Dagur - 17.01.1935, Síða 4
3. tbl.
12 DAGUR
Jörð til leigu.
Jörðin Mýrarlón í Glæsibæjarhreppi er laus til ábúðar í næst-
komandi fardögum. Efíirgjald er áskilið kr. 1000.00 og má
væntanlegur ábúandi vinna af sér helming þess í jarðabótum.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu mína fyrir lok febrúar-
mánaðar næstkomandi.
Bæjarstjórinn á Ákureyri, 16, jan. 1935.
Síeinn Steinsen.
Sigurðar var fremur naum og
gróðagjörn.
Svona heyrði ég sagt frá þess-
um atburðum, þegar ég var
drengur, af gömlu fólki, bæði
ömmu minni, sem fædd var 1831,
og Kristjáni á Hamri á Þelamörk,
iæddur um eða fyrir 1830, föður
mínum o. fl., og var það einmitt
eftir xrásögn eða játningu Ste-
fáns »svera«, sem hann hafði gert
undir andlátið. Þetta kemur enn-
fremur heim við Guðbjargar-
draum, sem álitinn var að standa
í sambandi við þetta mál, þannig
að þar voru mennirnir tveir, sem
harðast sóttu að Guðbjörgu í
draumnum.
Ritað í skammdeginu 1934.
ólafur Jónsson.
Milt veður,
oftast aðgerðalitlar þíður og
dumbungar, hafa gengið lengi nú
undanfarið, og mun láglendi all-
staðar rautt norðanlands. —
Þó hefir brugðið til aðgerða-
meiri þeyvinda síðustu daga. —
Virðist Golfstraumurinn ekki enn
ætla að gera endasleppt við oss
Norðurheimsbúa. T. d. hermir út-
varpsfregn frá Skotlandi nýlega,
að þetta sé, enn sem komið er,
mildasti vetur, er í manna minn-
um hafi komið á vesturströnd
Skotlands. Hafa rósir og önnur
hásumarblóm verið að springa út
í görðum þar, nú um hátíðirnar
og muna ekki elztu menn eftir
slíku fyrirbrigði. — Svipað má
segja héðan af landi, hafa sóleyj-
ar sprungið út í vörpum bæði
sunnan- og austanlands.
Annars er það hin mesta náð-
argjöf, að hafa fengið þetta blíð-
viðri nú í skammdeginu, svo
hryssingslega sem veturinn lagð-
ist að hér nyrðra, eftir voðalegt
sumar bændum og búalýð. Eiga
bændur sannarlega nógu erfitt
uppdráttar þótt tíð sé góð, því að
allstaðar berast fregnir að um
stórfelld fóðurbætiskaup hér
nyrðra, til þess að vega, sem auð-
ið er, gegn hinum langhrakta
heyfeng sumarsins.
Dána/rdægur. Nýlega er látinn að
heimili sínu, Sölvahlíð í Sölvadal, Guð-
mundur Friðfinnsson fyrrum bóndi
þar, háaldraður maður og karlægur
síðustu árin. í Sölvahlíð hafði Guð-
I
rnundur sál. dvalið í nærfellt 50 ár
samfleytt. Hann var kvæntur Rósu
Jónasdóttur frá Finnastöðum í Sölva-
dal, sem dáin var á undan honum.
Einkasonur þeirra er Páll, sem tók við
búi af föður sínum í Sölvahlíð fyrir
mörgum árum og býr þar enn,
Aðalfundur
Akureyrardeildar K. E. A.
verður haldinn í Nýja-Bíó, mánudaginn 21. þ. m., og hefst kl.
8 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. — Deildarmenn
áminntir um að mæta síundvíslega.
Akureyri 16. janúar 1935.
Deildarstjórnin.
Brauðgerðararðmiðum
fyrir árið 1934 verða félagsmenn að hafa skilað á skrifstofu
okkar fyrir 15. febrúar n. k. ef þeir vilja verða aðnjótandi vænt-
anlegrar arðsúthlutunar brauðgerðarinnar.
Kaupfjelag Eyfirðinga.
Húseign mín
við Oeislagötu 39 er til sö!u. — 3 stofur, 3 herbergi, eld
hús, baðherbergi, þvottahús og geymslur. Verð ca. 13000 kr.
Peir, sem æt!a að kaupa eða byggja hús, ættu að tala við
mig sem fyrst og skoða þessa húseign.
Sveinn Tómassoii.
i
Vestf.- og Breiðfirðingamót.
í ráði er að halda hér í bænum Vestf,- og Breiðfirðingamót, um eða eftir
n. k. mánaðamót, ef nægileg þátttaka fæst.
Áskriftarlistar að mótinu liggja frammi f verzl. Esju, á rakarastofu Sigfúsar
Elíassonar, hjá Ólafi Daníelssyni, saumastofu Gefjunnar og hjá Sigurði Krist-
jánssyni, Menntaskólanum. Nánari upplýsingar fylgja áskriftarlistunum.
ALPA LAVAL
A. B. Separstor í Stokkhólmi er eitt af þeim fyrirtækjum Svía, er mest
og best hefir stutt að því að gera sænskan iðnað heimsfrægan.
í meira en hálfa öld hafa ALFA LAVAL vélarnar verið viður-
kenndar sem beztu og vönduðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum, enda
hefir verksmiðjan hlotið yfir 1300 FYRSTU VERÐLAUN
Reynslan, sem fengist hefir við að smiða meira en 4.000.000 A!fa
Laval skilvindur, er notuð út í æsar til þess að knýja fram nýjar og
verðmætar endurbætur. Hið nýjasta i þessu sviði er:
Algerlega ryðfríar skilkarlsskálar
og algerlega sjálfvirk smurning.
Vér höfum þessar tegundir af hinum nýju endurbættu ALFA LAVAL
skilvindum á boðstólum:
Alfa Laval Nr, 20 skilur 60 lftra á klukkustund
— 1 — - 21 - 100
— 1 — - 22 - 150
- 23 - 525
Varist að kaupa léiegar skilvindur. — Biðjið um
ALPA LAYAL.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Fréttaritstjóri: Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Sigfús Halldórs frá HSfnuw. Prent.Rmiðja Odds BjömsHotmrT
Laus jörð.
Hlunnindajörðin Slelá
í Árskógsstrandarhreppi er
laus til ábúðar næsta vor.-
Hámundarstöðum 3. jan. 1935,
Davíó Sigurðsson,
lörl Ytri-Brenoilióll
í Kræklingahlíð er til sölu
nú þegar. >
Væntanlegur kaupandi snúi
sér til undirritaðs.
Kristján Árnason.
Hjóiiarím sg servant
til sölu með tækifæris-
verði í Brekkugötu 7.
Jóhanna §igucðardótfic.
Tilkynning.
Að gefiiu tilefni skal það tekiö fram,
að enginn hefir leyfi til að nota björgunar-
tæki Slysavarnafélags íslands, sem eru á
hafskipabryggjum Akureyrarkaupstaðar
nema um björgun manna frá druknun
8é að ræða. Akureyri 14. jan- 1935.
Olgeir Júlíusson
. hafnarvörðun
Sigurður Sigurðssou
búnaðarmálastjóri,
hefir sagt af sér frá 1. janúar
1935, að því er útvarpsfregn
hermir, en hefir þó lofað að sitja
fyrstu fjóra mánuðina til þess að
Ijúka við yfirlit yfir 10 ára sögu
jarðræktarlaganna. Eru eftirlaun
hans ákveðin af Alþingi 4500 kr.
á ári. — Metúsalem Stefánsson
hefir, verið settur búnaðarmála-
stjóri unz Búnaðarþing kemur
saman.
Sigurður búnaðarmálastjóri á
svo merkilegan og stórfelldan
þátt í framförum íslenzks land-
búnaðar, að því starfi verður ekki
í fám orðum lýst né fullþakkað.
Útflutningw minnkar stórkostlega
á verkuðum saltfiski, svo að í desem-
ber síðastliðnum hafði verið flutt út
fyrir um 1 milljón krónum minna af
honum en í desember í fyrra.
MESSAÐ í Lögmannshlíð á sunnu-
daginn kemur, kl. 12 á hádegi. (Ferm-
ingarbörn eru beðin að koma. til við-
tals).