu og starfsemi samvinnu- hreyfingarinnar í landinu, að Sambandið annist um alla heild- sölu á kjöti fyrir sambanasdeild- irnar. Álítum við, að sölufram- boð frá einni hendi á kjöti sam- vinnumanna hljóti að halda uppi kjötverðinu innanlands sem ut- an, en söluframboð og markaðs- íeit sambandsdeildanna sjálfi-a á kjöti sínu muni valda margskon- ar óþægindum, svo sem ójöfnu verðlagi og keppni og ríg milli félaganna og sennilega lækkun á söluverði kjötsins. Leggjum við því til, að í staðinn fyrir tillögu meiri hluta nefndarinnar komi eftirfarandi tillaga: kaupmaður í Vesturheimi. Hefir hann, ásamt konu sinni, dvalið hér nú nokk- urn tíma í heimsókn. Jón Finnbogason var maður einkar fríður sýnum, einkar liðlega vaxinn og léttur á fæti fram til hins síðasta. Eg vann um eitt skeið með Jóni Finnbogasyni, og fékk hinar mestu mætur á þessum aldraða, prúða og góðládega manni. Eg hefi ekki unnið með vandvirkari manni, ekki kynnst vandaðri manni, og ekki umgengist hrekklausari mann. Það er ljúft og gott að minnast þeirra manna, sem í gegn um langt líf hafa varðveitt í sál og svip öll ein- kenni barnshugans, enda þótt þeir láti engin stórvirki eftir sig í þessutn heimi, Tel eg jafnmikla eða meiri eftirsjá að góðum mönnum og hrekklausum, en þeiin, sem miklir menn eru taldir. Góðir menn láta ekkert eftir sig ann- að en gott, og svo er um Jón Finn- bogason. Fremur fátækur mun hann alla æfi verið hafa, en þeim mun rík- ari af góðvild og prúðmennsku gagn- vart öllum er hann umgekkst. Hann mun engan óvildarmann átt hafa og eru þeir menn of fáir sem slíkt er hægt, með sönnu, eftir að mæla. S. Aöalfundur S. I. S. ályktar, að hér eftir verði deildum S. f. S. geri að skyldu, að láta Samband- iö annast um alla heildsölu á kjoti þeirra utan félagssvæðis, innan- fands sem utan. V. Þór. Sig. Þórðarsona. Ennfremur var svohljóðandi tilfaga flutt af kjötsölunefndinni: »Fundurinn skorar á fram- kvæmdastjórn S. í. S. að hlutast til um að upp í reglugerð þá, er samin verður um kjötsolu á inn- anlandsmarkaði samkv. 6. og 9. gr. laga um kjötmat, frá 2. maí 1933, verði tekin ákvæði um, að allt kjöt, sem selt er innanlands í heildsölu, skuli verkað og metið í viðurkenndu sláturhúsi«. Tillagan samþ. í einu hljóði. X. Vörumat. Hannes Pálsscn flutti svohljóð- andi tillögur: »A. Fundurinn skorar á stjórn og framkvæmdastjórn S. í. S. að vinna að því við stjórnarvöldin, að kjötskoöun geti orðið ódýrari en nú, t. d. 3 aur. á hvern skrokk i stað 5 aur. eins og var síðastl. ár.« Þessi tillaga var samþ. með 11 atkv. gegn 8. »B. Ennfremur vill fundurinn benda á, að kaup við fisk- og ull- armat, verðl að álítast allt of hátt nú, og felur stjórn S. i. S. að leitast fyrir um lækkun«. Tillagan samþykkt með 13 at- kvæðum gegn 4. Svohljóðandi till. flutti fram- kvæmdastjóri Jón Áj-nasoji: »Fundurinn beinir þeirri áskor- un til forstjóra sláturfélaga og kaupfélaga, að þeir gæti þess vandlega, að læknar, sem annast kjötskoðun á sláturhúsum félag- anna, ræki störf sín í fullu sam- ræmi við gildandi lagafyrirmæli, og kæri til hlutaðeigandi stjórn- arvalda, ef stai’fið er vanrækt«. Tillagan samþ. í einu hljóði. Er hér var komið, var fundi frestað til mánudags. (Frh.) • -----o---- F r éttir. Söngskemmtanir. Tveir aðkomusöngvar- ar hafa látið til sín heyra hér í bænum síðustu dagana. Ungfrú Jóhanna Jóhanns- dóítir l.etir sungið tvlsvar og mun henni aldrei hafa tekist betur en í þessi skiftin. þó var söngur hennar heldur fa'sóttur. — Þá hefir Pétur Jónsson og sungið hér tvisvar, og rómuðu þeir, er viðstaddir voru, mjög frammistöðu þessa góðkunna söngmanns, en aðsókn var minni en vera skyldi. Hjónabönd: Ungfrú Halldóra Daviðs- dóttir og Aðalsteinn Bjarnason trésmiður. - Ungfrú Quðrún P. M. Friðriksdóttir og Þorsteinn Bogason bílstjóri. Skólauppsögn Menutaskólans fór fram á laugardaginn var. Tólf nemendur luku stúdentsprófi við skólann í vor; tveir þeirra lásu utanskóla. Hátíðarhald féll niður 17. júni að þessu sinni, vegna þess að veður var vont þann dag. Næsta dag fóru hér fram íþróttakapp- leikir. Úlafur Friöriksson er hættur ritstjórn Al- þýðublaðsins. Hljómleikarnir í kvöld, sem fjölskylda Sígfúsar Einarssouar tónskálds heldur, eru vafalítið einstakir í sinni röð, þar sem þeir verða fluttir af systkinunum með aðstoð móður þeirra. Einnig Ieikur unnusta Ein- ars Sigfússonar, Lilli Poulsen, einleik á fiðlu og með Einari konsert fyrir L húfur (Kasketter). Hvítir Kollar Bílstjóraborðar ávalt fyrirliggjandi. Brauns Verzlun Páll Sigurgeirsson. tvær fiðlur eftir Vivaldi. Hafa þau hlotið lofsamleg ummæli hljómlistarmanna í Rvík, Elsa Sigfúss er nýlega komin heim frá Khöfn, þar sem hún hefir stundað söng- nám við Tónlistarskólann. Hefir hún mjög djúpa rödd (kontra-Alt) sem er mjög ó- venjuleg, Mun marga fýsa að héyra hana ekki síst þar sem þetta er í fyr6ta sinn, sem hún kemur opinberlega fram hér á landi. Sala aðgöngutniða er þegar byrjuð i Hljóðfæraverzlun Qunnars Sigurgeirss. Séra Benjamín Kristjánsson flytur guðs- þjónustu á Hólum sunnudaginn 2. júlí, kl. 12 á hádegi og í Saurbæ kl. 3 sama dag. Hellirigninyu gerði hér seinnl partinn í gær og fylgdu henni þrumur. Er það sjaldgæfur atburður hér um slóðir. Hér með tilkynnist, að jarðarför Kleinenzar Friðrikssonar, sem andaðist 14. þ. m., fer fram frá Ákureyrarkirkju laugard. 24. þ.m. og hefst kl. 1 e. h. Aðstandendur. Fljdtur og Vw'-, ■ auðveldur þvottur— með Rinso Það er ljett verk að þvo þvott. Þegar Rinso er notaS. Leggið þvottinn í Rinso-upplaustn nætur- langt, og næsta morgun sjáið þjer, að öll óhreinindi eru laus úr honum yður að fyrirhafnar- lausu. Þvotturinn þvær sig sjál- fur, á meðan þjer sofið. Rinso gerir hvítann þvott snjóhvítan, og mislitur þvottur verður sem nýr. Rinso verndar þvottinn frá sliti og hendur frá skemdum, því alt nudd er óþarft. Reynið Rinso-aðferðina þegar þjer þvoið næst, og þjer notið aldrei gamaldagsaðferðir aftur. Rinso VERNDAR HENDUR, HELDUR ÞVOTTINUM ÓSKEMDUM M-R 79-33 IC R. S. HUDSON LIMITED, LIVERPOOL, ENGLAND

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.