Dagur - 24.04.1935, Page 2
68
DAGUR
17. tbl.
Aðalfundur
Kaupfélags 0yfírðinga.
Fundurinn hófst mánudaginn
15. apríl, M. 10y2 f. h., í Nýja
Bíó, og stóð yfir í 3 daga; var
honum loMð M. 7 síðd. á mið-
vikudagskvöldið fyrir skírdag.
Mættir voru 110 fulltrúar og
auk þess stjórn félagsins, fram-
kvæmdarstjóri og endurskoðend-
ur; ennfremur margir aðrir fé-
lagsmenn víðsvegar af félags-
svæðinu.
Fundarstjóri var kosinn Hólm-
geir Þorsteinsson bóndi á Hrafna-
gili, en hann kvaddi sér til að-
| stoðar Elías Tómasson bónda á
Hrauni. Skrifarar fundarins voni
þeir Sigtryggur Þorsteinsson og
Bjöm Jóhannsson á Laugalandi.
Framkvæmdii félagsins.
Samkvæmt skýrslu stjómarinn-
ar voru helztu framkvæmdir fé-
lagsins á árinu 1934 sem hér
segir:
Keypt íshús á Dalvík, það inn-
réttað og settar i það frystivélar.
Keypt landspilda norðan við
land kaupfélagsins á Dalvík, á-
samt mannvirkjum öllum, fjöru
og sjávarréttindum fyrir landinu.
Sölubúð félagsins á Dalvík var
fullgerð og tekin til afnota í
haust.
Félagið lánaði efni í 2 brýr í
Svarfaðardal og til Svarfaðar-
dalsvegar, alls 10 þús. kr., gegn
greiðslu í rikisskuldabréfum.
Sett á stofn verzlunarútibú í
Hrísey.
Stjómin setti reglugerð um
ræktunarlán K. E. A. 1. júní.
Félagsstjómin ákvað, að félag-
ið legði fram 10 þús. kr. til land-
sk j álftasamskotanna.
Bygging á leigulóð félagsins við
Hafnarstræti 89 hófst 21. ágúst
og hefir verið unnið að henni síð-
an og er byggingunni nú svo
langt komið, að innan skamms
verður hægt að flytja kjötbúð fé-
lagsins þar inn.
Við athugun kom það í ljós, að
vandkvæði vom á að koma brauð-
gerð félagsins fyrir á annari hæð
( hússins og yrði þá að líkindum
að flytja hana á 3. hæð þess, en
þá var hætta á, að það gæti ekki
komizt i kring nægilega fljótt.
út af þessu var rætt um mögu-
leika til að byggja brauðgerðar-
húsið ofan á húsi Jóns Guðmanns
kaupmanns, sem þá yrði á sömu
hæð og önnur hæð nýbyggingar-
innar, og um samninga þar að
lútandi. Tókust síðan samningar
um þetta efni og bygging hafin
8. okt. Var brauðgerðin síð^n
flutt þangað 27. febr. sl. Er nú
þarna komið upp nýtízku brauð-
gerðarhús með fullkomnasta út-
búnaði.
Hinn 24. nóv. sl. lagði fram-
kvæmdarstjóri fram fyrir stjóm-
ina konunglegt leyfisbréf, dags.
3. okt. sl., til handa K. E. A. til
að setja á stofn og reka lyfjabúð
á Akufeyri. út af þvi samþykkti
stjórnin að láta þegar hefjast
handa með framkvæmd á stofn-
un lyfjabúðar. Vegna þess ákvað
stjómin að láta útbúa rúm fyrir
lyfjabúð á annari hæð í nýbygg-
ingu félagsins við Hafnarstræti
89. Jafnframt ákvað stjórnin, að
ráðinn skyldi, eftir tilvísun og
meðmælum landlæknis, Holger
Mikkelsen lyfjafiæðingur í
Reykjavík til að vera forstjóri
lyfjabúðarinnar. Er lyfjafræðing-
ur þessi danskur maður, en talar
vel íslenzku. Vonast stjómin til,
að lyfjabúðin geti tekið til starfa
næsta haust.
Vegna þess hvað hey nýttust
illa sl. sumar, gerði stjómin á
síðasta hausti ráðstafanir um
kaup á miklum fóðurbæti, þar á
meðal 250 smálestum síldarmjöls.
í nóvember sl. réðist stjómin í
að kaupa norska skipið »Kongs-
haug«, sem strandað hafði á
Siglufirði, fyrir norskar krónur
13.500. Gekkst stjómin síðan fyr-
ir að stofnað var hlutafélag til
að kaupa og starfrækja skipið,
þar sem K. E. A. á kr. 47.500 af
50 þús. kr. hlutafé. Hefir skipið
verið sent til Noregs til viðgerðar
og gefið nýtt nafn og heitir nú
»Snæfell«.
Rekstar félagsins
árið 1934.
f sambandi við reikninga fé-
lagsins rakti framkvæmdastjóri í
langri ræðu starfrækslu félagsins
árið 1934 og skýrði fyrir fundar-
mönnum afkomu þess á árinu.
Skal hér drepið á helztu atriðin
úr ræðu hans:
Vörusalan hefir orðið tæpum
600 þús. kr. meiri en 1933. Auk
þeirra verzlunardeilda, sem voni
starfræktar 1933, var á árinu
opnuð sérstök skódeild og bíla-
hluta- og viðtækjadeild. Á árinu
hefir félagið starfrækt 17 búðir
og útsölustaði.
Mjög hefir verið lagt kapp á
að selja vörumar ódýrar; má
fullyrða að K. E. A. hefir verið
með allra ódýrustu verzlunum
landsins árið 1934, engu síður en
árið 1933.
Smjörlíkisgerðin og brauðgerð-
in hafa aukið framleiðslumagn
sitt að verulegum mun. Arður af
þessum rekstri hefir þó orðið
minni en árið á undan, sem staf-
ar af því að alveg sérstakt kapp
hefir verið lagt á að gera vör-
urnar sem , beztar og hráefna-
reikningur þar af leiðandi hækk-
að, en jafnframt var útsöluverð
lækkað.
Verksmiðjurnar »Sjöfn« og
»Freyja« hafa einnig aukið fram-
leiðslumagn sitt. Sjöfn hefir á
árinu fengið önnur húsakynni en
áður og hefir aukið vélar sínar
að miklum mun; er hún nú full-
komnasta sápuverksmiðja lands-
ins, sem framleiðir beztar sápur
af öllum tegundum.
Pylsugerð byrjaði félagið að
starfrækja snemma á árinu, og
hefir framleiðslan farið fram í
húsakynnum kjötbúðarinnar, þar
sem vélarnar voru settar niður til
bráðabirgða.
F óðurblöndunarvélar voru
keyptar á árinu og byrjað að
starfrækja þær um áramótin síð-
ustu. Hefir félagið síðan eingöngu
selt fóðurblöndu, sem blönduð er
í þessum vélum.
Kjöt- og síldarfrysting hefir
verið starfrækt í fimm eigin
frystihúsum: Á Akureyri, Dalvík,
Ilrísey, Svalbarðseyri og Siglu-
firði.
Sala framleiðsluvara. Móttekn-
ar sláturfjárafurðir, ull og mjólk,
hafa orðið miklu meiri að magni
og verði en næsta ár á undan.
Aukningin er 40 þús. kg. kjöt, 9
þús. kg. gærur, 4 þús. kg. ull og
196 þús. kg. mjólk. Verðhækkun
samtals um 50 þús. kr. Hinsvegar
hefir fiskurinn orðið stórum
minni. Minnkun fiskmagnsins
stafar eingöngu af því, hversu
fiskveiðin við fjörðinn brást al-
varlega. Þrátt fyrir þetta hefir
félagið haft til sölumeðferðar
mun meiri fisk en árið áður sam-
anborið við heildarfiskafla við
fjörðinn þessi tvö ár.
Fjárhagsafkoma félagsmanna
hefir almennt verið mjög erfið á
árinu. Bændur hafa átt við ó-
venjulega erfiða heyskapartíð að
stríða og þar af leiðandi haft
mikinn tilkostnað með öflun
heyja, sem hafa þó reynzt mjög
léleg, og þeir því orðið að kaupa
óvenjulega mikinn fóðurbæti. Sjó-
menn hafa haft fast að helmingi
minni afla en næsta ár á undan,
en tilkostnað svipaðan.
Verkamenn hafa átt við mikið
atvinnuleysi að stríða, sem er
bein afleiðing af erfiðleikum at-
vinnuveganna. Sökum þessara
örðugleika hafa nokkrar nýjar
skuldir myndazt við félagið, og
nemur sú skuldaaukning alls að
frádregnu því, sem afborgað hef-
ir verið af eldri skuldum, tæpum
14 þús. kr. Er upphæð þessi von-
um minni, þegar tekið er tillit til
hins slæma árferðis. Félagið
sjálft hefir orðið fyrir allmiklum
skaða á árinu af völdum jarð-
skjálfta og sjávargangs í hérað-
inu. Hlýtur óáran þessi og óhöpp
að hafa skaðleg áhrif á afkomu
félagsmanna og félagsins; hefir
sjóskaði félagsins sjálfs verið
metinn kr. 28,500.00, en jarð-
skjálftaskaði þess kr. 18.600.00.
Fjárhagsafkoma félagsins út á
við hefir orðið sú, að skuldir þess
hafa aukizt um 276 þús. kr., sem
stafar af því, að félagið hefir
aukið vörubirgðir um 254 þús.
kr., aukið verðbréfaeign um 39
þús. kr. og auk þess aukið fast-
eignir að töluverðum mun.
I ársbyrjun voru félagsmenn
samtals 2177, en í árslok 2258 og
hefir því félagatalan liækkað á
árinu um 81.
Sjóðeignir.
1. jan. 31. des.
Kr. Kr.
Stofnsjóður 981.112 1.067.128
Samlagsstofnsj. 16.956 26.214
Varasjóður 390.467 463.867
Fyrningars j óður 163.399 190.696
Byggingarsjóður 46.666 56.868
Sambandsstofnsj. 149.993 168.992
Menningarsj óður 26.376
Sjóðir til að mæta
skuldatöpum 113.266 142.280
Innstæða Innlánsd. 397.606 396.688
Innieignir félagsm.
í reikningum 242,810 216.650
Brauðgerðin
hefir framleitt brauð fyrir kr.
79.167.00.
i maímánuði tók nýr brauö-
gerðarmeistai'i, Sigurður Bergs-
son, við forstöðu brauðgerðarinn-
ar; er hann ungur maður, en hef-
ir aflað sér mikillar kunnáttu í
starfsgrein sinni, enda hefir hann
reynzt prýðilega við starf sitt.
Smjðrlíkisgerðln
hefir framleitt á árinu 124,250
kg. af smjörlíki og bökunarfeiti,
sem selt hefir verið fyrir kr.
151.248.00. — Framleiðslan hefir
orðið 16,328 kg. meiri en árið
1933. — Á miðju árinu tók
smjörlíkismeistari Otto E. Niel-
sen við forstöðu verksmiðjunnar.
Er hann hér að góðu kunnur áð-
ur, því hann veitti verksmiðjuimi
forstöðu fyrsta starfsár hennar.
Hefir framleiðsla verksmiðjunnar
aukizt mikið, síðan Nielsen tók
við forstöðu hennar, og er nú
borðsmjörlíM verksmiðjunnar,
»Gula bandið« og »Flóra«, búið
SSffSfSlfffSflffiSfifflSii
»• HH
— nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi
kaffibæti, ekkert vatn. Pess vegna er
Freyju-kaffibætisduft drýgst og bezt
og þó ódýrara en kaffibætir í stöng-
um. Notið það bezta, sem unnið erí
landinu.