Dagur - 21.03.1935, Blaðsíða 2
46
DAGUR
12. tbl.
Þríhyrningur dæmir
alkunna gáfu-og sæmdar-
menn heimskaog illgjarna.
Þríhyrndi rithöfundurinn skrif-
ar grein í siðasta ísl. um sam-
vinnufélögin og þó sérstaklega
um K. E. A., og er vikið að einu
atriði hennar (nauðsyn kaup- ’
manna til að greiða útsvör) á
öðrum stað hér í blaðinu. I á-
minnstri grein er meðal annars
þessi klausa:
»... getur enginn sæmilega
greindur maður, sem vill þjóð
sinni vel, haldið fram þeirri fjar-
stæðu, að sanngimi sé í þeirri
löggjöf, er slíkt misrétti helgarc.
Löggjöfin, sem greinarhöf. á
við, eru skattskylduákvæði sam-
vinnulagaxma frá 1921, og standa
þessi tilfærðu ummæli í sambandi
við. samanburð höf. á skattskyldu
hlutafélaga og samvinnufélaga,
er hann segist engan mun sjá á,
þó að hlutafélögin séu yfirleitt
stofnuð og starfrækt, til þess að
einstökum mönnum græðist fé, en
samvinnufélögin vinni til gagns
öllum almenningi. Þenna mikla
mun getur blindur fjandmaður
samvinnustefnunnar ekki eygt og
má með góðum vilja virða honum
það til vorkunnar. Svar við meg-
inhluta þessarar íslendingsgrein-
ar verður að bíða næsta blaðs, en
hér skal aðeins vikið að þeim
dæmalausa sleggjudómi, er þríh.
kveður upp í hinum tilfærðu um-
mælum hans hér á undan.
Hann segir, að enginn sæmi-
lega greindur maður, sem vilji
þjóð sinni vel, hafi getað sett
skattskylduákvæði samvinnufé-
laga í samvinnulögin.
Hverjir voru það, sem unnu að
þessari samvinnulöggjöf og beittu
sér fyrir því, að hún kæmist á?
Meðal annara voru það þeir
Pétur á Gautlöndum, ólafur
Briem og sfðast en ekki sízt Hall-
grímur Kristinsson, allir valin-
kunnir sæmdar- og gáfumenn og
föðurlandsvinir.
Alla þessa áhugasömu ágætis-
menn fyrir velfarnaði þjóðarinn-
ar stimplar leigutól kaupmanna
sem ógreinda menn, heimskingja,
er hafi viljað þjóð sinni illa, ver-
ið föðurlandssvikarar.
Hvað segja Skagfirðingar um
þenna dóm yfir ólafi Briem?
Hvað segja Þingeyingar um
þenna vitnisburð til handa Pétri
á Gautlöndum? Hvað segja Ey-
firðingar um það, að Hallgrímur
Kristinsson hafi verið ógreindur
og ekki viljað þjóðinni vel?
Og hvað segja yfrleitt allir fs-
lendingar um þenna sleggjudóm
þríhyrningsins í fsl. ?
Svörin geta ekki orðið nema á
einn veg. Dómurinn er blygðunar-
laus svívirðingyfirþjóðnýtu starfi
og minningu þeirra ágætismanna,
sem hér eiga hlut að máli. En sú
er bót í máli, að hann rýrir þá á
engan hátt. Hann er og verður
þeim einum til smánar, sem hann
hefir upp kveðið,
En dónnirinn nær auðvitað til
fleiri manna en hér hafa verið
nefndir og þá sérstaklega til
þeirra þingmanna, sem greiddu
atkvæði með þeirri grein sam-
vinnulaganna, er ákvað skatt-
skyldu samvinnufélaga, en um
hana voru atkvæði greidd með
nafnakalli. í efri deild var grein-
in samþykkt með öllum atkvæð-
um gegn tveimur, en í neðri deild
með 21 atkv. gegn 5.
Allir þeir þingmenn, er atkvæði
greiddu með umræddri grein sam-
vinnulaganna, falla því undir
þann dóm þríhyrningsins að vera
ógreindir og vilja þjóð sinni ekki
vel. Það er nálega allt Alþingi
1921, sem fær þenna dóm. En hið
kátbroslegasta af öllu er, að
Magnús Guðmundsson fellur und-
ir dóminn. Hann var einn þeirra
þingmanna, er greiddu atkvæði
með samvinnulögunum. Magnús
Guðmundsson er því að dómi þrí-
hymingsins heimskingi og ósann-
gjarn, er vill þjóð sinni illa.
Dagur leiðir sinn hest frá því
að dæma um réttmæti þessarar
þungu ásökunar á hendur M. G.
En það mun þeim finnast, er til
þekkja, að hún komi úr óvæntri
átt.
Rökin fyrir ákvæðum sam-
vinnulaganna um skattskyldu
samvinnufélaga er að finna í
greinum þeim, er birzt hafa hér
í blaðinu um þetta efni nú að
undanförnu. Meðan isl. reynir
ekki að hnekkja þeim rökum,
stendur hann berskjaldaður fjnrir
í málinu.
Úrskurður yfir-
skattanefndar.
/
Verzlunarfræðingur íhaldsins,
sá er ritar í fsl. undir þríhyrn-
ingsmerkinu, finnur að því, að
»Dagur« skyldi aðeins birta fyrri
hlutann af úrskurði yfirskatta-
nefndar Eyjafjarðarsýslu og Ak-
ureyrar gagnvart útsvarskæru K.
E. A. Nefnir greinarhöf. þessa
aðferð »óráðvendni og lítt for-
svaranlega meðferð á opinberum
heimildumc.
Auðsýnilega ætlar höf. að koma
því inn í lesendur sína, að Dagur
hafi ekki þorað að birta síðari
hiuta úrskurðarins, af því að
hann komi í bága við fyrri hlut-
ann! Til þess að sýna fram á að
þetta er blekking ein, skal úr-
skurðurinn hér með birtur í heilu
lagi. Hann hljóðar svo samkvæmt
staðfestri útskrift úr gerðabók
yfirskattanefndarinnar:
»Það verður ekki fallist á úr-
skurð niðurjöfnunarnefndar, um
að Kaupfélagið megi ekki draga
útsvar frá fyrra ári frá hagnaði
af utanfélagsverzlun, þar sem í
lögum um útsvör Nr. 46 frá 15.
júní 1926, 6. gr. II. 2 stendur, að
samvinnufélög greiði útsvör af
arði sakir skipta við utanfélags-
menn með sama hætti og kaup-
menn á staðnum.
Hinsvegar þegar tekið er tillit
til, að Kaupfélagið hefir svo
mikla veltu í utanfélagsviðskipt-
um og þegar á það er litið, hve
utanfélagsverzlun félagsins stend-
ur á sterkum stoðum, þar sem
ramminn um hana er allar eignir
Kaupfélagsins og fastir viðskipta-
menn þess, og þegar enn er á
það litið, hve þörf bæjarins er
mikil, þá verður ekki hægt að
færa það niður um meira en kr.
5000.00.
Þri urskurðasf:
útsyar Kaupfélags Eyfirðínga
lækkar um krónur 5000.00 —
fimm þúsund krónur.«
ísl. heldur því fram, að síðari
hlúti úrskurðarins beri það með
sér, að yfirskattanefndin hafi
ekki viljað fallast á, að skýrsla
framkvæmdastjóra fyrir hönd fé-
lagsins hafi verið rétt, þar sem
hún hafi ekki fært útsvarið meira
niður en um 5000 kr. En þetta er
vísvitandi ranghermi og blekking.
Yfirskattanefndin véfengir hvergi
skýrslu félagsins, eins og menn
geta nú séð, þegár þeir lesa úr-
skurð hennar. Ástæðurnar fyrir
því, að hún færir útsvarið ekki
niður um meira en 5000 kr. eru
allt aðrar en röng skýrslugerð.
Ástæður nefndarinnar eru þrjár:
í fyrsta lagi, að félagið hafi svo
mikla veltu, í öðru lagi að verzlun
félagsins standi á svo sterkum
stoðum, og í þriðja lagi sé þörf
bæjarins svo mikil.
Allir sjá, að þessar ástæður
koma hvergi nærri rangri
skýrslugerð og styðjast ekki á
nokkum hátt við grun um skatt-
svik, eins og verzlunarfræðingur
íhaldsins er við og við að gefa I
skyn.
Framangreindan úrskurð felldu
þeir Steingrímur Jónsson fyrrv.
bæjarfógeti, Jakob Karlsson, sem
varamaður fyrir Böðvar Bjarkan,
og Alfreð Jónasson fyrrv. toll-
vörður, nú meðritstjóri íslend-
ings.
Greinarhöfundur telur Steingr.
Jónsson framarlega í samvinnu-
málum, en getur aftur á móti
ekki um afstöðu Jakobs Karlsson-
ar í því efni og mun það eiga að
skiljast svo, að hann sé á önd-
verðum meið við samvinnustefn-
una. Hér skal enginn dómur á
það lagður, hvort það er rétt
skoðun. En sé gengið út frá því,
þá er það kunnugt um Alfreð
Jónasson, að hann muni fremur
hallast á sveif með kaupmönnum
en K. E. A. En því eftirtektar-
verðara er það fyrir greinarhöf-
und, að úrskurðurinn skyldi falla
á þá leið, að K. E. A. hefði rétt
fyrir sér um skýrslugerðina, en
niðurjöfnunarnefnd rangt, ef
andstæðingar samvinnustefnunn-
ar vorp í meiri hluta í yfirekatta-
nefnd.
Að lokum skal þessari spum-
ingu beint til hins þríhyrnda
verzlunarfræðings, sem svo mjög
beitir samanburðarvísindum sín-
um að K. E. A. og dylgir um
skattsvik félagsins:
Hefir hann veitt því eftirtekt,
að tveimur gjaldþegnum bæjar-
ins, sem munu standa honum
nokkuð nærri, hefir hvað eftir
annað opinberlega verið valið
nafnið »skattsvikarar«, án þess
að þeir hafi gert nokkra tilraun
til andsvara eða að hreinsa sig
af ámælinu?
Vill nú ekki þessi ritari ísl.
»spandéra« einhverju af saman-
burðarþekkingu sinni í skatta-
málum á þessa vini sína? Ef
hann treystir sér ekki til þess
einhverra hluta vegna, þá gæti
Dagur kannske eitthvað aðstoðað
hann í því efni.
Nætwlæknar næstu viku:
Pöstudagsnótt: Jón Geirsson.
Laugardagsnótt: Jón Steffensen.
Sunnudagsnótt: Pétur Jónsson.
Mánudagsnótt: Vald. Steffensen.
Þriðjudagsnótt: Ámi Guðmundsson.
Miðvikudagsnótt: Jón Geirsson.
Fimmtudagsnótt: Jón Steffensen.
HW»WWt»HHHW»W
■Mi *g
S Höfum nú fengið SS
mikiar birgðir af málnlngavðnmi oHj
svo nú er óþarfi að eyða tímanum í JJJj
að leita að því sem þér þurfið. Kom-
ið beint til okkar og þér fáið það
sem yður vantar.
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild/
m
m