Dagur - 23.08.1934, Síða 4
264
DAGUE
96. tbl.
Sambandslundiir Norðleizkra kvenna
verður haldinn á Akureyri 15. og 16. sept. n.
Konur fjölmennið á fundinn.
Stjórnin.
ALPA LAVAL
A. B. Separator í Stokkhólmi er eitt af þeim fyrirtækjum Svla, er mest
og best hefir stutt að því að gera sænskan iðnað heimsfrægan,
í meira en hálfa öld hafa ALFA LAVAL vélarnar verið viður-
kenndar sem beztu og vönduðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum, enda
hefir verksmiðjan hlotið yfir 1300 FYRSTU VERÐLAUN.
Reynslan, sem fengist hefir við að smiða meira en 4,000.000 Alfa
Laval skilvindur, er notuð út f æsar til þess að knýja fram nýjar og
verðmætar endurbætur. Hið nýjasta á þessu sviði er:
Algerlega ryðfríar skilkarlsskálar
og algerlega sjálfvirk smurning.
Vér böfum þessar tegundir af hinum nýju endurbættu ALFA LAVAL
skilvindum á boðstólum:
Alfa Laval Nr. 20 skilur 60 lítra á klukkustund
— > — - 21 - 100 - - -1-
— 1 — - 22 - 150 — - — » —
— > — - 23 - 525 - - — >
Varist að kaupa lélegar skilvindur. — Biðjið um
ALPA LAVAL
Samband ísl. samvinnufélaga.
Nýti háloftsflug.
einnig brezku auðhringarnir, og
Iðnaðarsamband Bretlands, sem
standa að árásunum á samvinnu-
félagsskapinn.
En hvernig stendur á þessum
árásum? spyrja menn. Því er
auðsvarað. Það er vegna þess, að
hin níutíu ára gamla samvinnu-
stefna í Bretlandi er orðin að
virkileika, sem hefir skapað
sterka, volduga samfylkingu með
öru vaxtarmagni, sem sífellt gerir
ný strandhögg inn á landareign
auðhringanna. Er í þessu sam-
bandi fróðlegt að renna augunum
yfir stærstu viðburði í sögu sam-
vinnuhreyfingarinnar brezku,
vöxt hennar og viðgang.
II.
Eiginlega má svo segja, að
samvinnuhreyfingin brezka sé yf-
ir hundrað ára gömul. Því það
var árið 1799, sem dr. William
King frá Brighton kom fram og
brýndi verkamenn og smábænd-
ur hinni fyrstu lögeggjan til sam-
vinnu. Og þessi merkilegi boð-
skapur dr. King stendur enn í
dag í fullu gildi.
»Öreigar«, sagði hann, »þið er-
uð eignalausir vegna þess, að þið
vinnið fyrir aðra, en ekkert fyrir
sjálfa ykkur. Það er að vísu svo,
að þið hafið ekkert fjármagn til
eigin atvinnureksturs. En þið
hafið kaupmagn. Sameinið kaup-
magn yðar. Breytið hinu samein-
aða kaupmagni yðar á hagfræði-
legan hátt í fjármagn. Notið það
fjármagn til sameiginlegra fyrir-
tækja. Og þá hafið þér brotið af
yður arðrán kapítalismans, sem
einungis viðhelzt af yðar eigin fá-
vizku«.
Árangur þessa boðskapar dr.
Kings varð sá, að fjöldi verzlana,
hinna svokölluðu »félagsbúða«
(Union Shops) spratt upp víðs-
vegar um landið, og snerist fjöldi
umbótasinnaðra manna á sveif
með þessari hreyfingu. Jafnvel
Lady Byron'gerði sér það til hugar-
hressingar að berjast fyrir þess-
ari nýju stefnu, meðan maður
hennar, Lord Byron, eltist við
smámeyjar suður á Grikklandi.
En þessar »félagsbúðir« urðu
skammlífar í sínu upphaflega
formi, og hurfu alveg í bliku
þeirri, er stóð af Chartistastríð-
inu (kjörgengisbótabaráttu
verkamanna), enda kom þá um
þær mundir aðalspámaður sam-
vinnuhreyfingarinnar brezku, Ro-
bert Owen, fram á sjónarsviðið.
Þó að hann að vísu byggði á sama
grundvelli og William King hafði
gert með »félagsbúðum« sínum,
þá voru þó kenningar hans miklu
þroskaðri og skipulagðari. Meg-
ininntak þeirra, sem síðan hefur
orðið að kjörorði samvinnustefn-
unnar, var: »Rétt verð, engan á-
góða«. (Price without Profit).
En það var ekki fyrr en 1844,
að fyrsta raunverulega tilraunin
var gerð til þess að framkvæma
á virkilegan hátt þessi kjörorð
Robert Owens. Það voru tuttugu
og átta baðmullarvefarar frá
þænum Rochdale, er fyrstir bund-
ust samtökum, og stofnuðu með
@ér samvinnviverzlun. Og þeir
voru ekkert myrkir í máli um
framtíðarfyrirætlanir sínar, vef-
ararnir frá Rochdale: Full yfir-
ráð yfir gjörvallri framleiðslu
Bretlands, dreifingu hennar og
afsetningu, yfir uppeldis- og
menntamálum, í fáum orðum
sagt, full yfirráð yfir rekstri rík-
isins, — það var hið endanlega
takmark hinna tuttugu og átta
vefara frá Rochdale. Og fyrstu
undirstöðuna undir þetta nýja
þjóðskipulag, lögðu þeir með
praktiskri ráðningu á kjörorði
Robert Owens »Rétt verð, engan
ágóða«. Ráðningu, sem var svo
einföld, að enginn gat um villzt.
Og ráðningin var: Ágóðahlutdeild
af viðski'ptum, — það var allur
galdurinn. Fastur rentufótur var
ákveðinn af rekstursfé, og er það
mjög þýðingarmikil nýjung í
brezkum fjárrekstri, sem íþyngir
öllum iðnaði með lögfestum skyld-
um til að halda uppi yfirherra-
dómi kapítalsins, og til að greiða
hluthöfum eins háa vöxtu, og
frekast er unnt. Vörurnar voru
seldar við almennu markaðsverði,
því þá voru engir íhlutunarmögu-
leikar fyrir hendi til áhrifa á
vöruverðlag, þó samvinnufélögin
séu nú svo langt komin, að þau
hafi fullt verðlagningarvald á
mörgum mörkuðum. — Við lok
hvers viðskiptaárs var svo ágóð-
anum skipt hlutfallslega eftir við-
skiptamagni á milli meðlima.
(Framh.).
heitir nýtt sálmasafn, er fyrir
nokkru er komið út. Hefir
»Kirkjuráð hinnar íslenzku þjóð-
kirkju« annazt sálmavalið og bú-
ið undir prentun. Um bók þessa
hefir staðið hinn mesti styrr (
sunnanblöðunum fyrirfarandi, og
eru menn, — og þá sérstaklega
höfundar sálmanna — afar óá-
nægðir með breytingar þær, er
gerðar hafa verið á fjölmörgum
sálmunum, að höfundunum forn-
spurðum. Hefir þessi óánægja
gengið svo langt, að ýmsir af
höfundum sálmanna hafa krafizt
þess, að sálmabókin verði gerð
upptæk, samkvæmt lögum um rit-
höfundarétt, og bera þeir fyrir
sig grein þá, er ræðir um ritstuld
og fölsun á ritverkum. Hafa nú
nýskeð átta af höfundunum snúið
sér til Bandalags íslenzkra lista-
manna, og beðið það að taka að
sér málið fyrir þeirra hönd. Á
meðal þessara höfunda eru Da-
víð Stefánsson frá Fagraskógi,
Hulda, Steingr. Matthíasson, fyr-
ir hönd föður síns, ólína Andrés-
dóttir og ekkja Guðmundar Guð-
mundssonar, skólaskálds.
Bólcarastaðan við rafveituna hér var
á síðasta bæjarstjórnarfundi veitt
Bjarna Halldórssyni, hlaut hann 8 at-
kvæði af 11. Margar umsóknir um stöð-
una höfðu borizt.
Nýr kventannlæknir. Nýskeð hefir
lokið tannlæknaprófi frk. Guðurún Jó-
hannsdóttir úr Reykjavík, með hárri I.
einkunn.
Nýlega fóru tveir belgískir
flugmenn í flugkúlu upp í háloft-
in. Voru þeir útbúnir til að geta
verið 14 stundir þar uppi. Þeir
höfðu með sér stuttbylgjutæki, en
einhverra orsaka vegna biluðu
þau, svo mjög litlar og ógreini-
legar fregnir bárust af þeim á
fluginu. En að kvöldi sama dags
lentu þeir fyrirvaralaust í Jugo-
Slavíu, og gekk lendingin slysa-
laust. Höfðu þeir komizt upp í
16 km. hæð og segja, að mikill
vísindalegur árangur hafi orðið
að ferðinni.
Verkfalli
vörubifreiðastjóra í Minneapolis
í Bandaríkjunum er nú loks lok-
ið. Komu vinnuveitendur og bif-
reiðastjórar sér saman um samn-
inga í gær, og í dag hefja 6000
bifreiðastjórar vinnu á ný.
Jónas Rafnwr læknir leggur af stað
á morgun ásamt frú sinni til Reykja-
víkur og þaðan með fisktökuskipi til
Italíu. Er þeirra von heim aftur í
októberlok. í fjarveru Jónasar gegnir
Jóhanna Guðmundsdóttir, læknir, starfi
hans á Kristneshæli.
lslenzka/r bókmenntir í erlendum
þýðingum. í haust koma út í danskri
þýðingu bækur Halldórs Kiljan Lax-
ness »Þú vínviður hreink og »Fuglinn
í fjörunni«. Gunnar Gunnarsson, skáld,
hefir þýtt bækurnar, og bera þær, 1
dönsku þýðingunni, nafnið »Salka
Valka«.
Herbergi lil leigu
fyrlr einhleypan frá 1. okt.
næstk. Fæðissala getur
einnig komið til greina.
Aðalsteinn Tryggvason
Klapparstíg 3.
ÍK f Í1PI ^ me^ góðum
UI ö ö I borgunarskilmálum.
Aðalsteinn Tryggvason
Klapparstíg 3.
Ný epli
á kr. 1.30 kílóið.
Nýlenduvörudeild.
Sebusan
er ágætt meðal við hár-
flösu, fæst í
Nýlenduvörudeild.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.