Dagur - 24.04.1934, Síða 1
D AGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞOR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir l.des.
XVII
i ár. |
Akureyri 24. apríl 1934.
44. tbl.
Innlendar fréttir.
Landsbanka-
hneykslið.
Sakamálshöfdun.
Dómsmálaráðherra hefir 17. þ.
m. fyrirskipað sakamálshöfðun í
hinu margumrædda Mjólkurfé-
lags-Landsbankamáli. Sakamálið
er höfðað gegn Eyjólfi Jóhanns-
syni, framkvæmdarstjóra Mjólk-
urfélags Reykjavíkur, Guðmundi
Guðmundssyni, aðalgjaldkera
Landsbankans og aðstoðargjald-
kerunum Steingrími Björnssyni
og Sigurði Sigurðssyni. Málshöfð-
unin er fyrirskipuð samkvæmt 13.
kap. (um afbrot í embættis-
færslu) og 26. kap. (um svik)
hinna almennu hegningarlaga.
* * *
Um seðlahvarfið hefir ekkert
orðið uppvíst. En aftur á móti
hitt, að síðan 1931 hefir Mjólkur-
'’élagið öðruhvoru gefið út ávís-
anir á enga innstæðu. Lágu svo á-
vísanir þessar óinnleystar hjá
gjaldkerum bankans, oft langa
tíma — jafnvel nær hálfu ári.
og voru endurnýjaðar hvað ofan í
annað. 1. október í vetur nam
upphæð þessara ávísana 64.500
kr., en voru þó komnar niður í
12.000 kr. 31. desember og hafa
síðan verið innleystar.
Þá hafa þeir Guðm. Guðmunds-
son og Steingr. Björnsson fengið
ýísanir að láni hjá Mjólkurfé-
laginu, til þess að taka út á þær
peninga úr sjóði hjá sér sjálfum.
Var sú peningataka dulin með því
að láta ávísanirnar liggja í sjóðn-
um. Guðmundur fékk t. d.
snemma á ári 1932 5000 kr. á-
vísun, er hann lét liggja í sjóði
njá sér. Var hún endurnýjuð
nokkrum sinnum; stundum inn-
leyst og loks færð Guðmundi til
skulvl-r hjá Mjólkurfél. í haust.
Steingrimur fékk einnig ávísun
1932 að upphæð 1800 kr. Var hún
einnig endurnýjuð oftar en einu
sinni; síðan hækkuð upp í 2500
kr. og á endanum innleyst af
Mjólkurfélaginu í haust. — Þá
hefir og aðalgjaldkeri fengið á-
vísanir að láni hjá öðrum mönn-
um til þess að láta liggja í sjóði,
en þær voru allar greiddar, er
hann skilaði af sér. —
Það virðist þá liggja í augum
uppi, að hér hafi »gjöf séð til
gjalda«. Forstjóri Mjólkurfélags-
ins hefir með ávísunum á enga
innstæðu náð í veltufé hjá gjald-
kerum bankanna, tryggingarlaust,
heimildarlaust og vaxtalaust,
gjaldkerarnir geymt þær tímun-
um saman í sjóði og lofað Mjólk-
urfélaginu að endurnýja þær, til
þess að hylma yfir greiðsludrátt-
inn. Aftur á móti hafa þeir feng-
ið ávísanir að láni hjá Mjólkur-
félaginu til þess að dylja þurrð
í sjóði hjá sér.
Þegar upp komst fyrst um einn
þátt þessa vefs, fyrrihluta vetrar,
skýrðu gjaldkerarnir bankastjórn
skakkt frá, kváðu slíkt aldrei
hafa komið fyrir áður, og hefði
í það sinn aðeins stafað af van-
gá.
Eins og getið var um í síðasta
blaði, kom formaður Framsókn-
arflokksins, Jónas Jónsson, alþm.
með »Goðafossi«, hingað til Ak-
ureyrar á föstudagskvöld. Hafði
hann stutta viðdvöl hér, en hélt á
sunnudaginn austur yfir Vaðla-
heiði bílleiðis. Samferða honum
varð Þórólfur Sigurðsson bóndi í
Baldursheimi, er einnig kom að
sunnan með »Goðafossi«. — Jón-
as Jónsson mun dvelja eystra
framundir mánaðamót, og halda
þar framboðsfundi með kjósend-
um, en eins og menn vita, var al-
menn ósk þeirra, að hann yrði
nú í framboði, er Ingólfur í
Fjósatungu óskaði að hætta þing-
störfum.
Bæjarfréttir.
Kvenfélagið »Framtíðin« hefir þrjú
kvöld undanfarið haldið skemmtun í
Samkomuhúsinu. Rennur allur ágóðinn
til hins fyrirhugaða gamalmennahælis.
— Til skemmtunar var »menuet«, danz-
aður af frú Guðrúnu Ólafsson og frú
Maríu Ragnars, en frú Lena Otter-
stedt við hljóðfærið. Ungfrú Helga
Jónsdóttir söng nokkra einsöngva og
síðast léku margar félagskonur gam-
anleikinn »Frá Kaupmannahöfn til Ár-
ósa«. Á laugardag og sunnudag
skemmtu í stað ungfrú Helgu Jónsdótt-
ur Páll Bergsson frá Hrísey, er las
»Marjas« eftir E. H. Kvaran, og Sig-
urjón Sæmundsson, er söng fjóra ein-
söngva. Allt tókst þetta mjög ánægju-
lega, enda var aðsókn mjög góö, — Af
Ávísanamálíð.
Magnús Guðmundsson fyrir-
skipar sakamdlsrannsókn.
Frá máli þessu hefir áður ver-
ið skýrt hér i blaðinu og hvernig
íhaldsblöðin reyndu að þagga
þann ósóma niður. Þeim tókst
það þó ekki og mun það fyrst og
fremst að þakka Nýja Dagblað-
inu, sem stöðugt flutti fregnir af
því, er upplýstist í sambandi við
sviknu ávísanirnar, en reyndar
kölluðu íhaldsblöðin allar slíkar
upplýsingar pólitíska ofsókn gegn
forstjóra Mjólkurfélags Reykja-
víkur og gjaldkerum Landsbank-
ans; einkum var það þó blað
banka-eftirlitsmannsins, Vísir,
sem lengst gekk í skömmunum út
af því að verið væri að tala um
sviknu ávísanirnar.
Eftir 12 daga umhugsunar-
frest sá dómsmálaráðherrann,
Magnús Guðmundsson, sér ekki
annað fært en fyrirskipa saka-
málsrannsókn, eins og frétt ann-
arstaðar hér í blaðinu skýrir frá.
Hræðslan við það að ganga til
kosninga með mál þetta ókarað,
mun hafa rekið Magn. Guðm. til
þess að fyrirskipa sakamálsrann-
sókn gegn þessum mönnum. Hinn
Nýja-Bíó B
Þriðjudagskvöld kl. 9.
Bros geynnm tár
Alpýðusýning Niðursett verð.
C ~ Sýnd í síðasta sinn. -
Miðvikudagskv. kl 9.
Ný mynd.
langi umhugsunartími bendir til
þess, að sterk hafi tilhneigingin
verið í þá átt að breiða yfir
hneykslið, en óttinn við þungan á-
fellisdóm almennings þó að lok-
um orðið þeirri tilhneigingu yfir-
sterkari.
Afstaða íhaldsblaðanna í mál-
inu hefir ótvírætt sannað það, að
forráðamenn íhaldsflokksins ósk-
uðu ekki eftir að því væri gaum-
ur gefinn, en að þeir vildu þvert
á móti láta þegja það í hel. En
M. G. þorði ekki að eiga undir
því. Þess vegna verða nú íhalds-
blöðin að bíta í súrt epli.
þeim, er léku, má sérstaklega nefna
frúrnar Guðrúnu Ólafsson, Sigurjónu
Jakobsdóttur og Maríu Ragnars. — Á
laugardaginn buðu félagskonur 70—80
gamalmennum á skemmtunina. Á
sunnudaginn var endað með danzleik.
fslenzka vikan stendur nú yfir, og
gefur út blað daglega; gengst fyrir
iðn- og viðskiptafræðsluerindum.
Gluggasýningar eru eðlilega æði tak-
markaðar, þar sem eigi má sýna annað
til verðlaunasamkeppni en íslenzka
framleiðslu. En sérstaklega smekkleg-
ar sýningar getur að líta í gluggum K.
E. A. á framleiðslu þess margvíslegri
og skófatnaði J. S. Kvaran.
Skátar héldu hátíðlegan sumardaginn
fyrsta með hádegisguðsþjónustu á torg-
inu, með aðstoð Lúðrasveitarinnar. Kl.
4 var skemmtisamkoma í Samkomuhús-
inu. Flutti Jóhannes Sigurðsson erindi,
Sigfús Halldórs frá Höfnum las nokk-
ur kvæði úr nýútkominni kvæðabók Jó-
hanns Frímanns, Jón Norðfjörð las
gamansögu, »Ylfingar« dönzuðu Indí-
ánadanz og síðast var skrautsýning.
Skemmtu menn sér hið bezta. Um
kvöldið var danzleikur í Samkomuhús-
inu,
Gaoníræðaskóla Akureyrar
var sagt upp á laugardaginn. —
Skólastjóri flutti allýtarlegt er-
indi um nauðsyn skólans í sam-
bandi við alþýðufræðsluna og um
nánustu framtíð hans. Taldi sér-
staklega nauðsynlegt að vinda
bráðan bug að framhaldsbekk eða
þriðja bekk, og að byggt yrði yf-
ir skólann, og þetta því fremur,
sem Akureyri væri að dragast
aftur úr miklu minni bæjarfélög-
um, t. d. fsafirði og Siglufirði.
Fimmtán nemendur gengu und-
ir fullnaðarpróf. Fara nöfn
þeirra og aðaleinkunn hér á eftir:
1. Aðalsteinn Helgason 7.87
2. Anna Axelsdóttir 5.42
3. Arndís Bjarnadóttir 5.55
4. Ásgeir Gunnarsson 7.54
5. Friðjón Karlsson 5.05
6. Gróa Kristjánsdóttir 7.86
7. Guðrún Jónsdóttir 7.06
8. Gústaf Júlíusson 7.09
9. Hreiðar Stefánsson 6.44
10. Jónas Stefánsson 6.10
11. Júlíus Jóhannesson 5.03
12. María Pétursdóttir 7.09