Dagur - 15.09.1934, Qupperneq 2
290
DAGUR
'l 106. tbl.
Verkefni skipulagsnefndar.
9
Ilialdsandiiiii seg'ir til sin
i einkafyrirlíekiiiu.
Vetrarkápurnar
margeftirspurðu teknar
upp í dag.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild.
Nr. I. kostar
- II. -
18 aura pr. kg. ^
17 —------------t
^ Skepnufóðursrúgmjöl 15 — — —
&
i 5°|0 afsláttur gegn staðgreiðslu.
| Kaupfélag Eyfirðinga,
1| Nýlenduvörudeildin.
&
Starfsskrá Framsóknarflokks-
ins í atvinnumálum birtist í sam-
þykkt þeirri, er gerð var á síðasta
flokksþingi og birt var í »Ávarpi
til þjóðarinnar«. Þar ákveður
flokkurinn að
»Vinna gegn atvinnuleysinu með
því að:
a. Hafa framlög til verklegra
framkvæmda svo rifleg sem
unnt er.
b. Með aukinni ski'/ndagðri rækt-
un landsins.
c. Með auknum og betur skipu-
lögðum sjá/varútvegi.
d. Með því aö vernda og efla alls-
konar iðnað, einbum úr is-
lenzkum efnum.
Breyta tollalöggjöfinni iðnaðin-
um í hag«.
í stefnuskrá Framsóknarflokks-
ins er ennfremur ákvæði um að
vinna að því:
»Aö bankamir beini ekki út-
lánastarfsemi um hendur fárra
einstaklinga, eins og virðist hafa
verið venjan hingað til, heldur
fái framleiðendur til lands og
sjávar sem greiðastan aðgang að
lánsfé«.
i samningi þeim, er gerður var
um stjórnarsámvinnu milli Fram-
sóknarflokksins og Alþýðuflokks-
ins, hljóðar 1. gr. á þessa leið:
»Að skipa nú þegar nefnd sér-
fróðra manna til að gera tillögur
og áætlanir um aukinn atvinnu-
rekstur, framkvæmdir og fram-
leiðshc í landinu, svo og aubna
söhi, afurða utan- og innanlands.
Sé lögð áherzla á að efla þann at-
vinnurekstur, sem fyrir er og rek-
inn er á heilbrigðum gnmdvelli,
enda komið á opinbcru eftirliti
með hverskoymr stórrekstri til
tryggingar þvi, að hann sé rekinn
i samræmi við hagsmuni almenn-
ings. Opinberar ráðstafanir verði
síöan gerðar til aukningar at-
vinnurekstri í landiwu, eftir þvl
sem við verður komið«.
Auðséð er, að grein þessi er
byggð á starfsskrá Framsóknar-
flokksins, þeirri er áður getur.
Samkvæmt þessu hefir stjórn-
in, eins og áður hefir verið frá
skýrt, skipað fimm manna nefnd,
sem í eru þeir Jónas Jónsson, for-
maður Framsóknarflokksins,
Steingrímur Steinþórsson, skóla-
stjóri, Ásgeir Stefánsson, útgerð-
arstjóri í Hafnarfirði, Emil Jóns-
son, bæjarstjóri og Héðinn Valdi-
marsson, forstjóri, sem er for-
maður nefndarinnar.
Við val nefndarmanna' hefir
sýnilega verið lögð áherzla á, að
nefndin hefði þeim kröftum á að
skipa, sem verkefni hennar krefj-
ast. í nefndinni er einn höfuðfor-
vígismaður samvinnumálanna í
landinu, skólastjóri Samvinnu-
skólans, enda hljóta úrræði
nefndarinnar mjög að byggjast á
samvinnu. Annar nefndarmaður
er sérmenntaður í landbúnaði,
þriðji verkfræðingur, fjórði
framkvæmdastjóri togaraútgerð-
ar, en formaður nefndarinnar er
hagfræðingur og reyndur verzlun-
armaður.
Samkvæmt skipunarbréfi nefnd-
arinnar er verkefni hennar sem
hér segir:
»Að hafa meö höndum rann-
sókn á fjármálum ríkis og þjóðar
og á hverskonar atvinnurekstri í
landinu, framkvæmdum og fram-
lciðslu, svo og á sölu og dreifingu
afurða innanlands og utan og
verzlun með aðfluttar vörur.
Rannsókn þessi skal jafnt ná til
framkvæmda og atvinnureksturs
ríkis og bæja sem einstakra
manna og félagsfyrirtækja.
Nefndin láti rilcisstjórninni í té
skýrslur yfir niðvrstöður þessara
rannsólcna.
Að konui fram meö, að rann-
sókn þessan lokinni, rökstuddar
tillögur og sem nákvæmastar á-
ætlanir um aukinn atvimmrekst-
ur, framkvæmdir og framleiðslu
i landinu, þar á meðal stofnun
nýrra atvinnugreina, svo og um
það, lwernig komið verði á föstu
skipulagi á allan þjóðarbúskap-
inn, jafnt opinberar framkvæmd-
ir og fyrirtæki sem atvinnurekst-
ur einstaklinga, þannig, að þau
verði sem hagkvæmmt rekin og
aukin meö hagsmuni almennings
fyrir augum«.
Með skipun nefndar þessarar,
sem hlotið hefir nafnið skipulags-
nefnd, og verkefni því, er henni
er fengið í hendur, er stefnt að
tveimur meginmörkum: í fyrsta
lagi að aukningu atvinnurekstrar,
framkvæmda og framleiðslu í
landinu, og í öðru lagi að öll at-
vinnufyrirtæki í landinu verði
rekin og aukin með hagsmuni al-
mennings fyrir augum. Allar
framkvæmdir í þessum efnum
eiga að byggjast á undangenginni
rannsókn sérfróðra manna. Vit-
anlegt er, að fjárhagur ríkis og
einstaklinga byggist á rekstri og
afkomu atvinnuveganna. Af því
ætti öllum að vera það ljóst, að
starf skipulagsnefndarinnar er
afarmikilvægt fyrir alla þjóðar-
heildina. Þess vegna hefði mátt
vænta þess, að nefndarskipun
þessari hefði verið tekið með vel-
vild af öllum flokkum, eða að
minnsta kosti ekki með fjand-
skap. En það er öðru nær en svo
sé.
Ekki aðeins íhaldið í þrengrl
merkingu, heldur og einkafyrir-
tækið, sem nefnir sig »Bænda-
flokk«, hefir hafið óp mikið að
þessari stjórnarráðstöfun. Um
hana segir blað einkafyrirtækis-
ins meðal annars:
»Skilar því öfluglega í áttina
til fyrirheitna landsins, til sam-
eignarríkis sósíalista... Hvað er
nú orðið um lýðræðiskenningar
Framsóknarbroddanna. Nú þarf
hvorki að spyrja þing né þjóð
ráða eða álits, þó gerðar séu ráð-
stafanir, sem miða að því að koll-
varpa núverandi þjóöskipulagi...
Eyðslan og ráðleysið er í algleym-
ingi... Hin dauða hönd í’áðleysis-
ins er að leggjast á athafnalíf
þjóðarinnar...«.
Svo að ráðstafanir til aukins
atvinnurekstrar, framkvæmda og
framleiðslu í landinu er þá hið
sama og sigling þjóðarskútunnar
inn í sameignarríki sósíalista,
dráp allra lýðræðiskenninga og
kollvörpun á núverandi þjóð-
skipulagi! Sé stefnt að því að
reka atvinnuvegina með hags-
muni almennings fyrir augum, þá
er hin dauða hönd ráðleysisins að
leggjast á athafnalíf þjóðarinnar!
Þetta eru hinar nýjustu kenning-
ar »bændavinanna« í einkafyrir-
tækinu. Atvinnureksturinn má
ekki auka, framkvæmdir og fram-
leiðslu f landinu má ekki auka,
segir einkafyrirtækið, ekki má
heldur reka atvinnuvegina með
hag almennings fyrir augum, því
allt þetta miðar að kollvörpun nú-
verandi þjóðskipulags. Það verð-
ur að vernda núverandi þjóð-
skipulag með því að halda að sér
höndum, hítfast ekkert að ; það
verður að vernda núverandi þjóð-
skipulag með því að auka og efla
EKKI atvinnureksturinn, fram-
leiðslu og framkvæmdir í landinu,
segir einkafyrirtækið ennfremur.
Aðrar ályktanir en þessar verða
ekki dregnar út úr orðum þess.
Hvað sýnist mönnum? Er það
ekki hin dauða ráðleysisloppa
svartasta íhalds, sem einkafyrir-
Gleraugu í hornumgerð fund-
in á veginum frá Litla-Garði að Lækjar-
bakka. Réttur eigandi vitji til Jóns A.
Jónssonar, Grýtu.
tækið bregður hér á loft frammi
fyrir landslýðnum?
íhaldsandi einkafyrirtækisins
hefir nú sagt svo greinilega til
sín, að það getur ekki villt á sér
heimildir framar.
ÚTVARPIÐ.
Laugard. 15. sept. kl. 20 Útvarpstríóið.
kl. 21 Upplestur. Brynjólfur Jó-
hannesson. KJ. 21.30 Grammófóntón-
leikar. Kórsöngur. Danslög.
Sunnud. 16. sept. kl. 11 Messa í Dóm-
kirkjunni. Síra Bjami Jónsson. Kl.
15 Miðdegisútvarp. Kl. 18.45 Barna-
tími. Síra Friðrik Hallgrímsson. Kl.
20 Grammófóntónleikar. Kl. 21 Upp-
lestur. Halldór Kiljan Laxness.
Mánud. 17. sept. kl. 20 Útvarpshljóm-
sveitin. kl. 21 Erindi. Vilhjálmur Þ.
Gíslason. Kl. 21.30 Einsöngur. Pétur
Jónsson. Grammófóntónleikar. Dans-
lög.
Einwr Árnason alþm. biður þess get-
ið, að hann muni ekki sækja fundi þá,
er Garðar Þorsteinsson hefir boðað til
í kjördæminu.
Fréttaritstjóri:
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Ritstjóri Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.