Dagur - 20.01.1934, Side 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
lögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðsfan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir l.des.
Norðurgötu3. Talsími 112.
••••••
XVII
- »*»■'»■» -»» -»-»-
. ár. | Akureyri
20. janúar 1934.
Út af þeim óvænta atburði við síðustu bæjarstjórnarkosningar
hér í bænum, að efsti maður á lista Framsóknarmanna, Bryn-
leifur Tobiasson, var strikaður út á allmörgum atkvæðaseðlum
og hlaut því kosningu aðeins sem varafulltrúi, í stað þess að
vera aðalfulltrúi flokksins, eins og ætlazt hafði verið til, vill
undirritað fulltrúaráð Framsóknarfélagsins á Akureyri, lýsa yfir
því, er hér segir:
Vér og ýmsir áhrifamenn í flokknum höfðum lagt fast að
Brynleifi Tobiassyni að gefa kost á sér í efsta sæti listans, ein-
mitt fyrir þá sök, að hann hafði setið í bæjarstjórn, sem full-
trúi Framsóknar um 5 ára skeið og jafnan notið fyllsta trausts
flokksins. Pað hefur og komið í Ijós nú eftir kosningarnar, að
undantekningarlaust allir þeir Framsóknarmenn, sem vér höfum
átt tal við um þetta mál, telja það illa farið og mikið tjón,
jafnt írá sjónarmiði flokksins, sem bæjarfélagsins í heild sinni,
að Brynleifur Tobiasson á ekki lengur sæti í bæjarstjórn sem
aðalfulltrúi. — Af þessu má ráða, hve fráleitt það er, að flokks-
fulltrúar eða nokkrir forystumenn Framsóknariélagsins hafi stuðl-
að að eða átt þátt í samtökum í þá átt, að strika nafn hans
út af listanum.
En hinu verður ekki mótmælt, að allmargir kjósendur listans
hafa — að því er virðist samtakalaust og áreiðanlega án tilhlut-
unar frá nokkrum forystumönnum flokksins — breytt mjög röð-
un á listanum og strikað út nöfn, eins og átt hefur sér stað
um fleiri lista við þessar bæjarstjórnarkosningar, meira en þekkzt
hefur hér áður. Af þessu hefur hlotizt það, — sem jafnvel fæst-
ir þeirra, er útstrikanir gerðu á Framsóknarlista, munu hafa ætl-
azt til, — að einmitt sá maður á listanum, sem að flestra dómi
var sjálfsagðastur til að vera fulltrúi flokksins í bæjarstjórn fram-
vegis, hefur ekki náð kosningu, nema sem varafulltrúi. Við því
verður ekki gert að þessu sinni. En af þessu má sjá, hve vara-
samt það er, að strika út nöfn til þess að breyta röð á lista,
því að slíkt getur haft aðrar og víðtækari afleiðingar en til var
ætlast.
Fulltrúaráð Framsóknarflokksins á Akureyri.
Arni fóhannsson. Sigtr. Porsteinsson, Krisijdn Sigurðsson.
Böðvar Bjarkan. Porsteinn M, Jónsson. Vilhjálmur Pór.
Brynjólfur Sveinsson. Ingimar Eydal. Halldór Asgeirsson.
Snorri Sigfússon. Finnur S. Agnars. Olafur Magnusson.
Hannes f. Magnússon. Kristinn Guðmundsson.
Baldur Guðlaugsson. Kristinn Porsteinsson.
Oddur Björnsson.
Björgvin Gu&mundsson, tónskáld, er
nú að æfa helgikantötu þá, er hann i
Winnipeg gat sér þann orðstír fyrir,
að Vestur-íslendingar gerðu honum
kleift að fara til Lundúha, á konung-
lega hljómlistaháskólann þar, til þess
að ljúka fullnaðarnámi. Búast má við
að kantatan verði sungín í marzmánuði.
Þorrablót heldur Stúdentafélagið á
Akureyri í kvöld á veitingahúsinu
Herðubreið, með borðhaldi og dansleik
á eftir. Er búizt við fjölmenni.
Verðlaunum úr Carnegie-sjóði
var úthlutað í desember. Tveir Is-
lendingar hlutu að þessu sinni
verðlaun: Kristján Hreinsson,
sjómaður á Stokkseyri, 400 krón-
ur, fyrir að bjarga úr sjávar-
háska 12 mönnum 1931 og Jakob
FRÉTTIR
Útvarpsfréttir herma- að tilraun til
uppreistar hafi verið gerð í Portúgal,
og er hermt að kommúnistar muni hafa
staðið á bak við, en álitið að hún sé
þegar bæld niður.
Ennfremur hafa Frakkar sagt upp
viðskiftasamningi við Þjóðverja, og
þykir ekki hafa vænkazt um friðar-
horfurnar í heiminum við það. Annars
líta menn nú með einna mestum ugg
til Siberíu, þar sem Rússar óttast mjög
árásir Japana á Bajkalhéruðin, og er
talið að sá uggur hafi mjög ýtt undir
Eandaríkin að viðurkenna loksins rúss-
nesku stjórnina, með því að »gula
hættan« hefir lengi verið þyrnir í
augum Bandaríkjanna.
Ihnsækjendur um bæjarstjórastöðuna
Þorsteinsson á Akureyri, sonur
Þorsteins M. Jónssonar, bóksala,
300 krónur, fyrir að bjarga
manni frá drukknun í sjó, og
leggja þar með líf sitt í hættu.
Annars hefir Dagur áður skýrt
frá þessu afreki Jakobs. —
hér eru nú sagðir þessir: Steinn Stein-
sen, verkfræðingur, Höskuldur Bald-
vinsson, raffræðingur, Rvík, Ingólfur
Jónsson, bæjarstjóri á Isafirði, Árni
Daníelsson, verkfræðingur, Rvík, Páll
Magnússon, lögfræðingur á Eskifirði
og Alfons Jónsson, lögfræðingur á
Siglufirði. »íslendingur« hermir í gær,
að núverandi bæjarstjóri muni ekki
sækja.
...
Sundpróf 6.-bekkinga Menntaskólans
fer fram í lauginni hér í dag. Fóru
þeir út í Svarfaðardal 2. jan., undir
forystu Hermanns Stefánssonar fim-
leikakennara, en komu aftur þaim 9.
og hafa æft sig hér síðan. Annars er
laugin mikið notuð, sem von er til, af
bæjarbúum og skólafólki. Nemendur
Gagnfræðaskóla Akureyrar fá til vors
tilsögn í sundi einu sinni til tvisvar í
viku.
Kosningabaráttao.
Eins og Þá var skýrt í sfðasta
blaði hlaut listi Framsóknarflokksins
377 gild atkvæði í bæjarstjórnar-
kosningunum 16. þ. m. óg kom að
tveimur mðnnum. Auk þess voru
um 20 atkv. dæmd ógild, sem sýni-
legt var um, að hnigu til fylgis við
þenna lista. Hafa kosningarnar þann-
ig leitt f Ijós, sð D listinn hafdi
fylgi um 400 kjósenda.
Listi Sjálfstæfiismanna og listi
kommúnista fengu hvor
um sig rúm 400 gild atkvæði,
Fylgi við Framsóknarstefnuna hér
á Akureyri er því nálega eins sterkt
Og fylgið við Sjálfstæðið eða komm-
únista.
Framsóknarmenn mega vel við una
úrslit kosninganna að þvf er til at-
kvæðamagnsins kemur.
í kosningabaráttunni bar mest á
aðsúg frá tveimur hliðum gegn
ððrum manni á D listanum, Vii
hjálmi Þór. I fhaldsliðinu var þeirri
skoðun haldið að mðnnum og hún
látin vaða mjðg uppi, að V. P.
væri bæjarfétaginu hættulegur mað-
ur. Kommúnistar voru al-
veg sammála fhaldinu um þesia
hættu. Kjósendurnir hafa nú svar-
að árásunum á V. P. og K. E. A.
á viðeigandi hátt.
En þó að V. P. sé og verði bæj-
arfélaginu hinn þarfasti maður, þá
er hann áreiðanlega hættulegur f
annari merkingu. Sú hætta var
skarplega frara tekin af Brynleifi
Tobiassyni f þessu blaði 15. þ. m.
Orð hans voru þessi:
»Pað er að vfsu hættulegt fyrir
sinnuleysi, óreglu og ragmennsku
að fá dugandi menn inn f bæjar-
stjórnina*.
Pó nú að Framsóknarmenn megi
vel ánægðir vera yfir fylgi kjósenda
við lista þeirra, þá hlýtur að slá
fölskva á ánægjuna út af þeirri
hrapallegu slysni, að efsti maður-
inn á listanum skyldi falla vegna
útstrikana. Á 36 seðlum er nafn
Brynleifs Tobiassonar strikað út,
sem nægir til þess, að hann fær
tæpl. 5 alkvæðum ferra en 3. mað-
ur, Jóhannes jónasson. Úhikað Skal
pað fullyrt og skýrt fram tekið, að Pessar
útsirikanir eru gerðar án vitundar, pvert ð
möii vilja og i luliri óDökk allra leiðandi
manna Framsóknarflokksins.
Kviksögur þær, er ómerkiiegir
menn úr andstððuflokki Framsókn-
ar hafa komið á flot, út af talli B<