Dagur - 21.12.1933, Síða 3

Dagur - 21.12.1933, Síða 3
51. tbl. DSGUR 209 í einlægri hollustu og aðdáun og litið til hans sem Drottins síns og meistara, af því að hann hefir verið — vér finnum það ósjálf- rátt — fyrirmynd þess, sem vér eigum að verða. Aðeins með þessari trú, sem býður öllum heiminum byrginn, ei' unnt að sigra heiminn. Slík hefir verið trú allra, sem ein- hverju hafa áorkoð í vísindum eða öðrum menningarmálefnum. Þeir hafa aldrei látið hugfallast, hvað sem á móti hefir blásiö. Þeir hafa trúað á sannleikann og rétt- lætiö og verið öldungis vissir um að þetta hvorttveggja ynni sigur að lokum. Vegna þessai’ar trúar hafa þeir jafnvel verið reiðubúnir að fórna lífi sínu. Þetta var sigui’aflið í lífi og starfi Jesú, h'fi og starfi allra sannra lærisveina hans fyrr og seinna, sá máttur, sem heldur á- fram að starfa í gegnum ár og aldir og vinnur því meii'i sigra, sem mannsandinn laðast meira að því, aö gefa gaum að því fagra góða og sanna í sjálfum sér. Og hvað sem um það má segja, að áhrifa Jesú gæti ekki ennþá sem skyldi í kristnum þjóðfélög- um, þá verður því samt ekki neit- að, að ákaflega margt hefir um þessar nítján aldir verið að fær- ast í það horf, sem Jesú benti til. Fleira fölk en nokkru sinni áður hefir nú orðið hugfangið af kenn- ingu hans, og lagar líf sitt að meira eða minna leyti eftir þeim. Fleiri rithöfundar og ræðumenn hafa skrifað um hann og talað en nokkru sinni áður. Og jafnvel ýmsir af þeim, sem telja sig ekki kristna, líta þó til hans og þeirrar trúar, sem hann boðaði, sem hinnar æðstu vonar mannkynsins og telja það ugglaust, að hann hafi bent á hinar beztu og ham- ingiuríkustu leiðir til lífernis. Fjöldi hinna mikilhæfustu manna sem nú eru uppi, munu af fyllstu sannfæringu geta tekið undir orð brezka heimspekingsins George Bernhard Shaw: »Enda þótt eg sé ekki kristnari en Pílatus var, þá sé eg þó ekki neina aðra leið út úr eymd og volæði heimsins, en þann veg, sem Jesús Kristur kenndi«. En hér hefst einmitt annar og mesti örðugleiki trúarinnar. Ef það er skynsamlegt, gott og fagn- aðarríkt að trúa á hið æðsta og dásamlegasta, sem vér getum í- myndað oss: guð sannleikans og kærleikans, leiðir þá ekki af því, að vér verðum að gera oss lar um að breyta í samræmi við þessi lögmál, að svo miklu leyti sem vér höfum vit á? Erum vér fær um að gera það, eða nær ti'ú vor nógu langt til þess? Erum vér fær um að sigra illt með góðu? Að þeta væri einnig æskilegt, getum vér gert oss ljóst af því, að mest allt böl mannanna stafar beinlínis af því, að þessi lögmál eru brotin. Ef menn gæta þess vel að gangast aldrei á lög kærleik- ans, réttlætisins og sannleikans í sambúð sinni hver við aðra, mundi þá ekki eymd og volæði werfa undireins af sjálfu sér og það guðsríki, sem Jesú Krist dreymdi um, vera komið mitt á meðal vor? Svo einfalt er málið í raun og veru, aðeins ef vér kom- um auga á það og trúum því, svo örugglega að vér förum að breyta eftir því. En þetta er það, sem mönnum hefir ávallt reynzt svo örðugt, af því að trú þeirra hefir ekki verið nógu örugg. Þegar grimmd og miskunnarleysi hefir mætt þeim sjálfum, hefir þeim reynzt það ofvaxið að treysta kærleikanum. Þá hefir skoi't hugrekki og lang- sýni til þeirrar trúar, sem skilur, að einungis er hægt að sigra illt með góðu. Þessvegna hafa menn heitið á Þór og Krist til skiftis. Þessvegna hefir mönnum gengið svo mikils til betur að tigna guð gamla testamentisins, þann guð, sem hefndi grimmilega allra mót- gerða, heldur en guð Jesú Krists, sem er guð allrar miskunnar. Og mörgum, sem fengið hefir að kenna á hörku og blindast hefir af sársauka, hefir fundizt, að sá guð, sem ekki væri brynjaður neinu nema sannleikanum og kaar- leikanum, hlyti að vera lítils meg- andi guð. Vér sjáum þessar hugmyndir manna, ósjálfráða lotningu fyrir hervaldinu, meðal annars koma í ljós í trú þeirra á endurkomu Jesú Krists. Híð fyrra sinn kom hann í veikleika líkamans, það var að vísu óyggjandi staðreynd, en menn vonuðu, að síðar myndi hann koma með mætti og mikilli dýrð. Jesús sögunnar kom óvopn- aður og gat aðeins haft áhrif á hugi manna og sálir. En menn trúðu því, að Kristur dýrðarinnar myndi koma með hersveitum engla í skýjum himins; og fyrir honum myndi hvert kné beygja sig og hver mannlegur máttur hniga í duftið. Og mörgum virð- ist ennþá vera það öldungis ó- mögulegt að sjá dýrð í nokkru, sem er einungis andlegt. Þeir geta aðeins séð dýrð skína af hernaðarvaldi, sem blásið er í lúðra fyrir. En þó getum vér lesið um það á næstum því hverri blaðsíðu mannkynssögunnar, að hvert það ríki, sem hafizt hefir með sverði, hefir einnig fallið fyrir sverði að lokum. Vopn harðstjóranna hafa alltaf snúizt í þeirra eigin hendi og orðið þeim að bana. En hvert það ríki, sem reist er af bróður- þeli, friði og kærleika — myndi það ekki standa þó að hásæti grimmdarinnar hrynji? Hinn sorglegi sannleikur er í því fólg- inn, að slíkt ríki hefir oss ennþá ekki tekizt að setja á stofn. Einhver snjall prédikari hefir nýlega komizt þannig að orði, að heimurinn væri í miklum vanda staddur vegna Jesú Krists. Áhrifa hans gætti nú oröið það mikið, að engum gæti haldizt uppi með það, að fremja ranglæti gegndar- laust; hjá því yrði ekki komizt nú orðið að taka eitthvert ofur- lítið tillit til réttlætis og misk- unnar. Hinsvegar tryði heimur- inn ekki nðgu mikið á Jesú ennþá, Viðtæki fyrir rafstraum --- nokkur stykki — til sölu með afborgunarkjörum. Kaupfélag Eyfirðinga. til þess að geta farið algerlega að dæmi hans. . Þessi skarpa athugasemd bregöur loganda Ijósi yfir hálf- velgju siðmenning vorra tíma. Mannkynið er í vanda statt, af því að það hefir hvorki hugrekki til þess að beita miskunnai'lausum heiönum hnefarétti, sem ekki Iæt- ur sér neitt böðulsverk fyrir brjósti brenna, né kjark til þess að trúa á kærleikann skilyrðis- laust og breyta af alhug eftir boð- orðum hans. Vegna þessarar þálf- velgju í lífsskoðun verða þjóðirn- ar hikandi og ósamtaka og menn- ing þeirra öll hrærigrautarleg og ósamkvæm sjálfri sér. Mannkynið er í vanda statt, ef það getur ekki annaðhvort full- komlega afneitað kenningum Jesú Krists eða fullkomlega trúað á þær. Það eru aðeins tvær leiðir út úr vandanum: Annað hvort að hverfa aftur til hinnar gömlu trúar á hnefaréttinn, herbúnaö- inn, samkeppnina, leynisamning- ana og alla hina svonefndu stjórnmálavizku eins og sumar þjóðir virðast nú vera að gera í örvænting sinni. En þetta er að hverfa aftur í tímann, að þeim aðferðum sem eru þrautreyndar til ófarnaðar. — Eða þá að taka sporið áfram, inn á þá vegu, sem ennþá hafa verið svo lítt reyndir af stjórnmálavizku veraldarinnai', vegu kærleikans. Góðir tilheyrendur! Leiðin út úr öllum ógöngum er ávallt sú, aö taka sporið áfram, en ekki aítur á bak. Því að vegur vor hlýtur að liggja áfram og inn í framtíðina, og þar eigum vér að leysa öll vor vandkvæði með þeim ráðum, sem vér höfum gjörhugsað og gjör- kannað og erum sannfærð um að líklegust rnuni reynast til ham- ingju. Vér höfum nú hugsað um hríð um líf og kenningar Jesú Krists. Hvernig væri það, fyrir einstak- linga og þjóðir, að fara fyrir al- vöru að reyna að lifa samkvæmt henni. Fyrr verður ekki sagt um það fyrir víst hvers hún er megn- ug. Jafnvel á fyrstu öld, komst Páll postuli þannig að orði vjð sofnuðinn í Korinthuborg, að Jesús hafi ekki verið vcikur á meðal þeirra, heldur hafi hann verið Kristur máttarins. Hann var að vísu krossfestur í veik- leika, bætir hann við, en hann mun þó lifa fyrir guðs kraft yð- ur til heilla. Sagan hefir sannað, að Jesús varð eigi vanmáttugur, þó að hann kæmi eigi i öðrum hertýgj- um en hertýgjum mildinnar og sannleikans. Á þann hátt hefir hann orðið Kristur máttarins, maður sem sigrað hefir fleiri hugi og hjörtu og náð valdi yfir Lindarpennar frá kr. 6.00—31.00 í úrvali, og samstæður penni og blýantur frá kr. 3.00—17.50 eru beztu jólagjafirnar handa ungum og gömlum. Þ. THORLACIUS Bóka- og ritfangaverzlun. jaffa-appelíur % á 20 aura stk. mínus 5% gegn peningum. Geymið ekki lengur að kaupa jóla-appelsfnurnar. Kaupíélag Eyliíioa. Nýlenduvörud. BBB bækur og »seríur« erlendra höfunda eru vinsæl- ustu tækifærisgjafirnar. Þ. Tholacius Bóka- og ritfangaverzlun, MUNIÐ eftir spönsku ilmvötnun- um í smekklegum jóla- umbúðum. Nýlenduvörudeild. Helvedet hinsides Havet, saga fangansá Guyana, er mest umtalaða og lesna bókin. Fæst hjá Þ. Thorlacius Bóka- og ritfangaverzlun, vilja fleiri manna, en nokkur annar, sem lifað hefir á jarðríki. Áhinni komandi jólahátíð skul- um vér hugsa um þetta og íhuga það, hvort vér munum enn ekki eiga eftir að læra margt af hin- um furðulegasta sigurvegara mannkynssögunnai’.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.