Dagur - 27.11.1934, Síða 2
374.
DAGUR
136. tW.
Eldhúsdagur á Aiþingi.
Síðastl. föstudag var frv. til
fjárlaga fyrir árið 1935 til fram-
halds 3. umræðu í sameinulu
þingi. Hófust þá hinar svonefndu
elilhúsdagsumræður. Var þeim út-
varpað. Fyjstur tók til máls for-
maður »Bændaflokksins«, Þor-
steinn Briem. Deildi hann mjög á
ríkisstjórnina fyrir það, að húr.
skeytti lítt um hag bændanna en
hlynntí því meir að verkalýðnum
í kaupstöðunum. Sæist á því, að
hún væri háð vilja sósíalista og
beygð undir ok þeirra. Meðal
annars tilfærði hann máli sínu til
sönnunar lækkun mjólkurverðsins
í Reykjavík. Lækkunin hefði að-
eins verið gerð til hagræðis fyrir
neytendur og til að þóknast þeim
og væri öll á kostnað framleið-
enda. Gekk svo að segja öll ræða
Þ. B. í þá átt að vekja kala á
milli hinna vinnandi stétta,
verkamanna í kaupstöðum ann-
arsvegar og bænda hinsvegar.
Þá tók til máls formaður i'-
haldsflokksins, ólafur Thors.
Ræddi hann einkum um sjávar-
útveginn og leitaðist við að sýna
fram á, að sá atvinnuvegur væri
sokkinn niður í hina dýpstu
eymd. Eignir og skuldir útgerðar-
manna stæðust hér um bil á. út-
gerðarmenn væru kengbeygðir og
komnir í hinn mesta vesældarkút.
Skip þeirra væru að verða ryð-
brunnir og grautfúnir mann-
drápsbollar og allt væri eftir
þessu. Nú væri því hin brýnasta
þörf á því, að þing og stjóm
kæmi hér til skjalanna og rétti
þessa dýrkendur samkeppninnar
úr kútnum.
Næstur tók til máls forsætis-
ráðherra, Hermann Jónasson.
Hrakti hann ræðu Þorst. Br. lið
fyrir lið og sýndi fram á margs-
konar blekkingar, er hann hafði
haft í frammi, jafnvel bein ó-
sannindi. Kvað hann þenna fyrr-
verandi ráðherra ekki hafa haft
dug í sér til þess að koma í fram-
kvæmd skipulagning á sölu af-
urða bænda á innlendum markaði,
þó að þingið hefði veitt honum
heimild til þess. Það væri sið-
venja hans nú á þinginu, þegar
hann hleraði um einhverjar ráð-
stafanir stjórnarinnar til hjálpar
bændum, að hlaupa þá til og gera
yfirboð, en hann varaðist að
benda á fjáröflunarleiðir, til þess
a& mæta þessum yfirboðum hans.
Þau væru því ekki annað en lodd-
araskapur og til þess að sýnast.
Um lækkun mjólkurverðsins tók
hann það fram, aö hann hefði lát-
ið reikna út hag þann, er mjólk-
urframleiðendur, sem nytu mark-
aðar í Reykjavík, hefðu af skipu-
lagningu á sölu þeirrar vöru fram
að næsta nýjári, og sýndi sá út-
reikningur, að hagur framleið-
enda yfir þann tíma næmi um 14
þús. kr. og væri það nokkru
meira en það, sem neytendur
högnuðust á skipulagningunni á
sama tíma. Þessi hagur beggja
aðilja stafaði af því, að tekizt
hefði að lækka dreifingarkostnað
ipjóllíurinnar að nokkrum mun.
Það væru því ósannindi, að neyt-
endur einir græddu á skipulagn-
ingunni, eins og Þ. Br. hefði hald-
ið fram.
Þessu næst tók atvinnumálaráð-
herra, Haraldur Guðmundsson, til
máls. Taldi hann þess ekki þörf,
að hann tæki til meðferðar ræðu
Þorsteins Briem, eftir þá útreið
er hún hefði fengið hjá forsætis-
ráðherra. Sneri hann þá máli sínu
að ræðu ólafs Thors og kvað
hana þá dæmalausustu eldhús-
ræðu, er hann liefði nokkru sinni
heyrt. Hann kvaðst vera ólafi að
miklu leyti sammála um það, að
sjávarútvegurinn væri kominn í
aumt ástand og megna niðurlæg-
ingu. En hver heilvita maður sæi,
að hin mesta fjarstæða væri að
saka núverandi stjórn um þetta
ástand, þar sem hún hefði ekki
setiö að völdum nema fáa mán-
uði. Ástand sjávarútvegsins hefði
verið svona bágt, eins og ól. Th.
lýsti því, þegar núverandi stjórn
settist að völdum. Væri um
nokkra sök að ræöa í þessu efni,
þá hlyti hún fyrst og fremst að
eiga heima hjá útgerðarmönnum
sjálfum, og þá ekki sízt hjá hátt-
virtum þingm. Gullbringu- og
Kjósarsýslu, ólafi Thors sjálfum,
en þó héldi hann því fram, að
hann sæti inni með alla þekkingu
á þessum málum, en andstæðing-
ar hans væðu í myrkri van-
þekkingarinnar um þau. Atvinnu-
málaráðherra hélt því fram, að
ræða ólafs gæti alls ekki skoðazt
sem eldhúsdagsræða yfir stjórn-
inni, hún hlyti að verða ádeila á
útgerðarmennina og þá fyrst og
fremst eldhúsdagsræða yfir hon-
um sjálfum.
Mun það einsdæmi, að þing-
maður haldi eldhúsdagsræðu yfir
sjálfum sér, eins og formaður í-
haldsins gerði að þessu sinni. Að
sjálfsögðu hefir það verið óvilja-
verk. En það sýnir mætavel
grunnfærni og buslugang þessa
þingmanns.
Að þessu sinni tók Eysteinn
Jónsson fjármálaráðherra síðast-
ur til máls. Hann sýndi fram á
tvær ólíkar stefnur, er uppi væru
i þinginu. Stjórnin og flokkar
þeir, er aö henni stæðu, vildu efla
atvinnulífið í landinu með rífleg-
um fjárframlögum, eúns og fjár-
lagafrumvarpið bæri með sér. Um
leið væri kaupgeta almennings
aukin í landinu eða jöfnuð og
færð til, flutt þaðan sem hún
væri óþarflega mikil og til þeirra,
sem hefðu hana af of skornum
skammti. íhaldið segðist vilja
spara, en sá sparnaður kæmi ein-
göngu niður á verklegum fram-
kvæmdum. Ráðherrann benti á
það, að í sömu andránni sem
Magnús prestakennari vildi láta
lækka kaup algengra verka-
manna og skerða þannig kaup-
getu þeirra, heimtaði hann kaup-
hækkun handa sjálfum sér fyrir
kennslustarf sitt. Þetta kallaði
/mnn »gætilega fjármálastefnu«
Þá sannaði fjármálaráðherra það
með tilvitnun í framkomnar
Sjóvátryggingarfélag /
íslands h. f.
|AI-íslenzktfélag. / OJUIflU f 99111031.
Brunatfiiar.
Hvergi lægri iðgjöld. "■
UmboÖ d Akureyri:
Kaupfélag Eyfirðinga,
breytingartillögur íhaldsins og
»bændavinanna« við íjárlagafrv.,
að þessir tveir flokkar vildu í
sameiningu, að þingið afgreiddi
fjárlögin með 3 '/e millj. kr. tekju-
halla, og var þá tekin til greina
sú stefna íhaldsins, sem það hefir
margsinnis lýst yfir, að leggja
niður nokkur ríkisfyrirtæki, sem
veita 3/4 millj. kr. gróða í ríkis-
sjóðinn. Að vísu hefðu íhalds-
menn ekki þorað að bera fram til-
lögur á þinginu í þessa átt, af því
þeir vissu, að það mæltist illa
fyrir úti á meðal kjósenda.
Bækur og rit.
I* Nýjustu harmoniku-
I f plöturnar nýkoniuar:
Jön Gnðmann.
Srammofonar, ^góðir, ódýrir
fást hjí Jónl Guðmann.
meistara. Ennfremur eru i ritinu:
Ávarp til gagnfræðinga 1934 og
»Framtíðarhorfur og þroskakjör
stúdenta um síðustu aldamót og
nú«, flutt fyrir Akureyrarstú-
dentum 1933, hvorttveggja eftir
Sigurð Guðmundsson, skólameist-
ara. —
Kostnaður hvers félaga í
heimavist skólans var frá 1. okt.
til 12. júní kr. 392.70, eða kr. 1.54
á dag.
Eimreiðin, 3. h. þ. á., er komin
út fyrir nokkru. úr efnisyfirlit-
inu má nefna: Við þjóðveginn,
eftir ritstjórann. Eldgosið við
Grímsvötn 1934, eftir Guðmund
Einarsson. Ást og vinátta (saga).
Þjóðskipulag og þróun, eftir Jón
Árnason prentara. Auk þess
nokkur kvæði, ritsjá og ýmislegt
fleira.
Iðunn, 1.—2. h. þ. á., er komin
út fyrir nokkru. Halldór K. Lax-
ness skrifar þar um Stefán skáld
frá Hvítadal og auk þess nokkr-
ar smágreinar. í þessum heftum
er niðurlag af ritgerð eftir R. E.
Kvaran: Framvindan og sagan;
saga eftir Knut Hamsun. Ásgeir
Magnússon skrifar um »mannúð-
ina í Vesturheimk (þýtt) og Ste-
fán Einarsson um Guðmund G.
Hagalín. Skúli Guðjónsson ritar
um hið »hempuldædda árásarlið«
(svar til sr. Benjamíns Kristjáns-
sonar). Ennfremur eru í ritinu
nokkur kvæði og ritdómar og fl.
smávegis.
Menntaskólinn d Akureyri. —
Skýrsla skólans fyrir skólaárið
1933—1934 hefir blaðinu verið
send. Auk hinnar venjulegu
skýrslu um skólahaldið eru í rit-
inu tvær ferðasögur, önnur um
Suður-Þingeyjarsýslu, rituð af
Steindóri Steindórssyni kennara,
hin um Húnaþing, rituð af skóla-
NÆTUELÆKNAR: Miðvikudagsnótt
Jón Steffensen. Fimmtudagsnótt Pétur
Jónsson.
Félar/ vcrzlunar- orj skrifstofufólks
heldur fund á morgun — miðvikudags-
kvöldið 28. þ. m. kl. 8%. Áríðandi mál
á dagskrá. Einnig' skemmtiatriði.
Sigv/rðwr Slcagfield, hinn góðkunn!
söngvari, kom hingað með »Dettifossi«
í gær og ætlar að syngja hér.
í Ameríku hefir hann hlotið ýms
lofsamleg ummæli fyrir söng sinn þar.
T. d. skýrir blaðið Lögberg svo frá 7.
júní síðastl.:
»Sigurður Skagfield hélt kveðju-
hljómleika sína í kirkju Sambands-
safnaðar á fimmtudagskveldið 31. maí,
við fremur góða aðsókn.
Söngmanninum var tekið mjög vel og
varð hann að syngja mörg lög auk
þeirra, sem á söngskránni voru.
Mr. Skagfield söng tvö lög íslenzk,
sem menn höfðu ekki áður heyrt hér
vestra. Þau voru Næturgali og Kveld-
ljóð, eftir Áskel Snorrason frá Akur-
eyri. Ræði voru þau mjög falleg, sér-
staklega hið fyrrnefnda. Einnig söng
hann lagið »Vor«, eftir Jón Friðfinns-
son. Því lagi var tekið með miklum
fögnuði og var höfundur kallaður fram
á söngpallinn, á meðan lagið var sung-
ið í annað sinn.
Fréttaritstjóri:
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prontsmiðja Odds Björnssonar.