Dagur - 12.05.1934, Page 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII, ár.
Akureyri 12. maí 1934.
| 52. tbl.
Dr. Nielsen og félagar hans
heilir á húfi.
— Ferðin gekk æskilega. —
útvarpsfrétt á fimmtudags-
kvöld kvað dr. Nielsen, Jóhannes
Áskelsson og förunauta þeirra
hafa komið heilu og höldnu heim
að Kálfafelli kl. 4 á fimmtudags-
morguninn, hressa og heila með
öllu. Hafði útvarpið tal af Jó-
hannesi Áskelssyni. Kvað hann
þá hafa lagt frá Kálfafelli 24.
apríl, eins og áður er sagt, 9
manns, með 6 hesta undir far-
angri. Annars ber honum að öllu
saman 'við Guðlaug ólafsson, unz
þremenningarnir sneru aftur á
jöklinum og þarf ekki að endur-
taka það, sem hér hefir áður ver-
ið frá sagt.
Ferðin frá Pálsfjalli að gos-
stöðvunum gekk slindrulaust og
dvöldu þeir þar þangað til á
föstudag 4. maí, við að' rannsaka
gosstöðvarnar. Telur Jóhannes að
rannsóknin hafi gengið mjög að
óskum, en nánari fregnir af þeim
bíða, unz þeir félagar koma til
Reykjavíkur. Gosið var mjög í
Kommúnistar iapa
verk/allstilraun.
Nokkrar róstm* urðu í gær-
morgun við »Lagarfoss«, er
flokkur kommúnista hér yildi
banna afgreiðslu á honum, sam-
kvæmt samþykktum Verklýðs-
sambands Norðurlands, og töldu
þeir Alþýðusambandið standa
með sér að verkbanninu, sem á
var lagt sökum kaupdeilu verk-
lýðsfélaga við Húnaflóa og af-
greiðslumanna skipanna. En á
miðvikudaginn kom skeyti frá
Alþýðusambandinu þess efnis að
verkbannið væri því óviðkomandi.
Kommúnistar hér vildu þó halda
verkbanninu til streitu, og ætluðu
um 30—40 þeirra að hindra upp-
skipun. Fór lögreglustjóri því
snemma í gærmorgun á vettvang
með lögregluþjóna og aðstoðarlið,
er boðað hafði verið daginn áður.
— Urðu nú fyrst orðahnippingar
en síðan stimpingar alllangar, en
yfirleitt heldur meinlitlar. Ber
mönnum mjög saman um það, að
með stillingu hafi verið farið í
rénun, er þeir félagar komu að
því, en þó stóð enn reykjarmökk-
ur mörg hundruð metra upp frá
jöklinum.
Á föstudaginn lögðu þeir af
stað heimleiðis frá gosstöðvunum
og. komu að tjaldstaðnum við
Pálsfjall daginn eftir ‘að þre-
menningarnir höfðu farið þaðan.
Vistir höfðu þeir enn nógar, er
þeir komu í tjaldið, og bættu þeir
við sig því er hinir höfðu þangað
flutt. Héldu þeir síðan áfram og
mættu leitarmönnum á miðviku-
daginn, þá er tveggja stunda ferð
var eftir að jökulrönd. Kvað Jó-
hannes líðan þeirra alla þá ágæta
verið og reyndar í allri. ferðinni.
Á Kálfafelli fengu þeir hinar
beztu viðtökur og dvelja þar um
stund, en eru að búa sig undir að
ganga á Skeiðarárjökul. Eigi vissi
Jóhannes gerla, hvenær þeir
mundu koma aftur til Reykjavík-
sakirnar af beggja hálfu að und-
anteknum fáeinum kommúnistum,
er létu allmikið í fyrstu, en
sljákkaði fljótt í, er þeir fundu
að við ofurefli var að etja. Tveir
forsprakkar kommúnista, Jón
Rafnsson og Jakob Árnason voru
fahgelsaðir um stund, en látnir
lausir, er þeir sýndu eigi mótþróa
að játa á sig upphláupsforystuna.
Tveir aðrir voru settir í járn, unz
af þeim rann berserksgangurinn,
og mun það nálega engum tog-
um hafa skipt, enda fljótt sleppt
aftur. • Þengill Þórðarson, banka-
ritari, varð fyrir meiðslum á síðu,
mun þafa verið sparkað í hann.
Nokkrir voru klóraðir í framan,
en aðrar skemmdir höfðu mestar
orðið á fötum manna. Munu ein-
hverjir kommúnistar eiga að
svara til þeirra, eða þá Verklýðs-
sambandið, í hvers umboði þeir
hafa unnið. —
Annars hermdi útvarpið í gær-
kvöldi, að vinnudeilunni á Blöndu-
ósi væri lokið. — »Dettifoss« var
á Siglufirði í gær og beið af-
greiðslu. Var sett á hann verk*
bann þar eins og »Lagarfoss«, er
þar fékkst eigi afgreiddur. —
»Dettifoss« fór frá Siglufirði í
nótt, óafgreiddur og bíður nú af-
greiðslu hér.
Björn Sigfússon frá Múla í S.-
Þingeyjarsýslu, hefir lokið meist-
araprófi í norrænum fræðum við
Háskóla íslands, með ágætiseink-
unn. Er hann fyrsti maður, er
hlotið hefir ágætiseinkunn við
meistarapróf við háskólann í
Reykjavík.
Einmenningssamkeppni um
meistaratitil í fimleikum var ný-
lega háð í Reykjavík. Keppendur
voru aðeins fjórir, þrír frá
giímufélaginu »Ármann«, en einn
frá Knattspyrnufélagi Reykjavík-
ur. Sigurvegari varð Sigurður
Norðdahl frá »Ármann«,og hlýtur
hann því nafnbótina fimleika-
meistari íslands.
Fiskafli r Vestmannaeyjum hef-
ir nú á vertíðinni numið 44.000
skp., eða um 2000 skp. meira en í
fyn-a um sama leyti. Aflahæstur
hefir mótorbáturinn »Lagarfoss«
orðið, form. Þorsteinn Gíslason.
Hefir hann aflað 112,000 þorska.
Síðastliðinn mánuð var verð á
íslenzkum tóuskinnum 89.74 kr.
á útlendum markaði. Er það
miklu betra en undanfarið lengi,
íbúar austurhluta YúgóJSlavíu
eru nær viti sínu fjær af skelf-
ingu við eiturflugnavarg er ásótt
hefir þar stór svæði. Er fjöldi
barna fárveikur af biti þessara
flugna, en búpeningur hefir hrun-
ið niður unnvörpum. Hefir
stjórnin sent fjölda lækna og að-
stoðarmenn þeirra á þessar ó-
heimlegu stöðvar.
i
Nú hefir Göhring tilkynnt að
mál verði hafið á hendur þeim
Torgler og Thalmann, er sýknað-
ir voru af bruna ríkisþinghússins
í vetur. En nú er ákæruefnið
landráð. Annars kveður Göhring
Torgler vera búinn að afneita
kommúnistum, en Thalmann ekki.
(ÚF.).
Frá Chicago er símað, að sam-
fara hinum ógurlegu þurrkum,
Hér með tilkynnist vinum og vanda-
mönnum, að móðir okkar Sigurbjörg
Jónsdóttir, Laugalandi, Þelamörk, and-
aðist að heimili sínu 10, þ. m,
Jarðarförin er ákveðin að Möðru-
völlum miðvikudaginn 23. maí, og
hefst með húskveðju á heimili hinnar
látnu kl. 11 f. h.
Börnin.
4
Þökkum hjartanlega auðsýnda hjálp
og hluttekningu við andlál og jarðar-
för Brynju Guðlaugsdóttur.
Aðstandendur.
en eigi víst, hversu lengi helzt.
í marzmánuði voru seld utan 107
tóuskinn en í apríl 78.
Deild »Slysavarnafélags ís-
lands«, er nýstofnuð í Hornafirði,
með 28 meðlimum. f stjórn eru
Eiríkur Helgason (prestur?), Jón
ívarsson, kaupfélagsstjóri og Þór-
hallur Daníelsson kaupmaður.
úr »Eddu«, sem strandaði við
Hornafjörð í vetur, hefir náðzt
um 100 smálestir af kolum, með
því að skera gat á skipshliðina
með logsuðutækjum, inn í kola-
klefana. (ÚF.).
sem allan gróður er að drepa í
mið-vesturríkjunum, hafi nú und-
anfarið geysað moldstormar -svo
ægilegir, að kvikfénaður nái
víða ekki jörð, sem er alveg hulin
þykku rokmoldarlagi, og hefir
■hann því fallið unnvörpum. Menn
hafa jafnvel tekið út miklar þján-5
ingar í þessum stormum, þar eð
moldin hefir fyllt vit þeirra, sér-
staklega nasir, munn og augu, svo
að illþolandi hefir verið.
Söngfélagið s>Geysir« söng í Nýja-
Bíó á fimmtudaginn var fyrir troð-
fujlu húsi og við ágætar viðtökur. Eins
og getið hafði verið um hér í blaðinu
voru flest lögin gamlir kunningjar, sem
fyrir meðferð flokksins hafa læst sig
inn í hug og hjarta almennings. —
Annars mun nánar verða getið um
samsönginn og söng félagsins undan-
farið í næstu blöðum.
ur.
Innlendar fréttir.
v 4 *
Erlendar fréttir.
I