Dagur - 05.04.1934, Page 2
102
DAGUR
36. tbl.
Kosningalögin.
Eftir BernharÖ Stefánsson, alþingismann.
Á víðavangi.
I.
Margir tala um »kjördæma-
breytinguna« og eiga með því við
stjórnarskrárbreytinguna og hin
nýju kosningalög. En það er al-
gert rangnefni að kalla þetta
»kjördæmabreytingu«, því hið
nýja skipulag gerir enga breyt-
ingu á kjördæmaskipun landsins,
nema ef telja skyldi það, að þing-
mönnum Reykjavíkur er fjölgað
úr 4 upp í 6. Þvert á móti er hin
gamla kjördæmaskipun beinlínis
tryggð með stjórnarskrárbreyt-
ingu þeirri, sem afgreidd var til
fullnustu á aukaþinginu í vetur.
Hingað til hefir mátt breyta,
jafnvel gerbreyta, kjördæmaskip-
un landsins með einföldum lögum,
en hér eftir er það ekki hægt,
nema með stjórnarskrárbreyt-
ingu með þar til heyrandi auka-
kosningum, því kjördæmaskipun,
eins og hún nú er, var tekin upp
í sjálfa stjórnarskrána. Með ein-
földum lögum er þó leyft að
skipta tvímenningskjördæmi í
tvennt, en það er lika eina breyt-
ingin, sem heimilað er að gera á
kjördæmunum án stjórnarskrár-
breytingar.
í stjórnarskrárbreytingunni
fólst einkum þetta þrennt:
1. Rýmkun kosningaréttar:
kosningaréttur og kjörgengi mið-
að við 21 árs aldur í stað 25 (og
35 til landkjörs) áður.
2. Breyting á skipun Alþingis,
þannig, að meirihluti þess hefir
nú meiri tryggingu fyrir að geta
ráðið úrslitum mála, þar sem öll
efri deild verður kosin með hlut-
fallskosningu í sameinuðu þingi
og fjárlög afgreidd þar.
3. Afnám landkjörsins, en í
stað þess koma allt að 11 þing-
sæti til jöfnunar milli þingflokka,
svo að hver þeirra hafi þingmenn
í sem fyllstu samræmi við at-
kvæðatölu sína við almennar
kosningar.
Flestir eða allir munu nú sam-
mála um, að telja tvö fyrri atrið-
in til mikilla bóta. Sérstaklega
mega Framsóknarmenn fagna
þeirri breytingu, sem gerð er á
skipun þingsins, því hún á alveg
að koma í veg fyrir það, að minni
hluti þings geti beitt slíku harð-
ræði, sem andstæðingar þeirra
beittu á þingunum 1932 og 1933,
þegar þeir, þó þeir væru í mikl-
um minni hluta í þinginu, ætluðu
að nota neitunarvald sitt í Efri
deild til þess að fella fjárlögin og
aðra nauðsynlega löggjöf og
gerðu Framsóknarflokknum með
því ómögulegt að sitja við völd,
sem honum bar þó bæði réttur og
skylda til sem meirihlutaflokki í
þinginu.
Um 3. atriðið, uppbótarþing-
sætin, hafa verið mjög skiftar
skoðanir, svo sem kunnugt er, og
hafa ýmsir Framsóknarmenn lit-
ið svo á, að með þeirri breytingu
væri vald sveitanna skert og
hallað á Framsóknarflokkinn, al-
veg sérstaklega.
Um þetta atriði skal ekki fjöl-
yrt hér, enda er grein þessi ekki
skrifuötilað rifja þær deilur upp.
En á það skal þo bent, að Fram-
sóknarflokkurinn fékk ekkert
meirihlutavald í þinginu við kosn-
ingarnar 1931, þó hann fengi
meiri hluta þingmanna; að hann
þá hefði þurft að ía 27 kjördæma-
kosna þingmenn til að fá slíkt
vald, en eftir hinu nýja skipu-
lagi þarf flokkur ekki að fá nema
26 þingmenn til að hafa meiri
hluta með fullu valdi í þinginu.
Ennfremur skal á það bent, að
25 þingmenn verða áfram bein-
línis kosnir af sveitakjördæmum
og er það meiri hluti þingsins,
auk þess hafa sveitamenn auð-
vitað sín áhrif á skipun uppbót-
arþingsætanna. úrslitavaldið um
löggjöf og landsstjórn er þvi enn
i höndum sveitanna, eða getur að
minnsta kosti verið þar, ef þær
kunna með að fara.
Sá er þetta ritar getur bví ekki
á neinn hátt tekið undír þær radd-
ir, sem heyrzt hafa frá sumum
Framsóknarmönnum, um ósigur í
»kjördæmamálinu«. Þvert á móti
telur hann það mikla gæfu fyrir
sveitirnar, að málið leystist, á
meðan Framsóknarflolckurinn
hafði aðstööu til að ráða mjög
mikla um afgreiðslu þess i ein-
stökum atriðum. Vegna þeirrar
aðstöðu héldu héruðin rétti sínum
til eigin fulltrúavals á Alþingi og
sveitirnar möguleikum til að
verða áfram mestu ráðandi. Hefði
hinsvegar verið beðið eftir því,
að andstæðingar Framsóknar-
flokksins fengju aðstöðu til að
ráða málinu til lykta einir, (og
að því hlaut að reka fyrr eða síð-
ar), þá er hætt við, að hlutur
sveitanna hefði orðið sínu verri.
Eg tel því hiklaust, að Ásgeir Ás-
geirsson forsætisráðherra eigi
skilið þakkið alþjóðar og Fram-
sóknarmanna alveg sérstaklega,
fyrir forystu sína í þessu máli.
Skal nú, að þessum inngangs-
orðum loknum, vikið að nokkr-
um einstökum atriðum hinna nýju
kosningalaga. Ekki til að ræða
um kosti þeirra og galla að neinu
ráði, það er ekki tímabært enn,
heldur einkum með það fyrir aug-
um, að kynna þau lesendum, því
ennþá munu þau vera mörgum
lítt kunn. En kosningarnar nálg-
ast nú óðum og er því áríðandi
fyrir kjósendur, að átta sig sem
bezt á nýmælum laganna.
(Frh.).
Spanslcflugan verður leikin í þing-
húsi Hrafnagilshrepps næstk. laugar-
dagskvöld að tilhlutan Ungmennafé-
lags Saurbæjarhrepps. Leikurinn hefst
kl. 8%.
Skip. »Drottningin« kom hingað í
gær að sunnan og Dettifoss væntanleg-
ur í dag sömu leið.
Vilhjálmur Þór kaupfélagsstjóri er
nýfarinn til útlanda.
Án þess að spyrja um
vilja íhaldsins.
Á síðasta flokksþingi Fram-
sóknarmanna mættu fulltrúar
flokksfélaganna hvaðanæfa af
landinu. Þessir fulltrúar eru
kjörnir til þess að starfa og gera
ályktanir í umboði félaganna. Þar
á meðal kjósa þeir miðstjórn
flokksins. Miðstjórn velur sér síð-
an formann, ritara og gjaldkera.
Á fundi miðstjórnarinnar, sem
haldinn var um það leyti, er
flokksþinginu var slitið, fór þessi
kosning fram og hefir þess áður
verið getið hér í blaðinu, hvernig
sú kosning féll. Sigurður Krist-
insson, sem verið hefir formaður
miðstjórnarinnar baðst undan
endurkosningu. Var það tekið tii
greina. Ein rödd beindi því
til fundar miðstjórnarinnar,
hvort taka skyldi tillit til vilja i-
haldsins um það að kjósa ekki
Jónas Jónsson sem formann, af
því að hann væri mest grýla í
augum þess. Kosningin í for-
mannssætið sýndi vel afstöðuna
til þessa máls. Jónas Jónsson var
kosinn nálega í einu hljóði. Þar
með hefir Framsóknarflokkurinn
í landinu sýnt það, að hann er
staðráðinn í því, að haga sér eftir
eigin vilja nú og framvegis og án
þess að spyrja um vilja íhaldsins.
íhaldsblöðin hafa sí og æ klif-
að á því, að J. J. væri svo að
segja gjörrúinn öllu fylgi innan
Framsóknarflokksins og þótzt
vera hróðug yfir. Hvað segja þau
nú, þegar hann er nær einróma
kosinn formaður flokksins?
Landhelgisgæzlan
fór 216 þúsund kr. fram úr á-
ætlun á árinu 1933. Þó var hún
sú aumasta sem verið hefir í
mörg ár, aðeins einu varðskipi
haldið úti. út af þessu spurði
Dagur í síðustu viku: Hvað hefir
verið gert við alla þessa peninga?
Það eru fleiri en Dagur, sem
svona spyrja. Þannig spyr hver
maður, sem einhverja ábyrgðar-
tilfinningu hefir um meðferð á
opinberu fé. En »íslendingur« er
út kom á laugardaginn fyrir
páska kallar það »óskammfeilni«,
að vei-a að spyrja um meðferð á
216 þús. kr. umframeyðslu Magn-
úsar Guðmundssonar. Ekki þarf
langt að leita eftir skýringu þess,
að blaðið hagar þannig orðum
sínum: Magnús Guðmundsson er
ráðherra »Sjálfstæðisflokksins«.
Þess vegna á enginn að leyfa sér
að spyrja um þetta. Þess vegna
er það að dómi fsl. »óskamm-
feilni« að skýra frá þessum sann-
indum um 216 þús. kr. umfram-
eyðsluna í sambandi við hina
skaðlega lélegu landhelgisgæzlu,
sem er að leggja í auðn smábáta-
útveginn á stórum svæðum.
fsl. treystir sér heldur ekki til
að mótmæla því, að landhelgis-
gæzlan hafi verið bágborin undir
stjórn M. G. En blaðið telur hann
þó alsaklausan í þessu efni, því
allt sé þetta auma ástand Jónasi
Jónssyni að kenna! Hann hafi
eytt of miklu fé til landhelgis-
gæzlunnar, meðan hann var ráð-
herra. Þess vegna sé nú Land-
helgissjóðurinn félítill. En það
skal ísl. vita, að sá sjóður er fé-
lítill, af því að M. G. hefir svik-
izt um að láta taka og sekta veiði-
þjófana, sem vaðið hafa í land-
helginni í hans stjórnartíð.
Það sögulegasta.
»fslendingur« skýrir frá því, að
þing- og héraðsmálafundur Norð-
ur-ísfirðinga hafi verið haldinn
að ögri dagana 18.—22. f. m., að
hann hafi verið sóttur af 25
kjörnum fulltrúum úr öllum
hreppum sýslunnar og á fundin-
um hafi verið mættur þingmað-
ur kjördæmisins, Vilmundur
Jónsson, landlæknir. Allt mun
þetta rétt vera. En svo bætir
blaðið því við, að það söguleg-
asla, sem á fundinum hafi gerzt,
hafi ver;ð vantrauststillaga á
þingmanninn, samþykkt með 16
gegn 7 atkvæðum.
Það getur nú verið álitamál,
hvað sögulegast hafi gerzt á þess-
um fundi. Margir munu líta svo
á, að það sögulegasta hafi verið,
að Vilmundur Jónsson bar þar
fram ýmsar tillögur í anda jafn-
aðarmanna og fékk þær sam-
þykktar. Að þeim samþykktum
loknum lýsti fundurinn sig »ein-
dregið fylgjandi stefnu Sjálf-
stæðisflokksins í stjórnmálum«!
mmmmmmnmm
Gardínutau fjölbreytt úrval.
í metratali.
|Stores
£ Dyratjaldaefni mTair j§
g Kaupfélag Eyfirðinga. S
m* Vefnaðarvörudeildin.
ÍHMHMIMHIMMIMláÍ