Dagur - 20.07.1933, Blaðsíða 2

Dagur - 20.07.1933, Blaðsíða 2
116 DAGUR 29. tbl. • • • • »»-»« •••*••••*••••• ••••••• •• • • BnimffHfffHfHHHf I Sumarkjóíaefni | ðdýr, í fjölbreyttu úrvali, — nýkomin. — Kaupfélag Eyfirðinga. Vefnaðarvörudeild. Myndastofan Oránufélagsgötu 21 er opin aita daga frá kl. 10—6. Guðr. Funch-Rasmussen. starfsemi erlendis. Tók þingið vel þeirri málaleitun. En svo kom byltingin í Pýska- landi, Fjöldi af ágætustu vísinda- mönnum Pjóðverja fiúðu úr landi, eða höfðu ekki sömu aðstöðu og fyr við lærdómsstofnanir iandsins: Stíkar breytingar náðu lfka til Oöt- tingen, og lögðu hindranir, a. m. k. til bráðabirgða i veg Leifs Asgeirs- sonar að halda þar áfram stærð- fræðirannsóknum. Og auk þess mun Leifur hafa verið í vafa um hvorn veginn skyldi veija. Hann var vísindamannsefni, með ótvíræðum hæfileikum til að starfa í stórri borg í stóru landi. En hann var lfka góður íslending- ur, sterkur og öruggur sveitapiltur, með glæsilegri fræðimannsmenn- ingu. — Nú er þessi maður ráðinn að Laugaskóla næsta ár. Peir, sem þekkja hann, treysta þvf, að hann verði mjög dugandi maður i skóla- málum landsins. Laugaskóli er brautryðjandi i fslenzkum skóla- málum. Par hefir verið gerð merki- leg tilraun til að sameina hina fornu þjóðlegu sveitamenningu og menningu nútimans. Ur því ein- hver breyting varð á forstöðu Laugaskóla, þá verður að telja það mikið happ fyrir þær sýslur á Norðurlandi, sem einkum senda unglinga á þann skóla, að til for- stöóunnar skuli veljast maður með svo glæsilegri fortfð, við þjóðlegt nám og nútimavísindi, eins og Leifur Asgeirsson. P. Dönsk blöö henna irá því, að Friðrik ríkiserfingi sé væntanlegur til íslands nú i sumar og leggi af stað með íslandi irá Khöfn 5. ágúst. Er þess jafnfrnmt getíð að bann muni fara með skipinu til ísa- fjarðar, Siglufjarðar og Akureyrar og að Ásgeir Ásgeirsson forsætisráðherra og frú hans munl fara með honum þá ferð. MannsldL Fyrir skömmu andaðist hér í bænum Lárus Lárusson gjaldkeri hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Var hann stadd- ur hér f sumarleyfi og varð snöggt um hann, t Haiigrímur Davíðsson verzlunarstjóri. Hinn 16. þ. m. barst sú fregn hingað til bæjarins, að Hallgrimur Davíðsson verzlunarstjóri hefði andast þá um daginn. Hafði hann kennt innvortis meinsemdar fyrir nokkru, fór hann þvi fyrir skömmu suður að leita sér lækningar og var gerður á honum holskurður á laugardaginn var; næsta dag and- aðiht hann. eins og áður er sagt, Hallgrimur var 61 árs gamall. Foreldrar bans voru Davfð Ketils- son og Margrét Hallgrimsdóttir, er um allmörg ár bjuggu á Hrisum og siðar á Núpufelli í Eyjafirðr, val- inkunn sæmdarhjóni Davíð var al- bróðir Kristins Ketilssonar, föður Hallgríms forstjóra Samb. ísl. sam- vinnufélaga. Hallgrimur Daviðsson fór á Möðruvallaskólann tæplega tvitugur og útskrifaðist þaðan með mjög góðri einkunn. Var hann tal- inn einn af efnilegustu piltum, er þá stunduðu nám í skótanum. — Að skólanámi loknu sneri hann sér brátt að verzlunarstörfum og hefir um langt skeið að undan- förnu veitt Höepfnersverslun hér í bæ forstöðu. Hallgrimur var prýði- lega greindur maður og á ailan hátt góðum hæftieikum gæddur, skemmtilegur i viðbúð og allri um- gengni og vinfastur; um það get- ur sá borið af eigin reynd, sem þessar lfnur ritar. Hann tók tölu- verðan þátt f bæjarlífinu hér og hefir ált sæti í bæjarstjórn Akur- eyrar síðustu árin. Var hann þó frá þvi bitinn að troða sér fram til opinberra starfa og i eðli sinu var hann friðsemdarmaður, enda stóð aldrei um hann mikill styr; þó var hann þéttur fyrir og vel fylginn sér, þar sem hann lagðist á. Vegna hæfileika hans og starfhæfni hefði mátt vænta þess að eftir hannlægi víðtækara æfistarf út á við en raun varð á, en hann var trúr í sínum verkahring. Kona Hallgríms, Sigríður (f. Sæ- mundsen), lifir hann ásamt 5 upp- komnum börnum þeirra, 3 sonum og 2 dætrum: Krossanesverksmiðjan hefir hafið bræðalu- atarf sitt fyrir nokkrum dögum. Úr biskupasögum. ni. Porlákur helgi hverfur heim til íslands. Við Englands fögru ströndu einn vordag var svo fritt að varla bœrðist hafið, hvert lauf d eikum nýtt; hinn guli sandur glóði, í greinum fuglar sungu, allt gjörði himni pakkir, hvert með sinni tungu. Tveir ungir menn við ströndina saman sitja í ró og saman rœða um örlög og hjartans þrá og fró; peir lœrðra manna klæði á herðum báðir bera og báðir sýnast œttaðir af konungum vera. „Pað veldur mér sorgar“ annar vinurinn kvað, „að villtu okkur kveðja og þennan góða stað, sem gáfur þinar lét eins og gimsteina Ijóma og gaf þér allt sitt bezta og veitti margan sóma.“ „Já — gott er hér og fagurt, hvern geisla þakka skal, sem gerði lif mitt sælt í skólans lund og sal. En heimþráin mig dregur að ættjörðinni ungu, að ástvinum og sveitum, og lands míns kœru tungu. Eg árum saman dvaldi við Signu sætan nið, við söng og tíðagjörðir, við námsins Ijós og frið. En heim ég þráði löngum, — t hverjum næturdraumi eg hugðist vitja Islands — úr Frakklands prýði og glaumi. I Englands góðu örmurn ég unað hef um stund, eignast mœta vini og stœkkað lærdóms pund. En draumarnir um Island mér ei úr huga hverfa, mín örlög horfa þangað — og ró úr hjarta sverfa. Hér þróast kristni guðs eins og lilja við Ijós og lærdómssetrin brosa og grœða rós við rós. En heima er kristnin blóm, er við hrjóstrin festi rœtur, og himinn Drottins þar yfir syndum manna grœtur. En þar er sá akur, sem erja sál mín skal, mér ást Guðs þangað bendir, ég hef ei nokkurt val. Haf þökk minn tryggi vinur — við mætumst eitt sinn allir, hvort einsetumannskofa við byggjum eða hallir. Sjd farjugarnir stefna í norður norður — heim! Og nú er stundin komin, sem ég má fylgja þeim til Só leyja r, sem paparnir fundu og daprir flýðu, er feður mínir komu með heiðnilögin stríðu. Nú kallast land mitt kristið, en kristnin er ung og kalt er dúfum suðurs, mörg raun Guðs vinum þung. feg fer — og geng í lið þeirra Ijósgeisla, sem skína frá landi Drottins norður yfir fjalleyna mína“. Hulda. Leikhúsið. Tvð sfðastl. kvöld hefir leikflokk- ur sá úr Reykjavík, er getið var um í síðasta blaði að hingað væri von, skemmt bæjarbúum með leiksýning- um. Var fyrst sýnt »Afritið« eftir Helge Krog, sem er raeðal yngri en áhrifaríkari leikskálda Norðmanna, Leikendur voru: Indriði Waage, Arndis Björnsdóttir, Brynjólfur jóhannesson og Aifred Andrésson. Leikurinn er gamanleikur í einura þætti og meðferð á hlutverkunum hin ágætasta, enda skemmtu áhorf- endur sér prýðilega og ekki sízt við leik Alfreds Andréssonar f hiutverki Ferdinands. Næst var sýnd >Síðari heimsókn- in», einþættur ieikur eftir John Bourne, sem er þekktur enskur ieikritahöfundur. Með hlutverkin fóru þessir leikarar: Valur Oíslason Alfred Andrésson, Arndis Björns- dóttir, Elisabet Egilsson-Waage, Brynjólfur Jóhannesson, Martha Kalman og Indriði Waage. Leikur- inn er nokkuð sérkennilegur að efni til, Iaus við allt gaman en háalvarlegur blær yfir honum. Leik- urinn er mestmegnis > dularful I fyrirbrigðic á háu stigi. Leikendur leystu hlutverk sín vel og eðlilega af hendi. Sfðast var svo sýnt >Bónorðið«, skopleikur f einum þætti eftir Aaton Tchehov, eitthvert frægasta leikskáid Rússa á síðari timum. Leikurinn er skopleikur í orðsins fyllstu merkingu og sýnir lyndis- einkenni og skapgerð rússneskra óðalsbænda á keisaratimunum. Per-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.