Dagur - 02.06.1934, Blaðsíða 1
:fH j$rr
DAGUR
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugar-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Arni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júií.
Afgreiðsian
er hjá JÖNI Þ. Þöít.
NorðurgötuS. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVII
* ár. |
Akureyri 2. júní 1934.
61. tbl.
Erlendar
Bandarikin.
Að því er síðustu fregnir
herma, hefir Roosevelt forseti á-
kveðið að taka ekki endanlega af-
stöðu til skuldunauta Bandaríkj-
anna að sinni, en hefir, tilkynnt
þinginu, að það megi vera við því
búið að taka þá og þegar til ein-
hverra ráða gegn þeim, er eigi
standa í skilum, því að sjálfsagt
telur forsetinn að allir skuldu-
nautar Bandaríkjanna verði að
greiða skuldir sínar að fullu. Hins
vegar telur hann sjálfsagt að
kynna sér gjaldþol þeirra sem
stendur og haga kröfunum svo
eftir því sem auðið er. Annars
kveður hann Finnland eina land-
ið, er staðið hafi Bandaríkjunum
skil með vexti og afborganir.
Þá herma og síðustu fregnir að
öldungaráð allsherjarþingsins í
Washington hafi afsalað sér öll-
um rétti til þess að hlutast nokk-
uð til um innanríkismál á Cuba.
Þetta eru miklu merkilegri tíð-
indi en margur kynni að halda.
Frá því að Cuba brauzt undan
Spánverjum hafa Bandaríkja-
menn mjög hlutazt til um allt
stjórnarfar þar í landi, undir því
yfirskini, að landsmenn væru eigi
færir um sjálfstjórn, enda bæri
nauðsyn til að »gæta hagsmuna«
Bandaríkjaborgara á Cuba, er
ella myndu fyrir borð bornir.
Þessi hagsmunagæzla stórvelda í
Sparnaðarhjal
jhaldsmanna.
»Islendingur var að fárast yfir
því nú í vikunní, hversu launa-
greiðslur við ríkisstofnanir væru
háar og kenndi Framsóknarmönn-
um um það. Því skal ekki neitað,
að laun sumra manna við þessar
stofnanir séu óþarflega há, þeg-
ar miðað er við greiðslugetu al-
mennings og þær tekjur, sem
fjöldi manna verður að sætta sig
við.
En þó kemur það úr hörðustu
átt, þegar Ihaldsmenn látast vera
að blöskrast yfir of háum laun-
um, því vitanlegt er, að í flokki
þeirra eru hálaunagráðugustu
mennirnir og þar sem íhaldið
ræður, sker það ekki launin við
neglur sér. Menn muna eftir 40
fréttir.
landi lítilmagna er gamall kunn-
ingi þeim, er vel fylgjast með
viðburðum erlendra stjórnmála.
Er hún vitanlega falin í því, að
leyfa auðhöldum stórveldanna að
flá lítilmagnann og rýja, meðan
eitthvað er af honum að hafa.
Þessi stefna Bandaríkjanna á
Cuba hófst snemma, en tók út yf-
ir allan þjófabálk eftir ófriðinn,
á dögum þeirra Hardings, Coolid-
ge og Hoovers. Hélt Bandaríkja-
stjórnin þá við stjórn á Cuba —
að segja mátti í umboði amer-
ískra bankahölda og viðskipta-
hringa, einhverjum auðvirðileg-
asta og djöfullegasta harðstjóra,
er sögur fara af nýlega, Maohado
þeim, er landsmenn loks veltu af
forsetastóli í fyrra þótt eigi tæk-
ist þeim að hafa hendur í hári
hans,*þar eð hann komst undan
með tilstyrk húsbænda sinna. Fall
Machados var fyrirsjáanlegt þeg-
ar er Roosevelt var tekin við völd-
um. Hefir síðan verið róstusamt
á Cuba, en stjórn Roosevelts lát-
ið landsmenn að mestu um það
sjálfa á hvert ráð þeim litist að
bregðást, unz nú er svo komið
sem fregnin segir. Er það harla
mikilsvert á þessum ofbeldistím-
fim, að voldugasta ríki veraldar-
innar skuli afdráttarlaust viður-
kenna rétt lítilmagnans til sjálf-
stjórnar, hvort sem öðrum kann
betur eða miður að líka.
þús. kr. samningi íhaldsins viö
einn af bankastjórum fslands-
banka. Samningurinn gilti til 10
ára og hljóðaði upp á 400 þús.
kr. þóknun, eða 40 þús kr. á ári.
Þó fórust störfin ekki betur úr
hendi en svo, að stofnunin fór á
háusinn og var þá búin að tapa
25 millj. kr. á óreiðusukki með
fé bankans. — Hverjir eru það,
sem hafa haldið Jakob Möller á
16 þús. kr. launum í 10 ár fyrir
einskis nýtt starf? Það eru í-
haldsbroddarnir. Fyrv. forstjóri
Áfengisverzlunarinnar fékk hjá í-
haldinu 18 þús. kr. laun. Og
hvernig er það svo í paradís i-
haldsins, Reykjavík, þar sem í-
haldsmenn ráða öllu? Þeir greiða
borgarstjóra sínum 17 þús. kr.,
rafmagnsstjóranum 22 þús.,hafn-
arstjóranum 18 þús. og svo fram-
vegis. Við sum einkafyrirtæki í-
haldsmanna, skammta forstjór-
arnir sér þó miklu hærri laun en
þetta. Á meðan svo standa sakir,
er óviðráðanlegt, þó launagreiðsl-
ur við ríkisstofnanirnar verði í
hærra lagi, ef til starfsins eiga að
veljast hæfir menn. Það er í
skjóli við íhaldsstefnuna, sem há-
launslpólitíkin þrífst bezt. Þess
vegna er áríðandi að ríða þá
stefnu niður við næstu kosningar,
því verði það ekki gert, verður
illkleift eða ómögulegt að koma
viö nokkrum sparnaði á þessu
sviði.
En ljóst er það af öllum aðför-
um íhaldsmanna, að allur jarmur
þeirr^, um of há laun er ekkert
annað en kosningahjal, tálbeita,
sem fáfróðum kjósendum er ætlað
að gleypa. Kjósendur verða að
varast blekkingar íhaldsblaðanna
í þessum efnum ekki síður en öðr-
um blekkingum þeirra.
Skólaráð Laugaskóla efndi i
fyrra til merkilegrar nýbreytni í
uppeldismálum. Kaupstaðabúar
hafa sótzt eftir að koma börnum
sínum til sumardvalar í sveitum
að undanförnu, til þess að veita
þeim tækifæri á að njóta sólar-
innar, hreina loftsins og frjálsr-
ai hreyfingar á víðlendi gróinn-
ar jarðar. Þetta heíir verið tals-
vert örðugt og eigi fært öðrum
en þeim, sem hafa átt kunningja
á góðum sveitaheimilum, seln þeir
hafa beðið fyrir börn sín.
•Skólaráðið bætti nokkuð úr
þessu í fyrra. Það veitti 25 börn-
um dvöl á Laugum um mánaðar-
tíma og sameinaði mikið nám
dvölinni. Einhver allra vinsælasti
barnakennari landsins, Egill Þor-
láksson á Húsavík, gerðist leið-
togi barnanna og kenndi þeim að
lesa á öók lifandi náttúru, kenndi
þeim að þekkja fjöllin og dalina,
grösin og fuglana. Þau fengu að
sjá, hvernig jökullinn hafði graf-
ið dalinn og fyllt hann síðan hálf-
an af hólum. Egill fór með þeim
ferðir og skerpti athygli þeirra
með því að láta þau rita ferða-
lýsingar og kepptust þau um að
lýsa sem réttast og nákvæmast.
Hann lét þau móta myndir úr leir
og smíða gagnlega hluti úr tálgu-
steini, er þau höfðu heim með
sér. Þorgeir Sveinbjarnarson leik-
fimiskennari kenndi börnum sund
og leikfimi og urðu þau öll vel
synd.
k Laugum er öll hin ágætasta
aöstaða til þessa. Þar er sólríkt
og rúmgott hús, hveraveita og
rafljós. Þar er sundlaug inni og
.önnur úti og hyljir í straumvatni.
Þar er bezti leikfimissalur norð-
anlands og ágætur leikvÖllur úti.
Lágar brekkur, bláar af berjum,
er líður á sumar, upp úr dalnum,
aö víðum, algrónum heiðum, með
miklu útsýni. Á Laugum er fjöl-
breytt garðrækt og létt að afla
ódýrs nýmetis, bæði frá Húsavík
og Mývatni og mjólk höfðu born-
in eins og þau gátu torgað.
Skólaráðið fékk 150 króna styrk
úr ríkissjóði í fyrra til náms-
skeiðsins .og varð allur dvalar-
kostnaður, sem börnin þurftu að
greiða, 10 kr.áviku. Skólinn vai’ð
fyrir hallaánámsskeiðinu í fyrra.
Skólaráðið hefir gert ítrekaðar
tilraunir um að fá hærri styrk
í sumar, vegna þess að miklar á-
skoranir lágu fyrir um það, að
hafa tvÖ námsskeið, annað fyrir
pilta en hitt fyrir stúlkur. En
kennslumálaráðherrann hefir
neitað um meiri stuðning, þrátt
fyrir ítrekaðar áskoranir ýmsra,
sem þessu máli eru hlynntir.
Eftir að hafa haft tal af ýmS-
um, sem vildu koma börnum að
námsskeiðinu, réðist, að skólaráð-
ið auglýsir nú tvö námskeið hér í
blaðinu og neyðist það til að láta
börnin borga helming kennslu-
kostnaðar í þetta sinn. Skólaráðið
vonar, að kennslumálastjórnin
styrki námsskeið þessi betur
framvegis.
Oddfellow-félagið á Akureyri
styrkir nokkur börn til dvalar á
námsskeiði þessu og á þakkir
skilið fyrir. Eru ekki fleiri góð-
gerðafélög í kaupstöðunum, sem
betur skilja þarfir barnanna, en
kennslumálastjórnin núverandi og
myndu vilja létta undir með fá-
tækum foreldrum um að koma
börnum sínum til sumardvalar á
Laugum?
Þess skal getið, að nokkur ó-
þægindi voru að móttöku ferða-
manna á Laugum í fyrra. En í
sumar verður þar engin greiða-
sala. X.
—i i T
H jálpræðisherinn. Mánudaginn 4.
júní, kl. 8 e. h.: Opinber helgunarsam-
koma og barnavígsla. ókeypis aðgang-
ur þriðjudaginn 5. júní: útisamkoma
kl. 7, ef veður leyfir. Fyrirlestur í Bæj-
arhúsinu kl. 8. Efni: Tákn tímanna. —
Samkomunum stjómar kommandör
Karl Larsson, leiðtogi Hjálpræðishers-
ins í Noregi. Steingr. Matthíasson túlk-
at’. — Aðgangur 50 aurar.