Dagur - 19.05.1934, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
• ••••• • • •••••••••
XVII. ár. t
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓK.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 19. maí 1934.
55. tbl.
-♦-H
Innlendnr
Fjöl ' verkamanna á
Siglufirdi klofnar frá
kommúnistum.
Á Siglufirði hefir verið stofnað
nýtt verkamannafélag, er nefnist
»Þróttur«. Gengu þegar 142
verkamenn í félagið. Jafnharðan
og félagið var stofnað sagði það
sig í Alþýðusambandið.
Framboð.
Þessi framboð hefir enn heyrzt
um:
Af hálfu Framsóknarflokksins:
í Dalasýslu Jón Árnason, for-
stjóri,Reykjavík. í Gullbringu- og
Kjósarsýslu Klemenz Jónsson.
Af hálfu Alþýðuflokksins: í
Barðastrandarsýslu sr. Sigurður
Einarsson.
Af hálfu Bændaflokksins: í
Barðastrandars. Hákon Kristó-
fersson í Haga. f Vestur-Skafta-
fellssýslu Lárus Helgas. Klaustri.
í Austur-Skaftafellssýslu Pálmi
Einarsson ráðunaijtur.
Um bæjarfógetaembættið á Ak-
ureyri og Eyjafjarðarsýslu sækja
14. Þeir eru: Sigurður Eggerz,
bæjarfógeti á ísafirði; Júlíus
Havsteen, sýslumaður Þingey-
inga; Sigurður Sigurðsson, sýslu-
maður Skagfirðinga; Þórhallur
Sæmundsson, lögreglustj. á Akra-
nesi; Gústaf A. Jónasson, fulltrúi
lögreglustjórans í Rvík; Garðar
Þorsteinsson, hrm. í Rvík og 8
Erlendar
Brezka stjórnin hefir nýlega
tilkynnt, að hún óski ekki eftir
alþjóðasamþykktum um 40 klst.
vinnutíma á viku, þann, sem nú
er á döfinni, og hefir verið all-
lengi hjá verkamálaskrifsofunni í
Geneva, er sent hefir s^jórnum
flestra landa fyrirspurn um það,
hvernig þær mundu taka í slíka
löggjöf, til þess að reyna að af-
stýra hinni látlausu atvinnuleys-
isplágu.
Síðustu utvarpsfregnir herma að
Litvinoff sé nú kominn til Gene-
ve. — Telja margir það fyrirboða
þess, að Rússar muni setla sér að
fréttir.
kandidatar aðrir. Almennt mun
talið áreiðanlegt að Sigurður
Eggerz verði hlutskarpastur.
Það mishermi varð í síðasta
blaði, að talið var að Braga ól-
afssyni lækni hefði verið veitt
Siglufjarðarhérað, en átti að vera
Hofsóshérað. Siglufjarðarhérað
er enn eigi veitt. Sækja um það
8 læknar og meðal þeirra sjúkra-
hússfæknirinn á Siglufiröi, Stein-
grímur Einarsson; Pétur Jóns-
son, læKnir á Akureyri; Halldór
Kristinsson, læknir í Bolungarvík
og Páll Sigurðsson, fyrrverandi
læknir í Hofsóshéraði.
Kyns/úkdómahœttan.
í síðasta hefti »Læknablaðsins«
skrifar Hannes Guðmundson kyn-
sjúkdómalæknir um kynsjúkdóma
á árinu 1933. Álítur hann að þeir
séu að færast í vöxt. Á árinu leit-
uðu til hans 293 sjúklingar og þá
í fyrsta sinn börn á aldrinum 10
ára og þar yfir. Flestir voru
sjúklingarnir á aldrinum frá 20
—30 - ára, konur sem karlar. —
Læknirinn skýrir frá því, að
sjálfsali (automat) með varnar-
lyfjum sé á hinu nýja náðhúsi
Reykjavíkur, og er hann settur
þar að dæmi annara þjóða, er
reynslu telja fengna fyrir því, að
með því móti sé helzt auðið að
stemma stigu fyrir útbreiðslu
þessara sjúkdóma.
fréttir.
ganga í þjóðabandalagið, sem
margar þjóðir hafa talið æskilegt.
Er þá búist við að þeir muni
ganga í það í september, er
Þjóðabandalagið kemur saman í
Geneve. Ennfremur er gizkað á,
aö Litvinoff muni ætla sér að
taka þátt í umræðunum um af-
vopnunarmálin, sem nú eru &
. döfinni í Geneve.
Gert er ráð fyrir 83 miljóna
tekjuhalla á fjárlögunum f Aust-
urríki, og ganga fjárreiðurnar
þar enn erfiðlega. — Samkvæmt
nafnverði ganga 34.58V2 skild-
ipgur á eitt sterlingspund.
Samuel Insull, fjárglæframað-
urinn, fyrrverandi forstjóri raf-
virkjunarhringsins mikla í
Bandaríkj unum og þá einhver
stórlátasti og voldugasti auð-
valdshöldur Bandaríkjanna, er nú
loksins kominn aftur til Chicago,
úi strokferðinni frægu, eftir ó-
hemju eltingaleik. Á hann nú að
svára þar til saka, ákærður um
sviksamlegt gjaldþrot, eitt hið
stórkostlegasta er sögur fara af,
og byrjaði yfirheyrslan á mið-
vikudaginn. Hefir Roosevelt
stjórnin gengið að því, að ná hon-
um heim aftur, með hlífðarlaus-
um dugnaði.
Moldstormurinn mikli, er getið
var um í Degi, að geysað hefði í
Bandaríkjunum, er víst einhver
hinn ægilegasti, er sögur fara af.
ógurlegir þurrkar höfðu gengið
vikum saman, en jörð var nýsáin
í miðríkjunum, er stormurinn
skall á. Þyrlaði stormurinn akra-
Hlutverk ,einkafyrirtækisinsf
Talanark foringja íhaldsflokks-
ins við næstu kosningar er að ná
meirihluta-aðstöðu á Alþingi. Þá
aðstöðu ætla þeir svo að nota til
þess að ausa fé bankanna og rík-
issjóðs í »máttarstólpa« íhalds-
ins, eins og áður hefir átt sér
stað, til kaupmanna, braskara og
fjársvindlara flokksins, en ekki
til þess að »gefa« sveitunum, eins
og þeir orða það, brýr, vegi,
síma, bætt húsakynni, skóla og
önnur gæði. Slíkar »gj^ir« eru
andstyggð í augum íhaldsins, ó-
þörf »eyðsla«, sem lýsir spilltum
hugsunarhætti.
Jafnframt ætla íhaldsmenn að
þjappa dauglega að kaupfélögun-
um, af því að þau eru aðeins til
þrifnaðar fyrir alþýðu, en standa
í vegi fyrir óhæfilegri auðsöfnun
einstakra kaupmanna. Þó ætla
íhaldmenn að vera svo miskunn-
samir, að leyfa kaupfélögunum
að starfa þar sem kaupmenn geta
ekki þrifist, eftir því sem Magn-
úsi guðfræðiprófessor segist frá.
En nú hefir óttinn gripið um
sig í herbúðum íhaldsins út af
því, að bregðast kunni að þessu
takmarki verði náð. Magnús
Jónsson segir í Morgunbl., að
fréttir hafi borizt utan af lands-
byggðinni um klofning í »Sjálf-
stæðisflokknum«, og það hafi
verkað eins og hnífsstunga. Þessi
ótti um klpfning í ihaldsflokkn-
moldinni, svo sem áður var frá
sagt, og skóf hana með öllu frá
rótum nýgræðingsins, svo að nú
má varla heita stingandi strá á
ökrum þar sem stormurinn fór
yfir. En það svæði er 1440 kíló-
metra langt og 400 kílómetra
breitt. Svo var moldrokið óhemju-
legt, að á götum New-York borg-
ar, sem er á austurströndinni,
eins og kunnugt er og því langc
frá megin-stormsvæðinu, var
svo dimmt um hádaginn, sem í
Lundúnum, er hin illræmda Lun-
dúnaþoka leggst þar yfir sem
verst, svo að bókstaflega sér eigi
handaskil.
Á Bretlandi hafa verkamenn nú
unnið 6 þingsæti í röð við auka-
kosningar frá íhaldsmönnum eða
stjórnarsinnum. Hafa kjördæmin
yfirleitt unnizt með miklum meiri
hluta og virðist þetta benda til
sigurs verkamannaflokksins við
næstu allsherjarkosningar.
um úti um land, er ekki ástæðu-
laus. Augu manna hljóta að lok-
um að opnast fyrir meíngöllum
þess stjórnmálaflokks, sem tekur
að sér að verja allskonar ósóma,
fjárglæfra, fjársukk, ávísana- og
atkvæðafalsanir o. s. frv., og elur
við brjóst sér aðra eins ófreskju
og nazisminn er.
Þrátt fyrir þessa hnífsstungu,
sem íhaldsbroddarnir hafa orðið
fyrir, eygja þeir þó vonarstjörnu
fi-amundan. Sú vonarstjarna er
að vísu dauf, en þó betri en ekki
neitt. Þessir daufu vonargeislar
stafa frá »einkafyrirtæki Jóns í
Stóradal — Bændaflokknum. —
Hluverk hans er að tvístra Fram-
sóknarflokknum og verða á þann
hátt íhaldinu að liði. Þó að íhalds-
menn séu orðnir vonlausir um að
komast einir sér í meiri hluta,
er að taka því næst bezta, og það
er, að íhaldsmenn og Bænda-
flokksmenn verði sameinaðir í
meiri hluta. Komi Bændaflokkur-
inn að nokkrum manni eða mönn-
um, sem er fremur ólíklegt, þá
er ú.tilokað að þeir bindist sam-
tökum við Framsóknarflokkinn
eða Alþýðuflokkinn á þingi, því
Jón í Stóradal og halarófa hans
segist *einmitt hafa hrökklast úr
Framsóknarflokknum, vegna
sambands hans við jafnaðarmenn
sem var í því fólgið, að koma
skipulagi á afurðasölu bænda og
fara samningaleið um ákvörðun
kaupgjalds fátækra sveitamanna
í opinberri vinnu, svo lífyænlegra