Dagur - 20.09.1934, Síða 2
294
DAGUR
108. tbl.
Bráðabirgðalög um meðferð
og solu mjólkur og rjóma o.fl.
(Niðurl).
5. gr.
Þar sem aðeins eitt viðui’kennt
mjólkurbú er starfandi á verð-
jöfnunarsvæði, skal það annast
alla sölu á neyzlumjólk, rjóma og
nýju skyri á því svæði. Tekur
þetta einnig til þeirrar mjólkur,
sem undanþegin er verðjöfnunar-
gjaldi samkvæmt 2. gr., 2. mgr.
Þar sem fleiri en eitt mjólkurbú
eru starfandi á sama verðjöfn-
unarsvæði, skal öll sala á þessum
vörum fara fram frá einni mjólk-
urmiðstöð. Heimilt er stjórn sam-
sölunnar að taka í sínar hendur
sölu á öðrum mjólkurafurðum,
sem búin framleiða. Skulu öll
mjólkurbú og félög mjólkurfram-
leiðenda, sem samkvæmt lögum
þessum taka þátt í sölusamtökum
á svæðinu, skipa stjórn, sem ann-
ast söluna og allar framkvæmdir
sölusamlagsins.
Þar sem svo stendur á sem seg-
ir í 1. málsgr. skal öðrum óheim-
ilt að starfrækja sölubúðir með
mjólk, rjóma og nýtt skyr í hlut-
aðeigandi kaupstöðum og kaup-
túnum.
Skylt er mjólkurþúum, sem
fengið hafa einkaleyfi til þess að
starfrækja mjólkurbúðir, að sjá
um, að ætíð sé nóg neyzlumjólk
til sölu á þeim stöðum. öll mjólk
og allur rjómi, sem selt er sam-
kvæmt þessari grein, skal vera
gerilsneytt af viðurkenndum
mjólkurbúum. Þó getur landbún-
aðarráðherra veitt undanþágu um
mjólk, sem seld er í kauptúnum
og sveitum.
Um framleiðslu og meðferð á
mjólk handa ungbörnum og sjúkl-
ingum skulu sett ákvæði í reglu-
gerð í samráði við yfirstjórn heil-
brigðismálanna. Sala á þeirri
mjólk skal fara fram á sama hátt
og sala á annari neyzlumjólk.
Heimilt er landbúnaðarráðherra,
er sérstaklega stendur á, svo sem
ef mjólkurbú rekur aðra óskylda
starfsemi, að gera það skilyrði
fyrir viðurkenningu eða starfsemi
Jöggiltra mjólkurbúa, að þau taki
til gerilsneyðingar mjólk fyrir ut-
anfélagsmenn gegn sanngjörnu
gjaldi eftir samningi eða há-
marksverði, er ráðherra ákveður.
6. gr.
Ríkisstjórnin skipar 7 manna
nefnd, til eins árs í senn, í fyrsta
sinn til 1. maí 1935, til að hafa
á hendi stjórn mjólkursölumála
samkvæmt lögum þessum, og
nefnist hún mjólkursölunefnd.
Nefndin skal skipuð þannig:
Stjórn Mjólkurbandalags Suður-
lands tilnefnir 2 menn, skal ann-
ar tilnefndur af stjómendum
bandalagsins austan Hellisheiðar,
en hinn af stjórnendum þess vest-
an heiðar. Samband ísl. sam-
vinnufélaga tilnefnir 1 mann, Al-
þýðusamband fslands tilnefnir 1
mann, bæjarstjórn Reykjavíkur
tilnefnir 1 mann og landbúnaðar-
ráðherra skipar án tilnefningar 2
menn í nefndina og skal hann
skipa annan þeirra formann
nefndarinnar. Fulltrúi bæjar-
stjórnar Reykjavíkur víkur sæti
úr nefndinni, þegar hún hefir til
meðferðar málefni annara kaup-
staða eða kauptúna, og tekur þá
sæti hans fulltrúi tilnefndur á
sama hátt af hlutaðeigandi bæjar-
stjórn eða hreppsnefnd. Nú van-
rækir einhver aðili. að tilnefna í
nefndina og tilnefnir þá landbún-
aðarráðherra mann eða menn í
hans stað.
Fastir nefndarmenn séu búsett-
ir í Reykjavík, eða svo nærri
Reykjavík, að þeir geti mætt á
fundum þar þegar þörf krefur.
Þóknun til mjólkursölunefndar
skal vera að 3/7 hlutum greidd
úr verðjöfnunarsjóðum og að 4/7
hlutum úr ríkissjóði, og sé þókn-
unin ekki hærri en kr. 10.00 til
hvers fundarmanns fyrir hvern
fundardag. Annar óhjákvæmileg-
ur kostnaður við störf nefndar-
innar greiðist af sömu aðiljum og
í sömu hlutföllum.
7. gr.
Störf mjólkursölunefndar eru
aðallega þessi:
a. Að ákveða verðjöfnunarsvæð-
in.
b. Ákvörðun verðjöfnunar-
gjalds og yfirumsjón með inn-
heimtu þess, en falið getur hún
innheimtuna stjórnum mjólkur-
búa eða hverjum öðrum er hún
telur bezt henta-
c. Að hafa yfirumsjón með
verðjöfnunarsjóðum og ákveða
uppbætur úr þeim, ef stjórnir
viðurkenndra mjólkurbúa á verð-
jöfnunarsvæði koma sér ekki
saman um verðjöfnunina.
d. Að hafa eftirlit með því, að
gætt sé fyllstu hagsýni og sparn-
aðar í rekstri mjólkurbúanna, og
getur nefndin takmarkað verð-
uppbótina til þeirra búa, sem hún
telur hafa óhæfilega háan rekst-
urskostnað. \
e. Að hafa yfirumsjón með
samsölu mjólkur, sbr. 5 gr. Nú
verður ágreiningur milli mjólkur-
búa um skipun samsolustjórnar
eða um annað, er lýtur að skipu-
lagningu á verðlagssvæði, og sker
þá mjólkursölunefndin úr.
f. Að hafa eftirlit með því að
mjólkurafurðir verði ekki fluttar
til landsins, nema brýn nauðsyn
beri til, enda sé innflutningurinn
í höndum mjólkursölunefndar.
g. Að hafa eftirlit með vöru-
vöndun mjólkur og gefa fyrir-
skipanir, er að því lúta.
8. gr.
Skylt er mjólkurbúum og öðr-
um, sem verzla með mjólk og
mjólkurafurðir að láta mjólkur-
sölunefnd í té og hverjum ein-
stökum nefndarmanni, er kröfu
kann að gera um það, allar upp-
lýsingar og skýrslur sem hún ósk-
ar eftir um sölu mjólkur, kostnað
við sölu, flutninga og meðferð
mjólkur og annað, sem nefndinni
þykir máli skipta.
9. gr.
Nú eykst smjörframleiðsla í
landinu svo, að erfitt verður að
selja smjörið á venjulegan hátt,
og skal þá blöndun á smjörlíki
koma til framkvæmda eftir til-
Iögum mjólkursölunefndar og að
fengnu samþykki landbúnaðar-
ráðherra-
10- gr.
Ef mjólk eða rjóma þarf að
flytja til sölu milli verðjöfnunar-
svæða, skal ekki greiða verðjöfn-
unargjald af þeim vörum á út-
sölustaðnum, ef sannað er, að það
sé greitt á framleiðslusvæðinu.
Verði ágreiningur um heildsölu-
verð á þessum vörum, sker mjólk-
ursölunefnd úr.
11. gr.
Mjólkursölunefnd getur leyft,
að niður falli greiðsla verðjöfnun-
argjalds á einhverju verðlags-
svæði, ef mjólkurframleiðendur á
því svæði koma sér saman um á-
kveðið verð til framleiðenda á
svæðinu með eða án ákveðinna
hlutfalla í sölu mjólkur, rjóma og
annarra mjólkurafurða á aðal-
markaðsstöðum svæðisins eftir
fjarlægð frá markaðsstöðunum og
öðrum staðháttum.
12. gr.
Öll mjólk, sem viðurkennd
mjólkurbú taka á móti til sölu eða
vinnslu, skal metin eftir gæðum
við móttöku og flokkuð til verðs.
Við flokkunina skal að minnsta
kosti taka tillit til fitumagns
mjólkurinnar og gerlagróðurs í
henni. Nánari ákvæði um þetta
skal setja í reglugerð.
13- gr.
Landbúnaðarráðherra setur
reglugerð um framkvæmd laga
þessara og starfsemi mjólkursölu-
nefndar- Jafnframt er honum
heimilt að ákveða í reglugerð sér-
stöðu kúabúa, sem rekin eru af
bæjarfélögum eða ríki.
14. gr.
Brot gegn lögum þessum varða
sektum frá kr. 10.00 og allt að
kr. 10.000.00, nema þyngri refs-
ing liggi við samkvæmt lögum.
Sektir renna í verðjöfnunarsjóð.
15. gr-
Mál út af brotum gegn lögum
þessum og samþykktum og reglu-
gerðum, er settar kunna að verða
samkvæmt þeim, skulu sæta með-
ferð almennra lögreglumála.
16. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og
eru jafnframt úr gildi felld lög
nr. 47, 26. október 1917, um
mjólkursölu í Reykjavík og lög
nr. 97, 19. júní 1933, um heil-
brigðisráðstafanir um sölu mjólk-
ur og rjóma, svo og öll önnur á-
kvæði, sem fara í bág við lög
þessi. Lög þessi skulu endurskoð-
uð ekki síðar en á reglulegu Al-
þingi 1936.
Ákvæði um sfundarsakir
Mjólkursölunefnd skal þegar sjá um
að hafinn verði undirbúningur til sam-
sölu mjólkur, þannig að byrja megi
að framkvæma söluna eigi síðar en um
næstu áramót. Til þess tíma er fram-
leiðendum mjólkur, þrátt fyrir ákvæði
5. gr. laga þessara, heimilt að selja
mjólk sína ógerilsneydda beint til neyt-
enda innan bæjar eða sveitarfélags fram-
leiðenda, en gjalda skulu framleiðendur
til verðjöfnunarsjóðs samkvæmt lögum
þessum, og skal gjaldið miðað við
2500 lítra mjólkurmagn árlega á hverja
kú, sem siíkir framleiðendur hafa. Greiði
framleiðendur þessir ekki verðjöfnunar-
gjaldið á réttum tíma, getur mjólkur-
sölunefnd svipt þá heimild til sölu
mjólkur utan mjólkurbúanna.
Ákvæði þessi um stundarsakir öðlast
gildi samtímis framangreindum bráða-
birgðalögum, og varða brot gegn þeim
þar greindum viðurlögum-
Pollsflsknrinn.
Hvað lengi ætla Akureyringar að
eta hinn grútmagra og sóttmengaða
fisk, sem veiddur er rétt við munna ræs-
anna frá salernum og sjúkrastofum
bæjarins? — í langt um minni þorp-
um eru þegar komin ákvæði hve nærri
ræsum og öðru, sem er í sjóinn fleygt,
megi veiða og selja fisk til matar. En
Akureyringar ala æsku sína upp á gliti
því, er nefnist pollfiskur, og sem er
lítið annað en sóttkveikjur og næringar-
laus óþverri. Ég skora á stjórn bæjar-
ins og iækna að taka þetta mál til
meðferðar nú þegar. Þ, k.
1 Barnaföt
Kvenpils
Silkiundirföt 1
iiýkoitiin í miklu iirvali.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild.