Dagur - 24.02.1934, Síða 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞOR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 24. febrúar 1934.
20. tbl.
Erlendar fréttir.
Bretland.
Hungurgöngur.
Enn hefir komið fram í brezka
þinginu fyrirspurn frá íhalds-
þingmanni til innanríkisráðherr-
ans, þess efnis hvað gera mætti
til þess að koma í veg fyrir hung-
urgöngur atvinnuleysingja. Svar-
aði ráðherrann því enn sem fyrr,
að þær væri ómögulegt að hindra,
samkvæmt lögum, meðan þær
færu friðsamlega fram.
* * *
Brezka stjórnin brýtur nú sem
ákafast heilann um það hvernig
auka megi mjólkurneyzlu í land-
inu, bændum til styrktar. Vilja
bændur, að stjórnin ábyrgist
þeim lágmarksverð fyrir mjólk-
ina.
* * *
Brezki fjármálaráðherrann hef-
ir borið fram frumvarp í þinginu
um að veita »Cunard-White Star«
skipafélaginu 9y2 milljón sterl.pd.
til þess að félagið geti lokið við
smíði hins risavaxna skips, er
»Cunard« varð að hætta við sök-
um kreppunnar.
* * *
Elgar látinn.
Útvarpsfrétt frá London til-
kynnir í gær, að látizt hafi
brezka tónskáldið Edward Elgar,
77 ára að aldri. Elgar var eitt af
þekktustu tónskáldum sinna sam-
tíðarmanna.
Morðin i Frakklandi.
Á fimmtudagskvöldið hermdi
útvarpsfrétt, að myrtur hefði ver-
ið í París rannsóknardómari skip-
aður í Stavisky-málið. Sama dag,
á miðvikudaginn, var og myrtur
á Suður-Frakklandi sá maður,
er fyrstur hafði Ijóstað upp fjár-
svikunum. Telur Parísarblað eitt
sennilegast, að þeir, sem viðriðn-
ir eru Stavisky-hneykslið, muni
hafa myndað með sér leynifélag,
líkt og »Mafíuna« (»Svörtu hönd-
ina«) illræmdu, er lék lausum
hala áratugum saman á Suður-
ítalíu, til þess að koma í veg fyr-
ir það, að uppvíst verði um helztu
forkólfa fjársvikanna, sem enn
er eigi fullvíst um, og standi
þetta félag að morðunum. Telur
blaðið vafasamt, að stjórnin muni
þora að halda áfram rannsókn-
inni.
Austurríki.
Útvarpsfrétt hermir á fimmtu-
daginn, að stjórnarliðar í Wien
hafi fundið geysimiklar vopna-
birgðir, er þeir telja að jafnað-
armenn muni hafa að sér viðað.
Hafi þar á meðal verið um
450.000? sprengjur.
Annars halda áfram ofsóknirn-
ar gegn jafnaðarmönnum. Geng-
ur Dollfuss kappsamlega að því
að bánna þeim allan félagsskap.
Hefir hann uppleyst knattspyrnu-
og söngfélög þeirra, hvað þá önn-
ur, í Wien og alls leyst þar upp
82 jafnaðarmannafélög. Aðrar
fréttir herma, að franska stjórn-
in hafi nýlega hótað Dollfuss ó-
vægri meðferð í fjármálum, hætti
hann ekki þegar ofsóknum gegn
jafnaðarmönnum. En Austurrík-
ismenn eru mjög háðir Frökkum
fjárhagslega.
» * *
Upp hefir komizt stórkostlegt
smyglunarhneyksli 'milli Austur-
ríkismanna og Ungverja. Er sagt,
að við það séu riðnir merkir
borgarar beggja landa. Hefir ver-
ið smyglað 2500 járnbrautar-
vagnhlössum af hveiti yfir landa-
mærin (sennilega til Austurríkis)
og hefir tollsjóður þar verið svik-
inn um 61/2 milljón austurrískra
króna.
Dimitroff — Göhring.
Berlínar útvarpið hermir á
þriðjudaginn, að Göhring hafi
svarað kröfu Sovjetstjórnarinnar
um að láta Dimitroff lausan, að
til þess sjái hann enga ástæðu,
sem stendur. Ef til vill hafi hann
ekki átt þátt í ríkisþinghúss-
brunanum, en öll framkoma hans
á Þýzkalandi verði að teljastland-
ráðastarfsemi og sé hann því að
sinrii bezt kominn í fangelsinu.
Annars ami þar ekkert að hon-
um, hann sé við góða heilsu,
(þvert ofan í það sem blöð komm-
únista segja) og sé vel farið með
hann.
* * *
Svo mjög hefir Hitlerstjórnin
þrengt að kosti þýzkra blaða,
sem eigi hafa verið nógu »rétt-
trúuð«, að árið sem leið hafa 600
blöð í Þýzkalandi orðið að hætta
að koma út, að því er þýzka stór-
blaðið »Frankfurter Zeitung
hermir.
útvarpsfrétt frá Leipzig herm-
ir að í Leipzig hafi 5 kommúnist-
um verið stefnt fyrir landráð og
dæmdir í 1—2Y2 árs fangelsi.
Einn hinna dæmdu var þingmað-
ur.
Danmörk.
Stauning, forsætisráðherra
Dana, hefir skipað 5 manna sér-
fræðinganefnd til þess að athuga
fjárhagsástand bænda í Dan-
mörku og gera tillögur um hvern-
ig heppilegast muni verða ráðið
fram úr vandræðum þeirra.
# ♦ ♦
Kamban hylltur
i dönskum blöðum.
Frá Danmörku er útvarpað, að
frumsýning leikritsins »Skálholt«,
eftir Guðmund Kamban, hafi
fram farið á Konunglega leikhús-
inu í Kaupmannahöfn á föstu-
daginn var. Svend Borberg, leik-
dómari helzta bókmenntablaðs
Dana »Politiken«, og einn helzti
leikdómari þeirra, kveður leiksýn-
inguna hafa tekizt stórvel og á-
nægjulega, enda hafi hún hrifið
áhorfendur til enda, þótt leikrit-
ið sé óvenju langt. Jóhannes Poul-
sen lék Brynjólf biskup, frú Else
Skouboe Ragnheiði og frú Jonna
Stórflóð i Hvitá.
Útvarpið skýrir frá því í gær-
kvöldi, að geysiflóð hafi hlaupið
í Hvítá (í Borgarfirði?). Hafi á-
in tekið nokkurn hluta brúarinn-
ar. — Brúin er 50 metra löng og
óskaddað aðalhafið sjálft, munu
skemmdirnar hafa orðið til end-
anna. 1 marz 1930 kom agaflóð í
Hvítá og skemmdist þá brúin.
Var hún þá hækkuð til endanna,
svo að öruggt skyldi vera að eigi
flæddi yfir. Nú fór þó svo, að
vatnið var 1 meter á dýpt á brú-
argólfinu, enda er talið að áin
hafi gengið 2 metrum hærra nú
en í flóðinu 1930.
Lárus Jóhannesson, 'hrm.flm.,
var dæmdur í 200 kr. sekt fyrir
portvínskassann, er getið var um
í »Degi«. Var hann dæmdur sam-
kvæmt 1. gr. einkasölul. og 2. gr.
laga um sölu og veitingu Spánar-
vína. Þess var getið í dómnum,
að því aðeins væri sektin svo lág,
Neiendam frú Helgu í Bræðra-
tungu. Kveður Borberg henni ef
til vill aldrei áður hafa tekizt
jafn vel, en hún er ein af elztu
og mest metnu leikkonum við
konunglega leikhúsið. Á eftir var
Kamban kallaður fram hvað eft-
ir annað, og klappað hið mesta
lof í lófa.
* * *
útvarpsfregnir frá Kalundborg
herma að ofsaveður með regni,
hagli og eldingum hafi enn á ný
gengið yfir Danmörgu, aðfara-
nótt þriðjudagsins. Skipum hafði
hlekkzt á í Sundunum, kviknað í
húsum og víða tjón orðið.
Annars segja fréttir frá Dan-
mörku, að fárviðrið sem geysaði
föstudaginn 9. þ. m., og getið var
um í »Degi«, sé eitt hið mesta, er
menn muni eftir. Á Sjálandi er
talið að um 1000 beyki- og greni-
tré hafi rifnað upp með rótum í
skógunum. í Horsens á Jótlandi
og þar í grennd er talið að tjónið
muni nema um milljón króna. Á
skóggræðslusvæðunum á Jótlands-
heiðum er talið, að stormurinn
hafi rifið upp tré og brotið, svo
að svari til þriggja ára skógar-
höggs. Símar og raftaugar slitn-
uðu víða um landið og olli þetta
víða eldsvoðum. Víða gekk sjór á
land til skemmda.
Framh. á 2. síðu.
að fullvíst þætti, að eigi hefði
vínið verið fengið í því skyni, að
veita það eða selja með ábata. —-
f sambandi við þessa frétt vill
»Dagur« leiðrétta það, er sagt
var í fyrra blaði, að tollþjónn
hefði fundið kassann í »GulI-
fossi«. Sá misskilningur stafaði
af truflun í útvarpstæki, er gerði
fregnina mjög óglögga. Kassinn
mun hafa verið á farmskrá skips-
ins. En að því er heyrðist bezt
var sagt í útvarpið, að hann hefði
verið »skráður þar sem önnur
vara« og var það skilið svo, að
eigi hefði rétt verið skýrt frá
innihaldi kassans. —
Svo er að sjá á Reykjavíkur-
blöðum, að eigi hafi Gísli Sigur-
björnsson hlotið nefbrot né
meiðsli, er liðsmenn hans og aðr-
ir »nazistar« skiptust á pústrum
fyrir nokkrum dögum. Hafði séð
aðeins á einum manni lítilfjör-
lega, en eigi var það Gísli.
Innlendar fréttir.