Dagur - 13.03.1934, Page 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júií.
XVII
4 ár. |
Afgieiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞOR.
Norðurgötuö. Talsfmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 13. marz 1934. J
27. tbl.
Innlendar fréttir
Bankarannsóknin.
Eftir seðlahvarfið í Landsbank-
anum, er getið var um í »Degi«
um daginn, mun hafa verið á-
kveðiö að hefja almenna rann-
sókn og endurskoðun á rekstrin-
um. Voru hinir og aðrir starfs-
menn bankans og útibúanna
syðra fluttir til, en meðal annars
var aðalgjaldkera Landsbankans,
veitt lausn frá störfum um
þriggja mánaða tíma. Til þess að
gegna starfi hans á meðan var
settur Hilmar Stefánsson, for-
stjóri útibúsins á Selfossi.
útvarpsfrétt á sunnudagskvöld
hermir síðan frá því, að aðal-
gjaldkeri Landsbankans, Guð-
mundur Guðmundsson, hafi verið
settur í gæzluvarðhald, en ástæð-
an sé sú, að vart hafi orðið við
misfellur á bókfærslu hans, er
farið var að rannsaka rekstur
bankans í sambandi við seðla-
hvarfið. En um seðlahvarfið
sjálft eru menn engu fróðari.
Atvinnuleysið
í Reykjavik.
Samkvæmt skýrslum hagstof-
unnar voru 1. febrúar í Reykja-
vík 544 atvinnulausir menn. I
fyrra um sama leyti voru þeir
623, en í hittifyrra 550. — Nú
voru einnig taldar konur. — Af
þessum 544 atvinnuleysingjum
voru verkamenn 451, sjómenn 69
og iðnlærðir 24. Af þessum 544
voru ennfremur 340 ómagamenn,
með 788 ómaga á framfæri. —
Mestur hluti atvinnuleysingjanna
hafa enga atvinnu haft meirihluta
síðasta ársfjórðungs, en 89 allan
tímann.
Hraðfrysting Espholins.
»Nýja Dagblaðið« skýrir frá
því, að Ingólfur G. S. Espholin
hafi í sumar látið smíða mjög
hagkvæmar frystivélar eftir sinni
fyrirsögn, ætlaðar til skyrfryst-
ingar, með útlendan markað fyrir
augum. Vélin er smíðuð í sjálf-
stæðum hlutum og hver þeirra af-
kastar ákveðnu magni á dag. Vél-
ina er auðvelt að auka, með því
að bæta nýjum hluta við. Hefir
Espholin fengið einkaleyfi á vél
þessari og var byrjað að frysta I
haust. Var stofnkostnaður stöðv-
arinnar 32.000 kr. og veitti ríkið
styrk til hennar.
í vetur hefir Espholin mest
fryst fisk. Áður en fiskurinn er
frystur, er hann flattur, allur
dálkurinn tekinn afturúr og
himnur af þunnildum, fínum
pappír vafið um fiskinn og hann
svo látinn í pönnurnar. Þeim er
síðan staflað inn í frystivélina og
spýtist þá klorcalciumlögur á þær
að ofan og neðan. Við þetta gegn-
frýs fiskurinn á klukkutíma, eða
vart það. Vélin, sem nú er notuð,
getur fryst um 100 kg. af fiski á
dag.
Farið er að selja þenna fisk í
Reykjavík, og gengur ágætlega.
4 daga vikuvinna.
Johnson yfirhershöfðingi, hægri
hönd Roosevelts forseta og fram-
kvæmdastjóri N. R. A. (endur-
reisnarlöggjafarinnar) hefir ný-
lega lagt til við framkvæmdaráð
sitt, að vinnuvikan skyldi stytt í
4 daga og kaup þó hækka um
10%, til atvinnuleysisbóta. Komu
á mánudaginn til fundar við
Johnson 200 helztu fulltrúar hans
til ráða um þetta o. fl. Stendur
nú svo á, að á enda er samnings-
tími 4 milljón verkamanna, er
N. R. A. hefir hjálpað til at-
vinnu, og á þessi fundur a. m. k.
að reyna að koma í veg fyrir að
þeir lendi aftur í atvinnuleysi, og
um leið auðvitað, að reyna að fá
atvinnu handa fleirum, því enn
er af meira en nógu að taka-
Bretland.
Verzlunarsamningarnir við
Rússa hafa nýlega verið til um-
ræðu í lávarðadeild brezka þings-
ins. Mæltu ýmsir lávarðanna á
móti þeim. Aðrir vildu binda þá
því skilyrði, að sovjetstjórnin lof-
aði að greiða skuldir allar frá
dögum zarveldisins og að láta
lausa pólitíska fanga. Meðal
þeirra, er skilyrðislaust vildu
semja um verzlunarviðskipti voru
hinir stórmerku stjórnmálamenn,
lávarðarnir Ponsonby og Reading.
— Reading lávarður var fyrrum
háyfirdómari Stórbretalands og
síðar vísikonungur á Indlandi.
Hann er Gyðingur að ætt, eins og
Dísraeli, lord Beaconsfield, og hét
Rufus Daniel Isaacs áður en hann
var aðlaður, en í aðalstigninni
Ekkert hefir enn verið sent út,
nema sýnishorn til Danmerkur,
Englands og Sviss og hafa líkað
vel. Hefir Ingólfur fengið loforð
um styrk til utanferðar í mark-
aðsleit, en stendur á ríkinu að
greiða styrkinn. Mun tilætlunin
vera sú, að selja stórfiskinn út,
en smærri fisk í bæinn.
»Dagur« telur líklegt, að hér sé
um arðvænlegt fyrirtæki að ræða.
Ameríkumenn urðu fyrstir til
þess, sem margs annars, að búa
snyrtilega um fisk, kældan og
saltan, í smáskömmtum, er hús-
mæðrum sá umbúnaður afar
þægilegur, enda selja matvöru-
búðir vestra feiknin öll af slíkum
vörum.
hefir hann risið stig af stigi, unz
hann 1926 var gerður að mark-
greifa (Marquess) af Reading. —
Póstmenn á Englandi hafa fyr-
ir póstmálaráðherra lagt kröfu
um styttingu . vinnutíma í 40
stundir á viku. — Ráðherrann
svaraði því, að nú ynnu póst-
menn tæpar 44 stundir á viku, en
aðrar stéttir ynnu almerint 46—
48 stundir vikulega. Sæi hann því
ekki ástæðu til þess að verða við
þessari kröfu, enda mundi hún
auka ríkissjóði útgjöld um 10
milljónir sterlingspunda. —
Á þessa árs fjárlögum Breta er
561/2 milljón sterlingspunda ætluð
til vígbúnaðar og er það 3 millj.
punda meira en árið sem leið.
Hungurgöngumenn, er til Lund-
úna gengu frá Skotlandi, lögðu
heimleiðis aftur á miðvikudaginn,
eftir 10 daga dvöl í Lundúnum.
Fór bæði gangan og dvölin að
öllu friðsamlega fram.
Rússland.
útvarpsfregnir frá Rússlandi
herma, að þar eigi að stofna til
alþjóðafundar á þessu ári, er
fjalla skuli um háloftsrannsókn-
ir. Rannsóknirnar eiga að beinast
að rafmagni gufuhvolfsins, hugs-
anlegri notkun geimgeisla o. s.
frv. Undirbúningsfundur starfar
nú í Rússlandi undir forystu
Voroshiloffs hermálaráðherra.
Rússar, Bandaríkjamenn, Belg-
ir og Englendingar standa einna
fremstir um háloftsrannsóknir, en
prófessor Pícard í Belgíu og róss-
neskir vísindamenn hafa langhæst
[allra manna svifið í loft upp til
'rannsóknanna. —
Rússar eru nú að búa út stór-
kostlegan vísindaleiðangur, er
fást skal við allskonar háfjalla-
rannsóknir. Er leiðangrinum
beint að Stalinfjalli, sem er fjalla
hæst í hinum volduga Pamír-fjall-
garði, en Pamír þýðir »þak
heimsins«. Skal leiðangurinn ráð-
ast til uppgöngu á fjallið frá 40
stöðum. (ÚF).
Frá Þýzkalandi kemur sú fregn,
að þar sé verið að gera tilraunir
með járnbrautarlestir knúðar
skrúfum eins og flugvélar. Er
nokkuð síðan byrjað var á þessu
og vænta margir sér mikila af
tilraununum.
Frakkar eru nú að leggja til
nýrrar baráttu í Atlasfjöllum, til
þess að undiroka fullkomlega
ýmisa þjóðflokka, er þar búa og
þeim hafa reynzt sérlega erfiðir
og herskáir.
Óeirðir á Spáni.
Á Spáni hafa lengi staðið yfir
verkföll og óeirðir. Snemma í síð-
ustu viku höfðu 100,000 verka-
menn hætt vinnu, og í gærkveldi
herma útvarpsfregnir að verk-
fallsmönnum sé stöðugt að fjölga.
Dularfullur
stórþjófnaður.
Nýleg voru sendir gullkólfar,
(ómyntað gull) svo milljónum
króna skipti að verðmæti, frá
Buluwayo í Suður-Afríku til Eng-
landsbanka í London. En Bulu-
wayo er í einhverju mesta gull-
námuhéraði veraldarinnar. Gull-
kólfarnir voru sendir í kassa, er
var veginn í Buluwayo, sendur til
skips og komið þar fyrir, allt í
margra votta viðurvist. Strang-
lega var kassans gætt á skipinu
og á allri leið til Lundúna. Þar
var hann opnaður, að mörgum
viðstöddum, sem illilega brá í
brún. f kassanum var þá ekkert
annað en sement og járnarusl.
Ekkert benti til þess að kassinn
hefði verið opnaður á leiðinni.
Einkennilegast við þessa fregn er
það, að kassinn reyndist nákvæm-
lega jafn þungur, er hann var
opnaður í London og þegar hon-
um var lokað í Buluwayo. —
Brjóta nú Bretar heilann um
hvarfið. —
Erlendar fréttir.