Dagur - 17.02.1934, Blaðsíða 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
lögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhauns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júli.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
* • • • • •■_• • •-• * *-♦ *-*--* i
XVII. ár.
"j
Akureyri 17. febrúar 1934.
17. tbl.
Erlendar fréttir.
I n nIen dar
Siórkostlegir vatnavextir
Hlákan mikla, er haldizt hefir
síðan á sunnudagskvöld, hefir
valdið g-eysimiklum vatnavöxtum
víða. útvarpið í gær hermir eftir
vegamálastjóra, að vöxtur i
Eystri-Rang'á hafi engu minni
orðið en í flóðunum um daginn,
er ,,»Dagur« gat um þá, og hafi
hún nú eyðilagt að mestu viðgerð-
ina frá þeim tíma. Vestari-Rang-
á hafði og vaxið gífurlega, brotið
skarð í fyrirhleðsluna skammt
frá Djúpósi, og flæðir nú vestur
alla flóa og sanda, svo að Þykkvi-
bær er alveg umflotinn af vatni.
Fréttir frá Blönduósi herma,
að í Blöndu hafi ekki ægilegri
vöxtur hlaupið en nú. Þá hljóp og
hroðavöxtur í Vatnsdalsá, svo að
hún flæðir yfir allan dalinn hlíða
á milli og um Þing og víða heim
á tún. Bærinn Hnausar er alveg
umflotinn, Steinbrú tók af litlu
kvíslinni sem rennur úr Hnausa-
tjörn með Vatnsdalsfjalli og.þjóð-
vegurinn í kafi og skemmdur á
kafla. Mörg hundruð hesta af
heyi, er standa á engjum þar og
í Þingi síðan í sumar, eru í kafi
og álitið að allt það hey muni ó-
nýtast. Afarmikil varð Eyjafjarð-
ará á mánudaginn, svo að flæddi
á löngum kafla yfir þjóðveginn,
Kaupangsmegin, og mun hann
eitthvað hafa skemmzt, þó ei til
muna. Og í fyrrinótt varð hún
aftur afar mikil í rigningunni.
Frá Blönduósi er símað, að
drengurinn í Sauðanesi á Ásum,
er fyrir sprengingunni varð um
daginn, sé nú á góðum batavegi.
Nýr ræðismaður.
Svíar hafa sent hingað nýjan
aðalræðismann, N. L. Jansson, og
kom hann til Reykjavíkur 7. þ.
m. Hefir hann áður verið erind-
reki Svía í Þýzkalandi, Canada og
Bandaríkjunum. Kveður hann sig
lengi hafa langað til íslands, enda
hafi hann kynnzt fornbókmennt-
um vorum á námsárum sínum og
á síðari árum reynt að fylgjast
með nýrri bókmenntum íslenzk-
um. f viðtali við »Nýja Dagblað-
ið« óskar aðalræðismaðurinn að
mögulegt yrði að koma á »sænskri
viku« í Reykjavík.
Frá landbúna'ðarháskólanum
danska er nýkominn til Reykja-
víkur prófessor Ferdinantsen, til
f rétti r.
d
þess að flytja við háskólann fyr-
irlestra um jurtasjúkdóma, aðal-
lega um kartöflusýkina.
Flokksþing Framsóknarmanna
kemur saman í Reykjavík laugar-
daginn 17. marz n. k.
Líkbrennsla í Reykjavík.
Bálfarafélag var stofnað í Rvík
6. þ. m. Var kosin 5 manna stjórn
og skipa hana: Gunnlaugur Claes-
sen, dr. med., Benedikt Gröndal,
verkfræðingur, Björn ólafsson,
stórkaupmaður, Ágúst Jósefsson,
heilbrigðisfulltrúi og Gunnar Ein-
arsson, prentsmiðjustjóri. Er fé-
laginu ætlað að ná til manna hvar
á landinu sem er, en árstillag er
3 krónur.
Fyrst var vakið máls á lík-
brennslu hér á landi af þeim Guð-
mundi Björnssyni, fyrrv. land-
lækni og Steingrími lækni Matt-
híassyni, er skrifuðu um hana I
Skírni 1905 og 1913. En dr. G.
Claessen hélt fyrirlestur um bál-
stofur í Reykjavík 1915 og mun
síðan manna mest hafa hvatt til
framkvæmda í þessu efni.
Ibúatala Siglufjarðar var um
síðustu áramót 2329 eða um 150
manns fleiri en um næstu áramót
á undan.
»Nýja Dagblaðið« hermir að
Snorrasafni í Reykholti hafi ný-
lega borizt myndarleg bókasend-
ing, nálega 50 bindi, frá norsk-
amerískum manni, að nafni Ein-
ar Hilsen. Margar bækurnar eru
mjög verðmætar, sumar ófáanleg-
ar með öllu. Meðal bókanna er ís-
lenzk útgáfa af Heimskringlu frá
1816—1829 og hin fræga, norska
útgáfa Gustavs Storms frá 1899,
‘auk 4 annara gamalla. Ennfrem-
ur eru þar fleiri rit, er snerta ís-
lenzk og norsk fræði, sem safninu
er mikill fengur að.
Sláturfélag Suðurlands keypti
um síðustu áramót ullarverk-
smiðjuna »Framtíðina« af Boga
Þórðarsyni á Lágafelli, er stofn-
aði hana 1925. Vélar verksmiðj-
unnar eru nýlegar og vandaðar.
g Rún 59342208 - 1.*,
r
Oeirðirnar i Ausiurriki
segir stjórnin nú að séu að mestu
hættar. í Wien sé allt komið í
samt lag í gærdag, gaddavírsgirð-
ingar teknar upp og umferðar-
hömlum létt; kaffi og matsölu-
nús opnuð o. s. frv. Þrír menn
hafa verið dæmdir til dauða af
herrétti og tveir þeirra teknir af,
en einn náðaður. í 150 bæjum í
Austurríki, þar sem jafnaðar-
menn hafa verið í meirihluta,
hafa bæjarstjórnirnar verið leyst-
ar upp. Búizt er við fleiri her-
réttardómum, og að allt verði það
dauðadómar. Stjórnin telur nú að
fallið hafi í Wien 20 lögreglu-
menn, 20 »Heimwehr«-menn, 7
hermenn og 6 sjálfboðaliðar.
Afvopnunin.
Stöðugt er þrefað um afvopn-
un, og nú mest af Frökkum og
Þjóðverjum. Kveðast Frakkar
vilja veita Þjóðverjum jafnrétti
með vopnabúnað, en alls ekki
komi það þó til mála, fyrr en full-
treysta megi því, að þeir misnoti
ekki það jafnrétti. En langt sé
frá því að þeim sé enn treystandi,
því að vitanlegt sé. að allar í-
þróttasveitir landsms séu æfðar
af reyndum liðþjálfum og her-
foringjum, og að vísu til víga-
starfsins engu síður en til íþrótta.
Þessu mótmæla Þjóðverjar.
Ofsaveður. ,
útvarpsfregnir i gær herma að
ofsastormur hafi gengið um At-
lantshaf undafarið og mörg stór
hafskip komizt í hann krappann.
Brezk-rússneskir
samningar.
Viðskiftasamníngar milli Rússa
og Breta voru undirskrifaðir í
gær. Er þess getið að engin sér-
stök hátíðahöld hafi fram farið í
sambandi við það, en að undir-
skrifuðum samningum hafi full-
trúar beggja ríkja tekizt mjög
innilega í hendur. Þessir samn-
ingar er sagt að séu nokkuð frá-
brugðnir samningunum, er þessar
þjóðir gerðu með sér 1930. Er
talið að þeir muni leiða til meiri
viðskiftajafnaðar, en í fyrra var
hann eigi sem beztur, er Bretar
fluttu inn rússneskar vörur fyrir
171/2 milljón sterlingspunda, en
Rússar fluttu aðeins inn brezkar
vömr fyrir 4>/2 milljón.
♦ * *
Ný fimm ára áœtlun.
Framkvæmdaráð Sovjetstjórn-
arinnar kom nýlega saman í Mos-
kva og lagði formaður þess fram
næstu fimm ára áætlun og kvað
mesta áherzlu verða lagða á sam-
göngubætur, og þá einkanlega á
sjó og fljótum. Einnig skyldi
mjög aukin véla- og olíufram-
leiðsla og framleiðsla allskonar
matvæla. Kvað hann Sovjet-Rúss-
land á öruggri leið til sigursundir
merkjum Marx- og Leninismans.
* * *
Merk uppfynding.
Kornungur rússneskur verk-
fræðingur, Jamoltsjuk að nafni,
nýútskrifaður, hefir fundið upp
nýja járnbrautargerð, er hann og
aðrir landar hans telja að gjör-
breyta muni járnbrautarsamgöng-
um.
Járnbrautarlest hans gengur
ekki á hjólum, heldur rennur
hver járnbrautarvagn á tveimur
kúlum. f fremstu kúlunni er
hreyfill, er knýr lestina áfram.
Lestin hreyfist á einni rennibraut
en ekki tveimur og má byggja
hana úr steinsteypu, tré eða öðru
ódýru efni. Hafa tilraunir verið
gerðar með þessa uppfyndingu og
gefizt svo vel, að í ráði er að
byggja slíka braut frá Moskva
íil Noginsk fyrir október í haust.
Gerir Jamoltsjuk ráð fyrir að
lestin geti farið um 300 kílómetra
á klukkustund eða um helmingi
hraðar en allra hröðustu járn-
brautarlestir er nú þekkjast.
0
Bæjarfréttir.
Á sleáhþingirm lauk svo biðskákunum
frá fjórðu umferð, er tefldar voru á
fimmtudaginn, að Eiður gerði jafn-
tefli við Stefán, en Asmundur va-nn
Aðalstein.
Á fimmtudagskvöldið fór svo í 5.
umferð 1. flokks, að Þráinn vann Eið,
Ásmundur vann Svein, Sigurður vann
Guðmund, Páll vann Stefán, Jónas
vann Aðalstein og Jóel vann Guðbjart.
í gærkvöldi fór 6. umferð svo, að
Stefán vann Þráinn, Guðmundur vana