Dagur - 22.02.1934, Blaðsíða 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII
. í,\
« * • ♦ ♦ -
Akureyri 22. febrúar 1934.
- ♦ ♦ ♦ - ♦- ♦ «
- ♦ ♦ ♦ « ♦
I n n Ien dar f rétti r.
Erlendar fréttir.
Að því er »Tíminn« skýrir frá,
12. þ. m., hefir Ásgeir Ásgeirsson,
forsætisráðherra, á fundi í kjör-
dæmi sínu lýst yfir því, að hann
muni ekki, að óbreyttri aðstöðu,
bjóða sig fram fyrir Framsókn-
arflokkinn við næstu kosningar,
og að hann muni ekki heldur
verða í framboði fyrir neinn ann-
an flokk.
Að því er útvarpsfrétt hermir,
tók hið nýja sjúkrahús »Hvíta-
bandsins til starfa á þriðjudag-
inn. Byrjað var að byggja húsið
í janúar 1932 og var fullgert að
öllu um síðustu helgi. Húsið hef-
ir félagið byggt á sinn kostnað
og verður rekstur þess einnig á
kostnað félagsins. En húsið hefir
kostað kr. 180.000. Er þetta al-
mennt sjúkrahús fyrir karla og
konur. Hefir það rúm fyrir 40
sjúklinga á eins, tveggja og
þriggja og fjögra manna stofum,
en alls eru sjúkrastofurnar 14, og
með öllum nýtízku þægindum.
Húsgögn eru öll úr stáli. Hring-
ingartæki og hlustunartæki fyr-
ir útvarp eru við hvert rúm.
Rannsóknarstofur og læknastof-
ur eru þarna, búnar nýjustu
tækjum. Húsgögn í margar stof-
ur hafa ættingjar, vinir og starfs-
félagar gefið til minningar um
merka menn og konur.
Stofnendur »Hvítabandsins«
voru þær merk.u frændkonur,
Þorbjörg Sveinsdóttir og systur-
dóttir hennar, ólafía Jóhanns-'
dóttir. Hanga myndir þeirra f
forsal sjúkrahússins. Forstöðu-
kona þess er ungfrú Guðlaug
Bergsdóttir.
Á mánudagskvöldið kvað út-
varpið hvassviðri og stórbrim við
Faxaflóa. Vélbátinn Kjartan ól-
afsson frá Akranesi sleit upp og
rak á annan vélbát, og brotnaði
mikið. Tókst samt að ná honum
og koma honum til Reykjavíkur
í aðgerð.
Gengisverð um síðustu helgi var:
fslenzk gullkróna, miðuð við gull-
franka franskan 51.10, Sterlings-
pund 22.15, dollar 4.36 %, ríkis-
mark (þýzkt) 170.08, franki
28.63, líra 38.55, finnskt mark
9.93, peseta 59.28, sænsk króna
114,41, norsk króna 111.44 og
dönsk króna 100.00.
Slysavarnafélag íslands hélt að-
alfund sinn um síðustu helgi í
Reykjavík. Samkvæmt skýrslu
forseta drukknuðu 80 manns hér
á landi árið sem leið. 68 íslenzkir
og 15 erlendir menn hafa bjarg-
azt úr sjávarháska. Meðal ann-
arra framkvæmda félagsins má
telja, að þrem björgunarstöðvum
var komið upp á árinu, einni í
Vík í Mýrdal, annarri við Skaft-
árós og þi'iðju við Harðbak á
Sléttu. 83 sinnum hefir verið leit-
að til félagsins um hjálp, t. d. að
svipast eftir skipum frá Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Færeyjum,
Þýzkalandi og Englandi. Félags-
mönnum hefir fjölgað nærri um
helming á árinu og eru þeir nú
um 6000. Samþykkt var á fundin-
um tillaga um að fela stjórn fé-
lagsins að undirbúa byggingu
björgunarskútu við Faxaflóa.
Ungmennafélagið »Grettir« í
Ytri-Torfustaðahreppi í Húna-
vatnssýslu, hefir komið sér upp
allstóru samkomuhúsi austan Mið-
fjarðarár. Húsið er einlyft og
kjallari undir. Samkomusalur er
uppi, en niðri borðsalur, eldhús
og búningsklefar. Húsið er úr
steinsteypu og talið að það muni
kosta um 10—12000 krónur.
Verður það einnig notað sem
barnaskóli fyrst um sinn.
Útvarpsfrétt á þriðjudagskvöld
kvað einn tollþjónanna í Reykja-
vík hafa fundið kassa af portvíni
í »Gullfossi«, merktan sem hann
hefði inni að halda aðra vöru, en
skráðan til afhendingar Lárusi
Jóhannessyni hæstaréttarmála-
flutningsmanni. Kærði tollþjónn-
inn þegar Lárus og bíður málið
nú dóms.
Hjörtur Líndal, hreppstjóri, á
Efra-Núpi í Miðfirði varð átt-
ræður 6. f. m. Héldu sveitungar
hans honum samsæti föstudaginn
8. febrúar, að heimili hans og af-
hentu honum vandaðan göngustaf
með áletrun. Heiðursgestinn á-
vörpuðu Halldór Jóhannsson,
bóndi að Haugi, Björn Jónsson,
bóndi að Núpsdalstungu og Magn-
ús Jónsson, bóndi að Torfustöð-
um. Hjörtur Líndal hefir verið
hreppstjóri í 54 ár og er það enn,
en sýslunefndarmaður var hann í
38 ár, en ságði því starfi lausu
fyrir 8 árum.
Belgíukonungur hrapar til bana.
útvarpsfréttir á mánudags-
kvöldið skýrðu svo frá, að á laug-
ardaginn síðdegis hefði Albert
Belgíukonungur hrapað til bana
á fjallgöngu í Ardennafjöllum, er
liggja í suðausturhorni Belgíu.
Hafði konungur verið einn á ferð
í bíl með þjóni sínum, og sagt
honum að bíða sín, meðan hann
gengi til fjalls. Gerði þjónninn
viðvart, er honum þótti konungi
seinka vonum framar. Var hans
leitað alla nóttina og sunnudag-
inn, og fannst að kvöldi þess
dags, undir klettabelti 40 metra
háu, með molað höfuð. Þóttust
menn sjá þess merki, að lausa-
grjót hefði skriðið með hann of-
an fyrir hamrana.
Albert Belgíukonungur var
vafalaust einhver mikilhæfasti og
merkasti konungborinn maður
sinnar samtíðar. Hann var fædd-
ur 8. apríl 1875 og var bróður-
sonur Leopolds 2. Belgíukonungs,
og eigi borinn til ríkiserfða. Að
vísu lézt einkasonur Leópolds 2.
barn að aldri, 1869, en Baldvin,
eldri bróðir Alberts, stóð þá næst-
ur ríkiserfðum. En hann lézt
einnig á unga aldri, 1891. Albert
fékk ágætt uppeldi og var bæði
gáfaður og mannkostamaður.
Kom það bezt í ljós í ófriðnum
mikla 1914, er Þjóðverjar rudd-
ust inn í Belgíu. Tók hann þá við
yfirstjórn hersins, — en til ríkis
kom hann 17. des. 1909 — og
þótti forysta hans ágæt, en still-
ing og ljúfmennska með afbrigð-
um, bæði þá og síðar, er friður
var fenginn. Drotting hans, Elísa-
bet, bæversk prinsessa, var hon-
um mjög samhent, enda hin
rcesta ágætiskona. Hafði hún ung
lokið læknisprófi með lofi, og
hafði unnið ótrauðlega að lækn-
isstörfum og hafði yfirumsjón
líknarstarfs við hersveitir Belgja
í ófriðnum. Þrjú börn eignuðust
þau hjón, tvo syni, Leópold ríkis-
erfingja, Charles Theodore og
eina dóttur, Marie-José, er giftist
Umberto, ríkiserfingja ítala, árið
1930. Jarðarför Alberts konungs
fer fram í dag í Briissel. Kon-
ungshjón íslands og Danmerkur
verða þar viðstödd, ólafur, ríkis-
erfingi Norðmanna, Svíakonung-
ur eða ríkiserfingi, Játvarður
prins af Wales o. fl. stórmenni.
Er talið, að um tíu þjóðhöfðingj-
ar muni fylgja konungi til graf-
ar, og er það sjaldgæft, enda var
Albert konungur allra þjóðhöfð-
ingja vinsælastur. Var t. d. kveð-
ið svo að orði í franska þinginu,
er lát hans fréttist, að hverjum
einasta frönskum manni mundi
finnast sem þjóðarsorg hefði bar-
ið að sínum dyrum.
Gert er ráð fyrir að Leópold
ríkiserfingi verði krýndur á
morgun. Að vísu herma útvarps-
fréttir að kommúnistar muni
krefjast lýðveldis, en eigi er tal-
ið líklegt að sú krafa fá mikinn
byr. Leópold ríkiserfingi er gift-
ur Ástríði Svíaprinsessu og eiga
þau tvö börn, dóttur, 6 ára gamla
og son, þriggja ára. —
Óeirðir á Spáni.
Á Spáni urðu nokkurar óeirðir
um síðustu helgi. Er talið að þær
muni standa í sambandi við borg-
arastyrjöldina í Austurríki. Hafa
jafnaðarmenn á Spáni mótmælt
af alefli, í ræðu, riti og með
flokkgöngum, aðförum Dollfuss,
sem og mælast illa fyrir um
menntaðan heim, þar sem ekki er
talinn efi á því, að hann hafi að
litlu tilefni ráðizt á friðsama
jafnaðarmannastjórn í Wienar-
borg og með því hafið borgara-
styrjöld í eigin landi, til þess
eins að gerast alræðismaður, líkt
og Mussolini.
Nýja-Bíó
Föstudags- laugardags- og sunnu-
úagskvöld kl. 9.
Sóknin mikla
(Den store Parade)
Hljómmynd í 12 þáttum.
Aðalhlutverkin leika
John Gilbert og Renee Adoree.
»Sóknin miklac var sýnd hér
fyrir nokkrum árum og hlaut
þá óvenju mikla aðsókn. Þó öll-
um sé þessi áhrifaríka friðarmynd
og hrífandi fagra ástarsaga ó-
gleymanleg, mun enginn láta
tækifærið ónotað, til þess að sjá
hana aftur í nýrri útgáfu.
Sunnudag kl. 5. Alpýðusýning.
Niðursett verð.
Kvikmyndaœði.
Harold Lloyd.